Skessuhorn - 22.06.2016, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2016 23
Tvær ólíkar sýningar voru opnað-
ar á Akranesi fyrr í þessum mánuði.
Annars vegar opnaði listakonan
Tinna Royal pallíettu málverkasýn-
ingu á Bókasafni Akraness í byrjun
mánaðarins. Um er að ræða mynd-
ir og muni sem Tinna hefur saum-
að út með pallíettum á skemmtileg-
an hátt. Sýningin verður uppi fram
yfir Írska daga.
Þá var sýningin „Brúðir“ opnuð
í Guðnýjarstofu í Safnaskálanum í
Görðum á 17. júní. Þar eru til sýn-
is brúðarkjólar úr fórum kvenna á
Skaganum, af ýmsum gerðum og
frá ýmsum tímabilum. Elsti kjóll-
inn er frá árinu 1915 en sá yngsti
frá 2006 og einnig má finna aðra
brúðarmuni á sýningunni, svo sem
brúðarvendi og skó svo eitthvað sé
nefnt. Einnig geta áhugasamir mát-
að einn af kjólunum, allavega þeir
sem eru í „réttri stærð“. Sýningin
er á vegum Akraneskaupstaðar og
verður opin út sumarið.
grþ
Pallíettur og brúðarkjólar á Akranesi
Á Bókasafni Akraness má skoða pallíettuverk Tinnu Royal. Þar eru bæði myndir
til sýnis sem hún hefur saumað úr pallíettum ásamt öðrum hlutum eins og þessum
morgunkornskassa, sem er alsettur glitrandi pallíettum.
Myndir Tinnu eru bæði fallegar og
glitrandi. Mikil vinna er að baki hverri
mynd, enda tekur það Tinnu um það
bil 180 klukkustundir að sauma eina
mynd.
Á sýningunni „Brúðir“ í Safnaskálanum á Akranesi eru fallegir brúðarkjólar til
sýnis frá árunum 1915 - 2006.
Leikskólinn Akrasel á Akranesi er
þátttakandi í NORDPLUS verk-
efni sem hófst haustið 2014 og lýk-
ur formlega í ágúst 2016. Tilgang-
ur verkefnisins er að stuðla að sam-
vinnu á milli landanna með því að
deila hugmyndum að vinnu með
börnum, kynnast starfsvenjum og
rekstrarfyrirkomulagi samstarfs-
landanna. Samstarfið felur í sér
heimsóknir á milli landa, verkefna-
vinnu og kynningar innan sem utan
leikskólanna.
Markmið verkefnisins er meðal
annars að:
efla samstarf milli skóla og at-•
vinnulífs
stuðla að þróun gæða, sköpunar •
og nýsköpun í menntun
efla og þróa samstarf milli •
skóla
efla þekkingu og skilning á •
menningu Norðurlanda og
Eystrasaltsríkja.
Verkefnið ber yfirskriftina
„Today a child - tomorrow a lea-
der“ og fjallar um hvernig kennar-
ar á Norðurlöndunum og í Eystra-
saltsríkjunum geta unnið að verk-
efnum til að kynna og tengja ólíka
menningu, hefðir og siði. Með
sameiginlegt markmið sem stuðlar
að því að gera börn örugg og sjálf-
bjarga. Með okkur í verkefninu eru
þrír leikskólar í Noregi, einn í Sví-
þjóð og einn í Lettlandi. Við lok
verkefnisins er fyrirhugað að gefa
út handbók þar sem hugmyndir
að verkefnum eru gerð aðgengileg
fyrir kennara. Leikskólinn Zeltriti
sem staðsettur er í Marupe í Lett-
landi hefur yfirumsjón með því
verki (undir stjórn Diana Putnina
verkefnastjóra).
Frá fyrstu heimsókn hafa mörg
skemmtileg verkefni verið unnin í
Akraseli og má þar nefna, íþrótta-
dag þar sem hugmyndir frá heim-
sókn okkar til Lettlands voru nýtt-
ar. Íþróttamaður Akraness kom í
heimsókn, foreldri kom og sagði
frá sinni reynslu af íþróttaiðkun og
mikilvægi þess að vera í íþróttum
bæði sem barn og fullorðinn.
Í heimsókn okkar til Noregs var
lögð áhersla á félagshæfni og verk-
efni tengd félagsþroska barna. Sam-
vinna, hjálpsemi og staða barns-
ins í hópnum hefur verið skoðuð
og unnið með tilfinningaþroska. Í
Svíþjóð var skemmtileg kynning á
endurvinnslu og safnstöðvar fyr-
irkomulagi, sem nýttist leik- og
grunnskólum sem efnisveita í skap-
andi vinnu. Fyrirtæki og stofnanir í
nærumhverfinu skiluðu efnivið sem
hægt er að nýta til listsköpunar á til-
tekinn stað sem leik- og grunnskól-
ar sveitarfélagsins höfðu aðgang að.
Sú vinna og hugmyndafræði féll vel
að umhverfismennt og grænfána-
vinnu leikskólans okkar.
Við héldum alþjóðaviku þar sem
við m.a framleiddum þjóðfána,
dönsuðum, bjuggum til landakort,
lærðum ensku - söng – liti – form,
byggðum úr einingakubbum eft-
ir myndum af heimsfrægum bygg-
ingum og tengdum við ferðalög
barnanna í leikskólanum. Sköp-
unargleði barnanna fékk notið sín.
Starfsfólk eldhússins tók fullan þátt
með okkur og töfraði fram hvern
þjóðarréttinn á fætur öðrum, einn-
ig sendu vinir okkar í Noregi okkur
makríl í tómatsósu.
Í Íslandsheimsókninni fórum við
í skemmtilega kynningu á tónlist-
arkennslu í leikskólanum Vallarseli.
Þar tóku kennarar elstu barnanna
á móti okkur með sýnikennslu í
hljóðfæravinnu og söng. Í Akra-
seli lögðum við áherslu á að upp-
lifa jóga og umhverfismennt. Gest-
ir fengu tækifæri á að vera með í
skipulögðum stundum bæði sem
þátttakendur og áhorfendur.
Einnig fórum við með gesti okkar
Gullna hringinn; Gullfoss – Geysi
– Þingvelli. Starfsmenn Akrasels
buðu uppá Reykjavíkurrúnt, sjó-
bað, hesthúsaferð, sundlaugarferð,
kvöldverð og vitaskoðun. Það var
ánægjulegt og fróðlegt að taka á
móti gestunum, mikill lærdómur
fyrir okkur.
Við eru þakklát fyrir þá reynslu
og auknu víðsýni sem verkefni af
þessum toga veita okkur – þannig
getum við einnig stuðlað að betra
leikskólasamfélagi.
Samantekt:
Anney Ágústsdóttir, leikskólastjóri
Akraseli á Akranesi.
Leikskólinn Akrasel í Nordplus samstarfi
Svipmynd frá alþjóðaviku í Akraseli. Hér er verið að byggja úr kubbum hús. Myndir af frægum byggingum voru fyrir-
myndir.
Brosað við fánagerð. Nokkrir leikskólakennarar frá Akraseli og gestir þeirra.