Skessuhorn - 19.10.2016, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 201610
Frá þriðjudegi og fram á fimmtu-
dag í liðinni viku gerði óvenjulega
mikla úrkomu hér á landi. Lægðin
var eftirstöðvar fellibylsins Matth-
íasar sem varð að fellibyl á Karab-
íska hafinu og olli gríðarlegri eyði-
leggingu á Haítí, Flórídaskagan-
um og víðar. Teygði hann síðan
anga sína hingað. Miðað við mæl-
ingar Veðurstofunnar rigndi mest
á Barðaströnd, Snæfellsnesi og á
svæðinu við Mýrdalsjökul. Bráðn-
un var mikil í jöklum og raunar
má segja að það hafi verið happ að
ekki hafði snjóað í fjöll. Þrátt fyr-
ir að vatn ykist mikið í ám og lækj-
um er ekki kunnugt um skemmd-
ir af völdum vatnavaxta. Meðfylgj-
andi eru myndir af þremur vatns-
föllum á vestanverðu landinu.
mm
Vatnavextir talsverðir
í úrhellisrigningu
Laxfoss í Grímsá í Borgarfirði var fremur ófrýnilegur á að líta.
Ljósm. Sveinbjörn Eyjólfsson.
Geitá, ofan við Húsafell í Borgarfirði, er venjulega fremur sakleysisleg, en á
miðvikudag er talið að vatnsmagnið hafi fimmfaldast og flæddi hún yfir bakka
sína. Myndina tók Páll Jökull Pétursson og birtist hún fyrst á RUV.is Til gamans
má geta þess að einn Borgfirðingur skrifaði við þessa mynd: „Það er engu líkara
en að jöklarnir Ok og Langjökull, sem í gær voru gerðir að þjóðlendu, séu að
flýja til sjávar. Guð hefur talað.“
Kirkjufellsfoss við Grundarfjörð var töluvert stærri en hann á
að venjast. Ljósm. Tómas Freyr Kristjánsson.
Á fundi sem Samtök ferðaþjónust-
unnar (SAF) efndu til með fulltrú-
um sjö stjórnmálaflokka í Norð-
vesturkjördæmi síðastliðið fimmtu-
dagskvöld kom fram að SAF áætla
að ríkissjóður fái 445 milljarða
króna í skatta og gjöld af erlend-
um ferðamönnum á næstu fjór-
um árum. Þessi áætlun byggir á
spá um 13-20% fjölgun ferða-
manna á ári á tímabilinu. Í ræðu
Gríms Sæmundsen, formanns SAF,
kom fram að miðað við þessa spá
verði heildar gjaldeyristekjur af
komu ferðamanna 2.700 milljarðar
króna á næsta kjörtímabili. Grím-
ur setti upphæðina í samhengi við
að á þessu ári er áætlað að heildar
landsframleiðsla Íslendinga verði
2.400 milljarðar króna. Á fundin-
um bentu fulltrúar SAF á mikil-
vægi þess að byggja upp nauðsyn-
lega innviði til að mæta fjölgun
ferðamanna og tryggja ávinning-
inn af komu þeirra. Að öðrum kosti
væri veruleg hætta á því að félags-
leg þolmörk íbúa myndu bresta og
álag á vinsæla ferðamannastaði fari
úr böndunum. Með réttri fjárfest-
ingu mætti bregðast við í tæka tíð
til að tryggja ánægju gesta jafnt sem
heimamanna og að ferðaþjónustan
verði sjálfbær.
Vegakerfið í lamasessi
Á fundinum í Borgarnesi sátu full-
trúar sjö stjórnmálaflokka fyr-
ir svörum. Þetta voru þau Inga
Björk Bjarnadóttir frá Samfylk-
ingu, G. Valdimar Valdemars-
son frá Bjartri framtíð, Gunnar
Bragi Sveinsson frá Framsóknar-
flokki, Bjarni Jónsson frá VG, Ei-
ríkur Þór Theódórsson frá Píröt-
um, Gylfi Ólafsson frá Viðreisn og
Haraldur Benediktsson frá Sjálf-
stæðisflokki. Svöruðu þau völdum
spurningum sem til þeirra var beint
af forystufólki SAF. Rætt var m.a.
um helstu baráttu- og stefnumál
flokkanna í ferðaþjónustu, sam-
göngumál; vegabætur og flugsam-
göngur, svo eitthvað sé nefnt. All-
ir voru sammála um að bæta þurfi í
vegagerð. Gunnar Bragi Sveinsson,
eini ráðherrann í pallborði, viður-
kenndi að ríkisstjórnin hefði ekki
varið nægum peningum í uppbygg-
ingu vegakerfisins. G. Valdimar
frá Bjartri framtíð sagði það óvið-
unandi að hið opinbera væri sífellt
að safna upp skuld við vegakerf-
ið. Sagði hann að samgöngufram-
kvæmdir væru ekki þensluhvetj-
andi og hægt væri að dreifa þeim
um allt landið með skynsamlegum
hætti. Haraldur Benediktsson al-
þingismaður Sjálfstæðisflokksins
sagði að fráfarandi ríkisstjórn hefði
einsett sér að forgangsraða í þágu
heilbrigðismála og almannatrygg-
inga og væru rýrar fjárveitingar til
vegamála ástæða þess. Benti hann á
uppbyggingu sem byrjuð er í ljós-
leiðaravæðingu dreifbýlisins og það
væri ekki síður mikilvægt að hafa
þau mál í lagi eins og vegina. Ei-
ríkur Þór Pírati sagði ástand vega-
kerfisins t.d. á sunnanverðum Vest-
fjörðum svo bágborið að ekki væri
hægt að mæla með ferðum um
það svæði yfir vetrartímann. Inga
Björk frá Samfylkingunni fagnaði
því að hafin væri uppbygging veg-
ar um Uxahryggi og að það myndi
koma sér vel fyrir ferðaþjónustuna.
