Skessuhorn - 09.11.2016, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 201614
„Ég hef alltaf verið knattspyrnu-
lega þenkjandi og þegar ég var
ung kom aldrei til greina að æfa
neina aðra íþrótt en fótbolta,“ segir
Hulda Birna Baldursdóttir í samtali
við Skessuhorn. Hún tók við stöðu
framkvæmdastjóra Knattspyrnu-
félags ÍA 1. nóvember síðastliðinn
af Haraldi Ingólfssyni, sem hafði
gegnt starfinu undanfarin þrjú ár.
„Ég er Skagamaður, fædd og uppal-
in á Akranesi og spilaði með ÍA frá
því ég var 14 ára, fyrst með yngri
flokkunum og síðan meistaraflokki,
alveg þangað til ég fór í háskólanám
tvítug að aldri,“ segir Hulda.
Lengst af kveðst hún hafa spilað
stöðu hægri kantmanns hjá ÍA en
síðan lék hún einnig stöðu hægri
bakvarðar hjá Stjörnunni og á miðj-
unni með Boltafélagi Ísafjarðar.
Með Stjörnunni og BÍ lék hún sam-
hliða háskólanámi og Hulda hefur
fetað fjölmargar brautir mennta-
vegarins. „Ég lærði nú upphaflega
nudd hér á Akranesi árið 1992.
Þá var það kennt hér, aðeins þrjár
skráðar og ég lét plata mig til að skrá
mig í það nám til að nemendurnir
gætu nuddað hvern annan,“ segir
Hulda og brosir við. „En síðan fór
ég í Háskóla Íslands, tók Bsc í við-
skiptafærði og síðan kennslufræði
og byrjaði að kenna við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti árið 2001,“
segir hún. „Svo tók ég meistarapróf
í stjórnun og alþjóðaviðskiptum frá
Háskólanum á Bifröst og nú síðast
útskrifaðist ég sem PGA golfkenn-
ari,“ segir Hulda og bætir því við að
alla hennar háskólagöngu hafi hún
verið á vinnumarkaðnum einnig.
„Ég tók aldrei námslán og var alltaf
í vinnu með háskólanáminu,“ seg-
ir hún. „Það var oft og tíðum alveg
nóg að gera og ég er búin að lofa
fjölskyldunni að læra ekki meira í
bili,“ segir Hulda létt í bragði en
bætir því við að hún hafi alltaf fund-
ið sig vel í námi og líki vel að læra.
„Mér fannst alltaf frekar leiðinlegt
að horfa á sjónvarp, vildi frekar lesa
bækur og þannig er það enn. Ég
horfi á fátt annað í sjónvarpinu en
fótbolta og golf,“ segir hún.
Stelpugolf gaf
góða raun
Síðast starfaði Hulda sem markaðs-
stjóri Tækniskólans og Flugskóla
Íslands, en áður en hún tók við því
starfi var hún verkefnastjóri nýrr-
ar brautar; K2 fyrir framúrskar-
andi nemendur í Tækniskólanum –
í samstarfi við HR. Samhliða því
hefur hún verið framkvæmdastjóri
Stelpugolfs PGA síðastliðin þrjú ár,
sem er verkefni á vegum PGA á Ís-
landi. „Það byrjaði sem verkefni í
PGA skólanum og var bara náms-
verkefni. Upphaflega var til Pæju-
golf og því var ætlað til að fá fleiri
konur til að stunda golf. En það var
bara pláss fyrir 20 konur og nám-
skeiðið var frekar dýrt. Þannig að
ég reyndi að setja mig inn í hug-
arheim kvenna sem eru að velta
því fyrir sér að byrja í golfi. Flest-
um finnst það kosta mikið að byrja,
taka mikinn tíma og þess vegna
byrja konur almennt frekar seint að
spila golf. Þannig að í Stelpugolf-
inu þá var ákveðið að bjóða upp á
fría kennslu á stuttum námskeiðum
og það hefur gefið svo góða raun að
það er ekki hægt að hætta. Stelpu-
golfið er komið til að vera,“ seg-
ir Hulda ánægð enda hafa margar
konur kynnst golfíþróttinni í gegn-
um Stelpugolfið. „Sjálf byrjaði ég
ekki í golfi fyrr en eftir þrítugt og
finnst það rosalega gaman. Það er
líka skemmtilega öðruvísi en fót-
boltinn, maður þarf að setja sig í
allt annan gír til að spila golf en fót-
bolta og maður þarf að beita sjálfan
sig miklu meiri aga ,,skaplega séð,“
halda meiri ró í golfinu en fótbolt-
anum,“ segir hún.
Búin að kaupa
hús á Akranesi
Hulda er fjölskyldumanneskja,
eiginmaður hennar er Einar Örn
Jónsson sem starfar hjá Orkuveitu
Reykjavíkur og leikur á hljómborð
með hljómsveitinni Í svörtum föt-
um. Saman eiga þau hjónin fjög-
ur börn; Margréti 16 ára, Baldur
14 ára, Mikael 11 ára og Gabrí-
el 7 ára. Hyggst fjölskyldan flytja
á Akranes á næsta ári. „Við erum
búin að kaupa hús hér á Akranesi
og flytjum um páskana. Reynd-
ar hefur það verið lengi á stefnu-
skránni að flytja á Skagann, við
erum oft búin að skoða hús hérna
en alltaf vantaði starf til að réttlæta
flutninginn,“ segir Hulda og bros-
ir. „Þannig að þegar ég var ráðin til
knattspyrnufélagsins þá fórum við
strax að leita að húsi,“ segir hún en
bætir því við að maðurinn henn-
ar þurfi ef til vill aðeins að venj-
ast því að búa ekki nánast við hlið-
ina á vinnunni sinni. „Hann ætl-
ar að keyra á milli en hann er svo-
sem ekki lengi að keyra í Orkuveit-
una. Hún er nánast á besta stað í
Reykjavík upp á það að keyra frá
Skaganum á hverjum degi. Við
mátum það allavega þannig að þar
sem ég kem oft til með að þurfa að
vinna eitthvað á kvöldin þá væri
betra ef við byggjum á Akranesi.
