Skessuhorn - 20.04.2016, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2016 17
Þá úthlutar Þjónustu- og þekk-
ingarmiðstöðin svokölluðu vef-
varpi þar sem hægt er að hlusta á
lestur blaða og hlusta á textann í
sjónvarpinu lesinn í rauntíma og
margt fleira. „Að hafa aðgengi að
upplýsingum í dag er aðgöngu-
miði að samfélaginu. Í rafheim-
um er í dag aðgengið að frétta-
miðlunum, samskiptin við stjórn-
völd, bankann og svo framvegis.
Vefsíður þurfa að vera aðgengi-
legar fyrir alla. Í dag eru ekki all-
ar síður aðgengilegar fyrir skjá-
lesara. Þetta er stórt baráttumál
fyrir okkur,“ segir Sigþór með
áherslu. „Réttindabaráttan krist-
allast í því að fá að vera virkur
þjófélagsþegn á sínum forsend-
um. Með réttum aðbúnaði eru
allir vegir færir. Fólk í eðli sínu
vill vera gott en þegar það er til
dæmis verið að hanna vefsíður er
ekki ofarlega í huga að muna eftir
sjónskertum,“ heldur hann áfram.
Sigþór segir ríkið jafnframt ekki
fylgja tækniframförum nægilega
vel eftir þegar kemur að því að
útvega hjálpartæki. Þá komi til
sögunnar styrktarsjóðir, svo sem
Blind börn á Íslandi. „Þar er ver-
ið að styrkja eitthvað sem er ekki
styrkt af öðrum. Núna er lang-
oftast sótt um eitthvað sem er
tölvutengt, ríkið hefur ekki fylgt
því eftir. Kannski gerist það eftir
nokkur ár en við þurfum að sýna
frumkvæði,“ bætir hann við.
Góðir bakhjarlar
„Svo er stór áskorun að vera með
á nótunum. Ekki bara í tæknimál-
um, heldur líka þegar horft er til
læknavísindanna,“ segir Sigþór.
Hann segir mikið vera að gerj-
ast á því sviði, sem áhugavert sé
að fylgjast með. „Það eru stofn-
frumumeðferðir, lyflækningar,
erfðarannsóknir og genalækn-
ingar. Það er verið að gera alls
konar klínískar rannsóknir en
með heilbrigðiskerfi sem hangir
á horreiminni er ekki mikið svig-
rúm til að fylgjast með grunn-
rannsóknum og tileinka sér nýj-
ungar,“ segir hann alvarlegur
í bragði. Það er því að nógu að
huga hjá Blindrafélaginu. Á ný-
legum aðalfundi var samþykkt
ályktun til stjórnar sem hljóð-
ar upp á að lög félagsins verði
endurskoðuð og færð til dags-
ins í dag, að mótaðar verði siða-
reglur, verkferlar og vinnuregl-
ur. „Svo er auðvitað lögð áhersla
á allt hitt. Við þurfum að passa
upp á praktísk mál, fjáraflanir
og velvilja almennings. Nýlega
voru til dæmis haldnar vetrar-
búðir fyrir unga fólkið okkar og
unglingana. Þar var farið á skíði
í Skálafelli, með aðstoðarmönn-
um. Þetta gekk mjög vel og unga
fólkið skemmti sér konunglega.
En það þarf alltaf þennan bak-
stuðning. Til að njóta þarf að
kosta til. Við getum slíkt af því
að við höfum góða bakhjarla, svo
sem Blindravinafélagið, Lions
og velvilja fólks. Velvilji í verki
skilar sér í því sem þarf að kosta
til svo að aðrir njóti,“ segir Sig-
þór Unnsteinn Hallfreðsson for-
maður Blindrafélagsins. grþ
ast hlutirnir bara, bætir hann við.
Sigþór fékk bæði símhringingar
ásamt því að skorað var á hann
á samfélagsmiðlum. Hann segist
hafa hugsað sig um og látið svo
tilleiðast. „Þetta gerðist allt sam-
an á skömmum tíma. Fyrirvarinn
var stuttur, ekki nema ein vinnu-
vika til stefnu og svo rann frest-
urinn út,“ segir hann. Sigþór seg-
ir að þó að það sé góð tilfinning
að vita að honum hafi verið treyst
til góðra verka hafi það eitt og
sér ekki verið nægileg ástæða til
framboðsins. „Ég bauð mig fram
af því að ég hef trú á því að ég geti
orðið félaginu að gagni.“ Sigþóri
gekk glimrandi vel í kosningunni
og fékk 60% greiddra atkvæða.
