Skessuhorn - 19.10.2016, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 201614
Októbermánuður hefur um nokk-
urra ára skeið verið tileinkaður vit-
undarvakningu um krabbamein í
konum. Bleika slaufan hefur ver-
ið boðin til sölu sem hluti af ár-
verkniátaki Krabbameinsfélagsins,
eins og landsmenn þekkja. Í ár er
kastljósinu beint að brjóstakrabba-
meini, sem er algengasta teg-
und krabbameins meðal íslenskra
kvenna. Áætlað er að á 40 klukku-
stunda fresti greinist kona með
brjóstakrabbamein á Íslandi allt
árið um kring.
Bleiki dagurinn er liður í árverk-
niátaki félagsins, en 14. október ár
hvert eru landsmenn hvattir til að
sýna samstöðu, klæðast bleiku og
hafa bleikt í fyrirrúmi.
Sú hefð hefur skapast á Akranesi
að Krabbameinsfélag Akraness og
nágrennis málar bæinn bleikan og
efnir til bleikrar stuðningsgöngu
daginn áður, 13. október. Gengið er
frá stjórnsýsluhúsi bæjarins og nið-
ur á Akratorg. Síðastliðinn fimmtu-
dagur var þar engin undantekning.
Arkað var af stað frá stjórnsýsluhús-
inu kl. 18. Leiðinlegt veður olli því
að þátttaka var minni en oft áður,
en vaskur hópur lét það þó ekki
aftra sér og gekk bleikklæddur nið-
ur að Akratorgi, sem að venju var
sveipað bleikum lit.
Skátar úr Skátafélagi Akra-
ness voru með kakósölu til styrkt-
ar Krabbameinsfélagi Akraness og
nágrennis, Steinunn Sigurðardótt-
ir ávarpaði gönguhópinn og Jens-
ína Valdimarsdóttir var útnefndur
slaufuberi félagsins árið 2016.
kgk/ Ljósm. Lísbet Sigurðardóttir.
Bleikur litur áberandi síðasta föstudag
Óbyggðanefnd kvað í síðustu viku
upp úrskurði í ágreiningsmálum
um þjóðlendur í Borgarfjarðar- og
Mýrasýslu auk Langjökuls, að und-
anskildum fyrrum Kolbeinsstaða-
hreppi. Þetta svæði kallar nefndin
8B og er það hið tíunda sem nefndin
úrskurðar um á landinu. Á næsta ári
er að vænta úrskurðar í kröfum ríkis-
ins í meintar þjóðlendur í Dalasýslu
og þá hefur ráðherra ekki enn lýst
kröfum á Snæfellsnesi. Óbyggða-
nefnd kemst meðal annars að þeirri
niðurstöðu að Langjökull skuli hér
eftir skráður þjóðlenda í eigu ríkis-
ins, sem og Tvídægra á Holtavörðu-
heiði og fjalllendi á Mýrum. Nefnd-
in hafnaði hins vegar kröfu ríkisins
um að Eiríksjökull fari úr eign Kal-
manstungujarða sem og að megin-
hluti Arnarvatnsheiðar fari úr eigu
sjálfseignarstofnunar bænda. Aðrar
helstu niðurstöður óbyggðanefndar
voru eftirfarandi:
Landsvæði milli
Hítarvatns og Fossdalsár
Í landsvæði milli Hítarvatns og Foss-
dalsár var fallist á kröfur íslenska
ríkisins um að eftirfarandi landsvæði
séu þjóðlendur: Suðausturhluti fjall-
lendis Hraunhrepps, fjalllendi Álfta-
neshrepps, fjalllendi Borgarhrepps
(sem skiptist í eftirtalin svæði í nið-
urstöðum nefndarinnar: Víðidal,
Mjóadal og vesturhluta Sátudals,
Hróbjargardal og vesturhluta Foss-
dals og loks austurhluta Langavatns-
dals ásamt Réttarmúla og Beilárvöll-
um). Á grundvelli varakrafna Borg-
arbyggðar var fallist á að eftirfarandi
svæði sem úrkurðuð eru þjóðlend-
ur séu jafnframt afréttir: Suðaustur-
hluti fjalllendis Hraunhrepps er af-
réttur jarða í fyrrrum Hraunhreppi,
fjalllendi Álftaneshrepps er afréttur
jarða í fyrrum Álftaneshreppi, Víði-
dalur, austurhluti Langavatnsdals
ásamt Réttarmúla og Beilárvöllum,
sem og Mjóidalur og vesturhluti
Sátudals, eru afréttir jarða í fyrr-
um Borgarhreppi. Hróbjargardalur
og vesturhluti Fossdals eru í afrétt-
areign Borgarbyggðar. Hafnað var
kröfum íslenska ríkisins um að eft-
irfarandi landsvæði séu þjóðlendur:
Norðvesturhluti fjalllendis Hraun-
hrepps, Staðartunga og Beilárheiði.
