Skessuhorn


Skessuhorn - 13.07.2016, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 13.07.2016, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 11 UNGLINGALANDSMÓT UMFÍ Í BORGARNESI 28 - 31. JÚLÍ Frá því um síðasta vetur hefur stað- ið yfir bygging tveggja viðbygginga við Gistiheimilið Langaholt á Snæ- fellsnesi. Þorkell Sigurmon Símon- arson, eða Keli vert eins og hann er betur þekktur, vill ekki fullyrða um hvenær viðbyggingarnar verði opn- aðar. „Þær verða opnaðar sem fyrst. Maður þorir ekki að segja meira; það virðist nefnilega alltaf bætast við verkið frekar en hitt. Ég held að það sé samt ekki alltof langt í að við getum farið að nýta þær. Með viðbyggingunum erum við að tvö- falda fjöldan sem getur gist hjá okk- ur. Eins og staðan er núna þá erum við með 20 herbergi en þegar fram- kvæmdum lýkur verða hér 40 her- bergi,“ segir Keli. Færa sig til nútímans Keli hefur rekið Langaholt í rúman áratug. „Ég tók við þessu af foreldr- um mínum fyrir rúmum áratug síð- an. Fljótlega eftir að ég tók við skall hér á hrun og þetta hefur því verið bras en nú erum við loksins komin á skrið aftur. Með þessum herbergj- um sem við erum að bæta við erum við ekki bara að auka plássið held- ur einnig að færa okkur inn í nú- tímann. Aðalbyggingin er frá árinu 1985 og á þeim tíma voru allt aðrar kröfur bæði frá gestum sem og eftir- litsstofnunum. Þetta er fyrsta stóra framkvæmdin sem farið hefur ver- ið í síðan ég byrjaði. Ég hef öðlast reynslu á þeim tíma sem ég hef stýrt þessu og veit hvað það er sem fólk vill og eitt það helsta sem við höfum hér er útsýnið á Snæfellsjökul. Ég tók því þá ákvörðun að öll herberg- in í nýju byggingunum skyldu snúa að Jöklinum. Önnur ástæðan af hverju við erum að þessu núna er sú staðreynd að það er erfitt að reka litla staði. Við viljum bjóða upp á ákveðin gæði og eitt af því er að bjóða upp á góðan mat. Við getum ekki haldið uppi góðum veit- ingastað með 20 herbergja gististað svo ef við ætlum að gera það þurft- um við að stækka. Gott útsýni, góð- ur matur og þægindi er grunnurinn í þeim rekstri sem við erum í svo það verður að vera í lagi,“ segir Keli. Tölur um aukin ferða- mannastraum villandi Keli segist hafa fundið vel fyrir aukn- ingu á gistiheimilinu undanfarin ár. „Ísland er í tísku og ferðaþjónustan blómstrar á meðan. Það er aukning hvert sem litið er í þessum bransa. Við sjáum það að síðustu fjögur ár höfum við rekið þetta gistiheimili allt árið um kring. Samt sem áður eru tölurnar um þessa sprengju í ferðaþjónustunni villandi. Það hefur vissulega verið aukning í því hversu margir koma en það hefur ekki verið eins mikil sprenging og menn vilja vera láta. Dvölin hefur t.d. styst hjá fólki. Gistinæturn- ar eru því orðnar færri hjá hverj- um einstaklingi. Fólk er núna oft á tíðum bara að koma í fáeina daga,“ segir Keli. „Ferðamannabransinn er orðinn nýja gullæðið. Það þarf samt ekki mikið að gerast svo að upp komi áföll í bransanum. Við búum við hagstæða tíma eins og er. Fólk vill koma og skoða þetta litla dular- fulla land núna en það getur alltaf breyst. Það er mikil óvissa í þess- um bransa og hann er ungur hér á landi. Fólk er enn að fóta sig og ekki síst yfirvöld. Yfirvöld virð- ast ekki alveg vera með puttann á púlsinum; við höfum séð það marg ítrekað undanfarið eins og með vegi, klósettaðstöðu og annað.“ Keli segir erfitt að átta sig á þeim bransa sem ferðaþjónustan er. „Fólk bjóst ekki við því þegar þetta gistiheimili var opnað 1985 að fólk færi að fljúga yfir hálfan hnöttinn til þess eins að sjá norð- urljós. Fólk bjóst reyndar ekki við því að ferðaþjónusta væri eitthvað sem Íslendingar gætu grætt á árið 1985 ef út í það er farið. Fólk hristi bara hausinn þegar foreldrar mínir byggðu þetta en á sama tíma voru allir að byggja yfir refi og stunda þann iðnað. Ég held að foreldr- ar mínir hafi veðjað á réttan hest þar. Það sem maður hefur lært um þennan bransa eftir öll þessi ár er að maður veit ekkert um hann,“ segir Keli. Vill búa á Snæfellsnesi Keli segir að aðal ástæðan fyr- ir því að hann reki Langaholt sé sú að hann vill búa á Snæfells- nesi. „Flesta daga er þetta mjög skemmtilegt starf en stundum hugsar maður hvers vegna maður er í þessu, sérstaklega þegar mað- ur stendur í svona framkvæmdum. Ég vinn bara sem bóndi á annan hátt en þeir sem eru hérna í kring. Ég sel ekki uppskeru eða dýrafurð- ir, ég sel minningar. Þetta er mín leið til að búa hérna á Snæfellsnesi og því ég vil hvergi annars staðar vera,“ segir Keli að endingu. bþb „Ég vinn við að selja fólki minningar“ Spjallað við Kela Vert, ferðaþjónustubónda í Langaholti í Staðarsveit Keli fyrir framan aðra viðbygginguna en gistirými í Langaholti verður nú tvöfaldað. Í viðbyggingunni sem snýr til norðurs verður meðal annars nýtt lobbý.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.