Skessuhorn - 24.02.2016, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2016 15
Þeir sem geta sótt um styrk eru einstaklingar
og lögaðilar sem:
stunda framleiðslu á vörum sem falla
undir c-bálk íslensku
atvinnugreinaflokkunarinnar ÍSAT2008.
Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands.
flytja þurfa framleiðsluvöru sína meira
en 245 km frá framleiðslustað á
innanlandsmarkað.
Opnað verður fyrir umsóknir 1. mars og
er umsóknafrestur til og með 31. mars.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu
Byggðastofnunar og í síma 455-5400.
Samkennd
- að styrkja sig innan frá
Á námskeiðinu er tvinnað saman gjörhygli og samkennd, byggt er á þekkingu á því hvernig hugurinn hefur þróast
og hvernig hann starfar. Þetta er ný meðferðarleið sem þegar hefur verið sýnt fram á að geti hjálpað okkur við að
fást við streitu, sjálfsgagnrýni og erðar tilnningar eins og sektarkennd, skömm, reiði, kvíða og depurð.
Innifalið: Ljúffengur og hollur matur, skipulögð dagskrá, hugleiðsla og jóga, aðgangur að sundlaugum, baðhúsi og
líkamsrækt. Einnig nudd og val um ýmsar meðferðir.
Verð pr. einstakling með gistingu er 130.000 kr.
í einbýli en 123.500 kr. í tvíbýli.
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja ea þann styrk sem býr innra með okkur öllum.
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags
Íslands
Nánari upplýsingar og skráning á heilsustofnun.is
eða í síma 483 0300.
13.-20.
2016
mars
7 daga námskeið dagana 13.-20. mars 2016
Á dögunum var skrifað undir sam-
starfssamning milli Knattspyrnu-
deilda Skallagríms og Fram. Munu
liðin senda sameiginleg lið til þátt-
töku í mótum á vegum Knattspyrnu-
sambandsins í 4. flokki kvenna og
3. flokki karla. Hrannar Leifsson,
framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar Skallagríms, segir samstarf-
ið koma báðum félögum til góða.
Það geri Fram kleift að senda þrjú
lið til keppni í Íslandsmótinu í báð-
um flokkunum sem um ræðir. „Það
hentaði þeim því mjög vel að fá okk-
ar iðkendur inn,“ segir hann en bæt-
ir því við að 4. flokkur kvenna sé
einnig í samstarfi við Aftureldingu.
En samstarfið kemur sér ekki síst
vel fyrir unga og efnilega knatt-
spyrnumenn í Borgarnesi. „Þetta
gerir okkur kleift að gefa okk-
ar iðkendum kost á að spila ell-
efu manna bolta í stað sjö manna
bolta. Einnig fá okkar iðkendur
aðgang að fyrsta flokks æfingaað-
stöðu,“ segir Hrannar. „Stelpurn-
ar hafa til dæmis verið að æfa einu
sinni í viku í Egilshöll sem kemur
öllum gríðarlega vel,“ bætir hann
við. Hrannar telur samstarfið mik-
ið gæfuspor sem sé strax farið að
bera ávöxt. „Ég held að þetta sé
mjög jákvætt skref og góð leið til
að koma okkar iðkendum skref-
inu lengra í getu og í átt að meist-
araflokki. Eftir að samstarfið hófst
hafa til dæmis tveir strákar úr 3.
flokki, Brynjar Snær Pálsson og
Elís Dofri G Gylfason, verið vald-
ir til æfinga með yngri landsliðum
Íslands. Það virðist vera auðveld-
ara að komast á radarinn hjá KSÍ
ef leikið er í Reykjavíkurmótinu og
í ellefu manna bolta og því ánægju-
legt að okkar iðkendur hafi kost á
því,“ segir Hrannar. kgk
Skallagrímur hefur samstarf við
Fram um yngri flokka
Annað kvöld, fimmtudaginn 25.
febrúar klukkan 20, munu nem-
endur í unglingadeild Brekkubæjar-
skóla frumsýna leikritið Græna hús-
ið í Bíóhöllinni á Akranesi. Um er
að ræða frumsamið verk með tón-
list, söng og dansi. Höfundar þess
eru Heiðrún Hámundadóttir og
Samúel Þorsteinsson kennarar. Íris
Ósk Einarsdóttir er danshöfundur.
