Skessuhorn - 19.10.2016, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 201612
Stúdentafélög allra sjö háskóla á
Íslandi hafa hleypt af stokkunum
undirskriftasöfnun á www.haskol-
arnir.is þar sem þess er krafist að
stjórnvöld setji menntamál í for-
gang og fylgi settri stefnu um fjár-
mögnun háskólakerfisins. „Alltof
lengi hafa nemendur þurft að búa
við undirfjármögnun háskólanna
sem bitnar meðal annars á kennslu
og aðstöðu í háskólunum og ekki
síður framþróun í samfélaginu.
Enn fremur er ljóst að ef ekki er
lagt meira fé til reksturs háskóla-
kerfisins þarf á endanum að fækka
nemendum og draga úr fjölbreyti-
leika í námsframboði,“ segir í til-
kynningu frá stúdentafélögunum.
Áskorun þeirra sem skrifa undir
til stjórnvalda hljóðar svo: „Með-
alframlag íslenska ríkisins á hvern
ársnema í háskóla er tæplega 1,3
milljónir króna. Ísland er þar langt
á eftir nágrannaþjóðum sínum
því framlagið nemur rúmlega 2,2
milljónum króna að meðaltali ann-
ars staðar á Norðurlöndum. Í að-
gerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs
er markmiðið að styrkja fjármögn-
un háskólakerfisins hér á landi svo
hún verði að minnsta kosti sam-
bærileg við meðaltal annarra nor-
rænna ríkja árið 2020. Ríkisfjár-
málaáætlun fyrir árin 2017-2021
sýnir hins vegar að engan veginn
er komið til móts við ofangreint
markmið. Viðvarandi undirfjár-
mögnun háskólanna dregur úr
framþróun í samfélaginu og sam-
keppnishæfni landsins. Enn frem-
ur er ljóst að ef ekki er lagt meira
fé til reksturs háskólakerfisins þarf
á endanum að fækka nemendum
og draga úr fjölbreytileika í náms-
framboði. Við undirrituð krefjumst
þess að stjórnvöld setji menntamál
í forgang og framfylgi fyrrgreind-
um markmiðum um fjármögnun
háskólakerfisins með það að leið-
arljósi að jafnmikið fjármagn fylgi
hverjum háskólanema hér á landi
og nemum annars staðar á Norð-
urlöndum árið 2020.“
mm
Stúdentafélög allra háskóla
vilja að menntamál
verði sett á oddinn
Á fundi fjallskilanefndar Reykhóla-
hrepps síðastliðinn miðvikudag var
farið yfir stöðu mála varðandi fjallskil
í Múlasveit í vestanverðum hreppn-
um. Þar kom fram að mikil vinna
hafi farið í leitir í Múlasveit og enn
ekki tekist að fara á öll svæði. Þeg-
ar hafi verið lögð til 15 dagsverk af
leitarstjóra og hans mönnum vegna
fjallskila í Múlasveit, 30 dagsverk frá
Fremri-Gufudal, auk 15 dagsverka
frá bæjum á Barðaströnd. Leitirnar
séu orðnar of erfiðar og tímafrekar
vegna aukins vaxtar á gróðri á svæð-
inu, sem er víðfeðmt og fáir til leitar.
Fjallskilanefnd lagði því til við
sveitarstjórn að lögð verði tvö pró-
sent á landverð allra jarða í sveitarfé-
laginu til að mæta þeim kostnaði sem
af fjallskilum leiðir og ekki verður
jafnaður niður á búfjáreigendur með
dagsverkum. Einnig lagði nefndin
til að lagt verði á niðurjafnað gjald á
allt fjallskilaskylt fé í sveitarfélaginu,
samtals 20 krónur á hverja vetrar-
fóðraða kind.
Daginn eftir, fimmtudaginn 13.
október, var tillaga fjallskilanefnd-
ar tekin fyrir á fundi sveitarstjórnar
Reykhólahrepps. Sveitarstjórn tók
vel í hugmyndir nefndarinnar og
samþykkti að fela oddvita og vara-
oddvita að vinna frekar að stofnun
sérstaks fjallskilasjóðs, ásamt fjall-
skilanefnd. kgk
Stofnun fjallskilasjóðs undirbúin
Fáir eru til leitar í Múlasveit í Reykhólahreppi og svæðið víðfeðmt. Því undirbúa
stjórnendur sveitarfélagsins nú stofnun sérstaks fjallskilasjóðs til að mæta
kostnaði við leitir. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti, en hún
er tekin í Þverárrétt í Borgarfirði.
