Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2016, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 09.11.2016, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 201616 Um síðustu helgi hélt félagsstarf aldraðra og öryrkja að Kirkjubraut 40 á Akranesi sýningu og sölu á handverki félags- manna. Þá var einnig haldinn árlegur markaður og kaffihlað- borð sem fjölmargir nýttu sér enda drekkhlaðið borð kræs- inga á vægu verði. Að sögn Laufeyjar Jónsdóttur verkefnis- stjóra heimaþjónustu var þetta í annað skipti sem markaður- inn og sýningin voru tengd dagskrá Vökudaga sem stóðu yfir á sama tíma. Greinilegt er að fjölbreytni er mikil í félagsstarfi aldraðra þegar handverkið er skoðað. Hlutir eru brenndir í gler, ker- amik málað, bútasaumsteppi listilega gerð, prjónaskapur, út- skurður og fleira. Meðfylgjandi myndir tók Kolbrún Ingvarsdóttir og leyfum við þeim að tala sínu máli. mm Markaður og sýning félagsstarfs aldraðra og öryrkja á Akranesi Vetrarstarfsemin er komin á fullt í heilsuræktinni í Reykholtsdal. „Við í Heilsuhofi erum nýbúin að fá frá- bært nýtt dót fyrir minnstu krakk- ana sem mæta í Íþróttaskólann á hverjum laugardegi. Nýr klifur- veggur fyrir þau, jafnvægis ormur til að ganga á, lítil vegasölt og fleira. Mikil gleði ríkir meðal yngstu kyn- slóðarinnar,“ segir Sigrún Hjartar- dóttir sem rekur Heilsuhof. „En við gleymum ekki þeim eldri, því CX tímar eru í boði þar sem styrkur og þol er þjálfað. Þeir tímar eru mikið sóttir af kvenpen- ingi sveitarinnar. Einnig eru yoga- tímarnir vinsælir og svo á Púl- ið sinn stað á miðvikudögum. Þar hittast margir karlarnir úr héraðinu. Eftir púlæfingarnar er oft setið og spjallað um lífið og tilveruna og ekki laust við að nýafstaðnar kosn- ingarnar hafi verið krufnar í þaula. Lóða- og tækjasalurinn er svo op- inn á hverjum degi frá klukkan 7:00 til 22:00. mm Líf og fjör í Heilsuhofi í Reykholtsdal Yougatímarnir eru vinsælir. Krakkar á góðri stund. Búið er að bæta við ýmsum leiktækjum fyrir börnin. Færri komast að en vilja. Skjóni og Sproti í gættinni. Karlarnir þurfa eðlilega að hvíla sig eftir Púlið og ræða málin.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.