Skessuhorn - 09.11.2016, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 201610
Eins og Skessuhorn greindi frá í
sumar var á Reykhóladögum í lok
júlímánaðar haldið uppboð á Selja-
nesi í Reykhólasveit. Var uppboðið
haldið að frumkvæði Seljanesbræðra
og ákveðið að ágóðinn skyldi renna
óskiptur til styrktar Umhyggju, fé-
lags langveikra barna. „Þetta byrjaði
nú allt í hálfgerðu gríni, upphaflega
átti að halda bingó en enginn okk-
ar bræðra hefur nokkra þolinmæði í
slíkt. Því varð úr að við héldum upp-
boð hér á safninu á Seljanesi, ætli
hingað hafi ekki komið um fjögur til
fimm hundruð manns,” segir Stefán
Hafþór Magnússon, einn bræðranna
fimm frá Seljanesi, í frétt á vef Um-
hyggju. Bræðurnir fengu til liðs við
sig Þóri Ingvarsson, sem sá um að út-
vega veglega vinninga til uppboðsins.
„Við buðum enn fremur upp á ýmsar
forvitnilegar veitingar, sem hleyptu
enn frekara lífi í mannskapinn.“
Þegar allur varningur hafði verið
boðinn upp höfðu safnast 700 þús-
und krónur sem bræðurnir frá Selja-
nesi afhentu forsvarsmönnum Um-
hyggju síðastliðinn laugardag. „Við
þökkum bræðrunum þennan höfð-
inglega styrk og sendum okkar bestu
kveðjur í Reykhólasveitina,“ segir á
vef Umhyggju. kgk
Seljanesbræður afhentu
Umhyggju ágóða uppboðsins
Aðstandendur uppboðsins á Seljanesi afhenda ágóðann í höfuðstöðvum
Umhyggju. F.v. Þórir Ingvarsson, þá bræðurnir Bjarki Þór, Jóhann Vívill, Stefán
Hafþór og Ágúst Ragnar Magnússynir. Lengst til hægri er Guðmundur Björgvin
Gylfason, formaður stjórnar Umhyggju. Á myndina vantar fimmta bróðurinn frá
Seljanesi, Jón Inga Magnússon. Ljósm. umhyggja.is.
Nemendur á yngsta stigi Grunn-
skóla Snæfellsbæjar fengu nýver-
ið að sjá Ævintýraóperuna Bald-
ursbrá í skólanum. Gerðu nemend-
ur frá Lýsuhóli sér ferð yfir heið-
ina til að horfa með krökkunum á
Hellissandi. Um var að ræða stutt-
an úrdrátt úr óperunni þar sem þau
Rebbi, Spói og Baldursbrá segja
frá sögunni og syngja valda kafla
úr verkinu. Var sýningin mjög
skemmtileg og nutu börnin hennar
og fylgdust bæði með söng og leik
af innlifun og áhuga.
Dagana áður höfðu krakkarnir
æft lokalagið úr sýningunni með
kennurunum sínum og sungu með
leikurunum á sýningunni og fengu
þannig tækifæri til að taka sjálf þátt
í sýningunni.
Baldursbrá er lífleg ópera sem
segir frá blóminu Baldursbrá sem
kynnist sposkum Spóa. Saman
ákveða þau að fara saman upp á
fjallstind til að njóta útsýnisins en
það er ekki einfalt mál og til að
komast fá þau Rebba til að hjálpa
sér. En á fjallstindinum er næðing-
ur og kuldi sem gerir blóminu lífið
leitt og fá þau aftur hjálp frá Rebba
til að koma Baldursbrá niður aftur.
Sýningin sem kom í skólann var á
vegum verkefnisins “List fyrir alla”
sem ætlað er að velja og miðla list-
viðburðum um land allt og jafna
þannig aðgengi grunnskólabarna
að vönduðum og fjölbreyttum list-
viðburðum óháð búsetu. þa
Tóku virkan þátt í ævintýra-
óperunni Baldursbrá
Stjórn Skotveiðifélags Íslands lýs-
ir þungum áhyggjum yfir því sinnu-
leysi sem umhverfisráðherra hef-
ur sýnt gagnvart þeirri hættu sem
ákvörðun veiðitímabils rjúpu skap-
ar veiðimönnum. Á þetta hefur fé-
lagið ítrekað bent og Umhverfis-
stofnun hefur gert hið sama. „Ekki
mátti tæpara standa um síðastliðna
helgi þegar tveir veiðimenn voru
mjög hætt komnir eftir að hafa villst
í þoku. Því vill stjórn Skotvís ítreka
þá skoðun sína að þrenging veiði-
tíma í fjórar helgar gerir það að
verkum að veiðimenn leggja á fjöll í
tvísýnu veðri,“ segir í ályktun félags-
ins. Þarna er Skotvís í raun að benda
á sömu hættuna og strandveiðisjó-
mönnum er búin á sumrin þegar
veiðidagar eru skammtaðir hluta úr
viku fyrir ákveðið magn kvóta í sum-
armánuðunum. Þá keppast allir við
veiðar í upphafi mánuðar og sækja
jafnvel sjóinn án þess að veður leyfi.
