Skessuhorn - 19.10.2016, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2016 15
Snorrastofa í Reykholti býður til
fyrsta fyrirlestrar vetrarins þriðjudag-
inn 25. október næstkomandi undir
heitinu „Vinna kvenna í 800 ár. Hefð-
ir og vinnubrögð við íslenskan vefnað
frá landnámi“. Það er fornleifafræð-
ingurinn Michèle Hayeur Smith,
sem flytur fyrirlesturinn á ensku en
hún hefur lengi rannsakað vefnaðar-
sögu Íslands og eins og hún birtist í
fornleifum. Þrátt fyrir erlenda tungu
er óhætt að mæla með kvöldinu, þar
sem myndmálið verður ríkulega lát-
ið tala. Fyrirlesturinn verður í Bók-
hlöðu Snorrastofu, hefst kl. 20:30
og að venju er boðið til umræðna og
kaffiveitinga. Aðgangur er kr. 500.
Michèle fjallar um íslenskan vefn-
að frá landnámi og fram á 17. öld,
sem hvíldi á vinnuframlagi kvenna og
hafði mikla þýðingu fyrir þjóðarbú-
ið. Enda þótt um föt og vefnað sé
víða fjallað í rituðum textum allt frá
miðöldum hefur minna verið fjallað
um hið mikla magn fornleifa, sem
sýna sögu þessa iðnaðar hér á landi. Í
ljósi fornleifanna má vel greina störf
kvenna í gegnum aldir og þá þróun,
sem varð í vefnaði og hvernig klæðin
voru notuð.
Fyrirlesturinn byggir Michèle á
tveimur vefnaðarrannsóknum forn-
leifa í Þjóðminjasafni Íslands, sem
fram hafa farið á síðastliðnum sex
árum og kemur einnig inná niður-
stöður rannsókna um „Bláklæddu
konuna“ (The woman in blue from
Ketilsstaðir). Fyrirlestur sinn nefnir
hún á ensku, 800 Years of Women’s
Work: Textile traditions in Viking
and Medieval Iceland. Michèle Ha-
yeur Smith er fornleifafræðingur við
Brown University með textíl að sér-
grein og hefur starfað að rannsókn-
um á vefnaðarsögu Íslands og land-
anna við Norður Atlantshaf frá árinu
1997.
Snorrastofa fagnar vetri með út-
gáfu á viðburðaskrá komandi vetrar,
sem berst á næstu dögum. Þar er birt
yfirlit yfir viðburði og annað starf,
sem fram fer í menningar- og mið-
aldasetrinu í Reykholti.
-fréttatilkynning
Umfjöllun um 800 ára
vefnaðarsögu Íslands
Michèle Hayur Smith fornleifafræðingur.
Frambjóðendur átta stjórnmála-
flokka í Norðvesturkjördæmi sátu
síðastliðinn miðvikudag fyrir svör-
um í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Á
fundinum voru fulltrúar frá Bjartri
framtíð, Dögun, Framsóknarflokki,
Pírötum, Samfylkingu, Sjálfstæðis-
flokki, Viðreisn og Vinstri grænum.
Fundurinn byrjaði á að flokkarn-
ir kynntu sín málefni og áherslur.
Að því loknu fengu ungmenn-
in að spyrja frambjóðendur spurn-
inga. Þegar blaðamann Skessu-
horns bar að garði stóð fundurinn
sem hæst og fylgdust nemendur
skólans áhugasamir með málflutn-
ingi frambjóðenda og sumir þeirra
punktuðu hjá sér.
Skuggakosningar voru síðan
haldnar í skólanum næsta dag og
gátu þá 21 árs og yngri nemendur
fengið að kjósa á milli þeirra tólf
flokka sem eru í framboði. Þetta er
hluti af átaki til að vekja áhuga ungs
fólks á kosningum. Þar er notast við
myllumerkið #égkýs og er hægt að
Frambjóðendur sátu fyrir svörum í FVA
skoða vefsíðuna www.egkys.is til að
fræðast nánar um það.
grþ
Fulltrúar átta flokka mættu á sal Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem þeir kynntu
flokka sína og svöruðu spurningum nemenda.
