Skessuhorn - 13.07.2016, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 20166
Bláfáninn í
fjórtánda sinn
STYKKISH: Síðastliðinn
föstudag afhenti Salome
Hallfreðsdóttir fulltrúi
Landverndar smábátahöfn-
inni í Stykkishólmi Bláfán-
ann. Er þetta í fjórtánda
skipti sem fáninn er dreginn
að húni við höfnina. Bláf-
áninn er alþjóðlegt merki
fyrir hafnir sem uppfylla
ströng skilyrði í umhverfis-
og öryggismálum og hefur
þann tilgang að stuðla að
verndun umhverfis smá-
bátahafna og baðstranda.
Það er Alþjóðanefndin Int-
ernational Blue Flag Jury
sem Landvernd á aðild að,
sem stendur að baki þessari
viðurkenningu. -mm
Fjölgar í
Hólminum
STYKKISH: Á bæjarskrif-
stofunni í Stykkishólmi er
fylgst náið með íbúaþróun
í bænum. Þannig er greint
frá því á vef sveitarfélags-
ins að bæjarbúar hafi verið
1150 talsins þriðjudaginn
5. júlí síðastliðinn. Hefur
Hólmurum því fjölgað um
sem nemur 4,3% frá ára-
mótum. „Þessi þróun er
mjög jákvæð ef miðað er við
almenna íbúaþróun á land-
inu og í einstökum lands-
hlutum. Vonandi heldur
þessi þróun áfram,“ segir á
vef Stykkishólmsbæjar.
-kgk
Kjördæmisþing
ákveður
val á lista
Samfylkingar
NV-KJÖRD: Kjördæmisráð
Samfylkingarinnar í Norð-
vesturkjördæmi boðar til kjör-
dæmisþings fimmtudaginn 14.
júlí kl. 20 til að ákveða aðferð
við val á framboðslista. Fundað
verður á þremur stöðum, þ.e. í
Menntaskólanum í Borgar-
nesi, Fræðslumiðstöð Vest-
fjarða á Ísafirði og Samstöðu-
salnum á Blönduósi í gegnum
Skype til að gera fólki kleift
að sækja þingið í sínu nærum-
hverfi. Stjórn kjördæmisráðs
í Norðvesturkjördæmi hef-
ur samþykkt tillögu þess efnis
að valið verði á framboðslista
með lokuðu flokksvali í skuld-
bindandi reglum Samfylking-
arinnar um aðferðir við val á
framboðslista sem samþykkt-
ar voru á flokksstjórnarfundi
2012. Kosning í fjögur efstu
sæti listans verði bindandi og
jafnræði kynja verði gætt með
paralista. Atkvæðagreiðslan
fer fram með rafrænni kosn-
ingu. „Stjórn kjördæmisráðs
hvetur alla félagsmenn til að
mæta á fundinn á sínu svæði
og taka þátt í undirbúningi og
umræðum vegna komandi al-
þingiskosninga,“ segir í til-
kynningu.
-mm
Píratar halda
prófkjör
NV-KJÖRD: Píratar í Norð-
vesturkjördæmi opnuðu fyrir
framboð á lista flokksins 16.
júní síðastliðinn. Lokað verð-
ur fyrir framboð 7. ágúst.
