Skessuhorn


Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 20166 Afsökunarbeiðni SKESSUHORN: Af gefnu til- efni vill ritstjóri Skessuhorns koma eftirfarandi á framfæri við hlutaðeigandi viðbragðsaðila sem voru á vettvangi banaslyss sem varð í Ólafsvíkurhöfn síð- degis miðvikudaginn 17. febrú- ar síðastliðinn: „Fyrir tilviljun var blaðamaður á vegum Skessuhorns staddur nærri þeim vettvangi sem slysið varð. Sýnt þykir að viðkom- andi sýndi ekki þá tillitssemi og nærgætni sem vænst er að starfs- menn blaðsins geri við erfiðar að- stæður sem þessar. Myndavél var m.a. brugðið á loft þegar það átti engan veginn við. Þetta harma ég fyrir hönd Skessuhorns, enda gegn öllum siðareglum okkar og fjölmiðla almennt að sýna ekki skilyrðislausa tillitssemi á erfið- um augnablikum. Allir hlutaðeig- andi eru beðnir afsökunar. Reynt hefur verið að útiloka að slíkt geti endurtekið sig.“ -mm Ruddu ófæra vegi fyrir sjúkrabílinn REYKHÓLASV: Að morgni síðasta sunnudags var óskað eft- ir aðstoð læknis til að sinna veiku barni vestast í Reykhólasveit. Næsti læknir er alla jafna í Búð- ardal og ók hann af stað ásamt bráðaliðum á sjúkrabíl. Til að komast á leiðarenda þurfti að fara um Svínadal og þegar vest- ar var komið um bæði Hjalla- háls og Ódrjúgsháls. Mikill snjór var í Reykhólasveitinni þennan morgun og var björgunarsveitin Heimamenn á Reykhólum beð- in að fylgja sjúkrabílnum. Fylgdu sjúkrabílnum fjórir björgunar- sveitarmenn en sökum slæmr- ar færðar var kallað eftir frek- ari aðstoð vegagerðarmanns sem ók í broddi fylkingar með snjó- blásara. Komst fylkingin að lok- um á leiðarenda og barnið komst undir læknishendur og var flutt á heilsugæslustöðina í Búðardal. Allt fór vel að lokum, veikindi barnsins reyndust ekki jafn alvar- leg og talið var í fyrstu. Þurfti því ekki að flytja barnið á sjúkrahús og sneri fjölskyldan heim sam- dægurs. –kgk Áréttað vegna Egilsgötu 11 BORGARNES: Í frétt í síð- asta Skessuhorni var sagt frá áformum um að byggja hæð ofan á Egilsgötu 11 í Borgarnesi. Ónákvæmni gætti í fréttinni og vildi Jónína Erna Arnardótt- ir formaður skipulagsnefndar Borgarbyggðar koma á framfæri eftirfarandi athugasemd: „Frétt- in er skrifuð eins og sveitarstjórn hafi samþykkt framkvæmdina, en aðeins var verið að samþykkja að hefja skipulagsvinnuna við hækkun hússins, sem eins og við vitum er nokkurt ferli og íbú- ar geta þar haft áhrif á.“ Þetta áréttist hér með. -mm Heiðin lokuð í tvo sólarhringa VESTURLAND: Sjö umferð- aróhöpp urðu í umdæmi Lög- reglunnar á Vesturlandi í liðinni viku, þar af eitt dauðaslys er bíll fór í Ólafsvíkurhöfn, eins og sagt er frá á forsíðu. Nokkurn óveð- urshvell gerði um síðustu helgi með tilheyrandi snjókomu, skaf- renningi og hríðarbyl. Tveir bílar, fólksbíll og jeppi, fóru útaf á Holtavörðuheiðinni og var heiðinni lokað í framhald- inu og var hún lokuð í um tæpa tvo sólarhringa en umferð var vísað á veginn um Laxárdals- heiði og Bröttubrekku en sú leið hélst opin fyrir vel búna bíla. Ekkert lát er á aðstoðarbeiðn- um erlendra ferðamanna sem eru að festa bíla sína í snjó víðs vegar í umdæminu. Vinsælustu festustaðirnir þessa vikuna voru Hítardalur, Öndverðarnesveg- ur, Langavatnsvegur, Norðurár- dalur, Garpadalsvegur við Gils- fjörð, Vatnaleið, Skógarstrand- arvegur, Snæfellsnesvegur við Vegamót og Útnesvegur. Lög- reglan ræsti út björgunarsveit í einu tilvikinu þar sem ökumaður var talinn vera í hættu en í hin- um tilvikunum voru allir í góðu lagi og var viðkomandi því kom- ið í samband við þjónustuað- ila sem að taka að sér að draga upp bíla og aðstoða ökumenn í vandræðum. Loks segir í dagbók lögreglu