Skessuhorn - 27.07.2016, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016 19
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta,
Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að póstleggja
þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður
úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn
bókargjöf frá Skessuhorni; „Pétrísk íslensk orðabók
með alfræðiívafi,“ eftir sr. Pétur Þorsteinsson.
Alls bárust 54 lausnir við krossgátunni í blaðinu í
síðustu viku. Lausnin var: „Kyrrseta.“ Vinningshafi
er: Þórunn Erla Sighvats, Dalsflöt 9, Akranesi.
Máls-
háttur
Klöpp
Óreiða
Matar-
hirsla
Skafinn
Yndi
Úrugur
Sérstök
Grasey
Vekja
Efni
Brask
Aldur
Huldu-
verur
Vilji
Tónn
Uggði
Titill
Átt
Kvaka
Flökta
Teiti
Rita
Ágæti
Kirkja
4
Skreyta
Návist
Þjapp-
aði
Blundur
Hreyf-
ing
Átt
Spyr
Hjól
Ögn
Léði
Rugl
1
Land
Vagga
Frá
Grípa
6 Ná í
Í hálsi
Snjó
Hólmi
Suddi
Skriðan
Rasa
Fiskar
Skáli
Venda
Andi
Loforð
Viðmót
Svertir
Temja
Öldur
Elska
Friður
2 Vafi
Dreif
Vald
Á fæti
Fúsk
Muldr-
ar
Spurn
Tvíhlj.
Álítur
Ójafna
Hissa
Kveikur
Jurta-
seyði
Dýpi
Tvíbaka
Samhlj.
Siðir
Rispa
Kopar
Laga
Afleit
Kl. 15
Nóa
Rödd
Atóm
7 Álit
Tónn
Reið
Svell
Herma
Hnýti
Tölur
3 Dans
Land-
spilda
Ílát
Hlut-
verk
Dvel
Titra
Auður
5
Léttir Titill
8 Líka
Elfur
Óhóf
Hlífa
Vein
Grjót
Lít
Ekki
Greind
1 2 3 4 5 6 7 8
Sumarlesari
vikunnar
Áfram heldur sumarlesturinn á
Bókasafni Akraness. Að þessu
sinni er gestur okkar Daníel Guð-
jónsson.
Hvað heitir þú og hvað ertu
gamall?Daníel Guðjónsson og ég
er sex að verða sjö ára í ágúst.
Í hvaða skóla ertu? Grundaskóla.
Hvaða bók varstu að lesa?
Músafjölskyldan og skíðakeppnin
og Músafjölskyldan og litagleðin.
Halló Kata könguló, Halló Frikki
fiðrildi og Halló Ási ánamaðkur.
Hver þeirra var skemmtilegust?
Músafjölskyldan og skíðakeppnin
var rosa fyndin.
Hvernig bækur finnst þér
skemmtilegastar?Ævintýra- og
töfrabækur og líka bækur um vís-
indi.
Hvar er best að vera þegar mað-
ur er að lesa?Það er best að lesa
uppi í rúmi áður en ég fer að sofa.
Áttu þér uppáhalds bók eða
uppáhalds rithöfund?Harry Pot-
ter bækurnar og vísinda Villi .
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór?Ég vil vinna hjá
Neyðarlínunni.
Svo virðist sem eins árs laxinn
ætli að láta lítið á sér bera ennþá, í
straumnum sem er stór þessa dag-
ana. En það virðist ekki duga neitt,
einn og einn fiskur er að skríða
inná flóðinu þessa dagana. Laxveið-
in mætti vera betri, það þarf nýja
fiska. Þessir gömlu þekkja allt sem
er í boði.
,,Síðasta holl í Haukadalsá gaf
næstum því 90 laxa og það er fiskur
víða um ána,“ sagði veiðimaður sem
var að koma úr ánni en hún hefur
gefið 244 laxa. Grímsá í Borgarfirði
er kominn með 260 laxa. ,,Þetta er
all í lagi hérna við Grímsá,“ sagði
okkar maður.
Það hefur verið tog í Flókadalsá í
Borgarfirði og fiskurinn verið treg-
ur að taka, en Flókadalsá hefur gef-
ið 211 laxa. Góður gangur hefur
verið í Miðá í Dölum og áin gef-
ið 180 laxa og eitthvað af bleikjum.
Hollið sem var þar fyrir skömmu
veiddi vel af laxi og bleikjur.
gb
Laxveiðin mætti
vera betri
Viðbjóður í Grímsá. Svo sem ekki fallegt nafn en staðurinn er fallegur mjög.
Silungsveiðin gengur víða ágæt-
lega. Hraunsfjörðurinn hefur ver-
ið að gefa, Vatnasvæði Lýsu og vötn
á Snæfellsnesi. Og fiskurinn virðist
vera vel haldinn.
„Við vorum að koma úr Hlíða-
vatni og veiðin var fín,“ sagði Guð-
mundur Árni Hjartarson sem var
við veiðar ásamt nokkrum vösk-
um veiðimönnum. „Við fengum 24
fiska, mest urriða en líka bleikjur.
Þetta var skemmtilegt,“ sagði Guð-
mundur Árni eftir veiðina í vatninu.
Veiðimenn sem voru í Langavatni
fyrir skömmu veiddu nokkra fiska
og allavega þrír fiskana voru vel
vænir. Hraunsfjörðurinn hefur ver-
ið að gefa bleikju og líka eitthvað af
laxi. „Það er gaman að leika sér með
fluguna í Hraunsfirðinum, bleikjan
nætti vera aðeins gráðugri að taka
hana samt,“ sagði veiðimaður sem
mikið stundar Hraunsfjörðinn.
gb
Frábær veiði í Hlíðarvatni
Flott veiði úr Hlíðarvatni fyrir skömmu, bæði urrriði og bleikja.
