Skessuhorn


Skessuhorn - 27.07.2016, Qupperneq 16

Skessuhorn - 27.07.2016, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 201616 Bæjarhátíðin Á góðri stund í Grundarfirði fór fram um síðustu helgi og er óhætt að segja að vel hafi tekist til. Þokkalega margt var um manninn enda gátu flestir fund- ið eitthvað við sitt hæfi í skemmti- dagskrá hátíðarfélagsins. Þjófstar- tið var á fimmtudagskvöldinu þar sem Grundfirskar stúlkur voru með frábæra Abba sýningu áður en Ey- þór Ingi og Jóhanna Guðrún héldu frábæra tónleika. Á föstudeginum var hægt að skella sér í froðupartý og brekkusöng svo eitthvað sé til talið. Á laugardeginum var svo há- tíðardagskrá niður við höfn áður en gulir, rauðir, grænir og bláir mætt- ust á gatnamótum Grundargötu og Hrannarstígs eins og svo oft áður. Þar gengu íbúar og gestir fylktu liði niður á hátíðarsvæði en dagskráin endaði svo á stórdansleik með Sál- inni hans Jóns míns. „Það fór allt vel fram um helgina,“ sagði Aldís Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri há- tíðarinnar. „Þetta var svona svipað- ur fjöldi gesta eins og undanfarin ár en menn voru að skjóta á þetta 2000 til 2500 gestir hafi verið í Grundar- firði um helgina,“ bætti Aldís við en hún var hæstánægð með hátíðina sem gekk stóráfallalaust fyrir sig. Einnig var hægt að skreppa á lista- sýningar, sýningu um sögu Grund- arfjarðarkirkju og margt fleira. tfk Á góðri stund í Grundafirði fór vel fram Grundfirsku söngdívurnar eftir að hafa lokið sínum flutningi á þekktum Abba lögum á fimmtudagskvöldinu. Gói og Villi héldu uppi stuðinu frameftir kvöldi. Baldur Orri Rafnsson betur þekktur sem Baldur Bongó stýrðu hinu víðfræga HÚH öskri sem gerði allt vitlaust á evrópumótinu í knattspyrnu fyrr í sumar. Rauðir nálgast vegamótin og tendruðu í blysum. Það var kátt á hjalla í brekkusöngnum á föstudagskvöldinu. Ingólfur Þórarinsson stjórnaði brekkusöngnum af stakri prýði. Hollvinasamtök Eyrbyggja afhentu framfaraverðlaun Eyrbyggja á fjölskylduskemmtuninni á laugardeginum og þetta árið kom það í hlut Skíðadeildar UMFG sem hefur heldur betur farið kröftuglega af stað. Það var mikið fjör og gleði í froðupartýinu á föstudaginn. Guðmundur Smári Guðmundsson fór fyrir rauða liðinu í húh klappinu. Fiskisúpa Lions klikkaði ekki frekar en fyrri daginn.Hljómsveit Eiríks Höskuldssonar lék fyrir gesti og gangandi á útipallinum á Rúben.Þeir voru vígalegir í rauðu skrúðgöngunni.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.