Skessuhorn


Skessuhorn - 13.07.2016, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 13.07.2016, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 29 Grunnskólakennara vantar við Auðarskóla Vegna óvæntra forfalla vantar kennara við Auðarskóla næsta skólaár. Allar upplýsingar veitir Þorkell Cýrusson skólastjóri í síma 894-3445 eða í tölvupósti keli@audarskoli.is. Óska eftir málara til að mála steypt hús að utan Húsið er um 120 fm. Óska eftir tilboði í verkið (hreinsa, laga ef þess þarf, sílanbera, mála). Get sent myndir í tölvupósti. Húsið er staðsett í 301. Vinsamlegast sendið tölvupóst á 67dagny@ gmail.com eða hringið í síma 865-7133. Smáfjölskylda leitar að íbúð í Borgarnesi eða á Akranesi Tveggja manna smáfjölskylda (móðir og barn) leita að tveggja til fjögurra herbergja íbúð í Borgarnesi eða á Akranesi frá og með 1. ágúst. Rólyndisfólk með meðmæli og fleira sé þess óskað. Greiðslugeta allt að 120 þúsund uppgefið. Upplýsingar í tölvupósti á berglindoskg@ gmail.com. Óska eftir íbúð á Akranesi Óska eftir þriggja herbergja íbúð til leigu á Akranesi frá 1. september 2016. Við erum reglusöm og göngum vel um. Hef góð meðmæli. Upplýsingar í tölvupósti suniniceland@ hotmail.com. Felgur til sölu á góðu verði Tveir umgangar af stálfelgum til sölu. 4 stykki 15“ felgur, 5 gata. (Skoda hjólkoppar geta fylgt með). Verð 7.000 krónur settið. 4 stykki 14“ felgur, 5 gata. Verð 7.000 krónur settið. Er í Borgarnesi og veiti upplýs- ingar í síma 898-9205, Sveinn. Subaru Outback til sölu Er með 2008 árgerð af Subaru Outback til sölu. Bíllinn er ekinn 151.500 km. Svartur, topplúga, sjálfskiptur, bensín, drif 4x4, 173 hestöfl, útvarp/geislaspilari og hraðastillir. Ný heilsársdekk fylgja. Reyklaust ökutæki. Verð 1.950.000 krónur. Upplýsingar í tölvupósti: kveld@simnet.is. Tímapantanir hjá miðli Tímapantanir í einkatíma hjá Þórhalli Guðmundssyni miðli er hjá Kiddý í síma 431-1391. Snæfellsbær – miðvikudagur 13. júlí Fjallganga á Hreggnasa klukkan 14 – 16. Hist verður við gatnamót Útnesvegar og Eysteinsdalsvegar og ekið að göngubrúnni við Móðulæk í mynni Eysteinsdals. Gangan er gestum að kostnaðarlausu. Akranes – miðvikudagur 13. júlí Pepsi deild kvenna: ÍA – Breiða- blik á Akranesvelli klukkan 19:15. Borgarnes – fimmtudagur 14. júlí Hestamannafélagið Skuggi heldur Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum á félagssvæði sínu við Vindás dagana 14. – 17. júlí. Borgarnes – laugardagur 16. júlí Listamarkaður ásamt listsýn- ingu í Hjálmakletti 16. og 17. júlí á milli klukkan 10 og 14. Snæfellsbær – laugardagur 16. júlí Djúpalónssandur – Dritvík. Sjórinn gaf og sjórinn tók. Gestir hitta landverði við bílastæðið á Djúpalónssandi kl. 14. Gengið um Djúpalóns- sand og til Dritvíkur. Á leiðinni eru völundarhús og búðarústir, norðan Dritvíkur eru fiskreitir. Á Djúpalónssandi eru steintök sem vermenn reyndu afl sitt á. Snæfellsbær – sunnudagur 17. júlí Barna- og fjölskyldustund á Malarrifi kl 11. Landverðir taka á móti börnum við gesta- stofuna á Malarrifi og rannsaka með þeim náttúruna, segja sögur, fara í leiki og margt fleira. Barnastundir eru miðað- ar við börn 6-12 ára. Foreldrum er velkomið að taka þátt. Snæfellsbær - sunnudagur 17. júlí Malarrif – Svalþúfa. Lífið í bjarg- inu frá kl. 14 - 16. Gestir hitta landverði við gestastofuna á Malarrifi. Gengið að Lóndröng- um sem eru glæsilegir útverðir þjóðgarðsins. Sagt frá minjum um vermennsku fyrri tíma. Gengið á Svalþúfu þar sem Kolbeinn Grímsson og Kölski kváðust á forðum. Snæfellsbær – sunnudagur 17. júlí Pepsi deild karla: Víkingur Ó. – Stjarnan á Ólafsvíkurvelli klukkan 19:15. Akranes – sunnudagur 17. júlí Pepsi deild karla: ÍA – Valur á Akranesvelli klukkan 19:15. Akranes – þriðjudagur 19. júlí Pepsi deild kvenna: ÍA – KR á Alvogenvellinum klukkan 19:15. Nýfæddir Vestlendingar Á döfinni Markaðstorg Vesturlands TIL SÖLU Markaðstorg Vesturlands Skráðu SMáauglýSinguna á www.SkeSSuhorn.iS fyrir klukkan 12.00 á þriðjudöguM LEIGUMARKAÐUR ATVINNA Í BOÐI 4. júlí. Drengur. Þyngd 4.140 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar: Helga Kristín Bjarnadóttir og Sigurður Óskar Guðmundsson, Akranesi. Ljósmóðir: Ásthildur Gestsdóttir. Drengurinn hefur fengið nafnið Kristþór Helgi. 4. júlí. Stúlka. Þyngd 3.495 gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Sara Hjördís Blöndal og Heiðar Már Björnsson, Akranesi. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. 5. júlí. Drengur. Þyngd 3.905 gr. Lengd 56 sm. Foreldrar: Una Lovísa Ingólfsdóttir og Arnfinnur Teitur Ottesen, Akranesi. Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir. 8. júlí. Stúlka. Þyngd 4.055 gr. Lengd 54 sm. Foreldrar: Lovísa Tinna Magnúsdóttir og Hjörleifur Bjarki Kristjánsson, Selfossi. Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir. 8. júlí. Stúlka. Þyngd 3.770 gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Maren Sól Benediktsdóttir og Kristinn Sigurðsson, Borgarnesi. Ljósmóðir: Hafdís Rúnarsdóttir. Nú standa yfir framkvæmdir á æf- ingasvæði Knattspyrnufélags ÍA. Undanfarin ár hefur verið skipt um gras á völlum æfingasvæðisins. Nú er verið að klára þriðja og síðasta áfang- ann í þeirri vinnu þar sem skipt er um gras næst Innnesvegi við Sólmundar- höfða. bþb/ Ljósm. Gísli Gíslason. Skipt um gras á æfingasvæði KFÍA Svunta www.smaprent.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.