Skessuhorn - 19.10.2016, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2016 21
Þegar Samband sveitarfélaga á
Vesturlandi kynnti Sóknaráætlun
Vesturlands 2015-2016 á síðasta
ári var efling menntunar í ferða-
þjónustu og matvælaframleiðslu
eitt af áherslumálum áætlunar-
innar. Meginmarkmið verkefnis-
ins er að bjóða þeim sem vinna við
ferðaþjónustu og matvælafram-
leiðslu á Vesturlandi upp á tæki-
færi til menntunar og með auk-
inni menntun verði þekkingarstig
innan atvinnugreinarinnar hækk-
að. Samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi fólu Háskólanum á Bifröst
verkstjórn og er Signý Óskars-
dóttir verkefnisstjóri verkefnisins.
Skessuhorn hitti Signýju að máli í
síðustu viku og ræddi við hana um
verkefnið.
„Í upphafi verkefnisins var unn-
in samantekt á því námi sem er í
boði fyrir ferðaþjónustu og mat-
vælaframleiðslu á landsvísu. Að
því loknu unnum við að greiningu
fræðsluþarfar fyrir báðar greinar
hér á Vesturlandi. Við unnum með
Stjórnstöð ferðamála, sem stóð
fyrir könnun fyrir alla ferðaþjón-
ustuaðila á landinu til að greina
mannafla og fræðsluþörf innan
atvinnugreinarinnar. Einnig var
skipulögð vinnustofa með aðilum
úr matvælaframleiðslu á Vestur-
landi ásamt fræðsluaðilum. Þar
voru settar fram hugmyndir um
forgangsröðun verkefna og hug-
myndir að aukinni samvinnu og
menntun í greininni. Auk þess var
um 80 aðilum boðið að koma hug-
myndum á framfæri í gegnum raf-
ræna könnun með opnum spurn-
ingum, þeim sömu og voru notaðar
í vinnustofunni,“ segir Signý. „En
það skal tekið fram að strax í upp-
hafi verkefnisins ákvað verkefnis-
stjórnin að leggja áherslu á þarfir
smærri matvælaframleiðenda og
heimaframleiðslu á Vesturlandi.
Hins vegar stendur stærri fram-
leiðslufyrirtækjum til boða að nýta
sér þjónustu fræðsluaðila á Vest-
urlandi sem bjóða upp á sérsniðið
nám eftir þörfum,“ bætir hún við.
Vilja að fræðslan fari
fram á vinnustað
„Samkvæmt könnuninni sem
Stjórnstöð ferðamála lét gera hef-
ur orðið mikil aukning á nýliðum
í ferðaþjónustu á landsvísu,“ seg-
ir Signý. „Það er mikið að gera,
starfsmenn oft allt í öllu og erfitt að
senda fólk í þjálfun eða nám og um
80% stjórnenda í ferðaþjónustufyr-
irtækjum telja að æskilegast sé að
fræðsla eða þjálfun starfsmanna fari
fram á vinnustað. Í matvælafram-
leiðslunni, þar sem við einblíndum
svolítið á fyrirtæki sem vilja selja af-
urðir beint frá býli, fundum við að
framleiðendur vilja hlúa að og búa
til vettvang þar sem þeir geta lært af
hvorum öðrum hvernig má komast
frá hugmynd til afurðar. En einnig
kalla þeir eftir ráðgjöf og hagnýtu
námi. Það á líka við í ferðaþjónust-
unni,“ segir Signý.
Aðspurð kveðst hún ánægð með
hvernig gengið hefur að koma verk-
efninu á koppinn. „Að mínu viti er
þetta gott dæmi um hvernig stefnu-
mótandi áætlanir geta stutt við
verkefni og eflt samvinnu á svæð-
inu. Verkefnastjórnin var mjög góð,
stjórn verkefnisins er skipuð mjög
hæfu og áhugasömu fólki bæði úr
ferðaþjónustu, matvælaiðnaði og
menntageiranum. Svona verkefni
eru mikill styrkur fyrir svæðið,“
segir Signý að lokum.
