Skessuhorn - 27.07.2016, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 201610
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir
hefur sent Alþingi bréf þar sem hann
gerir athugasemdir við þingsálykt-
unartillögu um staðfestingu samn-
ings Íslands og ESB um viðskipti
með landbúnaðarvörur. Hann gerir
athugasemdir við að í tillögunni sé
ekki fjallað beinlínis um heilbrigðis-
mál sem snerta innflutning á fersk-
um landbúnaðarvörum, aðeins um
tolla og tollkvóta á landbúnaðarvör-
ur til og frá Íslandi. „Engu að síður
er rétt að vekja athygli á því að auk-
inn innflutningur á ferskum land-
búnaðarvörum hingað til lands getur
haft í för með sér ákveðin heilbrigð-
isvandamál sem íslensk yfirvöld þurfa
að vera meðvituð um og tilbúin að
bregðast við,“ segir í bréfinu.
Sóttvarnalæknir vísar í álit Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
og Sóttvarnastofnunar Evrópusam-
bandsins þess efnis að útbreiðsla ým-
issa sýkla og sýklalyfjaónæmra bakt-
ería sé ein helsta heilbrigðisógn sem
steðjar að heiminum í dag. Margir
þættir stuðli að þeirri útbreiðslu og
einn þáttur sé dreifing með ferskum
matvælum, einkum fersku alifugla-
kjöti. „Á Íslandi hefur tíðni matar-
borinna sýkla hjá mönnum og sýkla-
lyfjaónæmi verið umtalsvert minna
en í flestum nágrannalöndum. Með
auknum innflutningi á ferskum land-
búnaðarvörum, einkum alifugla-
kjöti er hætt við að tíðni matarbor-
inna sýkinga muni aukast hér á landi
sem og útbreiðsla sýklalyfjaónæmra
baktería,“ segir í bréfi sóttvarna-
læknis. Hann telur því mikilvægt að
samningur Íslands við ESB um við-
skipti með ferska matvöru taki mið af
þessum þáttum. Setja þurfi í samn-
inginn ákvæði sem gefi Íslendingum
möguleika á að takmarka innflutn-
ing á vörum sem sýnt þykir að auka
muni ógn við almennt heilbrigði hér
á landi. kgk
Hinn tvítugi Rúnar Gíslason sæk-
ist eftir oddvitasæti Vinstri hreyf-
ingarinnar græns framboðs í Norð-
vesturkjördæmi fyrir komandi Al-
þingiskosningar. Sem lið í að koma
sér á framfæri fyrir forval VG boðar
hann til opins fundar í Landnáms-
setrinu í Borgarnesi fimmtudaginn
4. ágúst kl. 20:00. „Mig langar að
vera meira en bara á bakvið lykla-
borðið og þess vegna vil ég boða til
opins fundar með mér, eins sjálf-
hverft og það kann að hljóma. Sá
fundur verður 4. ágúst nk. á Land-
námssetrinu kl. 20:00. Þar gefst
áhugasömum tækifæri á að kynna
sér framboð mitt enn betur og
spyrja mig spurninga. Mér finnst
ég þurfa að gera þetta þar sem ég
er lítið þekktur og er í raun ennþá
bara óskrifað blað hjá mörgum. Allt
flokksstarf er í dvala þessa stundina
og fannst mér því kjörið tækifæri að
boða til fundarins núna“ segir Rún-
ar.
Það er ekki á hverjum degi sem
tvítugur einstaklingur býður sig
fram til oddvitasætis en Rúnar virðist
óhræddur. „Ég hef brennandi áhuga
á þjóðfélagsmálum og mikinn áhuga
á þessu starfi. Það er svoleiðis að það
eru aðeins þeir sem þora sem skora
og maður hefur engu að tapa þegar
maður er svona ungur svo það var í
raun aldrei vafi hjá mér að bjóða mig
fram. Mér finnst einnig að á þing-
ið eigi að vera þverskurður þjóðar-
innar og þar á ungt fólk líka heima.
Ég er vonandi að sýna fordæmi sem
aðrir ungir einstaklingar geta litið
til. Það vantar oft hjá ungu fólki að
þora að taka slaginn. Vonandi finnst
einhverjum að ég geti verið verðug-
ur fulltrúi unga fólksins. Ef ekki þá
nær það ekki lengra,” segir Rúnar að
endingu. bþb
Kallar eftir ákvæði
um heilbrigðismál
Kjúklingabringa.
Tvítugur og stefnir á
oddvitasæti
Mikil og þung umferð hefur verið
um helstu þjóðvegi umdæmisins nú
í sumar og er það í samræmi við all-
ar spár um fjölgun ferðamanna. Yfir
vetrarmánuðina róast þetta aðeins
en breytir ekki því að ferðamönnum
fjölgar ár frá ári. Lögregla hefur haft
í nógu að snúast og ekki síst í kring-
um erlenda ferðamenn nú í sum-
ar. ,,Við höfum verið heppin vil ég
segja og sloppið að mestu við alvar-
leg slys eða óhöpp í umdæminu og
krossum fingur að svo verði áfram.