Blómlegt félagslíf
Blindrafélagið er í stóru húsi í
Hlíðahverfinu í Reykjavík. Fé-
lagið á allt húsið og leigir ýms-
um aðilum pláss sem eiga vel
við þann rekstur sem í húsinu er.
Auk starfsemi Blindrafélagsins
eru í húsinu gleraugnaverslun,
Blindravinnustofan, augnlækna-
stofur og sprotafyrirtækið Ox-
ymap. Þá er Þjónustu- og þekk-
ingarmiðstöð fyrir blinda og sjón-
skerta einstaklinga á efstu hæð en
í húsinu er einnig aðstaða fyrir
félagsmenn sem búa úti á landi
og fjöldi íbúða í útleigu. „Það er
heilmikil starfsemi í húsinu. Hér
er til að mynda ein af íbúðunum
eyrnamerkt fyrir Þjónustu- og
þekkingarmiðstöðina. Þar getur
fólk búið í skamman tíma og lært
athafnir daglegs lífs eftir að hafa
misst sjónina skyndilega, lært að
verða sjálfstætt á nýjan leik. Öll
starfsemi félagsins byggir á vel-
vilja samfélagsins og sjálfsöfl-
un félagsins. Hlutfall opinberra
styrkja hefur dregist verulega
saman og við reiðum okkur því
á að njóta velvilja almennings,“
segir Sigþór. Fjölbreytt starf-
semi er í Blindrafélaginu. Þar fer
fram réttindabarátta enda er fé-
lagið hagsmuna- og baráttufé-
lag í grunninn. En þar er einn-
ig blómlegt félagslíf. „Við erum
með skemmtinefnd, göngu- og
útivistardeild, ungmennadeild,
landshlutadeildir og foreldra-
deild fyrir 18 ára og yngri svo
eitthvað sé nefnt. Tvisvar í viku
er opið hús sem stílað er inn á
eldra fólkið sem getur borðað
saman í hádeginu, notið vand-
aðrar menningardagskrár og
spjallað. Allt félagslíf í félaginu er
með þann undirtón að veita jafn-
ingjafræðslu og stuðning og að
draga úr félagslegri einangrun.“
Félagsmenn Blindrafélagsins eru
660 talsins. Sigþór segir þá vera á
öllum aldri, frá fæðingu og upp í
102 ára. „Það er því ekki það sama
sem hentar í félagsstarfi fyrir alla
og því erum við með allar þessar
deildir. Hér eru samt haldin opin
hús sem stíluð eru á breiðan hóp
og ýmiskonar skemmtanir. Það er
varla hægt að höfða til allra þeg-
ar breiddin er svona mikil en það
gerir fjölbreytnina meiri.“
Aðgengismál mikilvæg
Eitt af stóru baráttumálum
Blindrafélagsins eru aðgengis-
mál, bæði í raf- og raunheimum.
Sigþór segir mikilvægt að fólk
komist skakkafallalaust á milli
staða en það sé því miður ekki
alltaf raunin. „Það má til dæmis
nefna hindrunarstaurana í miðbæ
Reykjavíkur, þessa litlu grænu
sem eru meðal annars á Lauga-
veginum. Þeir eru stórhættuleg-
ir þeim sem eru blindir eða sjón-
skertir. Svo má nefna ferðaþjón-
ustuna. Ferðaþjónusta þarf að
vera viðunandi og Ferðaþjónusta
fatlaðra hentar til að mynda ekki
vel fyrir þá sem eru mjög virkir,“
segir hann. Blindrafélagið hef-
ur hinsvegar rekið Ferðaþjón-
ustu Blindrafélagsins frá 1997 og
segir Sigþór að mörg sveitarfé-
lög á landinu hafa brugðist mjög
vel við ferðaþjónustuvandanum
og gert þjónustusamninga við
Blindrafélagið um ferðaþjónustu.