Salur skólans var fullur af ungu fólki sem fylgdist áhugasamt með umræðum.
Farfuglaheimilið í Borgarnesi auglýsir
eftir starfsfólki til starfa í móttöku
heimilisins og við þrif.
Um er að ræða morgun kvöld og helgarvaktir.
Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir Aurora
Friðriksdóttir í síma 861-1544 og
í netfanginu auroraf@simnet.is.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins
27. október og umsóknir sendist
í netfangið auroraf@simnet.is.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Farfuglaheimilið í Borgarnesi | Borgarbraut 9-13
Vikunámskeið 6.-13. nóvember
Úr fjötrum kvíðans
Kvíði er eðlileg mannleg tilnning sem knýr okkur til að vera á varðbergi,
tilbúin að bregðast við yrvofandi hættu.
Hjá mörgum verður þó kvíðaviðbragðið of virkt, þ.e. hættuástandið er ofmetið og
manneskjan nnur oftar fyrir kvíða en tilefni eða aðstæður eru til. Markmið námskeiðsins
er að draga úr einkennum, auka skilning á kvíða, læra að beita eigin hugsunum til að líða
betur og róa hugann.
Verð 154.000 kr. á mann
146.300 kr. á mann í tvíbýli
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags
Íslands
Nánari upplýsingar og skráning á heilsustofnun.is
eða í síma 483 0300.
Námskeið
6.-13.
nóvember
OPINN OKTÓBER
á Snæfellsnesi
ALÞJÓÐLEGA KVIKMYNDAHÁTÍÐIN NORTHERN WAVE 21.-23. OKTÓBER Í
FRYSTIKLEFANUM Á RIFI
Stuttmyndamaraþon, myndbandalist, íslensk tónlistarmyndbönd, fiskréttakeppni, tónleikar,
hreyfimyndanámskeið, skuggabrúðusmiðja o.fl.
Kannaðu málið á Facebook:
#Svæðisgarðurinn Snæfellsnes
#Norðurljósin
#Grundarfjarðarbær
#The Northern Wave film festival
#Frystiklefinn Rifi
#Áttahagastofa Snæfellsbæjar
#Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
-Malarrif/ge
stastofa þjóð
garðsins Snæ
fellsjökuls
og sýning í sa
lthúsinu.
Allir viðburðir á snaefellingar.is
-Hreyfimyndanámsk
eið og
skuggabrúðusmiðja
fyrir börn.
-Rökkurró í Lýsuhólslaug 28. október frá kl. 20.30–22. Söngur, sögur og heitt ölkelduvatn.
-Ljósmyndasýning af Snæfellsnesi
við höfnina í Stykkishólmi.
-Lofthræddi örninn Örvar.
Það er margt í boði á Snæfellsnesi í október!
Íbúar og gestir eru hvattir til að sækja þá fjölmörgu viðburði sem í boði eru víða um Snæfellsnes.
-Það er stutt á milli
staða og upplagt að
njóta veitinga og up
plifa ævintýri.
RÖKKURDAGAR Í GRUNDARFIRÐI 12.-22. OKTÓBER
Uppistand, PubQuiz, dansleikur, tónleikar o.fl
-Norðurljósa og stjörnuskoðu
narferð frá
Skildi í Helgafellssveit 22. okt
óber frá kl. 20 – 21.
-Vilt þú taka þátt í keppni um besta fiskréttinn? Vegleg verðlaun í boði.
-NORÐURLJÓS Í STYKKISHÓLMI 20.-23. OKTÓBER
Tónleikar, ljósmyndasýning, ratleikur, opin hús o.fl.