Bjarni Jónsson hjá Vinstri grænum
sagði að ríkisstjórnin hefði ítrekað
svikið loforð í samgönguáætlun og
peningar sem ættu að renna til upp-
byggingar vega frá t.d. eldsneytis-
sköttum hefðu hefðu ekki skilað sér
í þau verkefni sem þeim væri ætlað
að standa straum af.
Svarta hagkerfið blettur
á greininni
Auk þessara mála var m.a. rætt um
hið svarta hagkerfi sem ferðaþjón-
ustan umfram aðrar atvinnugreinar
er þekkt fyrir. Fram kom gagnrýni
á að sparað hefði verið í skatteftir-
liti og stór hluti íbúða sem leigðar
væru út til ferðamanna tilheyrðu
svörtu hagkerfi. Það væri ólíðandi,
ekki síst út frá samkeppnissjónar-
miðum og jafnræði í viðskiptalíf-
inu.
Komið að þolmörkum
Fulltrúar úr stjórn SAF sögðu frá
nokkrum tölulegum staðreyndum
til að opna augu væntanlegra stjórn-
málamanna okkar fyrir mikilvægi
og stærð ferðaþjónustunnar. Þannig
starfa nú hátt í 2000 íbúar við ferða-
þjónustu í Norðvesturkjördæmi,
eða um 15% allra starfa á svæðinu.
Helmingur allra nýrra starfa sem
skapast verða til við þessa nýju at-
vinnugrein. Sagði Grímur Sæmund-
sen að margir stæðu í þeirri trúa að á
Vestfjörðum væri lífið einvörðungu
fiskur. Þegar það væri skoðað nán-
ar kæmi annað í ljós. Nefndi hann
að á Ísafirði störfuðu 200 manns
við ferðaþjónustu eða svipað marg-
ir og starfa við fiskvinnslu. Á lands-
vísu benti hann á að bílaleigur væru
að skaffa um fimm milljarða króna
í gjaldeyristekjur. „Ferðamenn
eru gríðarlega mikilvægir íslenska
þjóðarbúinu og má segja að ferða-
þjónustan sé að skaffa okkur um
30 þúsund nýja skattgreiðendur á
ári. Ferðaþjónustan er nú að skaffa
um 10% af vergri landsframleiðslu
og um 70 milljarðar eru að koma í
beinar tekjur. Þannig eru erlendir
ferðamenn mikilvægasti skattgreið-
andinn hér á landi.“ Grímur sagði
að nálgun stjórnvalda væri röng og
stjórnmálamenn yrðu að hlúa bet-
ur að ferðaþjónustu en þeir hafi
gert. Fram kom að í atvinnuvega-
ráðuneytinu er ekki nema hálft ann-
að stöðugildi við ferðaþjónustu.
Þannig væri ferðaþjónustan afskipt
og væri uppbygging hennar nær
sjálfbær. Nú væri hins vegar komið
að því að stjórnvöld yrðu að leggja
það sem til þarf í greinina. „Víða er
komið að þolmörkum ferðamanna-
staða og stjórnvöld hafa einfaldlega
trassað innviðauppbyggingu,“ sagði
Grímur.
Þarf átta milljarða á ári
Farið var á fundinum yfir hvað
þurfi að gera til að mæta fjölgun
ferðamanna með sómasamlegum
hætti á komandi kjörtímabili. Úr-
lausnarefnin kæmu fram í Vegvísi
í ferðaþjónustu sem kom út á síð-
asta ári. Samkvæmt því áætlar SAF
að hið opinbera þurfi að verja um
átta milljörðum króna á ári næstu
fjögur árin, samtals 32 milljörð-
um króna, í nauðsynlega uppbygg-
ingu. Þessi upphæð er 7% af áætl-
uðum tekjum ríkissjóðs af ferða-
þjónustunni á tímabilinu. Þau verk-
efni sem fyrir liggur að ráðast þurfi
í snúa m.a. að bættri upplýsinga-
gjöf, öryggi ferðamanna, áhættu-
stýringu, náttúruvernd, uppbygg-
ingu áfangastaða, salernisaðstöðu,
stuðningi við menntun og raun-
færnimat, dreifingu ferðamanna og
lagabreytingum sem stuðla að skil-
virkari stjórnsýslu fyrir ferðaþjón-
ustuna.
Það vakti athygli blaðamanns
Skessuhorns, sem sat fundinn, að
ekki var rætt um beina skattlagn-
ingu ferðamanna til að flýta upp-
byggingu innviða í ferðaþjónustu.
Augljóst er að forsvarsmenn Sam-
taka ferðaþjónustunnar eru ekki
fylgjandi því að sú leið verði farin
að leggja til dæmis á komuskatta,
en það voru þeir sem réðu hvað
stjórnmálamenn voru spurðir um á
þessum fundi. Þó kom fram í um-
ræðum á fundinum að gistinátt-
agjald myndi aldrei skapa teljandi
tekjur fyrir ríkið og bent á að slík
skattlagning legðist þungt á ódýra
tjaldgesti, en væri léttvæg fyrir dýra
hótelgistingu. mm
Skattar af ferðamönnum áætlaðir
445 milljarðar á næsta kjörtímabili
Starfsmaður SAF myndar hér umræður á fundinum. Helga Árnadóttir fram-
kvæmdastjóri SAF stýrði umræðum og fyrirspurnum.
Um fjörutíu manns sátu fundinn í Borgarnesi og hlýddu á það sem forsvarsmenn ferðaþjónustunnar sögðu og hvernig fram-
bjóðendur sjö flokka svöruðu fyrir sig.