Ljósm. Guðmundur Árni Hjartarson.
Síðustu dagar hafa einkennst af svita
í miklu magni ásamt snarauknu adr-
enalínflæði sem orsakast að mikl-
um hluta af verkefnalista sem hefur
fengið að sitja á hakanum. Ég kláraði
sem sagt sumarfríið mitt og upplifði
þetta klassíska krass - spurningar á
borð við; shit á ég að fara að vinna
á morgun, hvað er ég búinn að gera
í fríinu o.s.frv. lustu upp í höfuðið
mitt og eyðilögðu nær shamanískan
hugsanagang minn sem hafði feng-
ið að blómstra þetta sumarið. Svona
eins og þetta Binna sveppashaman
sem er maður sem fær borgað fyrir
að vera stónd með fólki og sammála
því sem það segir, flettið því upp þið
sjáið ekki eftir því, ég allavega um-
breyttist og varð einn með sumar-
sólinni eða eins og þeir segja á am-
erísku „one with the sun“. Ég elska
sumarfrí, í raun vildi ég vera alltaf í
sumarfríi en þá gæti ég ekki horft á
Sopranos í tímaflakkinu þegar ég hef
ekkert að gera því ég ætti örugglega
ekkert sjónvarp sökum tekjuskorts,
en hvað um það.
En hvað er annars að frétta, hóp-
ur tónlistarmanna og Eyjamenn
komust að þeirri niðurstöðu að þeir
væru sammála og enginn hætti við að
hætta. Aðrar hljómsveitir standa eft-
ir ringlaðar. Umferðin um þjóðvegina
er orðin extra special bitter svo mik-
il er hún og túristavarpið blómstrar
sem aldrei fyrr, finna má ýmsar hreið-
urgerðir túrista frá hinum ýmsu lönd-
um í kjarri eða jafnvel á víðavangi.
Hvað meira? Einhverjir stjórnmála-
menn rosa hissa þegar frétt barst þess
efnis að einhverjir mögulega vafa-
samir fjárfestar frá útlöndum ætli
að koma og reisa eitthvað hátækni-
sjúkrahús fyrir útlendinga og Íslend-
inga í Mosfellsbæ. Reyndar ætla þeir
að sækja um leyfi fyrir sjúkrahúsinu
eftir að það er búið að reisa gímald-
ið sem hljómar svolítið furðulega. Af-
hverju fyllist ég alltaf tortyggni gagn-
vart fólki með fulla vasa af peningum,
er þetta mér blóð í borið vegna þess
að ég er Íslendingur?
Ég verð að viðurkenna að þegar
ég heyrði þetta fyrst þá varð mér of-
boðið, eitthvað monnýdæmi enn eina
ferðina og var sammála stjórnmála-
konunni sem sagði að með þessu væri
verið að grafa undan sjálfu heilbrigð-
iskerfinu sem við
Íslendingar get-
um verið svo stolt
af. Ok, við höf-
um einn besta
barnaspítala sem fyrirfinnst og ótrú-
lega hæfileikaríkt fólk á öðrum svið-
um sem virðist vera gætt yfirnáttúru-
legum hæfileikum. En svo fór ég að
hugsa, grafa undan kerfinu? Er ekki
búið að vera grafa undan kerfinu og
skemma það innan frá með niður-
skurði á niðurskurði ofan? Undirbúa
jarðveginn fyrir einmitt svona einka-
væðingarjólasveinum sem koma fær-
andi hendi með milljarða standandi
fram úr ermunum. Eyðileggja fyrst og
spyrja svo virðist vera mantran þessa
dagana.
En aftur að sumarfríspælingunni.
Mér finnst reyndar að hluti af fólki
sé hreinlega alltaf í sumarfríi eða sé í
anda að hluta til. Góðvinur minn er
í forsvari fyrir félag hér í Borgafirði,
félag þetta hefur áhuga á skotvopnum
og skotfærum. Þeim langar í útisvæði
til að leika sér og æfa sig á en hafa ver-
ið fastir í einskonar Groundhog Day-
skotinni tilveru í viðureign sinni við
yfirvaldið á svæðinu síðustu misseri.
Einhver lýsir þessu þannig að þetta sé
líkt og að reyna að bera sofandi mann
úr reykfylltu húsi slíkur er eldmóður-
inn í fólkinu sem fer með framkvæmd-
arvaldið. Eru þau hrædd við að kom-
ast í sögubækurnar eða eitthvað slíkt
maður bara spyr. Það virðist vera út-
breiddur misskilningur að um leið og
þetta svæði sé sett á laggirnar að það
muni gereyða öllu fuglalífi, mann-
fólki og tortíma jörðinni í leiðinni
(Douglas Adams style) veit ekki með
það en ég læt pilluskot mitt hér stað-
ar numið því ég trúi því að hugsandi
fólk komist að skynsamlegri og sann-
gjarnri niðurstöðu fljótlega (eða er ég
kannski að endurtaka það sem þau
segja?). Mér verður hugsað til heima-
bæjar míns sem er fallegur staður, þú
kannski kannast við hann, Akranes.
Þar hefur yfirburðaflott útiaðstaða
þróast í gegnum árin fyrir ástundend-
ur þessa skemmtilega sports og eiga
hlutaðilar hrós skilið fyrir samvinnu
og úrlausn vandamála sem kunna að
koma upp. Meira svona.
Góðar stundir
Axel Freyr Eiríksson
Sumarfrí
PISTILL