Skessuhorn


Skessuhorn - 19.10.2016, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 19.10.2016, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2016 27 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk þess birtum við lausn á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessu- horni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu- pósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinnings- hafinn bókargjöf frá Skessuhorni; „Pétrísk íslensk orðabók með alfræðiívafi,“ eftir sr. Pétur Þorsteinsson. Alls bárust 82 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Kímileitur.“ Vinningshafi er: Kristín Þórðardóttir, Bárðarási 16, 360 Hellissandi. Kraftur Rasa Alfarið Einnig Sté Hraði Skinn- kápur Slæm Þrep Tiltal Felur Vaðall Tæp Hvarm- ur Núna Rödd Fæðir 9 Hálka Leyfist Fugl- inn 1 Ýta Vesæl Fræg Vitund Öræfi Akkeri Höfnun Tvíhlj. Sarg Umsvif Tími Vær Vein Á fiski Óreiða Ástúð 7 Hreyfill Skokkar Hauður Heimili Fagur Rölt Temja Reku Korn Trjónu Glens Grípa Mjór Sekt 6 Galla Æstar 4 Hljóp Finnur leið Maður Ask Bogi Safnar Afa 500 Dýrahlj. Al- gleymi Loppa Ekki Pen Korn Hnjóð Brenna Kallar 3 Spyr Lend Sérhlj. Bumba Bardagi Hvílum Skráði Kúst Kistan 2 Efni Missir Tangi 8 Hvíli For- feður Púki And- vörp Spurn Veisla Grípa Tónn Skelin Bil Reiður Össu 500 Örn Um- gjörð 5 1 2 3 4 5 6 7 8 9 F L O T T H Ú F A O F A R Í R A R K Á K Ú T Á L A Á S T R Í K U R R A U F V A R I K U R R R I F T I Á H I T T I N N F Ó Ð U R T I L D R Ö G A R Ð U R É L U N D Á A A Ó A N N Á R E I S N Ú R Æ Ð R U A Ð R J Á A R K L N A F N K N Á T A U T I E S T É O Á T A G A I S S K R Ó K R U K K A S U K K Ö A A A K I M I A R K L U R K U R G U M K U A T R A L L Á R A N N S Ö G U U M L A R R Ú A T L Á E T V I T I K Í M I L E I T U RL A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I Ég fór um norðanvert kjördæmið á dögunum og ræddi við fólk í sjáv- arútvegi, bæði stjórnendur stærri fyrirtækja og smábátasjómenn og kom við í beitningarskúrum þar sem hitnaði gjarnan í kolunum. All- ir viðmælendur eiga það sammerkt að vera áhugasamir um greinina og vilja veg hennar sem mestan. Þá greinir auðvitað á um áherslur, að- ferð við gjaldheimtu fyrir aðgang að auðlindinni og skiptingu aflamarks. Þetta er ekki óeðlilegt enda miklir hagsmunir í húfi. Fjöldi fjölskyldna hefur af þessu beina lífsafkomu. Þjóðin krefst þess líka að fá eðlilegt afgjald af þessari allra stærstu sam- eiginlegu auðlind. Um þetta stór- mál verðum við að ná sátt og ekkert val um annað. Síðustu mánuði hafa menn litið til Færeyja og aðferðar sem valin var með uppboðum fiskveiðiheimilda. Mörgum hefur eflaust brugðið í brún, vaknað upp af vondum draumi þegar í ljós kom hverjar upphæðir er um að tefla og hvaða hagsmunir eru undir. Jafnaðarmenn hafa í mörg ár tal- að fyrir annarri útfærslu af svipuð- um meiði, miklu hófsamari og sann- gjarnari til lengri tíma. Aðrir flokk- ar hafa gefið þessu gaum og berg- mál þeirrar leiðar má heyra í kim- um ýmissa stjórnmálaflokka þessa dagana. Takmarkaður hugur fylgir trúlega máli ef marka má reynsluna, það getur hver og einn rifjað upp fyrir sig. Það sem hæst hefur borið í stefnu jafnaðarmanna er að um með- ferð aflaheimilda verði farið í sam- ræmi við meðferð annarra auðlinda í þjóðareign og ákvæði þess efnis fest í stjórnarskrá. Það sem jafn- aðarmenn leggja jafnframt áherslu á er að óhjákvæmilegar breytingar tryggi útgerðinni starfsgrundvöll til framtíðar og þann frið sem forystu- menn greinarinnar, fiskvinnslufólk, sjómenn og þjóðin öll kallar eftir. Með tillögum jafnaðarmanna skap- ast ekki hætta á alvarlegri röskun