Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2016, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 09.11.2016, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 20164 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Kjararáð fyrir alla sem ekki hafa verkfallsrétt Kjararáð ákvað á sjálfan kjördaginn að hækka laun þingmanna, ráðherra og forseta Íslands um 20-44% á einu bretti. Er það önnur launahækkun- in sem þessir æðstu embættismenn þjóðarinnar fá á þessu ári. Miðað við ákvörðun kjararáðs í júní síðastliðnum verður að gefa sér að laun háttsetts fólks í öðrum atvinnugreinum hafi hækkað um 20-44% á síðustu fjórum mánuðum. Hafi það gerst, hefur slík launabóla vissulega farið framhjá mér. Þetta hlýtur að koma spánskt fyrir sjónir því í 8. grein laga um kjar- aráð segir: „Við úrlausn mála skal kjararáð gæta innbyrðis samræmis í starfskjörum þeim sem það ákveður og að þau séu á hverjum tíma í sam- ræmi við laun í þjóðfélaginu hjá þeim sem sambærilegir geta talist með tilliti til starfa og ábyrgðar.“ Miðað við þessa skýru lagagrein geng ég svo langt að segja að líklega hafi kjararáð brotið lög með úrskurði sínum 29. október síðastliðinn. Hækkun launa æðstu embættismanna nú þýðir að ráðherrar fá um og yfir tvær milljónir króna á mánuði, þingfararkaup verður 1,1 milljón og laun forseta Íslands verða um þrjár milljónir á mánuði. Fréttir um þetta í síðustu viku kölluðu fram afar sterk viðbrögð margra í þjóðfélaginu. Verkalýðsfélög og fulltrúar atvinnulífsins tjáðu sig, fólk úr ýmsum grein- um þjóðlífsins lýsti vonbrigðum sínum og einstæð tveggja barna móðir í kennarastétt sagði upp starfi sínu. Hún kvað þessa frétt hafa fyllt mælinn fyrir sig og lýsti því yfir að hún gæti ekki framfleytt sér af þeim launum sem samið hefur verið um, jafnvel þótt hún sinnti þremur aukastörfum. Flestallir sem á annað borð tjáðu sig um úrskurð kjararáðs töldu það hafa gengið lengra en réttanlegt væri. Einna lengst gekk forseti Íslands sem kvaðst á blaðamannafundi ekki hafa vitað um þessa fyrirhuguðu hækkun launa sinna og ekki kæra sig um hana. Aðrir sem þiggja laun samkvæmt ákvörðun kjararáðs hafa stigið mun varlegar til jarðar, enda þykir þeim sjálfsagt sumum hverjum vænt um að fá fleiri krónur í budduna. Lög um kjararáð eru nokkuð skýr. Því ber að gæta sanngirni í störfum sínum og mismuna ekki þeim sem undir ráðið heyra gagnvart öðrum í þjóðfélaginu. Líklega er kjararáð nauðsynlegt, en ennþá nauðsynlegra er að starfsmenn kjararáðs misfari ekki með hlutverk sitt og vald. Ég ætla að leggja það til að kjararáð verði áfram til og meira að segja að því verði fært aukið hlutverk. Á sama hátt og þingmenn, ráðherrar og forseti geta ekki farið í verkfall, finnst mér að kjararáð eigi hér eftir að verða falið að taka ákvörðun um laun allra þeirra hópa í þjóðfélaginu sem ekki geta í krafti verkfallsréttar knúið fram launabætur. Ég nefni sérstaklega öryrkja, eldri borgara, lögreglu og jafnvel einnig námsmenn. Engum vafa er undirorpið að þessir hópar hafa setið eftir í launum og nú er komið að því að bæta ríkulega upp það sem þeir hafa farið á mis við. Ef kjararáð fengi það hlut- verk að ákveða kjör þeirra í samræmi við þróun launa í samfélaginu, líkt og það gerir um laun æðstu embættismanna landsins, er ég sannfærður um að ýmislegt myndi breytast. Nýtt þing hlýtur því, strax og það kemur saman, að ógilda ákvörðun kjararáðs frá 29. október síðastliðnum, enda að líkindum lögbrot eins og fyrr segir. Í framhaldinu þarf í flýti að breyta lögum um kjararáð og bæta öðrum þeim hagsmunahópum við sem ekki geta knúið fram launaupp- bætur með verkföll að vopni. Þegar þessi lagabreyting hefur verið gerð, getur kjararáð svo hafist handa á ný og lagfært kjör æðstu embættismanna, öryrkja og eldri borgara. Ef einhverjum finnst þetta ósanngjörn tillaga, þá má sá hinn sami senda mér línu í tölvupósti eða hringja. Upplýsingar um hvar er hægt að ná í mig, má sjá í blaðhaus hér ofar á síðunni. Magnús Magnússon Leiðari „Við undirrituð, rektorar allra há- skóla á Íslandi, óskum verðandi ríkisstjórn heilla í þeim störf- um sem bíða hennar á nýju kjör- tímabili. Fjárfesting í innviðum ís- lensks samfélags er meðal mikil- vægustu verkefna sem bíða. Mál- efni háskólanna, rannsóknir og nýsköpun eru þar á meðal,“ segir í ályktun sem allir sjö háskólarekt- orar