Við þökkum fyrir hvern slysalaus-
an dag,“ segir Úlfar Lúðvíksson
lögreglustjóri. ,,Álag á vegakerf-
ið eykst ár frá ári. Vesturlandsveg-
ur á vegarkafla frá Hvalfjarðargöng-
um í Borgarnesi hefur til að mynda
tekið litlum breytingum frá því ég
var strákur en löngu tímabært er að
auka öryggi vegfarenda um veginn
og þá eru yfirborðsmerkingar víða
af skornum skammti sem ég hrein-
lega skil ekki hafi menn einhvern
sans fyrir umferðaröryggi. Hvern-
ig sem á það er litið sinnir Vega-
gerðin því verkefni illa að hafa yf-
irborðsmerkingar í lagi og horfi ég
þá ekki bara til þjóðvega í umdæmi
lögreglunnar á Vesturlandi. Mér
finnst ömurlegt að keyra um hring-
veg, einn þriggja sem tengir lands-
byggðina við höfuðborgina, þar sem
yfirborðsmerkingar eru af skornum
skammti. Þetta á að vera í lagi en er
ekki. Yfirborðsmerkingar eru gríð-
arlega mikilvægar fyrir umferðarör-
yggið,“ segir Úlfar.
Lögreglan á Vesturlandi býr
við hallarekstur sem vinna þarf á.
„Mér ber að reka embættið inn-
an fjárheimilda. Ég þarf að fækka í
liði lögreglu en geri ekki með upp-
sögnum en ekki verður ráðið í stöð-
ur sem losna. Embættið dregur úr
rekstrarkostnaði með því að fækka
fólki og draga úr akstri lögreglubíla.
Það veit mitt fólk en af þessu hef
ég áhyggjur vegna þess að við telj-
um okkur vita hvað þarf til í þessum
efnum. Við viljum ekki bara slökkva
elda heldur sinna frumkvæðisvinnu
með öðrum og betri hætti en gert
er í dag en ég er ánægður með mitt
lið og framlag minna starfsmanna,“
segir Úlfar að endingu.
arg
Gengið vel hjá lögreglunni
það sem af er sumri
Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Vesturlandi. Ljósm. úr safni.
Í tilkynnigu frá Matvælastofnun er
sagt frá því að Alexandrium og Di-
nophysis þörungar hafi greinst und-
anfarið í sjósýnum sem tekin hafa
verið í Hvalfirði og Breiðafirði en
einnig í Mjóafirði og Steingrímsfirði.
Útbreiðsla þörunganna annars staðar
við strendur landsins er ekki þekkt.
Því vill MAST vara við tínslu á
kræklingi, eða bláskel, og annarra
skeltegunda við landið. Þekkt er sú
þumalfingursregla að ekki skuli tína
skelfisk til neyslu þá mánuði sem ekki
innihalda „r“ í nafni sínu. Sú regla er
því í fullu gildi.
„Alexandrium þörungar geta vald-
ið PSP eitrun og Dinophysis þör-
ungar DSP eitrun,“ segir í tilkynn-
ingu MAST. PSP eitrun getur vald-
ið lömun í mönnum og koma eitr-
unareinkennin fram tveimur til tólf
klukkustundum eftir neyslu. Ein-
kenni eru allt frá doða í munni til
lömunar og getur PSP eitrun í alvar-
legustu tilfellum valdið dauða vegna
öndunarlömunar. Ekki hafa komið
upp tilfelli PSP eitrunar í mönnum á
Íslandi svo vitað sé.
Einkenni DSP eitrunar eru eink-
um á meltingarveg með tilheyrandi
kviðverkjum, ógleði, uppköstum og
niðurgangi. Einkennin koma fram
fljótlega eftir neyslu og líða hjá innan
nokkurra daga. kgk
Varað við tínslu á skelfiski
Kræklingaréttur. Ljósm. úr safni.
Iain Williamson kom til ÍA að láni
frá Víkingi Reykjavík um miðjan
maí síðastliðinn. Hann hefur ver-
ið fastamaður í byrjunarliði Skaga-
manna síðan og þykir hafa stað-
ið sig vel. Frammistaða hans hef-
ur vakið athygli og var því varp-
að fram á samskiptavefinn Twit-
ter eftir leik Skagamanna og ÍBV í
vikunni hvort ekki væri réttast fyr-
ir Víking að kalla Iain til baka þar
sem allt stefnir í að bæði ÍA og Vík-
ingur muni berjast um sæti í Evr-
ópudeildinni að ári. Víkingur hefur
þann kost að kalla Iain til baka en
Gunnlaugur Jónsson sagði í samtali
við fotbolti.net í gær að liðin hafi
komist að samkomulagi um að Iain
muni klára tímabilið hjá Skaga-
mönnum.
bþb
Iain Williamson klárar
tímabilið með ÍA