Skessuhorn - 24.02.2016, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2016 17
nesi síðustu 18 ár ásamt fjölskyldu
sinni og þar líður þeim vel. „Samfé-
lagið þar hefur tekið okkur mjög vel.
Við eigum saman fjögur börn sem
hafa gengið í gegnum menntakerf-
ið á Akranesi og okkur hefur fundist
mjög til þess koma hvað samfélagið
heldur vel utan um börn og unglinga
og sinnir þeim vel. Honum líkar
einnig vel við umhverfið á Skagan-
um og nýtir kvöldin til gönguferða
þegar tækifæri gefst til, segir gott að
fara í gönguferð á Langasand til að
taka allt úr sér fyrir svefninn. Hann
segir það hafa sína kosti og galla að
þurfa að keyra upp á Akranes eftir
vinnu. „Það vinnst úr manni á leið-
inni heim. Reyndar eru tveir af strák-
unum mínum í skóla í Reykjavík og
við keyrum saman. Það fer auðvitað
drjúg stund í að keyra á milli en það
er viðleitni hjá okkur að gera gott úr
þessu. Nú erum við fleiri að keyra
saman á milli, þannig að maður er
allavega í samfloti með hluta af fjöl-
skyldunni á meðan.“
Ætlaði ekki í lögfræði
Saksóknarinn er sáttur með starfs-
val sitt þó hann hafi upphaflega
alls ekkert ætlað sér að verða lög-
fræðingur. „Það var alveg víðsfjarri
mér. Ég var á stærðfræði- og eðlis-
fræðibraut í menntaskóla og ætlaði í
verk- og raungreinadeild háskólans.
Það var enginn snertiflötur við lög-
fræði í þeim greinum sem ég valdi
mér sem valfög,“ segir hann. „Síð-
an gerðist það að ég tek stærðfræði-
greiningu sem valfag og náði engri
tengingu við fagið. Þetta var fag sem
var nokkurs konar fallfag í háskólan-
um og ég vissi að það stóð í mörg-
um. Ég taldi mig því á rangri hillu
og ákvað að prófa lögfræðina einn
vetur,“ heldur hann áfram. Hann
segir helling hafa gengið á í lögfræð-
inni og á köflum hafi það verið eins
og að vera staddur í ljóðinu um tíu
litla negrastráka. 180 manns byrjuðu
en alltaf heflaðist úr hópnum fram
á vorið. „Svo er það þannig að þeg-
ar maður nær prófunum, þá finnst
manni maður einhvern veginn vera
skyldugur til að halda áfram. Mað-
ur hefur lagt þetta á sig og aðrir sem
mikið reyndu ekki komist áfram, þá
prófar maður næsta ár á eftir.“
Ólafur vann allan tímann með
náminu og þegar hann var á loka-
ári keypti hann sér íbúð í Grafar-
vogi. „Hún var tilbúin undir tré-
verk og ég kláraði hana á meðan ég
var að læra. Þetta gekk alveg ágæt-
lega.“ Í janúar 1989 fór Ólafur í
starfsnám hjá sýslumannsembætt-
inu í Hafnarfirði. Hann segir áhug-
ann á þessu sviði hafa vaknað þar.
„Þetta var tveggja mánaða náms-
vist sem teygðist aðeins á. Ég vann
fram að útskrift og svo bættust við
sjö ár til viðbótar,“ segir hann. Hann
segist því hafa verið viðloðandi lög-
reglumál frá 1989. „Það er margt
sem hefur farið í gegnum hendurnar
á manni á þessum tíma. Ég held að
það færi mér eitthvað illa að starfa
hinum megin við borðið sem verj-
andi,“ segir hann.
Íþyngjandi ákvarðanir
Ólafur segir oft vera létt yfir vinnu-
staðnum þó að undirtónninn sé svo-
lítið þungur. „Fólk reynir að þjappa
sér saman en út á við getur þetta ver-
ið erfitt. Við erum að taka ákvarð-
anir sem alltaf eru mjög íþyngjandi
fyrir einhvern. Ef það er saksókn
BÚÐU VEL
UM GESTINA
ÞÍNA
Verið velkomin í verslun okkar
að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8:30 - 17:00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Hafðu samband við sölufólk okkar í síma 580 3900 sem aðstoðar þig með ánægju.
Fastus býður upp á vandað lín fyrir hótel, ferða-
þjónustur og heilbrigðisstofnanir á sanngjörnu verði.
Félagar í Fornbílafjelagi Borgar-
fjarðar vinna nú að endurbótum
á skemmunni sem upphaflega var
byggð sem sláturhússrétt í Brák-
arey. Félagið hefur húsið til afnota,
en eigandi þess er Borgarbyggð.
Þak skemmunnar lekur hins veg-
ar talsvert og er nú verið að klæða
plastdúk undir það þannig að vatn
hripi ekki niður á bílana, heldur
renni niður meðfram veggjunum.
Að sögn félagsmanna vinnst verkið
vel, en hér er um bráðabirgðaaðgerð
að ræða. Drauminn segja þeir vera
þann að félagið eignist húsið, en þá
yrði farið í varanlegar endurbætur á
því. Eftir að búið er að klæða dúk-
inn er fornbílum af ýmsum gerðum
komið þar undir í öruggt skjól fyrir
vatni og vindum.
mm
Hvítum plastdúk er komið undir þakið sem varnar því að vatn leki yfir bílana.
Trélistar sniðnir niður en þeim er komið í loftið og plastdúkurinn festur á þá.
Endurbætur á gömlu sláturhússréttinni
þá á að sækja einhvern til saka sem
á þá mögulega yfir sér fangelsisdóm
en ef það er ekki saksótt, þá finnst
brotaþolanum það ekki alltaf sann-
gjarnt. Það er erfitt að finna ánægða
viðskiptavini í þessu,“ segir hann.
Aðspurður hvað sé framundan
segir hann að á döfinni sé að koma
embættinu á rétt ról, að keppast við
að klára allt sem snýr að hruninu og
að ná jafnvægi í öllum málaflokkum.
„Við ætlum að nýta þessa þekkingu
og reynslu til að keyra þetta dæmi
áfram og viljum ná einingu sem
vinnur hratt og örugglega en gætir
samt að því að gæðin séu í lagi. Svo
er eilífðar keppikefli að þetta taki
ekki allt of langan tíma, ég er orð-
inn óþreyjufullur að ná því marki.“
Ólafur segist vongóður um að það
takist enda sé lögð áhersla á að fólk
skipuleggi tímann sinn vel. „Venju-
leg afbrot eru afmarkaðri en efna-
hagsbrotin. Það komu þrír starfs-
menn frá ríkissaksóknara yfir til
okkar sem mynda ákveðið bakstykki
í þeim málaflokki. Þeir hafa innleitt
það verklag sem komið var á þau
mál hjá ríkissaksóknara.“ Níu lög-
fræðingar vinna að þessum málum
en alls komu 170 mál inn í embættið
frá ríkissaksóknara við breytingarn-
ar um áramótin. „Þessi hópur er að
glíma við það. Svo er streymi í þessu,
ný mál koma inn en það er verið að
ná þessu hægt og rólega saman svo
við náum þessu í jafnvægi,“ segir
Ólafur Þór Hauksson að endingu.
grþ
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari.
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
Allt í gleri
ÚTI OG INNI
M
ynd: Josefine Unterhauser