landsins rita undir. Þá segir: „Úttektir Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) sýna að íslenskir háskólar eru verulega undirfjármagnaðir og fá helmingi lægra framlag á hvern nemenda en háskólar annars stað- ar á Norðurlöndum. Þessu verður að breyta og auka verulega fjár- festingu í háskólum á næstu árum. Tryggja verður að fjármögnun hvers nemenda á Íslandi sé sam- bærileg við önnur norræn ríki. Ef háskólakerfið á Íslandi á ekki að verða fyrir frekari skaða þarf að ná þessu mikilvæga markmiði og hækka framlög til háskólanna að lágmarki um tvo milljarða króna árlega á næstu árum. Í kjölfar ákalls okkar til stjórnmálamanna í byrjun október komust málefni háskóla- stigsins og fjármögnun háskólanna á dagskrá. Í aðdraganda kosninga tóku fulltrúar allra flokka sem nú eiga sæti á Alþingi undir ákallið og staðfestu mikilvægi fjárfestingar í háskólum til að efla framþróun samfélagsins og samkeppnishæfni Íslands. Við skorum á verðandi ríkis- stjórn og alla nýkjörna þingmenn að fylgja eftir orðum flokka sinna um aukna fjárfestingu í íslenskum háskólum. Mikilvægt er að ný rík- isstjórn geri sem fyrst áætlun um hækkun fjárframlaga til háskóla- stigsins sem er í takt við stefnu stjórnvalda í flestum nágrannaríkja okkar. Slíkt felur í sér fjárfestingu í velsæld, atvinnutækifærum og í framtíð landsins.“ Undir þetta rita Jón Atli Bene- diktsson rektor Háskóla Íslands, Ari Kristinn Jónsson rektor Há- skólans í Reykjavík, Eyjólfur Guð- mundsson rektor Háskólans á Ak- ureyri, Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, Vil- hjálmur Egilsson rektor Háskólans á Bifröst, Erla Björk Örnólfsdótt- ir rektor Háskólans á Hólum og Björn Þorsteinsson, rektor Land- búnaðarháskóla Íslands. mm Háskólarektorar skora á verðandi ríkisstjórn Þriðjudaginn 1. nóvember kynnti Matvælastofnun tilboð sem bárust í greiðslumark í mjólk. Alls bárust 114 gild tilboð um kaup og sölu. Markaðurinn að þessu sinni var sá stærsti frá upphafi markaðar fyr- ir greiðslumark mjólkur, en jafn- framt sá síðasti þar sem með nýj- um búvörulögum verður hann lagður niður. Frá næstu áramót- um tekur við innlausnarskylda rík- isins. Framvegis mun Búnaðar- stofa á Matvælastofnun annast inn- lausn greiðslumarks og skal bjóða til sölu greiðslumark, sem innleyst er, á því verði sem ríkið greiddi fyr- ir innlausn. Samkvæmt heimildum Skessuhorns gera menn ráð fyrir að innlausnarverð gæti orðið um 130-140 krónur fyrir lítrann. Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur nú þann 1. nóvember hefur komið fram 205 kr. jafnvægisverð á markaði fyr- ir hvern lítra mjólkur. Því má gera ráð fyrir að þeir sem seldu greiðslu- mark nú fái töluvert hærra verð en þeir sem selja eftir áramótin. Fjöldi gildra tilboða nú um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 69 sam- anborið við 38 á markaði 1. sept- ember síðastliðinn. Fjöldi gildra til- boða um kaup voru 45, samanbor- ið við 38 á markaði 1. september 2016. Boðið var til sölu greiðslu- mark upp á tæplega 6 milljónir lítra en kauptilboð bárust í 3,6 milljón- ir lítra. Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða, með svo- kölluðu jafnvægisverði er 2,7 millj- ónir lítra að andvirði 555 milljónir króna. Kauphlutfall í þessum síð- ustu viðskiptum á opnum markaði er því 75,59%. mm Öllum Samkaup Úrval og Samkaup Strax verslunum verður á næstu mánuðum breytt og munu mynda nýja keðju undir heitinu Kjör- búðin. Samkaup reka um fimmtíu verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsversl- unum til þægindaverslana. Helstu verslanamerki Samkaupa fram að þessu hafa verið Nettó, Samkaup Úrval, Samkaup Strax og Kram- búð. Starfsmenn keðjunnar eru 900 í 500 stöðugildum. Samkvæmt fréttatilkynningu var ákvörðun um að breyta nafni Samkaupsverslana í Kjörbúðin tekin í kjölfar vinnu og framkvæmdar kannana meðal rúmlega 4.000 viðskiptavina Sam- kaupa um land allt. Hönnun nýju keðjunnar hefur verið byggð á niðurstöðum könnunar og út frá þörfum og óskum viðskiptavina. Breytingar á verslununum munu taka nokkra mánuði en verða lok- ið fyrir lok næsta árs. Byrjað var að breyta verslunum í Garði og Sand- gerði og voru þær opnaðar undir nýju nafni í liðinni viku. mm Mjólkurkvóti seldur fyrir 555 milljónir króna Nafni Samkaup verslana breytt í Kjörbúðin

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.