Skessuhorn - 27.07.2016, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 20166
Enn bætist í
hóp þingmanna
sem hyggjast
hætta
LANDIÐ: „Ég í samráði
við mína allra nánustu, hef
ákveðið að bjóða mig ekki
fram til Alþingis í komandi
kosningum. Ástæðan er að ég
og nýbakaða eiginkona mín,
Birna Harðardóttir, höfum
ákveðið að skipta um áfanga
í lífinu,“ segir Haraldur Ein-
arsson alþingismaður Fram-
sóknarflokks í Suðurkjör-
dæmi í tilkynningu til fjöl-
miðla. Bætist hann þar með
í hóp fjölmargra núverandi
alþingsmanna sem hyggjast
hætta í stjórnmálum. „Eftir
kosningar munum við flytjast
ásamt börnum okkar tveim
til foreldra minna í sveitina
á Urriðafossi. Þar hyggjumst
við gerast bændur og fara
inn í búskap með foreldrum
mínum. Ég er þakklátur og
stoltur fyrir þann tíma sem
ég hef fengið að vinna fyrir
land og þjóð. Ég er stoltur
af verkum ríkisstjórnarinn-
ar undir forystu Framsókn-
arflokksins og það er ekki
allt sem sýnist inni á Alþingi.
Hvet að lokum alla þá, sem
vilja leggja sitt af mörkum
til að gera þjóðfélagið okk-
ar betra og sanngjarnara að
bjóða sig til starfa á löggjar-
farsamkomunni,“ segir Har-
aldur Einarsson.
-mm
Vakinn upp af
Pokemon þjálfara
AKRANES: Rétt eftir hádegi
dag einn í liðinni viku var íbúi
í Jörundarholti vakinn upp af
værum svefni eftir næturvakt
þegar barið var að dyrum. Þeg-
ar íbúinn fór til dyra stóð tólf
ára drengur sem íbúinn kann-
aðist ekki við fyrir utan og bað
um að fá að komast inn vegna
þess að þar átti að leynast Poke-
mon. Íbúinn hleypti drengn-
um inn sem þarmmaði um hús-
ið uns hann fann Pokemon-
inn sem hann leitað að inn á
baðherbergi húsins. Drengur-
inn náði að fanga skrímslið og
yfirgaf því húsið skömmu síð-
ar. Á leiðinni út spurði íbúinn
drenginn hvort um sjaldgjæf-
an eða góðan Pokemon væri að
ræða; svaraði drengurinn því til
að svo væri alls ekki. -bþb
Maður
slasaðist á fæti
SNÆFELLSNES: Björgunar-
sveitir á Snæfellsnesi voru kall-
aðar út um kl. 20:00 að kvöldi
síðasta fimmtudags vegna
manns sem var slasaður á fæti.
Var hann staddur í Sauraskógi
við Stykkishólm. Verkefnið
gekk fljótt og vel fyrir sig, enda
um stuttan veg að fara þar til
hægt var að koma manninum til
aðstoðar. -kgk
Aukakjördæmis-
þing KFNV
DALABYGGÐ: Boðað er til
aukakjördæmisþings Kjördæm-
isambands Framsóknarmanna í
Norðvesturkjördæmi (KFNV)
laugardaginn 20. ágúst 2016 í
Félagsheimilinu Tjarnarlundi í
Dalabyggð kl. 12.30. Drög að
dagskrá: 1. Ákvörðun um aðferð
við val á lista við alþingiskosn-
ingar: (http://www.framsokn.
is/frambodsreglur/), 2. Ávörp
gesta, 3. Önnur mál.
-tilkynning
Réttardagar
ákveðnir í
Reykhólasveit
REYKHÓLHR :Á fundi fjall-
skilanefndar Reykhólahrepps í
liðinni viku voru ákveðnir rétt-
ardagar í sveitarfélaginu á hausti
komanda. Réttað verður í Eyr-
arrétt í Kollafirði laugardaginn
10. september, í Króksfjarðar-
nesrétt viku síðar, 17. septem-
ber og í Kinnarstaðarétt sunnu-
daginn 18. september.
