Skessuhorn - 19.10.2016, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 20162
Flokkur Fólksins, Framsóknarflokk-
urinn, Íslenska þjóðfylkingin, Pírat-
ar, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur-
inn, Viðreisn og Vinstrihreyfingin
grænt framboð.
Lágmarksfjöldi meðmæla vegna
framboðs í Norðvesturkjördæmi
eru 240 undirskriftir kosningabærra
manna. Ef einhver skrifar undir með-
mæli með fleiri en einum lista fellur
undirskrift viðkomandi út alls staðar.
Þá þarf að gæta þess að framboðslist-
inn sjálfur sé gildur, til dæmis að allir
sem hann skipa séu samþykkir því að
vera í framboði.
Að sögn Kristjáns G. Jóhannsson-
ar, formanns yfirkjörstjórnar Norð-
vesturkjördæmis, var á föstudag-
inn farið yfir framboðslistana og öll
gögn sem þeim fylgdu, undirskriftir
og fleira til að ganga úr skugga um
að allt væri lögum samkvæmt. kgk
Margt er um að vera á Snæfellsnesi um
þessar mundir. Menningarhátíðin Rökkur-
dagar stendur nú sem hæst í Grundarfirði,
en henni lýkur á laugardaginn. Föstudag-
inn 21. október hefst síðan kvikmyndahá-
tíðin Northern Wave í Frystiklefanum í Rifi
og stendur til 23. október, eins og greint
hefur verið frá í Skessuhorni. Þá verða
Norðurljósadagar í Stykkishólmi, með tón-
leikum, ljósmyndasýningu og fleiru dag-
ana 20.-23. október næstkomandi.
Sunnan hvassviðri eða stormur og rign-
ing í fyrramálið, fimmtudagsmorgun en
hægari og úrkomulítið á Norðaustur-
landi. Dregur úr bæði vindi og úrkomu
þegar líður á daginn, sunnan 8-15 m/s og
skúrir um kvöldið, en léttskýjað norðaust-
an til. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast norðaustan-
lands. Á föstudag, laugardag og sunnu-
dag spáir suðaustan 8-13 m/s og rign-
ingu, en þurrt að kalla á Norðurlandi. Hiti
7-13 stig, hlýjast fyrir norðan. Suðvestlæg
átt og smáskúrir Vestanlands á mánudag,
en bjartviðri austanlands. Áfram fremur
milt í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Ert þú búin(n) að ákveða hvað þú ætlar
að kjósa?“
Ríflega helmingur svarenda, eða 55%
sögðu „Já, er alveg viss“. Næstflestir voru
alveg á öndverðum meiði, því 24% svör-
uðu „Nei, er alveg óákveðin(n)“. „Nei, en
tveir til þrír flokkar koma til greina“ sögðu
16%, „kýs ekki“ sögðu 3% og 2% hafa ekki
kosningarétt.
Í næstu viku er spurt:
„Hvernig verð þú frítíma þínum?“
Þrír piltar af Vesturlandi, þeir Guðmundur
Kári Þorgrímsson, Helgi Laxdal Aðalgeirs-
son og Logi Örn Axel Ingvarsson kepptu í
liðinni viku með blandaðri sveit íslenskra
ungmenna í á Evrópumótinu í hópfim-
leikum. Náði sveitin þriðja sætinu sem er
glæsilegur árangur.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Skora á bæjaryfir-
völd að auka
niðurgreiðslur
AKRANES: Valgerði Janusar-
dóttur sviðsstjóra skóla- og frí-
stundasviðs hjá Akraneskaupstað
var í vikunni færður færðu und-
irskriftalisti, þar sem hópur Ak-
urnesinga skorar á stjórnendur
sveitarfélagsins að auka niður-
greiðslur vegna barna hjá dag-
foreldrum og rýmka reglur um
aldur þeirra við innritun í leik-
skóla. Í áskoruninni var meðal
annars bent á að niðurgreiðslan
hjá Akraneskaupstað væri tölu-
vert lægri en í flestum bæjar-
félögum á landinu. Listinn sam-
anstóð af 344 rafrænum und-
irskriftum auk nokkurra skrif-
legra. Það voru Birna Björk Sig-
urgeirsdóttir og Margrét Egils-
dóttir stóðu fyrir undirskrift-
asöfnuninni og afhentu Valgerði
listann. Regínu Ásvaldsdóttur
bæjarstjóra var einnig afhent af-
rit af gögnunum. Í samtali við
Skessuhorn segir Margrét að
þær Birna Björk hafi fengið góð-
ar móttökur hjá Akraneskaup-
stað. „Tekið var vel á móti okk-
ur og hlustað á okkar mál. Málið
er nú í höndum bæjarins og von-
andi sjáum við einhverjar breyt-
ingar á næstu misserum. En við
höfum gert það sem við get-
um og nú er komið að þeim,“
segir Margrét. Á myndinn er
Birna Björk að afhenda Valgerði
Janusardóttur undirskriftarlist-
ann. Með á myndinni er sonur
Birnu Bjarkar.
-grþ
Urð og grjót átti
eina boðið
DALABYGGÐ: Nýverið voru
opnuð hjá Vegagerðinni tilboð
í dýpkun smábátahafnarinnar á
Skarðsstöð í Dölum. Dýpka á
höfnina um tvo metra og gert
ráð fyrir að fjarlægja þurfi 240
rúmmetra efnis. Koma á fyr-
ir um 1200 rúmmetra fyllingu
og grjótvörn við steinbryggj-
una. Verkinu skal lokið fyrir 1.
desember nk. Eitt tilboð barst
í verkið og var það frá Urð og
grjóti ehf. í Reykjavík að upphæð
14 milljónir króna. Það var um
86% af áætluðum framkvæmda-
kostnaði sem var 16,3 milljónir.
-mm
Lítið atvinnuleysi
LANDIÐ: Í september var skráð
atvinnuleysi í landinu 1,9%. Er
þetta í fyrsta skipti síðan fyr-
ir gjaldþrot bankanna í október
2008 sem hlutfall fólks án at-
vinnu er þetta lágt. Að meðaltali
voru 3.286 skráðir atvinnulausir
hjá Vinnumálastofnun í septem-
ber og fækkaði um 267 að með-
altali frá því í ágúst, en þá var at-
vinnuleysið 2,0%. -mm
Matvælastofnun gaf það út í síðustu
viku með formlegum hætti að orsök
óútskýrðs sauðfjárdauða vorið 2015
hafi mátt rekja til næringarskorts.
Að mati stofnunarinnar má rekja
næringarskortinn til margra sam-
verkandi þátta en fyrst og fremst til
lélegra heyja vegna vætutíðar sum-
arið 2014 og til mikils kulda vetur-
inn eftir. Féð fékk nóg hey en það
var illmeltanlegt og næringarsnautt.
Afleiðingarnar voru þær að féð fékk
ekki nægjanlega orku til að viðhalda
starfsemi líkamans, framleiða hita
og öll umframorka fór í vöxt fóstra,“
segir í tilkynningu sem Matvæla-
stofnun sendi út í liðinni viku. Þessi
niðurstaða ýtir undir mikilvægi þess
að bændur þekki vel innihald fóðurs
sem búfénaði er gefið sem og melt-
anleika þess. Að þeir taki heysýni,
láti mæla þau og reikna út fóðurgjöf
miðað við orkuþörf og aðra mikil-
væga áhrifaþætti.
Þá segir í tilkynningu MAST að
haustið 2015 hafi rannsóknarnið-
urstöður hvorki bent til smitsjúk-
dóms né áhrifa frá eldgosinu í Holu-
hrauni. Á þeim tíma hafði Matvæla-
stofnun þó fyrirvara á fyrrnefndu
áliti sínu þar sem ekki var hægt að
útiloka aðrar undirliggjandi orsakir
með óyggjandi hætti og óskaði því
eftir opinberu fjármagni til áfram-
haldandi rannsókna. Ekki fékkst
fjármagn til að halda rannsókninni
áfram.
Matvælastofnun hélt hins veg-
ar áfram að safna upplýsingum frá
bændum um afdrif, heimtur og
ástand fjárins að lokinni smölun
sumarið og haustið 2015. Ekki var
vart við óeðlileg afföll yfir sumar-
mánuðina 2015, féð virtist almennt
skila sér vel af fjalli og í góðu ásig-
komulagi. Skýrsluhald sauðfjár-
bænda studdi við það. Árið 2014 var
meðalfjöldi lamba til nytja 1,66 en
árið 2015 var hann 1,63. Árið 2014
var 519.568 lömbum slátrað og
meðalfallþunginn var 16,6 kg. Árið
2015 var hinsvegar töluvert færri
lömbum slátrað eða 504.844 en
einungis 0,1 kg munaði á fallþunga
milli ára, sem var 16,5 kg. Matvæla-
stofnun fylgdi málinu eftir með því
að hafa samband við bændur sem
urðu fyrir miklum afföllum og fylgj-
ast með gangi mála hjá þeim.
Á málþingi Landbúnaðarháskól-
ans 3. mars sl. um sauðfjárdauð-
ann með vísindamönnum skólans,
ráðunautum, starfandi dýralæknum
og sérfræðingum Matvælastofnun-
ar var tekið undir niðurstöðu Mat-
vælastofnunar. Að öllu samanlögðu
er hafið yfir skynsamlegan vafa að
orskök sauðfjárdauðans 2015 var
næringarskortur sem kom fyrst
og fremst til vegna lélegra heyja
frá sumrinu áður. Matvælastofnun
birti þetta álit sitt í nóvember 2015
og áréttaði það í starfsskýrslu sinni
2015. mm
Næringarskortur olli sauðfjárdauðanum vorið 2015
Tíu stjórnmálaflokkar skiluðu inn
framboðslistum í Norðvesturkjör-
dæmi, en frestur til að skila inn fram-
boði vegna alþingiskosninga 29.
október næstkomandi rann út á há-
degi á föstudaginn. Framboðin sem
skiluðu inn listum og hyggjast bjóða
fram í Norðvesturkjördæmi eru, í
stafrófsröð: Björt Framtíð, Dögun,
Tíu flokkar skiluðu inn framboðslistum
í Norðvesturkjördæmi
Gengið verður til kosninga til Alþingis laugardaginn 29. október. Verður það
í annað skipti á árinu sem Íslendingar ganga til kosninga, því í vor var kjörinn
nýr forseti. Hér má sjá Eðvarð Jón Sveinsson í Borgarnesi skila inn sínu atkvæði í
forsetakosningunum fyrr á þessu ári.
Á aðalfundi Landssambands smá-
báteigenda í síðustu viku var Axel
Helgason kosinn nýr formaður
félagsins. Kosið var á milli hans
og Þórðar Birgissonar. Axel hef-
ur vakið verðskuldaða athygli fyrir
bát sinn Sunnu Rós SH-123, sem
hann kom fyrir í búnaði til makríl-
og grásleppuveiða. Á Sjávarútvegs-
sýningunni 2016 hlaut hann verð-
laun sem trillukarl ársins, en athygli
hefur vakið að Axel rær einn á báti
sínum. Við hönnun makrílbúnaðar
í bátinn lagði Axel áhersla á öryggi,
afköst og léttan búnað. Á síðustu
vertíð var Sunna Rós SH aflahæsti
makrílveiðibáturinn.
mm
Axel kosinn formaður
Félags smábátaeigenda
Sunna Rós SH-123
hefur vakið athygli fyrir
nýstárlegan búnað til
makrílveiða. Axel réri
frá Keflavík í september,
samkvæmt vef Fiskistofu.
Eliza Reid forsetafrú afhenti Axel verðlaun á Sjávarútvegssýningunni sem fram
fór í síðsta mánuði. Axel var kjörinn trillukarl ársins. Ljósm. mm.