Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Snæfells og Tindastóll mættust í
Domino‘s deild karla í körfuknatt-
leik síðastliðinn fimmtudag. Leikið
var norður á Sauðárkróki. Snæfells-
liðið fór heldur þunnskipað norður
í Skagafjörð, en vegna meiðsla og
veikinda voru aðeins sjö leikmenn á
skýrslu. Útlit var því fyrir að á bratt-
ann yrði að sækja gegn fullskipuðu
liði Tindastóls.
Snæfell byrjaði leikinn mjög vel,
tók frumkvæðið í upphafi og réði
lögum og lofum á vellinum. Var
sem heimamenn væru ekki tilbúnir
í slaginn, að undanskildum Darrel
Lewis, sem hélt þeim inni í leikn-
um. Heimamenn rönkuðu þó við sér
undir lok upphafsfjórðungsins, jöfn-
uðu metin og náðu síðan fjögurra
stiga forystu. Eftir það litu þeir aldrei
til baka, settu í fluggírinn og leiddu
með 19 stigum í leikhléi, 56-37.
Heimamenn héldu upptekn-
um hætti í síðari hálfleik. Snæfell
komst aldrei nær en sem nam 15
stigum. Tindastólsmenn hertu tök
sín á leiknum enn frekar í loka-
fjórðungnum og sigldu heim 29
stiga sigri, 114-85.
Austin Bracey var atkvæðamest-
ur í liði Snæfells með 33 stig og
fimm fráköst. Honum næstur kom
Sherrod Wright með 24 stig og
tók 14 fráköst. Þá skoraði Sigurð-
ur Þorvaldsson 15 stig og tók átta
fráköst.
Eftir tapið á föstudag situr Snæ-
fell í 9. sæti deildarinnar með 14
stig eftir 18 leiki, fjórum stigum á
undan næsta liði og átta stigum frá
fallsæti.
Næst tekur Snæfell á móti FSu á
morgun, fimmtudaginn 25. febrú-
ar. kgk
Þunnskipað lið Snæfells tapaði stórt
Mikið mæddi á Austin Bracey gegn
Tindastóli. Hann lék allar 40 mínútur
leiksins og skoraði 33 stig.
Mynd úr safni.
Það má búast við öllu þegar Vest-
urlandsslagur Skallagríms og ÍA fer
fram í körfuboltanum. Engu að síð-
ur komu úrslit leiksins sem spilaður
var á föstudagskvöldið í Borgarnesi
fremur á óvart. Skagamenn mættu til
leiks án Sean Tate að þessu sinni, en
hann hafði óskað eftir því við félagið
að fá frí til að fara heim til Banda-
ríkjanna til að vera viðstaddur jarð-
arför eins besta vinar síns. Stjórn og
þjálfarar ÍA samþykktu að Sean fengi
þetta frí og léku því án erlends leik-
manns. Fjarvera kappans kom þó
ekki að sök í leiknum þar sem ÍA
gerði sér lítið fyrir og vann granna
sína sannfærandi; 73-86. Skagamenn
léku gríðarlega vel þar sem þjálfar-
arnir fóru fremstir í flokki en Áskell
var klárlega maður leiksins með 30
stig og mörg þeirra á mikilvægum
augnablikum í leiknum. Fannar setti
trölla tvennu með 20 stig og 21 frá-
kast en hann gældi við þrennuna með
sex stoðsendingum. Liðsheild Skaga-
manna var góð og skóp það umfram
annað sigurinn. Hjá Skallagrími fór
fremstur í flokki Jean Cadet, sérstak-
lega sóknarlega, en hann setti 22 stig
og tók 14 fráköst, þar af sjö sókn-
arfráköst.
Helsti munurinn á liðunum á föstu-
daginn var varnarmegin en það skipti
engu máli hvaða fimm leikmenn voru
inná hjá ÍA, það vörðust alltaf allir en
frá því að ÍA setti fyrstu körfu leiksins
leiddu þeir til loka en Skallagrímur
komst aldrei yfir í leiknum á meðan
ÍA leiddi með mest 22 stigum í stöð-
unni 42-64 um miðjan annan leik-
hluta. Skallagrímur gerð svo áhlaup
undir lok þriðja leikhluta og áfram í
byrjun þess fjórða en ÍA hélt ró sinni
og Borgnesingar komust aldrei nær
en í átta stiga mun og ÍA landaði að
lokum 73-86 verðskulduðum sigri.
ÍA lyfti sér upp fyrir Val í fjórða
sæti deildarinnar með þessum sigri
og er með 18 stig, Skallagrímur er
enn í þriðja sæti með 20 stig þegar
fjórar umferðir eru eftir af deildar-
keppninni.
mm/hh/ Ljósm. Ómar Örn Ragn-
arsson.
Skagamenn höfðu sigur í
Vesturlandsslagnum
Skallagrímur mætti KR í 1. deild
kvenna í körfuknattleik í Vesturbæ
Reykjavíkur á mánudagskvöldið.
Manuel Rodriguez, þjálfari Skalla-
gríms, tók út leikbann í leiknum
og þurfti því að fylgjast með sínu
liði frá áhorfendapöllunum. Signý
Hermannsdóttir stýrði liðinu í hans
stað. Skallagrímskonur hófu leikinn
með látum en leikmenn heimaliðs-
ins virtust eitthvað ragir í upphafi.
