Skessuhorn - 24.02.2016, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2016 29
Grundarfjörður -
miðvikudagur 24. febrúar
Kvöldguðsþjónusta í Grundar-
fjarðarkirkju kl. 20. Róleg stund
tónlistar, bænar, íhugunar og
altarissakramentis. Allir velkomnir.
Stykkishólmur -
fimmtudagur 25. febrúar
Bókahátíðin Júlíana, hátíð sögu og
bóka verður haldin í Stykkishólmi
dagana 25-28. febrúar. Viðfangs-
efni hátíðarinnar verður „En hvað
það er skrýtið“. Stefnt er að fjöl-
breyttri dagskrá sem hefst form-
lega í Vatnasafninu 25. febrúar og
rekur hver viðburðurinn annan
næstu þrjá daga. Dagskrána í heild
má finna á Facebook síðu hátíðar-
innar: Júlíana hátíð sögu og bóka.
Stykkishólmur -
fimmtudagur 25. febrúar
Tónfundir í sal tónlistarskólans kl.
18:45 og 19:30. Nemendur Haf-
þórs Smára koma saman kl. 18:45
og spila á trommur og önnur slag-
verkshljóðfæri hver fyrir annan,
fyrir foreldra sína og aðra gesti.
Nemendur Símonar Karls leika á
tréblásturshljóðfæri kl. 19:30. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
Akranes -
fimmtudagur 25. febrúar
ÍA fær Fjölnir í heimsókn í 1. deild
karla í körfuknattleik. Leikurinn
verður í íþróttahúsinu við Vestur-
götu og hefst kl. 25. febrúar.
Snæfellsbær -
fimmtudagur 25. febrúar
Heimsklassa gítarleikarinn Björn
Thoroddsen mætir í Frystiklefann
ásamt vestfirsku söngstjörnunni
Önnu Sig. kl. 20. Bjössi og Anna
syngja og spila tónlistarperlur
úr öllum áttum, íslenskt, erlent,
Bítlarnir, Rolling Stones og margt
fleira. Eitthvað sem tónlistarunn-
endur ættu ekki að missa af.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 25. febrúar
OPEN MIC í Landnámssetri kl.
20. Öllum velkomið að prófa eða
koma og njóta.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 25. febrúar
Prjóna-bóka-kaffi í bókhlöðunni
kl. 20. Kvöldstund í bókhlöðu
Snorrastofu við hannyrðir,
bókaspjall og kaffisopa. Gestir
eru hvattir til að hafa með sér
hugmyndir og uppskriftir að
hannyrðum og hvers konar hand-
verki. Einnig hafa kvöldin reynst
góður vettvangur fyrir hvers
kyns frásagnir og kynningar á
hugðarefnum. Safnið er opið til
útlána og allir eru hjartanlega
velkomnir.
Stykkishólmur -
föstudagur 26. febrúar
Tónfundur Alexöndru og Lászlós
í sal tónlistarskólans kl. 18. Á
þessum tónfundi leika nem-
endur Alexöndru á tréblásturs-
hljóðfæri og nemendur Lászlós
á píanó. Flutt verður fjölbreytt
og skemmtileg tónlist úr ýmsum
áttum.
Stykkishólmur -
laugardagur 27. febrúar
Í tilefni af degi tónlistarskólanna
býður Tónlistarskóli Stykkishólms
til tónleika í Stykkishólmskirkju
kl. 14. Flutt verður vönduð,
skemmtileg og frumleg tónlist úr
öllum áttum. Eftir þessa tónleika
verða atriði skólans á NÓTUNNI
2016 valin. Ókeypis aðgangur og
allir hjartanlega velkomnir. For-
eldrafélag lúðrasveitarinnar verður
með kaffisölu í safnaðarheimilinu
að tónleikum loknum. Ágóðinn fer
í ferðasjóð.
Borgarbyggð -
laugardagur 27. febrúar
Skallagrímur mætir Breiðablik í
1. deild kvenna í körfuknattleik.
Leikurinn verður í íþróttahúsinu í
Borgarnesi og hefst kl. 16:30.
Borgarbyggð -
laugardagur 27. febrúar
Mr. Skallagrímsson á Sögulofti í
Landnámssetri Borgarnesi kl. 20.
Benedikt Erlingsson aldrei betri.
Ekki missa af, eða bara koma aftur.
Borgarbyggð -
sunnudagur 28. febrúar
Helgihald í Reykholtskirkju kl. 14.
Þriðji sunnudagur í föstu.
Á döfinni
vsvNýfæddir
Vestlendingar
9. febrúar. Drengur. Þyngd 3.550
gr. Lengd 48 sm. Foreldrar: Sigríður
Ása Friðriksdóttir og Ian Davis
Jeffs, Vestmannaeyjum. Ljósmóðir:
Ásthildur Gestsdóttir. Drengurinn
hefur fengið nafnið Erik Logi og er
hér með Liam Daða stóra bróður.