Skemmdarverk hafa á undanförn-
um vikum verið unnin á reiðhjólum
nemenda við Grundaskóla á Akra-
nesi. Losað hefur verið um fest-
ingar á framdekkjum hjólanna og
átt við bremsubúnað með alvarleg-
um afleiðingum. Þetta hefur meðal
annars leitt til að a.m.k fjórir nem-
endur hafa slasast við það að falla af
hjólum sínum.
Í tilkynningu sem skólinn sendi
aðstandendum barna undir lok síð-
ustu viku kemur fram að lögregla
hafi verið fengin til að ræða við
nemendur á miðstigi og unglinga-
stigi skólans um alvarleika slíkra
skemmdarverka. Lögregla kom m.a.
inn á það í samtali við nemendur að
nákvæmlega svona skemmdarverk
hafa leitt af sér mjög alvarleg slys
í gegnum tíðina og jafnvel dauða-
slys. „Við lítum þetta mjög alvar-
legum augum og viljum gera allt til
að uppræta svona hegðun sem fyrst.
Við viljum biðja ykkur foreldra/for-
ráðamenn að ræða þetta mál heima
og ekki síst brýna fyrir börnunum
að athuga vel með hjólin sín áður
en byrjað er að hjóla,“ segir í bréfi
skólans til foreldra barna í Grunda-
skóla.
mm
Fjórir hafa slasast eftir
skemmdarverk á reiðhjólum
Frá hjólaæfingu við skólann.
Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Á laugardagskvöldið fékk Björgun-
arsveitin Heiðar í Borgarfirði út-
kall vegna ferðamanna sem höfðu
fest bíl sinn við vaðið yfir Mjódalsá
inn af Langavatnsdal. Þegar þang-
að var komið beið björgunarsveit-
armanna hins vegar aðeins harð-
læstur bíllinn en engir ferðamenn.
Ákveðið var að kalla eftir aðstoð
Björgunarsveitarinnar Brákar í
Borgarnesi, fá félaga í henni til að
fara inn Grenjadal og hitta á leit-
armenn Álfthreppinga, sem voru
í smalamennsku á svæðinu, til að
athuga hvort ferðamennirnir væru
hjá þeim. Jafnframt var ákveð-
ið að fá Björgunarsveitina Ósk úr
Búðardal til að koma að Sópanda-
skarði ef ske kynni að fólkið hefði
gengið í þá áttina. En það gekk
ekki þrautalaust að kalla eftir að-
stoð. Engin leið var að hringja í
smalana eða kalla eftir aðstoð ann-
arra björgunarsveita því farsíma-
samband er ekkert á Langavatns-
dal. Auk þess gekk erfiðlega að ná
tetrasambandi. Það hafðist þó að
lokum og kallað var eftir aðstoð.
Þegar Brákarmenn fundu síðan
smalana kom í ljós að ferðamenn-
irnir höfðu slegist í för með þeim
og voru heilir á húfi. Brákarmenn
þurftu þá að aka svolítinn spotta til
baka til að komast í fjarskiptasam-
band, til að hægt væri að láta hin-
ar björgunarsveitirnar vita svo þær
gætu snúið heim á leið.
„Lærdómur þessa útkalls er sá
að það bráðvantar að koma upp
GSM og Tetra sambandi á Langa-
vatnsdal. Þetta er orðið mjög að-
kallandi og vandamál eftir að þetta
svæði varð svona vinsælt sérstak-
lega hjá gönguhópum,“ segir á
Facebook síðu Björgunarsveitar-
innar Heiðars, en sífellt fleiri hóp-
ar ganga vatnaleiðina svokölluðu,
frá Hítarvatni að Langavatni og
þaðan yfir að Hreðavatni. „Lang-
best væri að setja upp sendi á Stað-
arhnúkinn sem er fjallið suðaustur
af Langavatninu. Það fjall er stað-
sett þannig að það ætti að geta gef-
ið samband inn í dalina í kringum
Langavatnið,“ segir á Facebook
síðu björgunarsveitarinnar.
kgk/ Ljósm. Björgunarsveitin
Heiðar.
Slæmt fjarskiptasamband björgunarsveitarmönnum til trafala
Björgunarsveitarmenn komu
að læstum og mannlausum bíl
ferðamannanna við vaðið yfir
Mjódalsá inn af Langavatnsdal.
Svipmynd frá vettvangi.Bíllinn stóð á hallandi móhellu og ekki var þorandi að hreyfa hann.