að einn ökumaður hafi verið tekinn fyrir meintan akst- ur undir áhrifum fíkniefna. Til- kynnt var um tvo ökumenn sem taldir voru ölvaðir en við athug- un kom í ljós að þeir voru báðir í lagi. -mm Spurt um ávinning af sameiningu heilbrigðisstofnana LANDIÐ: Elsa Lára Arnar- dóttir, þingmaður Framsókn- arflokks í Norðvesturkjördæmi, beindi í síðustu viku spurning- um til Kristjáns Þórs Júlíus- sonar heilbrigðisráðherra um ávinning af sameiningu heil- brigðisstofnana á landsbyggð- inni. Elsa Lára óskar eftir upp- lýsingum um sparnað af sam- einingu eftirtalinna heilbrigð- isstofnana: Heilbrigðisstofn- unar Vesturlands, Heilbrigðis- stofnunar Vestfjarða og Heil- brigðisstofnunar Norðurlands. Elsa Lára spurði ráðherra einn- ig hvort rekstrargrundvöllur þessara heilbrigðisstofnana hafi verið styrktur frá sameiningu og eftir atvikum hvernig það sundurliðast eftir fyrrgreindum stofnunum. Samkvæmt þing- skaparlögum hefur ráðherra 15 þingdaga til að svara fyrirspurn- inni. –mm Verslunum sem hafa opið allan sól- arhringinn hefur fjölgað á síðustu árum. Á Vesturlandi hefur Olís í Borgarnesi haft þann háttinn á í nokkur ár og nú hefur verslun 10 - 11 á Akranesi bæst í hópinn. „Við byrjuðum á þessu 4. janúar en það var svo sem ekkert auglýst strax,“ segir Jósef Róbertsson verslunar- stjóri 10 - 11 á Akranesi í samtali við Skessuhorn. „Þetta byrjaði því ró- lega hjá okkur en er alltaf að aukast,“ bætir hann við. Sólarhringsopnun er í flestum 10 - 11 verslunum lands- ins. Á Akranesi er þó einungis opið í lúgunni, frá klukkan 23:30 á kvöldin og fram á morgun. Jósef segir við- skiptavini ánægða með þjónustuna. „Það er meira að gera um helgar en aðrar nætur er alltaf einhver reyt- ingur. Þetta hefur til dæmis mælst vel fyrir hjá þeim sem vinna á næt- urvöktum. Við erum alltaf að reyna að koma til móts við viðskiptavini og stefnan er að bjóða upp á þessa þjónustu fyrir nátthrafnana.“ Fram til þessa hefur einn starfs- maður staðið næturvakt í verslun- inni en Jósef segir að líklegt sé að því verði breytt. „Grillið er því lok- að á nóttunni um helgar en það er hægt að fá pylsur, franskar og til- búnar samlokur hjá okkur. Í sum- ar munum við líklega fjölga á vakt- inni og þá verður grillið einnig haft opið.“ grþ Sólarhringsopnun hjá 10 - 11 á Akranesi Jósef Róbertsson verslunarstjóri 10 - 11 Akranesi. Í Brekkubæjarskóla á Akranesi eru nú reglulega haldnar brunaæfing- ar, en ráðgert er að þær verði a.m.k. fjórar. Æfingarnar eru undirbúnar, þ.e. nemendur fá að vita nákvæm- lega hvenær þær verða og geta verið tilbúnir með skó og útiföt. Tilgang- ur æfinganna er að velja öruggustu útgönguleiðina og fara út á sem skemmstum tíma komi til eldsvoða. Allir fara á fyrirfram ákveðinn stað á skólalóðinni. Fylgst verður með því hvort allir séu á réttum stað og hvort einhverja vanti. Viðbragðs- og rýmingaráætlanir skólans verða metnar og endurbættar eftir atvik- um. Á heimasíðu skólans segir að með æfingunum sé einnig verið að hugsa til þess að styrkja nemend- ur og starfsfólk sem lenti í eldsvoð- anum haustið 2014 en hjá mörg- um hefur borið á kvíða og hræðslu við að heyra í brunabjöllunni. For- eldrum er velkomið að vera með börnum sínum á æfingunum ef þeir telja ástæðu til þess. Næstu æfing- ar verða fimmtudaginn 25. febrúar, miðvikudaginn 2. mars og þriðju- daginn 8. mars. Æfingarnar hefjast allar með því að kveikt er á bruna- bjöllunni kl. 8.30. mm Halda röð brunaæfinga í Brekkubæjarskóla Nemendur koma sér fyrir úti á skilgreindum stöðum ef til brunaútkalls kemur. Ljósm. Brekkubæjarskóli á Facebook.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.