Skessuhorn - 19.10.2016, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2016 19
Aðalfundarboð
Aðalfundur Landsbyggðin lifi – LBL verður haldinn
laugardaginn 22. október 2016 klukkan 13:00 á
Laxárbakka, hótel og veitingastað í Hvalfjarðarsveit.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
.
--------
Eftir aðalfundinn verður
Björn Birkisson bóndi með erindið:
Búvörusamningar - tilgangur og staða.
Umræður.
Allir velkomnir, bæði á aðalfundinn og umræðuna!
Stjórn LBL.
Landsbyggðin lifi - LBL, er hreyfing fólks
á Íslandi sem vill örva og efla byggð um
land allt. Samtökin eru regnhlífarsamtök
félaga og einstaklinga sem áhuga hafa á
landsbyggðamálum.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Auglýsing um kjörskrá
Kjörskrá Borgarbyggðar vegna alþingiskosninga
sem fram fara 29. október 2016 liggur frammi
á afgreiðslutíma skrifstofu Borgarbyggðar að
Borgarbraut 14, frá og með 19. október til kjördags.
Skrifstofa Borgarbyggðar SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Sveitarfélagið Stavanger í Nor-
egi hefur verið dæmt til að greiða
37 ára gamalli konu 1.260 þús-
und norskar krónur í miskabætur
vegna skefjalauss eineltis sem kon-
an varð fyrir nær alla sína barna- og
framhaldsskólagöngu. Samkvæmt
dómnum var eineltið sem hún varð
fyrir viðvarandi daglega frá því hún
gekk í þriðja bekk. Í kjölfar eineltis-
ins þykir sannað að rekja megi við-
varandi kvíðaköst og andlega van-
líðan til þeirrar meðhöndlunar sem
hún fékk í skólunum og afskipta-
leysis starfsfólks skólanna. Þótti
sannað að aðgerðir skólayfirvalda
í Stavanger til að uppræta eineltið
hafi verið ómarkvissar og því ekki
komið að gagni. Dómurinn komst
að þeirri niðurstöðu að starfsfólk
skólanna hefðu átt að einblína á
lausn málsins með því að vinna
með gerendum; börnunum sjálfum
og foreldrum þeirra, og ef til vill að
aðskilja gerendur og þolandann í
málinu. Sveitarfélagið reyndi að fá
dóminn til að viðurkenna að mál-
ið væri fyrnt, en á það var ekki fall-
ist. Konunni voru því dæmdar bæt-
ur, um 1260.000 nkr eða 17,6 millj-
ónir ISK auk málskosnaðar.
Dómur þessi þykir fordæmisgef-
andi í Noregi og hefur uppkvaðn-
ing hans vakið mikla athygli.
mm
Norskt sveitarfélag dæmt
til að greiða eineltisbætur
Ráðhúsið í miðborg Stavanger í Noregi. Ljósm. NRK.
Það var mikið líf og fjör á öllum
þremur starfsstöðvum Grunn-
skóla Snæfellsbæjar í síðustu viku.
Þá voru þemadagar þar sem fjöl-
menning var í sviðsljósinu. Af-
rakstur þeirrar vinnu mátti svo sjá
að mestu leyti á Fjölmenningarhá-
tíðinni í Frystiklefanum síðastlið-
inn laugardag.
Í grunnskólanum eru nemendur
sem eiga rætur í öllum heimsálf-
unum og auk íslenskra einstaklinga
eru nemendur sem eiga rætur í 13
þjóðlöndum: Danmörku, Svíþjóð,
Þýskalandi, Englandi, Póllandi,
Ítalíu, Litháen, Bosníu, Rússlandi,
Rúmeníu, Indlandi, Filippseyj-
um og Kína. Á starfsstöðunum í
Ólafsvík og á Hellissandi var nem-
endum skipt í hópa og unnu þeir
fjölbreytt og skapandi verkefni
sem tengjast löndunum. Til dæm-
is var búið til púsl úr þjóðfánum
þeirra landa sem tengjast nem-
endum þar. Löndin voru teikn-
uð upp og ýmist máluð eða bún-
ar til klippimyndir. Skoðaður var
íbúafjöldi, höfuðborgir og myntir.
Teiknaðir upp og litaðir þjóðbún-
ingar, rætt um þjóðlög og þjóð-
sögur og hin ýmsu sérkenni þjóð-
anna, skoðaðir og perlaðir lands-
liðsbúningar landanna og margt
fleira. Einnig var unnið með þjóð-
arblóm landanna, útlit vegabréfa,
leturgerð, matargerð og margt
fleira. Í lokin fóru nemendur á
Hellissandi svo í spurningakeppni
þar sem reyndi á hvað þau hefðu
lært. Greinilegt var að krakkarnir
voru vel að sér í ýmsu sem tengd-
ist löndunum. Nemendur á starfs-
stöðinni á Lýsuhóli unni verkefni
með öðru sniði og nálguðust fjöl-
menninguna á skemmtilegan hátt.
Þau unnu með þjóðlönd þeirra
gesta sem höfðu skrifað nafn sitt í
gestabókina í Salthúsinu á Malar-
rifi og þjóðerni starfsfólks í ferða-
þjónustu fyrirtækja á sunnanverðu
Snæfellsnesi.
þa
Fjölmenning til
umfjöllunar á
þemadögum í
grunnskólanum