Skessuhorn


Skessuhorn - 13.07.2016, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 13.07.2016, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 201612 Starf launafulltrúa Borgarbyggðar er laust til umsóknar Starfshlutfall er 80% en möguleiki á að það hækki í 100%. Helstu verkefni launafulltrúa eru: Útreikningur á launum starfsmanna sveitarfélagsins og stofnana þess Gerð skilagreina fyrir launatengd gjöld og skatta Túlkun á kjarasamningum Aðstoð við röðun starfsfólks í launaflokka Veita upplýsingar og ráðgjöf til forstöðumanna stofnana varðandi launa- og kjaramál Gefa út vottorð sem tilheyra launamálum Halda utan um starfsmannaskrá og önnur gögn sem tilheyra launavinnslu Sjá um að upplýsingar úr launakerfi skili sér í bókhaldskerfi Hæfniskröfur: Menntun sem nýtist í starfi en góð reynsla af sambærilegu starfi kemur einnig til greina Þjónustulund, áhugi og metnaður Reynsla af vinnu við launakerfi er æskileg Hæfni í mannlegum samskiptum Laun skv. kjarasamningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf 1. september 2016. Umsóknir skulu berast undirrituðum á skrifstofu Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 í Borgarnesi eigi síðar en 29. júlí 2016. Nánari upplýsingar veita Eiríkur Ólafsson fjármálastjóri eirikur@borgarbyggd.is og Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri gunnlaugur@borgarbyggd.is í síma 433-7100. Fjármálastjóri Laust starf - launafulltrúi Borgarbyggðar SK ES SU H O R N 2 01 6 Síðastliðinn laugardag var stúlku- barn skírt í Akranesvita á Breið. Fékk hún nafnið Lotta Ósk. For- eldrar hennar eru Bergþór Óla- son framkvæmdastjóri og Jennifer Flume. Það var séra Þráinn Har- aldsson prestur á Akranesi sem framkvæmdi athöfnina, en Hanna Þóra Guðbrandsdóttir söngkona sá um tónlistarflutning. Þetta mun vera fyrsta skírn sem framkvæmd er inni í vita hér á landi, en börnum hefur áður verið gefið nafn utan- dyra við vita. Meðal annars er vit- að um vestlenskt barn sem skírt var á Þormóðsskeri utan við Mýrar, en þar er einnig viti eins og kunngt er. mm/ Ljósm. hs. Fyrsta skírn í vita sem vitað er um ,,Konan kallaði á mig og sagði að David Beckham væri að veiða hérna fyrir neðan bústaðinn okk- ar við Langá. Ég fór og náði í kíki en var ekki viss,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson sem var við Langá á Mýr- um þar sem David Beckham hef- ur verið við veiðar síðustu daga með fjölskyldu sinni og íslenskum vinum eins og Björgólfi Thor, en þeir þekkjast vel. Björgólfur veiðir reyndar mest í Haffjararðrá en hefur veitt í Langá. Veiðin gekk rólega nokkrir lax- ar komu á land en fiskur hefur víða verið tregur að taka í veiðiánum síðustu daga. Líklega vegna hita og vatnsleysis. Reyndar er staðan ágæt í Langá. Veiðitíminn var með alla ána á leigu. ,,Hann kastaði fimlega við Stangarhylinn, fyrrum fótbolta- kappinn og bar sig vel af veiðinni,“ sagði Ingvi Hrafn ennfremur. gb Beckham við veiðar í Langá David Beckham með fjögurra punda lax úr Langá. Skjáskot af mynd sem hann birti á Instagram-síðu sinni á sunnudag. Í gær stóðu starfsmenn fyrirtæk- isins Hlaðbær Colas í ströngu við að malbika í Grundarfirði. Verið var að makbika fimm botnlanga, fjóra botnlanga á Sæbóli og einn í Fellasneið. Svo var stór hluti Borgarbrautar, frá Hlíðarbergi að Grundargötu, einnig malbikað- ur í þessari umferð. Kominn var tími á malbikun á þessum götum en það gamla var farið að láta all- verulega á sjá. Botnlanginn í Fella- sneið var hins vegar malbikaður í fyrsta skipti núna. tfk Malbikað í Grundarfirði

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.