Þannig gæti fjölskyldan átt saman
fleiri gæðastundir en ef það væri
ég sem keyrði í og úr vinnu,“ seg-
ir Hulda og kveðst full eftirvænt-
ingar að flytja og leyfa börnunum
að kynnast æskuslóðunum. „Stelp-
an okkar býr reyndar á Akureyri,
er komin í menntaskólann þar og
spilar handbolta. Hún kemur því
bara heim í fríum og næsta sumar,
en strákarnir flytja með okkur. Mér
finnst yndislegt að þeir komi með
okkur og fái að upplifa Skagapara-
dísina,“ segir Hulda og brosir.
Sótti um í
„einhverri rælni“
Geta má þess að þegar Hulda tók
við starfi framkvæmdastjóra Knatt-
spyrnufélags ÍA á dögunum varð
hún fyrsta konan í sögu félagsins
til að gegna því starfi. En hvernig
kom það til að hún ákvað að sækja
um? „Það voru fimm eða sex sem
sendu á mig auglýsinguna þar sem
var starfið var auglýst, ég sá hana
ekki sjálf,“ segir í hún. „Í einhverri
rælni ákvað ég að senda ferilskrána
á Hadda [Ingólfs] og var síðan boð-
uð í viðtal. Ég mætti og var síðan
boðuð í annað viðtal þegar fækk-
að var í hópi umsækjenda og fékk
að lokum starfið,“ segir Hulda og
tekur fram að vel hafi verið stað-
ið að öllu ráðningarferlinu. „Mér
fannst ráðningarferlið að öllu leyti
mjög faglega unnið af hálfu félags-
ins. Allir voru boðaðir í viðtöl, síð-
an skorið niður í ellefu umsækjend-
ur og svo niður í þrjá og alltaf feng-
um við að vita hvernig gekk. Þetta
endaði svo með því að hverjum um-
sækjenda var falið að gera verkefni
sem átti að sýna hvernig við sæj-
um fyrir okkur að gera hlutina og
hvernig rekstri félagsins yrði hátt-
að undir okkar stjórn á næstunni,“
segir hún.
Tekur við góðu búi
Því er ekki úr vegi að spyrja Huldu
hvernig hún sér rekstur félagsins fyr-
ir sér næsta árið eða svo. Þar kveðst
hún vera full bjartsýni og segir eng-
ar stórar breytingar í vændum. „Ég
ætla bara að byrja á því að koma mér
almennilega inn í starfið, en ég tel
enga þörf á miklum breytingum. Ég
kem að mjög góðu búi; hér hefur
gott starf verið unnið á undanförnum
árum og hér eru margir góðir þjálf-
arar,“ segir Hulda og kveðst ekki síst
ánægð með yngri flokka starf félags-
ins. „Bara út frá sjónarhóli foreldr-
is, því ég á börn sem hafa æft og æfa
með félagi í Reykjavík, þá er margt
hérna sem ég myndi telja betra en
þar. Þjálfarar yngri flokkanna eru
mjög góðir og þá eru til dæmis bún-
ingar innifaldir í æfingagjöldunum
hérna. Í bænum þurfa foreldrar að
kaupa búningana á börnin sín. Ef
foreldrar eiga þ ekki nema tvö börn
í boltanum eða ef barnið þitt týn-
ir búningnum sínum þá eru treyjur
allt í einu orðinn 30 þúsund kall á
ári, fyrir utan æfingagjöldin,“ segir
hún. „Bara lítil atriði eins og þetta
eru að mínu viti betri hér á Skagan-
um, en þar að auki græða yngri iðk-
endur hér á því að það séu ekki jafn
margir á æfingum og þjálfararnir
geti sinnt hverjum og einum betur,“
bætir hún við.
Akranes er fótboltabær
Hvað varðar meistaraflokka félags-
ins vill Hulda setja markið hátt og
hefur skýrt markmið fyrir komandi
ár. „Við ætlum að koma stelpunum í
efstu deild aftur. Þar erum við með
flott ungt lið og leikmenn sem eiga
mikið inni, og það sama á við hjá
körlunum. Við eigum bara að vera
klúbbur sem er með lið í efstu deild-
um karla og kvenna og stendur öðr-
um félögum framar. Hér er frábær
aðstaða, frábærir þjálfarar og þar
eigum við að hafa það forskot sem
þarf að hafa til að geta verið betri en
hin liðin,“ segir Hulda. „Akranes er
íþróttabær, fótboltabær og við eig-
um bara að stefna að því að verða
númer eitt á landinu,“ segir Hulda
Birna Baldursdóttir, framkvæmda-
stjóri KFÍA, að lokum.
kgk
„Eigum að stefna að því að verða númer eitt á landinu“
- segir Hulda Birna Baldursdóttir, nýr framkvæmdastjóri KFÍA
Hulda ásamt fjölskyldu sinni, eiginmanninum Einari Erni Jónssyni og börnum þeirra Margréti, Baldri, Mikael og Gabríel.
Hjónin hafa keypt sér hús á Akranesi og þangað hyggst fjölskyldan flytja á næsta ári.
Hulda Birna Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA.