Skessuhorn


Skessuhorn - 19.10.2016, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 19.10.2016, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 201622 Harpa Hreinsdóttir handverkskona á Akranesi og Bjarni Þór Bjarnason listamaður ætla að efna til samsýn- ingar á menningarhátíðinni Vöku- dögum, sem framundan er í bænum dagana 27. október til 6. nóvem- ber næstkomandi. Sýna þau und- ir yfirskriftinni „Geggjaðar peys- ur“. Verða nokkrar af prjónapeys- um Hörpu til sýnis innan um mál- verk Bjarna Þórs þar sem efnistökin eru peysur eða fólk að prjóna peys- ur. Skessuhorn hitti Hörpu að máli í liðinni viku og ræddi við hana um sýninguna. Hún segir hugmynd- ina komna frá Ástu Salbjörgu Al- freðsdóttur. „Ásta er vinkona mín og eiginkona Bjarna. Við sitjum gjarnan og prjónum margar sam- an í Galleríi Bjarna Þórs á laugar- dögum. Þannig séð er prjónið tengt galleríinu,“ segir Harpa. „Nú, Ásta stakk upp á að ég héldi sýningu á peysunum mínum því ég prjóna lítið eftir uppskriftum nema mín- um eigin og stundum algjörlega án uppskrifta. Hún bar þetta undir Bjarna sem fannst hugmyndin góð og ákvað að hann myndi mála peys- ur. Þannig að þetta er sameiginleg peysusýning okkar Bjarna,“ bætir hún við. Ein geðveik og fimm aðrar En hvaðan kemur nafn sýningar- innar? „Nafnið er orðaleikur. Peys- urnar eru geggjaðar eða geðveikar af því að þær eru geðveikt flottar eða geðveikt öðruvísi en svo er ein peysa sem er í alvöru geðveik. Það er peysa sem ég prjónaði eftir mál- verki Louis Wain af ketti þegar tal- ið er að hann hafi verið að sökkva niður í eitt af sínum geðklofa- köstum. Mig langaði að æfa mig í myndprjóni og vildi prjóna ein- hverja geðveika mynd en fannst það svo „leim“ að prjóna Ópið. Á þessu tímabili var ég mjög veik af þung- lyndi, fékk mjög slæm köst og í einu slíku mundi ég eftir myndinni, sem ég hafði séð í bók í bernsku. Mér fannst myndin tilvalin, bjó til munstrið í forriti og prjónaði síð- an peysuna. Byrjaði á bakinu, þar sem myndin er og fann síðan mótíf framan á sem mér fannst passa við myndina. Þannig að ein peysan er í alvöru geðveik peysa,“ segir Harpa. „Ég lít því svo á á að mitt framlag til sýningarinnar sé ein geðveik peysa og fimm aðrar. En þær geta líka verið geðveikar, eða geggjaðar,“ segir hún og bætir því við að áður en hún lét af kennslu hafi hún iðu- lega klæðst hinni einu sönnu geð- veiku peysu á alþjóða geðheilbrigð- isdaginn 10. október. „Þess vegna er peysan flottust að aftan, eins og margar peysur sem ég hef prjónað og margar flíkur sem ég hef keypt í gegnum tíðina. Sem kennari sneri maður oftar en ekki bakinu í nem- endur, það er að segja fyrir daga skjávarpanna.“ Gestir mega meðhöndla peysurnar Hún kveðst ekki endanlega hafa gert upp við sig hvaða geggjuðu peysur nákvæmlega verði til sýn- is, til viðbótar við geðveiku peys- una. Þó sé ákveðið að peysan Ma- tala verði á sýningunni. „Hún er öll úr bútum sem ég síðan prjón- aði saman. Ég byrjaði bara á ein- um búti á bakinu og bætti svo hin- um við. Hana prjónaði ég algerlega án uppskriftar eða öllu heldur eft- ir sömu uppskrift og naglasúpan í þjóðsögunum,“ segir Harpa. „En tilbúin minnti hún mig á gamla hippa-þorpið Matala á Krít, sem ég og Atli Harðarson maðurinn minn höfum heimsótt. Þannig fékk hún nafnið,“ bætir hún við og kveðst ánægð með útkomuna. „Þó ég segi sjálf frá þá eru hún, geðveika peys- an og margar aðrar, bara býsna vel heppnaðar og hönnunin fal- leg,“ segir Harpa. Þá verður einn- ig til sýnis riddarapeysa Hörpu, sem prjónuð er eftir mynd af ein- um riddaranum á Riddarateppinu svokallaða. „Þetta er mótíf úr ridd- arasögunum sem mig langaði að prjóna og fannst þessi handalausi riddari skemmtilegur,“ segir hún og bendir blaðamanni á að riddar- ann vantar annan handlegginn. „Ef til vill hafa þær konur sem saum- uðu upphaflegu myndina á öldum áður orðið uppiskroppa með bláa litinn, sem var dýrastur og erfiðast að verða sér úti um. Hvað áttu þær þá að gera? Jú, þær slepptu bara úr handleggnum. Það finnst mér alveg stórgóð lausn og ákvað að gera það sama,“ segir hún. Uppsetning sýningarinnar verð- ur ekki með þeim hætti að peys- urnar verði látnar hanga á veggjum eins og málverk, að minnsta kosti ekki allar. Harpa vill að á sýning- unni geti fólk fengið að taka peys- urnar upp og meðhöndla. „Þær eiga ekki bara að hanga uppi á vegg. Mig langar að láta þær liggja frammi og vil leyfa fólki að taka þær upp, skoða rönguna, finna fyrir efninu og jafnvel máta þær,“ segir Harpa að lokum. kgk „Ein peysan er í alvöru geðveik“ -segir Harpa Hreinsdóttir um sýninguna Geggjaðar peysur Harpa Hreinsdóttir íklædd hinni einu sönnu geðveiku peysu, sem er prjónuð eftir málverki Louis Wain. Framan á geðveiku peysuna valdi Harpa mótíf sem henni þótti passa við myndina á bakinu. Á sýningunni hyggst Harpa láta peysur sínar liggja frammi svo fólk geti tekið þær upp og meðhöndlað, skoðað rönguna og jafnvel mátað þær. Ævar H Þórðarson var formaður Vörubílstjórafélagsins Þjóts á Akra- nesi frá 1976 og þar til ársins 1986. Hann tók þátt í gerð Borgarfjarð- arbrúarinnar á sínum tíma og vann, ásamt fjölmörgum fleiri bifreiða- stjórum, við að aka efni í fyllinguna. Hann segir ekki rétt, eins og haft var eftir Sigvalda Arasyni í umfjöllun Skessuhorns í tilefni 35 ára afmæl- is Borgarfjarðarbrúar, að Halldór E. Sigurðsson þáverandi samgöngu- ráðherra hafi skikkað bifreiðastjóra á Akranesi til samninga við Borg- nesinga um störfin við að aka efni í fyllinguna sunnan megin brúarinnar. „Sannleikurinn er sá að við fengum Borgnesinga, sem og bíla og bílstjóra úr Reykjavík, til liðs við okkur við að keyra í fyllinguna sunnanmegin,“ segir Ævar í samtali við Skessuhorn. „Halldór sagði að við mættum fá til liðs við okkur bíla hvaðan sem er af landinu til þess að við gætum örugg- lega staðið við okkar skuldbinding- ar,“ bætir hann við. Fundað streitulaust í sex daga Forsaga málsins er sú að einn mánu- dagsmorgun áður en hafist var handa við að keyra í fyllingu Borgarfjarð- arbrúar fór Ævar í morgunkaffi til eins verkstjórans á Seleyrinni sem sagði honum að Ístak væri væntan- legt með sína bíla morguninn eftir. „Ég hringdi þá til Einars Ögmunds- sonar, sem þá var formaður Lands- sambands vörubifreiðastjóra, og bað hann að ganga í að stoppa þetta,“ segir Ævar. „Hann hafði samband við ráðherra sem stjórnaði því að menn skyldu standa við gerða samn- inga og sagðist ætla að láta Vegagerð- ina standa við samninginn sem land- sambandið hafði gert við Vegagerð- ina um almenna vinnu.