Hluti fyrrum
Norðurárdalshrepps
Fallist var á kröfur íslenska rík-
isins um að eftirfarandi land-
svæði séu þjóðlendur: Vesturhluti
Ystutunguafréttar, Sauðafellsaf-
réttur og landsvæði í vestanverðum
Snjófjöllum. Fallist var á varakröfu
Minningarsjóðs Ólafs Finnssonar
um að Sauðafellsafréttur sé í afrétt-
areign hans. Á grundvelli þrautav-
arakrafna Borgarbyggðar er fallist á
að eftirfarandi svæði sem úrkurðuð
eru þjóðlendur séu jafnframt afrétt-
ir: Vesturhluti Ystutunguafréttar er
afréttur jarða í Norðurárdal og Staf-
holtstungum fyrir vestan Sanddalsá
og Norðurá og þjóðlenda í vestan-
verðum Snjófjöllum er afréttur jarða
í fyrrum Norðurárdals-, Stafholts-
tungna-, Hvítársíðu- og Þverárhlíð-
arhreppum. Hafnað var kröfum ís-
lenska ríkisins um að eftirfarandi
landsvæði séu þjóðlendur: Aust-
urhluti Ystutunguafréttar (selland
Stafholtskirkju), Fellsendaafréttur
(Sanddalstunguland) og austurhluti
ágreiningssvæðis vegna Snjófjalla.
Hvítársíða, Þverárhlíð
og Norðurárdalur
Í Hvítársíðu, Þverárhlíð og Norð-
urárdal var fallist á kröfur íslenska
ríkisins um að eftirfarandi land-
svæði séu þjóðlendur: Vesturhluti
Tvídægru að meðtöldum Hellis-
tungum, austurhluti Tvídægru,
Helgavatnsselland, austurhluti
Síðumúlaskógar, Reykholtsselland
og Sámsstaðaselland. Á grundvelli
þrautavarakrafna Borgarbyggð-
ar er fallist á að umrædd landsvæði
séu afréttir þeirra jarða í fyrrum
Norðurárdals- og Stafholtstungna-
hreppum sem liggja sunnan og
austan við Sanddalsá og Norðurá,
sem og jarðarinnar Stafholtseyjar.
Jafnframt er fallist á kröfur eig-
anda Gilsbakka um veiðirétt í ám
og vötnum á vesturhluta Tvídægru
ásamt Hellistungum og austurhluta
Tvídægru auk veiðiréttar í Króka-
vatni og þeim hluta Flóavatns sem
fellur innan Húksheiðar. Hafn-
að er kröfum íslenska ríkisins um
að eftirfarandi landsvæði séu þjóð-
lendur: Sleggjulækjarselland, Síðu-
múlaselland, vesturhluti Síðumúla-
skógar og Lambatungur.
Hvítársíða, Þverárhlíð
og Norðurárdalur
Varðandi Arnarvatnsheiði, Geit-
land og Langjökull var fallist á
kröfur íslenska ríkisins um að eft-
irfarandi landsvæði séu þjóðlend-
ur: Landsvæði norðaustan Arn-
arvatnsheiðar, landsvæði sunnan
Geitlands, þ.m.t. norðvestanverð-
ur Þórisjökull og Langjökull. Á
grundvelli þrautavarakröfu Borg-
arbyggðar var fallist á að þjóðlend-
an norðaustan Arnarvatnsheiðar sé
jafnframt afréttur jarða í fyrrum
Reykholtsdals- og Hálsahreppum.
Hafnað var kröfum íslenska ríkisins
um að eftirfarandi svæði séu þjóð-
lendur: Útskipt land úr Þorvalds-
stöðum, Arnarvatnsheiði, sameign-
arland Kalmanstungu I og II, þ.m.t.
Eiríksjökull og Geitland.
Fyrrum Lundarreykja-
dalur og hluti fyrrum
Hálsahrepps
Í fyrrum Lundarreykjadal og hluta
fyrrum Hálsahrepps var fallist á
kröfur íslenska ríkisins um að eft-
irfarandi landsvæði séu þjóðlend-
ur: Þóreyjartungur, land við Reyð-
arvatn, afréttur Lunddæla og land
norðan afréttar Lunddæla ásamt
Oki. Fallist er á varakröfur Sjálfs-
eignarstofnunarinnar Oks um að
Þóreyjartungur og land við Reyð-
arvatn séu í afréttareign hennar. Á
grundvelli þrautavarakröfu Borg-
arbyggðar er fallist á að afréttur
Lunddæla sé afréttur jarða í fyrr-
um Lundarreykjadalshreppi. Hafn-
að var kröfum íslenska ríkisins um
að eftirfarandi svæði séu þjóðlend-
ur: Lundartunga, Oddsstaðatunga
og Gullberastaðaselsland.
Höfða skal einkamál
innan sex mánaða
Í niðurstöðunni segir jafnframt: „Sá
málsaðili sem ekki vill una úrskurði
óbyggðanefndar skal höfða einka-
mál innan sex mánaða frá útgáfu-
degi þess Lögbirtingablaðs sem út-
dráttur úr úrskurði er birtur í, sbr.
1. mgr. 19. gr. þjóðlendulaga, nr.
58/1998. Er þá unnt að leggja til
úrlausnar dómstóla hverja þá kröfu
sem gerð hefur verið fyrir nefnd-
inni. mm
Niðurstöður óbyggðanefndar um þjóðlendur í Borgarfirði
Á þessu korti eru skyggðu svæðin þjóðlendur samkvæmt niðurstöðum Óbyggða-
nefndar.
Horft upp eftir yfir Fljótstunguhálsinn í átt að Strúti, Arnarvatnsheiði og Eiríksjökli. Þetta svæði hefur nú allt verið dæmt landeigendum í vil.
Ljósm. úr dróna: Halldór Sigurðsson.