Skessuhorn - 19.10.2016, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2016 25
Nú í aðdraganda kosninga þegar
allir frambjóðendur lofa að bæta
kjör ellilífeyrisþega og öryrkja
minnist enginn á þá brýnu þörf sem
er fyrir að stofna embætti umboðs-
manns aldraðra og öryrkja. Það eru
til margskonar umboðsmenn; um-
boðsmaður Alþingis, umboðsmað-
ur dýra og umboðsmaður barna,
svo nokkuð sé nefnt.
Gamalt máltæki seigir : Tvisv-
ar verður gamall maður barn. Í
þessu máltæki er mikill sannleikur.
Á undaförnum tveimur áratugum
eða svo hefur tæknivæðing verið
svo mikil og hröð í upplýsingaöflun
og samskiptaþáttum að gamalt fólk
á erfitt með að tileinka sér þess-
ar breytingar. Ég veit að flest fólk
sjötugt og eldra kann ekki mikið á
tölvur. Það fær allskonar upplýs-
ingar, kröfur og annað með rafræn-
um hætti, sem það á erfitt með að
átta sig á, því skjalfest gögn eru oft
engin í þessum samskiptum.
Ég ætla að leyfa mér að segja frá
nokkrum atvikum sem ég sjálfur hef
lent í sem sýna hve nauðsynlegt það
er að gamalt fólk eigi sér sérstakan
stjórnskipaðan umbosmann til að
leita til og gæta hagsmuna sinna.
Í apríl 2014 ákvað ég að fara til
Tenerife með Úrval Útsýn í lok
september. Þar sem ég hef tak-
mörkuð fjárráð þá samdist okkur
að ég skyldi borga fjórðung upp-
hæðarinnar í apríl og eftirstöv-
arnar í fjórum greiðslum 10. maí,
júni, ágúst og september. Þannig
að ég væri búinn að greiða ferðina
að fullu áður en ég færi í hana. 10.
maí átti ég að greiða fyrstu greiðslu
af fjórum. Í byrjun maí fæ ég kröfu
frá fyrirtæki sem heitir Borgun um
umsamda upphæð auk 6800 kr í
vexti. Í fyrstu áttaði ég mig ekki á
hvað þarna var á ferðinni, en sá þá
að greiðsluupphæðin á ferðina var
sú sem samið hafði verið um.
Í fyrstu áttaði ég mig ekki á hvað
þarna væri á ferðinni, en sá að þarna
var maðkur í
mysu. Að borga
vexti af fyrir-
fram greidd-
um kaupum væri ólölegt og jaðr-
aði við þjófnað. Niðurstaða máls-
ins varð sú að ég hótaði kæru og var
þá málið lagt niður og ég borgaði
enga vexti.
Ég ætla að leyfa mér að segja frá
öðru álíka. Í apríl er hringt í mig frá
DV og var spurður hvort ég vildi
ekki fá DV frítt í tvo mánuði til að
kanna hvort mér líkaði við blaðið.
Var ég beðinn um að að láta vita
áður en þessi tími væri liðinn hvort
ég vildi fá blaðið áfram og yrði þá
áskriftar tíminn þrír mánuðir. Mér
líkaði ekki blaðið og lét vita af því
innan þess tíma sem um var rætt.
Um svipað leiti sé ég að komin er
krafa á bankareikning minn frá DV
um greiðslur til þeirra fyrir sept,
okt og nóv. Ég hringdi strax í DV
og sagði þeim að ég myndi ekki
greiða þessa reikninga, því ég hafði
aldrei samþykkt neina skuldbind-
ingu um það. Þá sagði viðmælandi
minn, að þeir litu svo á að sam-
þykki mitt um að skoða blaðið væri
bindandi fyrir mig að greiða blaðið
næstu 3 mánuði. Ég hringdi í Neyt-
endastofu og Neytendasamtökin og
báðar þessar stofnanir sögðu að ég
væri ekki sá fyrsti sem kvartaði yfir
svona framferði. Fyrir stuttu fékk
ég svo inheimtukröfu frá Alskil hf.
Ég hringdi í Alskil og talaði þar við
ágæta konu, sagði henni þessa sögu
og um leið að ég hefði séð á banka-
reikningi mínum að horfnar voru
þær kröfur frá DV sem þar höfðu
verið. Fleiri sögur í svipuðum dúr
get ég sagt frá en læt þetta duga.
Þessar sögur sýna kve brýnt er að
gamalt fólk fái umboðsmann til að
hjálpa þeim að glíma við viðfangs-
efni sem það ræður ekki við.