-kgk
Óvæntir gestir á
bæjarhátíð
GRUNDARFJ: Nú um
helgina fór fram bæjarhátíð-
in Á góðri stund í Grundar-
firði. Hátíðin gekk vel og mik-
ið líf og fjör var í bænum um
helgina. Á föstudaginn bætt-
ist heldur betur í tölu hátíðar-
gesta þegar tvö skemmtiferða-
skip lögðu að bryggju í Grund-
arfirði. Þetta voru skipin Costa
Romantica og Pacific Princess,
frá borði stigu um 4.300 manns
og má því segja að mikill fjöldi
hafi verið kominn saman í bæn-
um á bæjarhátíðinni Á góðri
stund. Vert er að minnast á það
að 4.300 manns er fimm sinn-
um fleiri einstaklingar en búa í
Grundarfirði. -bþb
Ársreikningur Reykhólahreps fyrir
árið 2015 var lagður fram til fyrri um-
ræðu á fundi sveitarstjórnar fimmtu-
daginn 21. júlí síðastliðinn. Rekstrar-
niðurstaða Reykhólahrepps er sam-
kvæmt rekstrarreikningi A og B hluta
jákvæð um 33,5 milljónir króna. Er
það töluvert umfram þann 12,8 millj-
óna króna rekstrarafgang sem gert
var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Rekstr-
arniðurstaða A hluta var jákvæð um
14,8 milljónir en í fjárhagsáætlun var
búist við 5,5 milljóna króna tapi.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins
námu 480,2 milljónum samkvæmt
reikningi A og B hluta, sem er rúm-
lega 41 milljón meira en gert var ráð
fyrir í fjárhagsáætlun. Rekstrartekjur
A hluta námu tæpum 338 milljónum
en fjárhagsáætlun gerði fyrir rekstr-
artekjum að upphæð 294 milljónir.
Eigið fé sveitarfélagsins Reykhóla-
hrepps í árslok nam 387,5 milljónum
króna samkvæmt efnahagsreikningi,
en eigið fé A hluta nam 328,7 millj-
ónum.
kgk/ Ljósm. sm
Jákvæð rekstrarafkoma Reykhólahrepps
Sú breyting hefur orðið á rekstri
verkstæðis og stálsmiðju B.A. Ein-
arssonar í Búðardal að bifreiða-
verkstæði fyrirtkækisins hefur ver-
ið lokað. Verkstæðið og stálsmiðj-
an var opnuð að Vesturbraut 8 fyr-
ir tæpum tveimur og hálfu ári síð-
an, 27. febrúar 2014, af Birni Ant-
on Einarssyni stálsmiði, en Katarí-
nus Jón Jónsson bifvélavirki sá um
rekstur bifreiða- og vélaverkstæðis-
ins. Í samtali við Skessuhorn sagðist
Katarínus ætla að snúa sér að öðru
í framtíðinni. Hvað það yrði myndi
bara koma í ljós með tíð og tíma.
Rekstur stálsmiðju B.A. Einars-
sonar verður eftir sem áður óbreytt-
ur. Hún verður áfram starfrækt að
Vesturbraut 8 í Búðardal eins og
verið hefur frá upphafi. kgk
Bifreiðaverkstæði B.A. Einarssonar lokað
Húsnæði B.A. Einarssonar við Vesturbraut 8 í Búðardal.
Hvalaskoðunarsamtök Íslands hafa
skorað á sjávarútvegsráðherra að
beita sér gegn frekari veiðum á
hrefnu í Faxaflóa. Í tilkynningu sem
samtökin sendu frá sér kemur fram
að 34 hrefnur hafi verið veiddar í
og við Faxaflóa á vertíðinni sem nú
stendur yfir, fimm hrefnum fleiri en
veiddar voru í heildina í fyrra.
Samtökin segja að hrefnum á
Faxaflóa fækki jafn og þétt. Þau segja
að það sé krafa frá Hvalskoðunar-
samtök Íslands og Samtökum ferða-
þjónustunnar, sem studd sé af öllum
flokkum í borgarstjórn Reykjavíkur,
um að Faxaflói verði gert að griðar-
svæði hvala. Segja þau að hvalaskoð-
un sé ein stærsta afþreyingargrein
ferðaþjónustunnar í Reykjavík og
mikið sé í húfi. bþb
Vilja friða hvali
í Faxaflóa