“ Næst segir Ævar að hann hafi, ásamt Einari Ög- mundssyni, Arnmundi Bachmann og Guðmundi nokkrum sem þá var hjá landssambandinu, verið kallaður á fund. Þeir hafi mætt á þriðjudags- morgni kl. 10. „Síðan mættum við, alla daga fram á sunnudag og það var þráttað allan daginn. En þeir voru í tímaþröng með verkið vegna þess að laxinn var að koma og á sunnudags- morgun kl. 11 var Halldór E. ræst- ur út. Hann mætti, byrjaði nú á því að lesa mér pistilinn en ég stóð fast á mínu og vildi að staðið yrði við gerða samninga og okkur gefið tækifæri til að sanna okkur. Ef ljóst væri að við gætum þetta ekki þá mættu Ístaks- menn koma með sína bíla. Halldór féllst á það og hófst handa við gerð skriflegs samnings ásamt skrifstofu- mönnum Vegagerðarinnar sem virt- ust aldrei ætla vilja semja við okkur,“ segir Ævar. „Þeir neituðu að trúa að við gætum keyrt 4100 rúmmetra í fyllinguna á einum sólarhring. Þeg- ar við skrifuðum undir samninginn var talan reyndar komin upp í 4300 rúmmetra en ég sagði að það skipti ekki nokkru máli, við gætum af- kastað mun meira,“ bætir hann við. Hann segir þá ekki hafa áttað sig á því að ef búkollurnar hefðu kom- ið, eins og til stóð, þá hefði verkið stoppað. „Það þurfti að bakka út yfir bráðabirgðabrú sem var búin til út í fjörðinn og búkollurnar eru svo lengi að bakka að það hefði aldrei gengið,“ segir Ævar og brosir. Aldrei minnst á Ístak meir Þeir hófust handa sama kvöld og út- bjuggu smá brekku til að ná meiri hraða afturábak. „Þannig gátum við byrjað að hífa pallana á vörubílun- um á miðri brú og þegar við vorum komnir út á enda skaust hlassið af ef maður rétt tyllti á bremsuna,“ seg- ir Ævar og árangurinn lét ekki á sér standa. „Við afköstuðum yfir sjö þús- und rúmmetrum á sólarhring að jafn- aði og þennan eina dag sem allt sner- ist og ekkert bilaði fórum við í ell- efu þúsund rúmmetra,“ segir hann. „En við byrjuðum líka á mánudags- morgni og keyrðum á vöktum óslit- ið fram á hádegi á sunnudegi. Þá var vöktum slitið vegna þess að verkið við fyllinguna að sunnanverðu við brúna var að það langt komið. Eftir þetta var aldrei aftur minnst á að fá Ístak til að keyra í fyllinguna,“ bæt- ir hann við. „En það þurfti aldrei neina samn- inga milli Skagamanna og Borgnes- inga um að keyra í fyllinguna sunn- anmegin. Það lá alltaf fyrir að við gætum aldrei afgreitt þetta sjálfir. Þess vegna fengum við bíla að, bæði Borgnesinga og Reykvíkinga og Halldór E kom hvergi nærri þeim samningum. Menn voru bara beðnir um að mæta og það gerðu þeir,“ segir Ævar sem lætur afar vel af vinnunni við Borgarfjarðarbrúna. „Það var mjög gott að vinna þarna í alla staði þó að þetta hafi verið mikið úthald. En þetta gekk fínt og verkstjórarn- ir sem voru innfrá voru mjög fínir,“ segir Ævar að lokum. kgk Ævar H Þórðarson, fyrrum formaður Vörubílstjórafélagsins Þjóts: „Þurfti aldrei neina samninga milli Skagamanna og Borgnesinga um að keyra í fyllinguna“ Komin er fylling fyrir utan bráðabirgðabrúna sem byggð var að sunnanverðu. Bifreiðastjórar fengu fimm sólarhringa til að búa til snúningssvæði fyrir utan brúna en voru farnir að snúa við þar eftir 27 klukkustundir að sögn Ævars. Aldrei var þá aftur minnst á að Ístak kæmi með sína bíla til að keyra í fyllinguna. Til gamans má geta þess að Akurnesingurinn Ragnar Leósson ekur hvíta bílnum sem stefnir út á brúna. Ljósm. Einar Ingimundarson/Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.