Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2016, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 09.11.2016, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 201624 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 LAUSNIN HÖFÐASELI Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30 Sími 437-2030 - v.v@simnet.is DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Vinstri græn náðu frábærum ár- angri í nýliðnum kosningum og sýnir það okkur ótvírætt hve sterk- ur málstaður og samstaða skilar góðum árangri. Hinu höfum við líka kynnst að sundrung og klofn- ingur meðal vinstri manna er alltaf vatn á myllu hægri aflanna í land- inu. Mikill sigur VG Í Norðvestur- kjördæmi, þar sem hreyfingin bæt- ir við sig 9,6 % fylgi og fer í 18,1%, er afrakstur samstöðu, góðrar og málefnalegrar kosningabaráttu og einnig vinnu baráttuglaðs þing- flokks á síðasta kjörtímabili með sinn öflugan formann, Katrínu Jakobsdóttur, í stafni. Það var sár- grætilegt að annar maður á fram- boðslista VG, Bjarni Jónsson, náði ekki kosningu þrátt fyrir stóraukið fylgi flokksins. En svona er kosn- ingakerfið og vissulega munaði litlu að Bjarni næði inn. Ég þakka Bjarna Jónssyni og öllum með- frambjóðendum mínum frábært og skemmtilegt samstarf í snarpri og góðri kosningabaráttu og minni á að varaþingmenn hafa sannarlega áhrif. Ábyrgð fylgir vegsemd hverri og nú er það okkar í Vinstri græn- um að rísa undir þeirri ábyrgð og skyldu að vera sá flokkur sem vinstra félagshyggjufólk, umhverf- issinnar og femínistar finna sig eiga samleið með. Vonbrigði þrátt fyrir sigur Þótt Vinstri græn geti verið ánægð með ágætan árangur í kosning- unum þá er það sannarlega mik- ið áhyggjuefni hve sterk hægri öfl- in í landinu eru orðin. Það veld- ur einnig vonbrigðum og undrun og að sú spilling og sérhagsmuna- gæsla sem leiddi til þess að kosn- ingum var flýtt skuli ekki endur- speglast betur í úrslitum kosning- anna. Óskaniðurstaðan var vissu- lega sú að kosningaúrslitin hefðu gefið kost á öflugri félagshyggju- og velferðarstjórn sem endurreisti velferðarkerfið og innviðina og kæmi á jöfnuði og félagslegu rétt- læti eins og kallað var á af stórum hluta þjóðarinnar. Þegar þetta er skrifað er ekki búið að mynda ríkisstjórn. Þreif- ingar um stjórnarmyndun eru hafnar og vart verður áhuga á því að VG vinni með hægri öflunum í næstu ríkisstjórn. Í okkar hópi hræðast margir að Vinstri græn munu koma sködduð út úr slíku samstarfi og betra sé að vera öfl- ug í aðhaldi í stjórnarandstöðu. Við þurfum að vanda okkur og láta málefnin og hagsmuni lands og þjóðar ráða för og meta hvar kröftum okkar er best varið gagn- vart kjósendum okkar og málstað. Þakkir til kjósenda Ég vil færa kjósendum Vinstri grænna í NV kjördæmi bestu þakkir fyrir traustið og stuðning- inn og við munum leggja okkur fram um að rísa undir því trausti. Félögum, meðframbjóðendum, kosningastjórum og sjálfboðalið- um þakka ég kærlega fyrir gott og óeigingjarnt starf. Framundan er vinna við að efla og rækta félags- starfið í kjördæminu nú þegar við göngum aftur sameinuð til leiks og treysti ég því að það eigi eftir að skila sér á sveitarstjórnarstiginu og aftur í næstu þingkosningum. Baráttukveðja! Lilja Rafney Magnúsdóttir. Höf. er alþingismaður VG í NV