í atvinnugreininni og útgerð í land- inu ekki íþyngt um of fjárhagslega. Þá eru einnig miklar líkur á því að breytingarnar létti aðgang nýliða að útgerð með sanngjörnum hætti. Það hefur náðst frábær árangur á ýmsum sviðum í sjávarútvegi á Ís- landi með hagræðingu og uppskipt- um. Það sem eftir stendur þó er sú staðreynd að mörg byggðarlög eru rjúkandi rúst eftir sviptingar og óp- rúttin viðskipti með fiskveiðiheim- ildir mörg undanfarin ár. Ekkert hefur verið hirt um félagslegar af- leiðingar og þær hafa þegar komið okkur í koll. Þessu verðum við að snúa við og gefa byggðarlögum sem frá aldaöðli hafa sótt í auðlindina aukin tækifæri á ný. Þjóðin öll og harðduglegir og djarfir sjómenn bíða og krefjast sanngjarnra lausna. Kjósum heilbrigðara og réttlátara samfélag. Guðjón S. Brjánsson, Höf. skipar 1. sæti Samfylkingar í NV kjördæmi Kjósum heilbrigðara og réttlátara samfélag Pennagrein Pennagrein KOSNINGAR2016 Samgönguáætlun sem Alþingi er nú að samþykkja innifelur mikil tíð- indi fyrir íbúa á Akranesi og reynd- ar á Vesturlandi öllu. Innanríkis- ráðherra lagði þar til að ráðist yrði í breikkun vegarins um Kjalarnes. Slík samgöngubót er löngu tíma- bær og mun gjörbreyta því ástandi sem þar hefur skapast í umferðar- málum. Endurbætur þar mega ekki seinni vera, bæði vegna umferð- arþunga og öryggis vegfarenda á þeirri leið. Það var mikilvægt að innaríkisráð- herra gerði úrbætur á Vesturlands- vegi að forgangsmáli. Lengi hefur verið barist fyrir þeim endurbótum. Það mun bæta verulega búsetugæði og möguleika fólks að greiða sam- göngur með þessum hætti. Akra- nes, Borgarnes og Borgarfjörð- ur eru raunhæfir valkostir í búsetu þeirra sem vilja stunda vinnu og nám á höfuðborgarsvæðinu. Enda sýnir íbúaþróun að svo er. Vaxandi eftirspurn er eftir húsnæði og þró- un á húsnæðismarkaði er með þeim hætti að slíkur valkostur, búseta hér er eftirsóknarverð. Það er hinsvegar slæmt að hvorki gengur né rekur með Sundabraut. Þar halda borgaryfirvöld málinu í heljargreipum. Sú framkvæmd er ekki síður mikilvæg og okkur nauð- synleg og barátta fyrir því heldur áfram. Fyrir íbúa Akraness og nærsveita, og raunar Norðvesturkjördæmis alls, er ástæða til að fagna þessum áfanga. Ný hugsun Við vinnslu á fjár- lagafrumvarp fyrir 2016 var mikil umræða af hálfu sveit- arfélaga um malarvegi. Vegi sem íbú- ar sveitanna þurfa að búa við, þar sem börn fara um á hverjum degi til og frá skóla. Að frumkvæði Samtaka sveitar- félaga á Vesturlandi, beitti meirihluti fjárlaganefndar sér fyrir að Vega- gerðin fengi fjárveitingu til að fram- kvæma tilraun, sem gæti orðið til að einfalda verulega endurbætur á veg- um. Ekki er hægt að segja að tilraunin hafi verið frumleg, en hún gengur út á að með lágmarks endurbótum megi leggja bundið slitlag án mikils kostn- aðar. Við þekkjum mörg slíka vegi og höfum keyrt á slíkum vegum í öðrum löndum. Þeir eru kannski mjóir og hlykkjóttir. Í sumar voru slíkir kaflar lagðir og reynslan er áhugaverð. Reynslan sýnir að kostnaður við hvern endur- bættan kílómetra er um 10 milljón- ir króna. Í stað þess að hefðbundinn kostnaður, þá reyndar við fullbúinn framtíðarveg, er um 60 -70 milljónir á hvern km. Um slíka lausn verður að vera sátt milli íbúa og sveitarfélaga. En hér má því skoða lausn sem get- ur gjörbreytt samgöngum í dreifðum byggðum. Ég legg áherslu á að slík- ar framkvæmdir verði þróaðar áfram. Við þurfum á því að halda. Haraldur Benediktsson Höf. er alþingismaður og skipar 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Tímabær endurbót á Vesturlandsvegi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.