Skessuhorn


Skessuhorn - 27.07.2016, Side 22

Skessuhorn - 27.07.2016, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 201622 „Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina?“ Spurning vikunnar (Spurt á Grundarfirði) Ingi Hans „Ég ætla að vera heima hjá mér.“ Sunna Njálsdóttir „Hér í Grundarfirði á 50 ára afmælishátíð Grundarfjarðar- kirkju. Ég er í afmælisnefnd.“ Sigurborg Kr. Hannesdóttir „Syngja í messu á 50 ára afmæli Grundarfjarðarkirkju. Ég ætla einnig að fara og kenna dans á edrúhátíðinni að Hlöðum. Síð- an að njóta lífsins þess á milli.“ Rósa Guðmundsdóttir „Heima, aldrei þessu vant. Afs- löppun eftir hátíðina Á góðri stund sem var síðustu helgi.“ Jónatan Björnsson „Ég verð að vinna upp á Búr- felli.“ Á sunnudag mættu Skagamenn liði ÍBV á Akranesvelli í tólftu umferð Pepsi deildar karla. Skagamenn sem byrjuðu mótið illa og voru aðeins með fjögur stig eftir sjö umferðir hafa snúið við blaðinu í undanförn- um leikjum. Þeir sigruðu lið ÍBV 2-0 og hafa þeir því unnið fimm leiki í röð. Þetta er lengsta sigur- ganga Skagamanna í 13 ár en það var undir lok tímabilsins 2003 sem Skagamenn unnu síðast fimm leiki í röð. Eini leikmaður Skagamanna sem lék einnig tímabilið 2003 er Garðar Bergmann Gunnlaugsson en Gunnlaugur Jónsson, þjálfari liðsins, var fyrirliði árið 2003. Skagamenn stjórnuðu leiknum að mestu leyti í fyrri hálfleik og voru mjög hættulegir fram á við. Það kom ekki mörgum óvart að Garð- ar Bergmann Gunnlaugsson skor- aði fyrsta mark leiksins, það gerði hann á 17. mínútu. Garðar fékk boltann frá Tryggva Hrafni vinstra megin við teiginn; hann sneri sér í átt að markinu og negldi boltanum utan teigs í slána og inn. Gríðarlega fallegt mark og það virðist ekkert geta stöðvað markaskorun Garðars þessa stundina, hann er nú kominn með ellefu mörk í tólf leikjum. Á 33. mínútu kom annað mark Skagamanna. Skagamenn fengu hornspyrnu þar sem Ármann Smári stangið sendingu Iain Williamson í átt að marki en Vestmanneying- ar björguðu á línu. Boltinn barst þá út á kantinn til Jóns Vilhelms sem sendi hann aftur inn í og þar náði varnartröllið Ármann Smári öðr- um skalla að marki og í þetta sinn endaði boltinn í netinu. Staðan 2-0 þegar Þorvaldur Árnason flautaði til hálfleiks. ÍBV spiluðu betri fótbolta í síð- ari hálfleik en þeim fyrri. Þeir áttu erfitt með að skapa sér sóknarfæri og voru sóknir Skagamanna hættu- legri þó þær væru færri en í fyrri hálfleik. Hálfleikurinn var einnig töluvert rólegri en sá fyrri. Á 74. mínútu var Darren Lough sendur útaf með sitt annað gula spjald. Skagamenn voru allt ann- að en sáttir og dómurinn nokk- uð umdeildur. Darren renndi sér í boltann fyrst en fór svo í manninn og mat Þorvaldur Árnason atvikið sem svo að um brot væri að ræða og Darren því sendur útaf. Eyjamenn voru því einum fleiri síðasta kort- erið og sókn þeirra varð þyngri það sem eftir var. Þó svo að sókn þeirra væri þung var lítið um hættuleg færi. Lokatölur urðu þær að Skaga- menn sigruðu leikinn með tveimur mörkum gegn engu. Skagamenn eru með sigrinum komnir upp í fimmta sæti deildar- innar, sex stigum frá toppliði FH en Skagamenn mæta einmitt FH í næstu umferð á Akranesvelli mið- vikudaginn 3. ágúst. bþb Lengsta sigurganga Skagamanna í efstu deild í 13 ár Markaskorararnir Ármann Smári Björnsson og Garðar Gunnlaugsson fagna sigri á ÍBV á sunnudag. Ljósm. gbh. Víkingur Ólafsvík