Skessuhorn


Skessuhorn - 13.07.2016, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 13.07.2016, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 9 Höfrungar svo hundruðum skipti voru í vöðu á Breiðafirði snemma síðastliðinn miðvikudagsmorgun þegar Alfons Finnsson fréttarit- ari Skessuhorns var á leið í róður. „Þeir skiptu hundruðum og voru allt í kringum bátinn á fleygiferð,“ sagði Alfons. „Þetta gekk svona í um hálftíma og þeir hafa örugglega verið í æti, en stefndu í norðurátt. Hér hefur bæði orðið vart við síld og makríl og þá er líka mikið af síli og því er fjörugt fuglalíf einnig.“ Aðspurður sagðist hann hafa verið um tólf sjómílur norður af Ólafsvík þegar vaðan átti leið um. Alfons er á strandveiðum og líkt og undan- farna daga voru það aðallega stór- þorskar sem komu á færið. mm Hundruð höfrunga á ferð á Breiðafirði Nokkrir höfrunganna við síðu bátsins. Mikil ferð var á hjörðinni sem nánast strauk bátinn. Starfsmenn vinnuskólans í Grund- arfirði og bæjarstarfsmenn voru önnum kafnir við endurbætur á lóð leikskólans Sólvalla þegar Skessu- horn bar að garði síðastliðinn mið- vikudag. Um er að ræða allt al- mennt viðhald lóðarinnar. Mála þurfti staura og girðingar, fylla upp í holur, skipta út nokkrum leiktækj- um og að setja mottur undir ról- urnar, og fleira slíkt. Einnig stóð til að skipta um gras á nokkrum stöð- um á lóðinni, fjarlægja jarðveg og leggja nýjar þökur yfir. Vinnuskólinn hófst handa á leik- skólalóðinni á mánudag og stefnan var að vinnu yrði að mestu klár í lok vikunnar. kgk Sólvellir fá andlitslyftingu R E Y K H O L T S H Á T Í Ð 2 0 1 6 2 0 Á R A A F M Æ L I M I Ð A S A L A m i d i . i s r e y k h o l t s h a t i d . i s 22.—24. júl í 2016 Föstudagur 22. júlí kl. 20 Opnunar tónleikar Árs t íð i r Laugardagur 23. júlí kl. 13 Fyr ir lestrar úr héraði Margrét Eggert sdótt i r kl. 16 Kammer tónleikar Bach–Mozart–Boccher ini kl. 20 Söngtónleikar Ástir á köldum klaka Sunnudagur 24. júlí kl. 14 Hátíðarmessa kl. 16 Lokatónleikar Himneskur Schubert

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.