Skrekkurinn virtist þó horfinn úr
KR-ingum í öðrum leikhluta, leik-
ur þeirra batnaði mjög og forskot
Skallagríms minnkaði. Þegar flaut-
að var til hálfleiks var munurinn
kominn niður í eitt stig, 32-31.
Skallagrímskonur hófu síðari
hálfleik af krafti, gripu til hápressu
en KR-ingar létu ekki slá sig svo
glatt út af laginu og sáu til þess að
munurinn var aðeins sex stig fyrir
lokafjórðunginn. Þar gekk báðum
liðum fremur illa að hitta úr skot-
um sínum, skoruðu aðeins tíu stig
hvort og Skallagrímur fór því með
sex stiga sigur af hólmi, 56-62. Sól-
rún Sæmundsdóttir var stigahæst
leikmanna Skallagríms með 17 stig.
Næst henni kom Kristrún Sigur-
jónsdóttir með 13 stig og þá Guð-
rún Ámundadóttir með tíu stig og
sex stoðsendingar.
Næsti leikur Skallagríms fer fram
laugardaginn 27. febrúar þegar lið-
ið tekur á móti Breiðabliki. Vert er
að taka fram að sigri Skallagrím-
ur þann leik getur liðið tryggt sér
deildarmeistaratitilinn. Titillinn
tryggir þeim heimaleikjarétt í úr-
slitakeppninni um laust sæti í úr-
valsdeild að ári.
kgk/ Ljósm. Skallagrímur.
Skallagrímur færist nær
deildarmeistaratitlinum
Kristrún Sigurjónsdóttir
átti góðan leik þegar
Skallagrímur sigraði KR.
Manuel Rodriguez þjálfari tók út
leikbann og mátti fylgjast með sínu
liði úr áhorfendastúkunni. Hann brosti
sínu breiðasta í leikslok, ánægður með
sigurinn. Við hlið hans situr Sigrún
Sjöfn Ámundadóttir.
Þriðjudaginn 9. febrúar fór fram
púttmót eldri borgara í Borgar-
byggð í Eyjunni í Brákarey. Þar hef-
ur Golfklúbbur Borgarness og félag
eldri borgara komið sér upp góðri
aðstöðu á efri hæð í gamla slátur-
húsinu. Keppt var bæði með og án
forgjafar. Sennilega er þetta í fyrsta
sinn sem keppt er með forgjöf á
púttmóti. En forgjöfin var miðuð
við meðalskor þátttakenda í janú-
ar. Margir sýndu góð tilþrif og léku
undir forgjöf sinni. Sigurvegari án
forgjafar var Anna Ólafsdóttti með
55 högg. Í öðru sæti var Þorbergur
Egilsson með 59 högg. Í þriðja sæti
var Guðmundur Bachmann með 63
högg. Björn Jóhannsson var efst-
ur í forgjöf með 48 högg. Hugrún
B. Þorkelsdóttir var önnur með 51
högg og Lilja Ólafsdóttir þriðja með
55 högg. Mótsstjóri var Ingimund-
ur Ingimundarson. Slíkt mót verður
aftur haldið í mars. Þá verða marg-
ir trúlega búnir að lækka forgjöfina
því hópurinn mætir vel á æfingar og
sýna góðar framfarir, að sögn Ingi-
mundar.
Miðsvetrarmót pútthóps eldri
borgara í Borgarnesi og Borgarfirði
var haldið þriðjudaginn 9. febrúar sl.
Á meðfylgjandi mynd eru verðlauna-
hafar á mótinu, með og án forgjaf-
ar. Frá vinstri eru taldir Guðmund-
ur Bachmann, Þorbergur Lind Eg-
ilsson, Anna Ólafsdóttir, Ingimund-
ur Ingimundarson mótsstjóri, Björn
Jóhannsson, Hugrún Björk Þorkels-
dóttir og Lilja Ólafsdóttir.
mm/Ljósm. Þórhallur Teitsson.
Púttmót eldri borgara
Íslandsmeistaramót unglinga í kata
fór fram síðastliðinn laugardag í
Smáranum í Kópavogi. Mótið var
í umsjón Karatedeildar Breiða-
bliks. Alls kepptu sex unglingar frá
Karatefélagi Akraness á mótinu og
stóðu sig vel. Bestum árangri náði
Kristrún Bára Guðjónsdóttir sem
varð Íslandsmeistari í kata, 13 ára
stúlknaflokki. Kristinn Benedikt
Hannesson, Kristrún Bára Guð-
jónsdóttir og Ólafur Ían Brynjars-
son fengu bronsverðlaun í hópkata
12-13 ára. Þá fengu einnig brons-
verðlaun Amalía Sif, Eiður Andri
og Guðbjörg Birta í hópkata 16-17
ára. Sama dag fór svo fram Íslands-
meistarakeppni barna í kata og tóku
fimm keppendur þátt í mótinu frá
Karatefélagi Akraness. Þau stóðu
sig einnig vel.
mm
Skagafólk vann til
verðlauna í kata
Kristrún Bára á verðlaunapalli.
Þau unnu til bronsverðlauna í hópkata
12-13 ára.
Með bronsverðlaun í hópkata 16-17
ára.