Skessuhorn - 19.10.2016, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 42. tbl. 19. árg. 19. október 2016 - kr. 750 í lausasölu
Hugmyndin með EVE Online var að
búa til leik sem margir gætu spilað
á sama tíma. Nú erum við aftur á
barmi byltingar.
Búðu þig undir
spennandi framtíð
Ferðin frá hugmynd að farsælu fyrirtæki með skýra
framtíðarsýn kallar á öflugan samstarfsaðila.
Pantaðu viðtal við fyrirtækjaráðgjafa á
arionbanki.is/fyrirtaeki eða í síma ��� ����
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6-
28
39
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
20%
afsláttur
Verkir í liðum?
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Vökudagar
á Akranesi
27. okt. – 6. nóv.
Vaskur flokkur manna nýtti góða veðrið um helgina til að steypa bílaplan við nýja áningarstaðinn við Bjarnarfoss á Snæfellsnesi. Sjá nánar inni í blaðinu.
Ljósm. Kristinn Jónasson.
Samkvæmt breytingartillögu við
fjögurra ára samgönguáætlun
2015-2018 sem samþykkt var á Al-
þingi síðastliðinn miðvikudag verð-
ur 250 milljónum króna varið til
endurbóta á Skógarstrandarvegi á
næstu tveimur árum. Eins og ítrekað
hefur verið greint frá í Skessuhorni
hafa fjölmörg slys og óhöpp orðið á
þessum sextíu kílómetra vegarkafla
á undanförnu ári. Áður hafði ekki
var gert ráð fyrir að veita peningum
til vegarins fyrr en árið 2019. „Við
erum mjög ánægð með þetta fram-
lag sem kom inn í samgönguáætl-
un á síðustu stundu og var eiginlega
framar okkar vonum,“ segir Sveinn
Pálsson sveitarstjóri Dalabyggðar
í samtali við Skessuhorn. „Við trú-
um því að umræða síðustu vikna og
mánaða hafi haft jákvæð áhrif á þró-
un málsins þar sem lögregla, sveit-
arfélagið, Skessuhorn og fleiri vöktu
athygli á málinu og hve brýnt það
væri,“ bætir Sveinn við. Þá ber að
geta þess að samtals er gert ráð fyr-
ir að verja 1,1 milljarði til endurbóta
Skógarstrandarvegar fram til ársins
2036, skv. nýrri samgönguáætlun
sem kynnt var í innanríkisráðuneyt-
inu í september síðastliðnum.
Í samgönguáætluninni sem sam-
þykkt var á miðvikudag ásamt fjölda
breytingatillagna er einnig gert ráð
fyrir 300 milljóna króna framlagi til
Uxahryggjavegar á næsta ári. Árið
2018 er gert ráð fyrir að 700 millj-
ónum króna verði varið til Þjóðveg-
ar 1 um Kjalarnes (Vesturlandsveg-
ar) og 200 milljónum til 4,4 km kafla
á Fróðárheiði sama ár.
Vegna Vestfjarðarvegar um Gufu-
dalssveit í Reykhólahreppi er gert
ráð fyrir 300 milljóna króna fram-
lagi á þessu ári, 1,2 milljarði króna á
næsta ári og 1,2 milljarði árið 2018
eða samtals 2,7 milljörðum króna
yfir þriggja ára tímabil.
Þá hefur verulega verið aukið við
fjármagn til viðhalds vega og endur-
bóta á tengivegum. Í því felst meðal
annars að Vegagerðin fær peninga
til að framkvæma tilraun sem gæti
orðið til að einfalda verulega endur-
bætur á tengivegum í sveitum. „Að
frumkvæði Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi, beitti meirihluti fjár-
laganefndar sér fyrir að Vegagerðin
fengi fjárveitingu til að framkvæma
tilraun, sem gæti orðið til að ein-
falda verulega endurbætur á vegum.
Ekki er hægt að segja að tilraunin
hafi verið frumleg, en hún gengur
út á að með lágmarks endurbótum
megi leggja bundið slitlag án mik-
ils kostnaðar,“ segir Haraldur Bene-
diktsson alþingismaður m.a. í að-
sendri grein sem birtist hér í Skessu-
horni vikunnar. kg
Samgönguáætlun samþykkt með nokkrum breytingum
Meðal tillagna sem samþykktar voru má nefna að veitt var 250 milljónum króna til
lagfæringa á veginum um Skógarströnd og árið 2018 fara 700 milljónir til að hefja fram-
kvæmdir á Kjalarnesi. Ljósm. af malbikum í Norðurársdal er úr safni Skessuhorns.
„Kosningar, húrra!“ Þetta eru
orð íbúa á Skarðsströnd í Döl-
um þegar þetta sjaldséða gula
tæki sást á ferð í vikunni sem
leið.
Ljósm. Halla Steinólfsdóttir.
Kosningar í nánd