16. febrúar. Drengur. Þyngd
4.280 gr. Lengd 56 sm. Foreldrar:
Heiðrún Hulda Hallgrímsdóttir
og Birgir Tryggvason, Ólafsvík.
Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir.
17. febrúar. Stúlka. Þyngd 3.615
gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Kristín
Samúelsdóttir og Guðmundur
Ólafs Kristjánsson, Reykjavík.
Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir.
18. febrúar. Drengur. Þyngd
4.305 gr. Lengd 55 sm. Foreldrar:
Steinunn Guðbjörg Torfadóttir
og Guðbjartur Hólm Ólafsson,
Hólmavík. Ljósmóðir: Lóa
Kristinsdóttir.
19. febrúar. Drengur. Þyngd
4.145 gr. Lengd 55 sm. Foreldrar:
Elísabet Stefánsdóttir og Jökull
Þór Jónsson, Akranesi. Ljósmóðir:
Jóhanna Ólafsdóttir.
Sveitakeppni
ríflega hálfnuð
AKRANES: Félagar í Bridds-
félagi Akraness hittast öll fimmtu-
dagskvöld. Nú er aðalsveita-
keppni félagsins ríflega hálfnuð,
með þátttöku sex sveita. Nokkr-
ar sveiflur hafa verið í gengi lið-
anna, en líkt og eftir fyrsta keppn-
iskvöldið leiðir þó enn sveit Ein-
ars Guðmundssonar með 60
stig. Með Einari spila Sigurgeir,
Magnús og Leó. Í öðru sæti er
sveit Tryggva Bjarnasonar með
54 stig, en auk hans spila í sveit-
inni Þorgeir, Karl, Bjarni og Árni.
Í þriðja sæti er nú sveit Guð-
mundar Ólafssonar sem reyndar
skaust á toppinn eftir tvö kvöld,
en tapaði fyrir Einari og félögum
21-9. Með Guðmundi spila Hall-
grímur, Ingi Steinar og Óli Grét-
ar. -mm
Dóra og
drengirnir unnu
BORGARFJ: Sveitakeppni
Briddsfélags Borgarfjarðar lauk
á mánudagskvöldið. Aðeins var
einni umferð ólokið svo keppn-
inni lauk um mitt kvöld og á eft-
ir var leikinn stuttur tvímenning-
ur. Í lokaumferðinni var það sveit
Dóru og drengjanna; Dóra Ax-
elsdóttir, Rúnar Ragnarsson, Sig-
urður Már Einarsson og Stefán
Kalmansson, sem sat yfir. Forskot
þeirra var þvílíkt að sigurinn var
löngu tryggður og því var keppn-
in um annað sætið í algleymingi
en megnið af hinum sveitunum
áttu tölfræðilegan möguleika á
silfrinu. Sveit Tungnamanna með
þeim Davíð Sigurðssyni, Sindra
Sigurgeirsyni, Agli Kristinssyni,
Sigríði Arnardóttur, Sigurði Ein-
arssyni og fleirum átti möguleika,
sem og sveit Pörupiltanna; Jón H
Einarsson, Ingimundur Jónsson,
Anna Einarsdóttir, Heiðar Bald-
ursson og Logi Sigurðssson. Voru
þær í öðru og þriðja sæti fyrir
lokaleikinn og mættust innbyrðis
í hörkuleik. Pörupiltarnir kölluðu
inn liðsmann sem verið hafði í
vinnu austur í sveitum, Loga Sig-
urðsson, og Tungnamenn bættu
við heimamanni sem hefur lítið
sést við spilaborðið upp á síðkast-
ið, Hauk Bjarnason. Nú skyldi allt
lagt í sölurnar. Fóru leikar svo að
Pörupiltarnir höfðu nauman sig-
ur og skutust upp fyrir Tungna-
menn en þá voru það Kolhrepp-
ingar, Sigurður Helgason, Guð-
mundur Helgason, Gísli Þórðar-
son og Ólafur Sigvaldason, sem
nýttu tækifærið, rótburstuðu sína
andstæðinga og hirtu annað sæt-
ið. -ij
Heimamenn
slakir á Vestur-
landsmóti
VESTURLAND: Helgina 12.
og 13. febrúar fór fram Vestur-
landsmót í sveitakeppni og gaf
það keppnisrétt á Íslandsmót. Til
leiks mættu fjórar sveitir til að
keppa um réttinn og þrjár gesta-
sveitir sem voru í æfingabúðum.
Leikar fóru svo að gestasveitirnar
léku heimamenn oft á tíðum grátt
og röðuðu sér í efstu sætin. Sig-
urvegarar urðu liðsmenn Sölu-
félags Garðyrkjumanna Í öðru
sæti urðu liðsmenn Vesturhlíð-
ar. Í þriðja sæti urðu loks heima-
mennirnir Guðmundur Ólafsson,
Hallgrímur Rögnvaldsson, Karl
Alfreðsson og Tryggvi Bjarnason
og urðu því Vesturlandsmeistarar
þrátt fyrir þriðja sætið.