kjördæmi. Vinstri græn á réttri leið Pennagrein Pennagrein www.skessuhorn.is Nú þegar kosningar eru liðn- ar viljum við Píratar þakka ykkur kærlega fyrir veittan stuðning. Við höfum náð gríðarlega miklum ár- angri, 10,9% fylgi og flokkurinn fær, nú í fyrsta sinn, kjörinn þing- mann úr kjördæminu. Píratar hafa, hingað til, haft það orð af sér að vera höfuðborgar- flokkur og höfðað minna til kjós- enda á landsbyggðinni heldur en í Reykjavík en nú er það að breytast og við munum sýna það og sanna að við erum flokkur sem hefur hag allra landsmanna að leiðarljósi. Ég hlakka mikið til að heim- sækja kjördæmið betur og hitta íbúa þess, en því miður voru mín- ar aðstæður í kosningabaráttunni með þeim hætti að ég átti erfitt með að ferðast um, þar sem ég átti mitt fyrsta barn 13. september síð- astliðinn. Þrátt fyrir að ég sjálf hafi ekki náð að ferðast jafn víða og ég hefði viljað var listi Pírata skipað- ur frábæru fólki sem ferðaðist vítt og breytt um kjördæmið og þess- um meðframbjóðendum, dugn- aði þeirra og metnaði er ég mjög þakklát fyrir. Í sameiningu unnum við góðan kosningasigur í kjör- dæminu. F.h. Pírata í Norðvesturkjördæmi, Eva Pandora Baldursdóttir, oddviti. Kæru íbúar Norðvestur kjördæmis! Út er komin bókin Konur breyttu búháttum – Saga Mjólkurskólans á Hvanneyri og Hvítárvöllum, eft- ir Bjarna Guðmundsson. Það eru Landbúnaðarsafn Íslands og Bóka- útgáfan Opna sem gefa bókina út. Saga Mjólkurskólans sem rek- inn var fyrst á Hvanneyri og síðar Hvítárvöllum á fyrstu tveimur ára- tugum 20. aldarinnar er fáum kunn, en afar merkileg fyrir margra hluta sakir. Starfræksla skólans er gott dæmi um mikilvægi þess að kunn- átta og þekking er komi á undan framkvæmdum og fjárfestingu við nýsköpun í atvinnumálum. Lit- ið var til fyrirmynda erlendis við stofnun skólans og hingað sóttur danskur mjólkurfræðingur, Hans Grönfeldt, sem stýrði skólanum alla tíð. Mjólkurskólinn veitti fyrstu sér- hæfðu starfsmenntun á sviði mat- vælaframleiðslu hérlendis og rekst- ur hans var merkur áfangi í mennt- un og réttindabaráttu íslenskra kvenna. Stúlkurnar sem námu við Mjólkurskólann áttu margar hverj- ar eftir að koma að rekstri rjómabú- anna sem spruttu upp víða um land á þessum árum. Í krafti sérmennt- unar sinnar breyttu mjólkurskóla- stúlkurnar búverkum og búháttum á landinu, með beinum og óbeinum hætti. Þær áttu drjúgan þátt í því að færa íslenskan landbúnað til nýrra tíma og stuðla að viðskiptavæðingu hans og aukinni samvinnu við af- urðavinnslu. Bjarni Guðmundsson heldur í bókinni áfram að miðla fróðleik um íslenska landbúnaðarsögu á þann lifandi og aðgengilega hátt sem les- endur þekkja af fyrri verkum hans, t.d. um sláttuhætti og dráttarvélar. Bókin er 166 bls. í nettu og fallegu broti. -fréttatilkynning Saga Mjólkurskólans á Hvanneyri og Hvítárvöllum Bjarni kynnti bókina, þá nýútkomna, á samkomu á Hvanneyri í sumar. Garðaþjónustan Sigur-Garðar Tökum að okkur alla almenna skrúðgarðavinnu Sindri Arnfjörð garðyrkjumaður - Laufskálum 311 Borgarbyggð Netfang: sindri@vesturland.is - Vinnusími: 892-7663 Hellulagnir - Hleðsla - Þökulagnir - Jarðvegsskipti Trjáklippingar - Gróðursetningar - Garðsláttur - Plöntusala Þjónusta í yfir 25 ár SK ES SU H O R N 2 01 5

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.