„Græna húsið er saga um unglinga
sem þurfa að aðstoða eldri konu
þegar hún lendir í vandræðum,“
segir Samúel en vill ekkert frekar
gefa upp um efnistök í verkinu. Þau
eigi að koma áhorfendum á óvart.
Öllum nemendum 8., 9. og 10.
bekkjar var gefinn kostur á að taka
þátt í uppfærslunni. Þeir sem sótt-
ust eftir því fengu svo val um það
hvort þeir vildu stíga á svið, leika
undir með hljómsveitinni eða
koma að uppsetningunni með öðr-
um hætti. Samúel segir að krakk-
arnir hafi sýnt verkefninu mikinn
áhuga. „Það eru rosalega margir
sem taka þátt í þessu. Um 60 krakk-
ar munu stíga á svið og alls koma að
uppsetningunni um 90 nemendur.
Það eru um tveir þriðju allra nem-
enda í unglingadeild skólans,“ seg-
ir hann. „Krakkarnir eru búnir að
leggja mikið á sig því þetta er mik-
il vinna, en mjög skemmtileg,“ bæt-
ir hann við.
Ferlið hófst fyrir áramót þegar
krakkarnir buðu sig fram til þátt-
töku og funduðu um verkið. Æfing-
ar hófust svo strax eftir jól og Samú-
el segir allt vera að smella saman og
lofar góðri skemmtun. „Ég hvet alla
til að mæta því þetta verður svaka-
lega flott sýning.“
Áhugasömum er bent á að miða-
sala er í fullum gangi á skrifstofu
Brekkubæjarskóla.
Krökkunum
boðið í súpu
Á sunnudag var mikill æfingadag-
ur hjá aðstandendum leikritsins.
Æfingar hóf-
ust klukkan tíu
að morgni og
lauk ekki fyrr en
tólf tímum síðar.
Foreldrar barna
sem koma að
sýningunni datt í
hug að sjá til þess
að börnin fengju
hollan og góð-
an kvöldverð svo þau hefðu orku
til loka æfingar. Varð kjúklingasúpa
fyrir valinu. Einar Ólafsson kaup-
maður gaf allt hráefni í súpuna af
sínum rausnarskap, en hann hefur
einnig stutt við bakið á sýningunni
með auglýsingakaupum. Guðrún
Lilja Hólmfríðardóttir eldaði súp-
una og naut aðstoðar tveggja kenn-
ara og foreldra við matseldina og
frágang.
Tífalda uppskrift þurfti til að
metta allan hópinn sem kemur að
sýningunni, um 90 manns eins og
áður segir. Gátu allir haldið áfram
æfingum, saddir og sælir að loknu
þessu frábæra framtaki.
kgk/ Ljósm. Sella Andrésdóttir.
Nemendur Brekkubæjarskóla frumsýna Græna húsið
Einar Ólafsson kaupmaður gaf hráefni í tífalda uppskrift
af kjúklingasúpu sem matreidd var fyrir aðstandendur
leikritsins. Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir (í miðju) var að
tína til hráefnið þegar Skessuhorn bar að garði. Með henni
á myndinni eru Elínborg Llorens Þórðardóttir og Lóa Hauks-
dóttir, starfsmenn Einarsbúðar. Ljósm. grþ. Súpan féll vel í kramið hjá nemendum.
Söngur og dans leika veigamikið hlutverk í sýningunni. Frá æfingu á Græna húsinu í Bíóhöllinni í síðustu viku.