Þá segir í bréfi Skotvísmanna að
félagið hafi varað við hættunni sem
þessu er samfara. „Þessi atburður
sýnir svart á hvítu að hættan er raun-
verulega mikil. Til allrar hamingju
fundust mennirnir heilir á húfi en
það er skýlaus krafa veiðimanna að
stjórnvöld rýmki veiðitímann til að
minnka líkurnar á að atburður sem
þessi endurtaki sig.
Gögn Umhverfisstofnunar frá
veiðimönnum sýna að veiðimenn
fara að meðaltali tæplega fjóra daga
á fjöll til rjúpnaveiða að jafnaði, sama
hvort veiðitímabilið hefur verið níu
dagar eða 47. „Fleiri leyfðir veiði-
dagar þýða því ekki meiri veiði held-
ur dreifðara álag og minni áhættu.
Ekkert í hegðun veiðimanna bendir
til þess að veiðidögum muni fjölga,
þó veiðimenn geti valið þá daga
sjálfir, og haldið til fjalla þegar veð-
urspá er hagstæð. Vonandi kemur sá
dagur að sitjandi umhverfisráðherra
setji í forgang öryggi þeirra 6.000 Ís-
lendinga sem ganga til rjúpna, það
er leikur einn án þess að ganga nærri
rjúpnastofninum,“ segir Dúi J Land-
mark formaður Skotvís. mm
Skotveiðimenn segja öryggi
veiðimanna ógnað
Þessi ljósmynd er níu ára gömul og úr safni Skessuhorns. Haustið 2007 rann skotveiðimaður niður Rjúpnaborgarbrekku á
Snæfellsnesi og þurfti aðstoð til að komast undir læknishendur.
Skotveiðimenn krefjast þess að veiðidögum verði fjölgað til að menn fari sér síður
að voða við að skjóta í jólamatinn.
SÍBS, Hjartaheill og Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands standa saman að
því að bjóða íbúum Akraness, Borg-
arness og nærsveita upp á ókeyp-
is heilsufarsmælingar í Íþróttamið-
stöðinni Jaðarsbökkum á Akra-
nesi miðvikudaginn 9. nóvember
og í Íþróttamiðstöðinni, Þorsteins-
götu í Borganesi fimmtudaginn 10.
nóvember. Á báðum stöðum verð-
ur opið frá klukkan 17 til 20. „Við
bjóðum sérstaklega velkomna alla
þá sem ekki eru nú þegar undir eft-
irliti vegna hjarta- og æðasjúkdóma.
Mældur er blóðþrýstingur, blóð-
fita, blóðsykur og súrefnismettun.
Að auki gefst kostur á að taka þátt
í könnun SÍBS um heilsu og líðan,
sem getur hjálpað við að bæta skiln-
ing á því hvað megi gera til að draga
úr sjúkdómum,“ segir í tilkynningu.
mm
Bjóða upp á ókeypis
heilsufarsmælingu
Frystiklefinn Rifi stóð fyrir bíósýn-
ingu síðastliðinn sunnudag. Sýnd
var heimildamyndin Yarn, eða Garn
eins og hún heitir á íslensku. Dágóð-
ur hópur kvenna var mættur í Frysti-
klefann til að sjá bíóið og tóku gestir
prjónana og heklunálarnar með sér
enda tilvalið á mynd eins og þessari.
Opið var í Rifssaumi fyrir sýninguna,
en verslunin er við hlið Frystiklef-
ans. Skemmtu konurnar sér vel og
sögðu myndina áhugaverða en með-
al annarra sem fram komu í mynd-
inni var Tinna Þórudóttir Þorvaldar
sem er mikil heklkona.
Viðburðirnir í Frystiklefanum eru
sífellt að verða fjölbreyttari. Hafa
undanfarið verið bæði karíókíkvöld
og pub-quiz sem hafa gefist vel. Að
sögn Dóru Unnars er stefnt að því
að bíósýningar verði fleiri í fram-
tíðinni og verður lögð áhersla á ís-
lenskar myndir. Framundan er einnig
margt fleira en þessa dagana er verið
að hefja æfingar á leikritinu Journey
to the center of the earth, eða Leiðin
að miðju jarðar, sem frumsýnt verður
í desember. þa
Heklað á bíósýningu í
Frystiklefanum
Hér eru gestir á leið á sýningu á kvikmyndinni Yarn.