Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2016, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 09.11.2016, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 201622 Emil Hjörvar Petersen rithöfund- ur gaf nýverið út skáldsöguna Víg- hóla. Sögusvið bókarinnar tengist Vesturlandi, nánar tiltekið Víghól í Kjarrárdal í ofanverðum Borgar- firði. „Víghólar landsins eru fjór- tán talsins,“ segir Emil Hjörvar. „Að minnsta kosti einn víghóll er í hverjum landshluta, en hið yfir- náttúrulega morðmál sem drífur frásögnina áfram tengist kynngi og þjóðsögum kringum hólana. Víghóllinn í Kjarrárdal kemur við sögu, en þar eiga sér stað mikil átök og önnur aðalpersónan stígur inn í Hulduheim. Auk þess er fjallað um Hvalfjarðargöngin, Borgarnes og Háskólann á Bifröst, þ.e. í „vega- köflum“ bókarinnar, en þá reynir sturlaður seiðskratti að keyra aðal- persónurnar út af veginum á þoku- lagðri heiði.“ Víghólar er fjórða skáldsagan eftir Emil Hjörvar. Hana skrifaði hann eftir að hafa lokið þríleikn- um Saga eftirlifenda. „Núna er ég á heimaslóðum, nýti íslenskan veru- leika, stilli honum við hlið yfir- náttúru þjóðsagnaarfsins og spinn saman við norræna spennusagna- hefð, en takmarkið var að skapa rammíslenska furðusögu. Þetta er í senn fantasía, íslenskt raunsæi og spennusaga full af kynngi og rökkri. Aðalpersónurnar eru mæðgurnar Bergrún Búadóttir sem er blankur miðill, fráskilin og heltekin af starfi sínu, og Brá Bjarkadóttir sem er tvítug, rótlaus dóttir hennar.“ Sagan Víghólar gerist í hliðstæð- um veruleika, hliðstæðu Íslandi árið 2016, þar sem huldir heimar vættanna eru til en afar fáir eru í tengslum við þá. „Þetta er sagna- heimur sem ég hef verið að þróa undanfarin ár. Heimurinn er í raun þrískiptur: Mannaheimur, Huldu- heimur og Handanheimur, og hver lútir sínum lögmálum,“ segir Emil Hjörvar. Það er bókaútgáfan Ver- öld sem gefur bókina út. mm Víghóll í Kjarrárdal er sögusvið nýrrar skáldsögu Emil Hjörvar Petersen. Bókarkápa Víghóla. Hildur Sif Thorarensen er verk- fræðingur sem stundar um þessar mundir læknisfræðinám við Osló- arháskóla. Hún var að gefa út sína fyrstu skáldsögu, spennusögu sem nefnist Einfari. Svo skemmtilega vill til að hugmyndin að bókinni fædd- ist þegar Hildur Sif spjallaði við vin sinn úr Borgarnesi í gegnum Fa- cabook. Ekki nóg með það, samtalið varð til þess að hinn ungi Borgnes- ingur er sögupersóna í bókinni sem fórnar lífi sínu strax í fyrsta kafla fyr- ir listagyðjuna. Kaþólsk franskættuð vampíra „Hugmyndin á bak við bókina kvikn- aði þegar ég var á leið í læknisfræði- námið og hafði sótt um að byrja á vorönn svo ég fengi tækifæri til að æfa mig betur í norskunni. Það hafði lengi blundað í mér að skrifa bók og hafði ég oftar en einu sinni byrjað að skrifa en þó einhvern veginn aldrei tekist að ljúka verkinu eða fá hug- mynd sem mér fannst ég geta unn- ið til enda. Þarna sat ég með medis- insk statistikk fyrir framan mig og er að stauta mig í gegnum illskilj- anlegt hrognamál á stærðfræði-ísku þegar vinur minn fer að spjalla við mig á Facebook. Samtalið leiðist svo fyrir einhverja tilviljun út í þau ein- kennilegu sambönd sem hann hafði verið í um ævina og þá sérstaklega í það skiptið þegar hann var með franskri stúlku af kaþólskum ættum sem vildi meina að hún væri vamp- íra. Stúlkan hafði látið sérsmíða upp í sig vígtennur og bjó í dýflissu þar sem hún hafði flauelsklætt hill- ur og skreytt með dúkkuhausum í formalíni ásamt fuglsbeinagrindum og öðrum einkennilegum munum. Ofan á þetta allt saman hélt hún tvo smávaxna snáka sem bitu vin minn á meðan hann svaf.