Námskeið í boði
Háskólinn á Bifröst, Landbúnað-
arháskóli Íslands og Símenntun-
armiðstöð Vesturlands hafa út frá
þarfagreiningunni aukið framboð af
námskeiðum fyrir aðila í ferðaþjón-
ustu og matvælaframleiðslu. Meðal
námskeiða sem í boði eru má nefna
Gæðastjórnun í ferðaþjónustu,
Menningartengda ferðaþjónustu,
Stofnun og rekstur ferðaþjónustu-
fyrirtækja, Leiðsögunám en einnig
námskeið eins og Þjónusta og gest-
risni, svo dæmi séu tekin. Nám-
skeið sem tengjast matvælafram-
leiðslu eru til dæmis Vöruhönnun
og Fullvinnsla lambakjöts. Einnig
geta stjórnendur ferðaþjónustu- og
matvælafyrirtækja óskað eftir ráð-
gjöf og sérsniðinni fræðslu fyrir sitt
fyrirtæki.
Þeim sem vilja fræðast frekar um
eflingu menntunar í ferðaþjónustu
og matvælaiðnaði, kynna sér náms-
framboð og annað slíkt, er bent
á heimasíðu verkefnisins http://
signy7.wixsite.com/efling-mennt-
unar. kgk
„Svona verkefni eru mikill styrkur fyrir svæðið“
Unnið að eflingu menntunar í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu
Signý Óskarsdóttir, verkefnisstjóri verkefnisins Efling menntunar í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu.
Unglingar í æskulýðsfélagi Ólafs-
víkur- og Ingjaldshólsprestakalls
stóðu fyrir kærleiksmaraþoni og
kærleiksverkum ásamt sóknar-
prestinum á síðasta sunnudag.
Daginn hófu þau á því að vinna hin
ýmsu kærleiksverk og heimsóttu
til dæmis Dvalarheimilið Jaðar og
fleiri staði og buðust til að hjálpa
við heimilisverk. Hægt var að heita
á krakkana en þau voru með þessu
að safna sér fyrir ferð á landsmót
ÆSKÞ sem fram fer dagana 21.
til 23. október næstkomandi. Yfir-
skrift landsmótsins að þessu sinni
er Flóttamenn og fjölmenning og
af því tilefni var tekið á móti föt-
um fyrir flóttafólk sem hluti af
dagskránni og munu krakkarn-
ir fara með þau á landsmótið og
afhenda þar og þeim verður svo
komið áfram. Þess má geta að þar
munu krakkarnir keppa í hæfi-
leikakeppni æskulýðsfélaganna en
atriðið þeirra var eitt af sex atrið-
um sem valið var af dómnefnd til
að keppa á mótinu sjálfu.
Frá klukkan þrjú á sunnudag-
inn var svo dagskrá fyrir alla í
kirkjunni. Þar var boðið upp á
andlitsmálun og bingó þar sem
veglegir vinningar voru í boði og
kökubasar þar sem hægt var að
kaupa girnilegt bakkelsi einnig til
styrktar ferðinni. Dagskránni lauk
svo með dægurlagaguðsþjónustu
þar sem stemningin var létt og
sungin voru dægurlög. þa
Kærleiksmaraþon í
æskulýðsfélaginu
Á Snæfellsnesi er nú
verið að reisa þrjár
nýjar reiðskemmur; í
Stykkishólmi, Ólafsvík
og á Lýsuhóli. Samið
var við Límtré Vírnet
um byggingu þeirra
allra í júnímánuði eft-
ir þann aðdraganda að
fulltrúar Hesteigenda-
félags Stykkishólms,
Hesteigendafélagsins
Hrings í Ólafsvík og
ferðaþjónustubænd-
urnir Agnar og Jó-
hanna á Lýsuhóli tóku
sig saman og óskuðu
eftir tilboðum í reið-
skemmubyggingarn-
ar. Framkvæmdir eru
hafnar við allar skemm-
urnar en vinnan við að
reisa húsið á Lýsuhóli
er lengst á veg kom-
in. Reiðskemman á
Lýsuhóli verður stærst
skemmanna þriggja,
eða 20 x 45 metrar, en
hin húsin verða 18 x 38
metrar að stærð.
grþ
Reiðskemmur rísa á Snæfellsnesi
Líkt og sjá má verður reiðskemman á Lýsuhóli stór og vegleg. Ljósm. Snæfellsbær.
Í Ólafsvík má sjá að búið er að steypa sökkul undir reiðskemmuna. Ljósm. af.
Í byrjun júnímánaðar var fyrsta skóflustungan tekin að reiðskemmunni í Stykkishólmi. Ekki er ljóst hvenær verður lokið við
skemmuna en stefnt er á að klára fyrir veturinn. Ljósk. kgk.