tók á móti Breiðablik í Pepsi deild karla þann 24. júlí síðastliðinn. Gestirnir voru ívið ákveðnari í sínum aðgerðum á meðan heimamenn lágu töluvert til baka. Fátt markvert gerðist í fyrri hálfleik en staðan var 0-0 þegar að dómarinn flautaði til leikhlés. Það sama var uppi á teningnum í síð- ari hálfleik og Víkingar áttu í stök- ustu vandræðum með að skapa sér færi og náðu aldrei að ógna marki Breiðabliks að neinu ráði nema þá helst með skotum fyrir utan teig sem að Gunnleifur Gunnleifsson markvörður Breiðabliks réði auð- veldlega við. Gestirnir brutu svo ísinn á 65. mínútu þegar Árni Vil- hjálmsson náði að skora og koma Breiðablik í 1-0 forystu. Heima- menn reyndu hvað þeir gátu en varnarmenn gestanna með Damir Muminovic, fyrrverandi leikmann Víkings, fremstan í flokki hleyptu þeim aldrei í gegn. Það var svo á 83. mínútu að Arnþór Ari Atlason bætti við öðru marki Breiðabliks og kom gestunum í 2-0 að úr- slitin voru ráðin. Sanngjarn sigur Breiðabliks sem komst með sigr- inum í þriðja sæti deildarinnar á meðan Víkingur Ólafsvík datt nið- ur í það sjötta. Næsti leikur Víkings er gegn Val miðvikudaginn 3. ágúst næstkom- andi. Leikið verður á Hlíðarenda í Reykjavík. tfk Víkingur tapaði á heimavelli Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur gengið frá nýjum samningi við Finn Jónsson um þjálfun karlaliðs félagsins til 2019, eða næstu þriggja keppnistímabila. Finnur hefur þjálf- að meistaraflokk Skallagríms frá því í ársbyrjun 2015. Hann var við stjórnvölinn þegar liðið tryggði sér sæti í Domino’s deild karla á nýjan leik eftir sigur í oddaleik í úrslita- einvígi við Fjölni í úrslitakeppni 1. deildar. Finnur er einnig yfir- þjálfari yngri flokka Skallagríms og hefur komið að þjálfun yngri landsliða Íslands. Finni til aðstoðar verður Atli Að- alsteinsson en hann mun jafnframt leika með liðinu. Atli hefur þjálfað yngri flokka félagsins. Hann lék með Skallagrími síðasta vetur en meiddist á öxl undir lok tímabilsins og er nú í endurhæfingu vegna þeirra meiðsla. Vonir Skallagrímsmanna standa til að Atli geti spilað aftur á nýju ári. Atli tekur við stöðu aðstoðarþjálf- ara af reynsluboltanum Hafþóri Inga Gunnarssyni, sem var spilandi þjálf- ari Skallagríms á síðasta tímabili. „Vill körfuknattleiksdeild Skalla- gríms þakka Hafþóri kærlega fyr- ir frábær störf og vonast deildin eftir því að fá að njóta krafta hans í fram- tíðinni,“ segir á facebook síðu Skalla- gríms. kgk Breytingar á þjálfarateymi Skallagríms Þjálfarateymi karlaliðs Skallagríms á komandi vetri. Atli Aðalsteinsson aðstoðarþjálfari og Finnur Jónsson þjálfari. Ljósm. Skallagrímur. Ejub Purisevic þjálfari Víkings gaf það út á dögunum að hann ætlaði að bæta við sig þremur til fjórum leikmönnum áður en félagsskipta- glugginn lokar í byrjun ágúst. Ejub hefur nú fengið til liðs við Víking einn leikmann. Martin Svensson er 26 ára gamall Dani sem spilar á kantinum. Hann hefur á ferli sín- um leikið með Silkeborg, Randers, Viborg og Vejle Boldklub í Dan- mörku áður en hann hélt til Ís- lands á þessu ári þar sem hann spil- aði fyrri hluta tímabils þrjá leiki með Víkingi frá Reykjavík en er nú kominn til Ólafsvíkur. Mart- in lék sinn fyrsta leik með Víkingi Ólafsvík gegn Breiðablik á sunnu- daginn. bþb/ Ljósm. vikingurol.is Martin Svensson til liðs við Víking Ólafsvík

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.