Virðingarfyllst,
Hafsteinn Sigurbjörnsson.
Umboðsmaður aldr-
aðra og öryrkja
Pennagrein
Um liðna helgi var haldið upp á að
verslunin Blómsturvellir á Hellis-
sandi hefur nú verið starfrækt í sama
húsnæðinu í þrjátíu ár, en verslunin
er þó talsvert eldri, eða 48 ára. Sama
fjölskyldan hefur rekið verslunina frá
upphafi. „Árið 1968 opnuðu foreldr-
ar mínir, hjónin Óttar Sveinbjörns-
son og Guðlaug Íris Tryggvadótt-
ir, verslun í bílskúrnum við Mun-
aðarhól á Hellissandi. Óttar er raf-
verktakameistari og voru fyrstu árin
seldar rafmagnsvörur í versluninni;
ljós, lampar og ýmislegt sem tengd-
ist raflögnum. Árið 1978 var verslun-
in svo flutt í íbúðarhús ömmu og afa,
þeirra Júníönu og Friðbjarnar, þegar
þau fluttust suður á Hrafnistu. Heit-
ir hús þeirra Blómsturvellir og kem-
ur nafnið á versluninni þaðan. Þar
var verslunin rekin til ársins 1986 er
þá var fyrsti hluti núverandi húsnæð-
is byggður og upp á það erum við að
halda þessa dagana en viðbygging-
arnar eru tvær síðan og er verslun-
in nú tæplega 600 fermetrar,“ segir
Júníana Björg Óttarsdóttir í samtali
við Skessuhorn.
Afmælishátíð Blómsturvalla á Hellissandi
Þrír ættliðir við störf. Júníana Björg Óttarsdóttir, Guðlaug Íris Tryggvadóttir, Óttar Sveinbjörnsson og dóttir Júníönu; Íris
Björg Jóhannsdóttir.
Traustir viðskiptavinir nutu veitinga í tilefni afmælisins.
Laxveiðisumarið 2016 einkennd-
ist af góðri stórlaxaveiði í flest-
um ám, en minna fékkst af smá-
laxi. Veiðin var almennt yfir lang-
tíma meðaltali í flestum ám. Lax-
veiðitímabilinu er nú lokið. Í sum-
ar veiddust 53.600 laxar og í heild
var fjöldi stangveiddra laxa um
27% yfir langtímameðaltali áranna
1974-2015 sem er 42.137 laxar. Á
Vesturlandi komu ríflega 15 þús-
und laxar á land.
Hafrannsóknastofnun og Veiði-
málastofnun hafa nú verið samein-
aðar í eina. Í gögnum frá stofnun-
inni kemur fram að veiðin 2016
var um 18.100 löxum minni en hún
var 2015, þegar 71.708 laxar veidd-
ust á stöng. Í tölum um heildarlax-
veiði eru þeir laxar sem upprunn-
ir eru úr sleppingum gönguseiða
og einnig þeir laxar sem er sleppt
aftur í stangveiði (veitt og sleppt).
Sumarið 2016 var með betra móti
og útganga seiða gerðist á stuttum
tíma sem oft hefur vitað á minni
afföll og aukna laxgengd árið á eft-
ir. Það hversu fáir smálaxar gengu
í ár nú í sumar benda til að stór-
laxagengd sumarið 2017 verði ekki
mjög sterk.
mm/ Teikningar: hafogvatn.is
Ríflega fimmtán þúsund laxar
komu á land á Vesturlandi
Hér má sjá hvernig heildarveiðin í vestlensku ánum hefur verið að þróast.
Stangveiði í íslenskum ám frá 1974 – 2016. Veiðinni er skipt í landaðan afla
(blátt), veitt og sleppt (grænt) og veiði úr sleppingum gönguseiða (rautt).
Júníana Björg segir að hún hafi
verið starfandi við verslunina frá
því að hún var sex ára og einnig er
móðir hennar enn starfandi þótt hún
sé orðinn 75 ára og stendur vaktina
sex daga vikunnar. „Við höfum verið
mjög heppin með starfsfólk öll árin,“
segir Júníana ennfremur og bætir
við að nú sé Súsanna Hilmarsdóttir
einnig starfandi hjá þeim. „Oftast séu
þrír ættliðir við afgreiðsustörf og all-
ir hjálpast að við að halda versluninni
gangandi og erum við með fjölda
tryggra viðskiptavina,“ segir Júnína
að lokum.
af
Þessa mynd tók Ægir Þórðarson fyrir 30 árum þegar Blómsturvellir voru opnaðir á
núverandi stað. Þarna eru Júna, Íris og Óttar.