Ferðaþjónusta Blindrafélagsins
notast við leigubifreiðar og hef-
ur sýnt sig vera mjög hagkvæmur
kostur með hátt og sveigjanlegt
þjónustustig. „Það skiptir máli
að hafa þessa hluti í lagi, ann-
ars er hætt við að fólk geti ein-
angrast. Annað aðgengismál sem
við erum að berjast fyrir er að
geta kosið hjálparlaust, svo dæmi
séu nefnd.“ Sigþór segir innra
starf og stefnumótun félagsins
til framtíðar einnig vera eitt af
áherslumálum félagsins, sem og
unga fólkið og tækifæri þeirra.
„Að unga fólkið geti verið virkir
þjóðfélagsþegnar sem geta látið
draumana sína rætast. En einn-
ig að eldra fólkið geti notið lífsins
á sínum forsendum. Félagið þarf
að vera skrefi á undan, að finna
tækifæri og koma þeim inn í vel-
ferðarkerfið.“
Aðgöngumiði að
samfélaginu
Sigþór segir Blindrafélagið einn-
ig berjast fyrir bættu aðgengi að
upplýsingum. „Tækniþróunin er
að breyta öllu. Staurblindir geta
nú orðið notað snjallsíma með
forriti sem talar og Facebook hef-
ur gjörbreytt lífi margra.“ Barátt-
an snýst um að sama tækni og
aðrir nota verði aðgengileg fyr-
ir blinda og sjónskerta. Hægt er
að beita ýmsum aðferðum við að
bæta aðgengi blindra í rafheim-
um, svo sem með talgervlum,
sérhæfðum forritum, blindralet-
urslyklaborðum og með mögu-
leikanum á breyttri leturstærð.
Sigþór ásamt börnum sínum Birtu og Friðriki Erni við Dettifoss.
Í hestaferð á Löngufjörum.
Borgarbyggð leitar eftir kennurum í eftirfarandi
stöður frá hausti 2016:
Grunnskóli Borgarfjarðar, www.gbf.is
Deildarstjóri Grunnskóla Borgarfjarðar-Varmalandsdeild
Um er að ræða 100% stöðu, þar af 70% í stjórnun og 30% í kennslu.
Menntun, reynsla og hæfni:
• Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla
• Stjórnunarreynsla æskileg
• Frumkvæði, sjálfstæði og færni í mannlegum samskiptum
• Kostur ef umsækjandi þekkir hugmyndafræðina Sjö venjur til árangurs
Allar nánari upplýsingar veitir Hlöðver Ingi Gunnarsson í síma 840 1524. Einnig er hægt að
senda fyrirspurn á netfangið hlodver.ingi.gunnarsson@gbf.is
Umsjónarkennari á miðstig og unglingastig Grunnskóla Borgarfjarðar
Æskilegar kennslugreinar eru stærðfræði, íslenska og textílmennt
Menntun, reynsla og hæfni:
• Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla
• Færni í mannlegum samskiptum
Allar nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Adda Konráðsdóttir í síma 840 1520. Einnig er
hægt að senda fyrirspurn á netfangið ingibjörg.adda.konradsdottir@gbf.is og Hlöðver Ingi
Gunnarsson í síma 840 1524 og á netfangið hlodver.ingi.gunnarsson@gbf.is
Grunnskólinn í Borgarnesi, www.grunnborg.is
Aðstoðarskólastjóri
Um er að ræða 100% stöðu.
Menntun, reynsla og hæfni:
• Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla
• Stjórnunarreynsla æskileg
• Frumkvæði, sjálfstæði og færni í mannlegum samskiptum
• Kostur ef umsækjandi þekkir til uppbyggingarstefnunnar Uppeldi til ábyrgðar
Umsjónarkennari á yngsta stig, miðstig og unglingastig
Menntun, reynsla og hæfni:
• Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla
• Færni í mannlegum samskiptum
Kennari í textílmennt í 50% aeysingastöðu
• Allar nánari upplýsingar veitir Júlía Guðjónsdóttir í síma 862 1519. Einnig er hægt
að senda fyrirspurn á netfangið julia@grunnborg.is
• Óskað er eftir kennurum sem eru tilbúnir að taka þátt í virku og skapandi
skólastar. Lögð er áhersla á teymiskennslu kennara í skólum Borgarbyggðar.
• Aðilar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störn.
• Laun eru samkvæmt kjarasamningi KI og LS.
• Umsóknarfrestur er til 10. maí n.k.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6