-ij
Húsbíll til sölu
Til sölu Ford Econoline, árgerð
1998, keyrður 180.000 km. Bíll í
góðu lagi, en smá ryð í kanti að
aftan. Góður bíll fyrir tvo. Verð-
hugmynd kr. 900.000,- eða tilboð.
Upplýsingar gefur Ágúst í síma
695-5740.
Hrossasíld til sölu
Til sölu söltuð síld fyrir hross. Upp-
lýsingar í síma 695-5740, Ágúst.
Konunglegt antik sófasett
Konunglegt antik sófasett, mjög
glæsilegt. Sófi með háu baki og
tveir stólar með örmum og tveir
stólar án arma. Vandfundið glæsi-
legt sett á 280 þúsund kr. Uppl. í
s: 696-2334 eða ispostur@yahoo.
com. Ath. hægt er að taka bakið af
sófanum fyrir flutning.
Mjög vönduð Rosewood vegg-
samstæða með bar
Óska eftir verðtilboði í mjög vand-
aða veggsamstæðu / stofuskáp frá
1988. Skápurinn er úr gegnheilum
rauðbrúnum við. Í skápnum eru
hillurnar og hurðirnar úr gleri með
lýsingu að ofan. Vinstra megin er
sjónvarpsskápur og í miðju hólfi er
fallegur bar með ljósi og speglum.
Lengd: 257 cm. Hæð: 200 cm. Dýpt:
54 cm. Óska eftir verðtilboði. Verð-
hugmynd: kr. 150 þús. Tölvupóstur:
fridmeyhelga5@hotmail.com, gsm.
867-6927 eða heimasími 431-1735.
Gefins eldhúsborð
Gefins eldhúsborð 80 cm x 1.20 cm
(hægt að stækka í 1.80 cm) og fjórir
stólar með stálfótum. Uppl. í síma
699-0466.
Óska eftir húsnæði
Hjón með 4 börn óska eftir hús-
næði á Hvanneyri eða nágrenni.
Þurfum lágmark 3 svefnherbergi.
Halldorholm@gmail.com.
Óskum eftir leiguhúsnæði
Við eru par sem erum komin á
sextugsaldur og erum að leita
að leiguhúsnæði eða íbúð með
yfirtöku lána til kaups á Akranesi
og nágrenni. Erum reglusöm og
göngum vel um. Heitum góðri
umgengni og skilvísum greiðslum.
Hafið samband í síma 849-9545 og
849-9525 eða í einkaskilaboðum
eða á gutti62@gmail.com.
Óska eftir lítilli stúdíóíbúð
Óska eftir mjög ódýrri stúdíó/
lítilli íbúð. Mikill kostur ef hún er
með sérinngangi en samt ekki föst
krafa. Óska eftir langtíma leigu
með leigusamningi fyrir húsaleigu-
bætur. Ég er mjög róleg miðaldra
kona og það væri mikill kostur ef
mjög róleg lítil gömul innikisa /
gæludýr séu leyfð. Gsm 867-6927.
Lítil íbúð óskast til leigu
23 ára maður óskar eftir að taka á
leigu litla íbúð í Borgarnesi frá 1
mars. Uppl. í síma 788-0424.
Óska eftir leiguhúsnæði
Leiguhúsnæði óskast með 3 til
4 herbergi. Skoðum alla stað-
setningu á Vesturlandi, t.d. Hvann-
eyri, Borgarnes, Grundarfjörð eða
Stykkishólm. hafsteinnsv@gmail.
com.
Óska eftir bát
Óska eftir um það bil fimm til
sjö tonna bát til leigu á strand-
veiðar í sumar. Upplýsingar í síma
695-2150, Guðmundur Karlsson.
Ýmislegt til sölu
Tilboð óskast
í: Hrærivél, 2
pönnur, raspvél,
skreiðarpressu,
lyftara og 40
feta gáma. Upp-
lýsingar gefur
Ágúst í síma
695-5740. Get
sent myndir.
Bakpoki
Higlander Discovery 85 ltr. bakpoki
til sölu. Ónotaður utan 2ja tíma
prufugöngu sem leiddi í ljós að
pokinn var of stór fyrir vænta
göngu eigandans. Til sölu á flottu
verði 25 þúsund kall eða svo. Uppl.
í síma 660-8240 eða gudsteinne@
simnet.is.
Markaðstorg Vesturlands
BÍLAR / VAGNAR / KERRUR
DÝRAHALD
HÚSBÚNAÐIR / HEIMILISTÆKI
LEIGUMARKAÐUR
TIL SÖLU
ÝMISLEGT
Getir þú barn
þá birtist það hér,
þ.e.a.s. barnið!
www.skessuhorn.is