„Þeir sem tilkynna fram-
boð eftir 22. júlí hætta á að
fá minni kynningu en ella,“
segir í tilkynningu frá Píröt-
um. „Kosning hefst í rafrænu
kosningakerfi Pírata 8. ágúst
og stendur til 14. ágúst. Síð-
ustu forvöð til að skrá sig í
Pírata til að hafa kosninga-
rétt í prófkjöri eru föstudag-
inn 15. júlí. Fyrir framboð
í Norðvesturkjördæmi skal
senda tilkynningu á: nvkjor-
daemi@piratar.is Í framboð-
stilkynningu þarf eftirfarandi
að koma fram: Nafn, kenni-
tala, lögheimili, símanúmer,
hagsmunaskráning (stjórnar-
seta, fjárhagsleg tengsl, ann-
að sem skiptir máli) og aðrar
upplýsingar sem ætla má að
máli skipti.“
-mm
Í liðinni viku kom út Hagvísir um
umferð og ástand vega á Vestur-
landi. Útgefandi er Samtök sveit-
arfélaga á Vesturlandi en samtökin
byggja niðurstöðurnar á staðtölum
frá Vegagerðinni og skoðanakönn-
unum meðal íbúa og fyrirtækja á
Vesturlandi. Megin niðurstaðan er
sú að íbúar og fyrirtæki á Vestur-
landi telja vegakerfið fara versnandi
á sama tíma og gæði þess verði sí-
fellt mikilvægari þáttur fyrir áfram-
haldandi veru þeirra í landshlutan-
um. Verst er ástandið í Dölunum. Í
þessu samhengi kemur einnig fram
að umferð hefur aukist hlutfallslega
mest til Vesturlands frá árinu 1980,
borið saman við Reykjanes og Suð-
urland.
39% vega með
bundið slitlag
Á Vesturlandi búa tæplega 5%
landsmanna en í landshlutanum er
um 14% allra akvega á Íslandi í kíló-
metrum talið. Þá er 6% vegakerfis-
ins í Borgarbyggð og 3% í Dölun-
um en eingöngu 1% þjóðarinnar
býr í Borgarbyggð og 0,2% í Döl-
unum. Þegar horft er til landshlut-
anna átta á Íslandi er bundið slit-
lag á flestum vegum á Suðurnesjum
árið 2014 (84%) en fæstum á Norð-
urlandi vestra (29%). Vesturland
ásamt Norðurlandi eystra verma
næst neðsta sætið í þessum saman-
burði þar sem 39% vega hafa bund-
ið slitlag. Af átta landshlutum var
slysatíðni sú þriðja mesta á Vestur-
landi (0,99) ásamt Vestfjörðum og
Norðurlandi eystra. Þessir lands-
hlutar koma í kjölfar Austurlands
(1,56) og höfuðborgarsvæðisins
(1,22). Innan Vesturlands var slysa-
tíðnin hins vegar mest í Dalabyggð
(1,82) en minnst í Hvalfjarðarsveit
(0,67). Dalabyggð hafði fimmta
hættulegasta vegakerfið meðal ís-
lenskra sveitarfélaga en Hvalfjarðar-
sveit níunda öruggasta vegakerfið.
Minnst lagt í
Vesturlandsveg
Af þremur aðalumferðaræðum til
og frá höfuðborgarsvæðinu; Vest-
urlandsvegi, Suðurlandsvegi og
Reykjanesbraut, hefur Vegagerð-
in lagt minnst til Vesturlandsveg-
ar. Þegar kostnaðurinn var leiðrétt-
ur fyrir íbúafjölda og vegalengd var
minnst lagt til Suðurlandsvegar en
mest til Reykjanesbrautar. Frá 1980
hefur umferðin aukist hlutfallslega
mest til Borgarfjarðar, síðan til Snæ-
fellsness, svo Akraness og minnst
til Dalanna. Umferð á Vesturlandi
jókst hlutfallslega mest á Snæfells-
nesi (17%) á milli áranna 2012 og
2014. Hún jókst minna á Borgar-
fjarðarsvæðið, minnst á Akranes og
í Hvalfirði en dróst saman í Döl-
unum (4%). Á Akranesi eru nánast
engir malarvegir og eru þeir í 5. sæti
allra sveitarfélaga (74), hvað varðar
hlutfall vega með bundnu slitlagi.
Skorradalshreppur vermir 73. sæt-
ið þar sem eingöngu 16% eru þann-
ig búnir, Dalabyggð er í 70. sæti og
Borgarbyggð í 64. sæti yfir land-
ið. Umferð ferðamanna jókst um
40% við Svörtuloft á Snæfellsnesi
á milli áranna 2014 og 2015 en um
36% við Hraunfossa í Borgarfirði. Á
sama tíma jókst umferðin um 32% í
Haukadal við Gullfoss. mm
Telja vegakerfið fara versnandi
en þó sífellt mikilvægara