“ Drepinn í fyrsta kafla Hildur segist ekki hafa getað hætt að hugsa um þessa einkennilegu pers- ónu og dró raunar í efa að hún væri til uns vinur hennar í Borgarnesi sýndi henni myndir af herlegheitun- um. „Þegar þá var komið sögu var ég harðákveðin að nota hana í skáld- sögu þar sem týpu eins og þessari verður að deila með umheiminum. En þar sem hún var komin í bókina fannst mér eðlilegt að vinur minn fengi að vera með líka, það lá því vissulega beint við að drepa hann í fyrsta kafla og hefja þannig söguna sem ég og gerði,“ segir Hildur. Þannig þróaðist samtal á Facebo- ok í fyrrahaust við Borgnesing- inn Geir Konráð Theodórsson að hann gaf Hildi Sif, höfundi bókar- innar, líf sitt í þágu skáldskaparins, ef svo má segja. „Ungur rithöfund- ur sat við hvítmálað skrifborð í Osló og skrásetti síðustu andartök þessa unga herramanns. Hún skráði leið hans í gegnum einbýlishúsagötu í Osló, lýsti því þegar hann varð var um sig og leitaði að húsi í götunni og að lokum hvernig hann lét lífið á vægast sagt undarlegan hátt. Þar með var sögunni þó ekki lokið því við tók leitin að morðingjanum og rannsókn lögreglunnar á afdrifum Geirs áður en líf hans var stytt í ann- an endann. En hvers vegna Geir? Spyr marg- ur sig eflaust, enda var Geir hinn vænsti og hugprúðasti maður. Hann gerði ekki flugu mein, var ávallt hjálpsamur og skemmti börnum með leikrænum tilburðum og göml- um sögum. En líkt og í öllum góð- um spennusögum er nauðsynlegt að byrja söguna á morði,“ segir Hild- ur. Hún segir að áhugaverður bak- grunnur Geirs hafi orðið til þess að hann varð á vegi morðingjans og lét lífið fyrir vikið. „Það var ekki bara sorglegt heldur var það sannkallað- ur harmleikur en það var jafnframt nauðsynlegt fyrir framgang sögunn- ar,“ segir hún. „Sem betur fer fyrir Geir er lög- reglan sem rannsakar morðið á hon- um ráðagóð og vel mönnuð. Þar gefur að líta geðlækninn Alexander sem er búinn að vinna fyrir FBI til margra ára þar sem hann rannsak- aði geðbilaða morðingja. Auk hans er Júlía sem er bráðklár og skynsöm, hinn tískulegi Herkúles sem hefur sérstakt auga fyrir smáatriðum og hermaðurinn Erik sem veit allt sem hægt er að vita um vopn, eitur og býr yfir einskærum hæfileika til að sjá hlutina í víðara samhengi. Lög- reglan leggur sig fram við rannsókn málsins en það sem tefur þó fyrir er að auk morðsins á Geir þurfa þau að fást við brjálaðan morðingja sem drepur ljóshærðar stúlkur og skilur þær eftir afskræmdar og höfuðlaus- ar í skógarrjóðri. Þar sem umræddur brjálæðingur setur jafnframt pressu á lögregluna þarf hún að halda mörgum boltum á lofti í einu og að leggja sig fram um að finna lausn á þessum tveimur ólíku en jafnframt mikilvægu málum.“ Hvernig sagan endar er ómögu- legt um að segja og í raun bara ein leið til að komast að því, þar sem hún er nú komin á bókaform og fæst í öllum helstu bókaverslunum landsins. Ef lesendum langar að vita hver drap Geir og hvers vegna, þá er mælt með því að ná sér í eintak af spennusögunni Einfara eftir Hildi Sif. Þannig mun fólk komast að hinu sanna um Borgnesinginn hugdjarfa sem lét lífið svo út kæmi bók. mm Borgnesingur er sögupersóna í glæpasögu Hildur Sif Thorarensen höfundar Einfara. Geir Konráð Theódórsson er persóna í bók Hildar. Hér spjallar hann við börn á Brákarhátíð. Kápa bókarinnar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.