Skessuhorn - 09.11.2016, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016 13
skrifað á annan tug leikrita. Flest
þeirra eru unnin í samvinnu við syst-
ur hennar, Kristínu Steinsdóttur og
hafa nokkur þeirra verið sýnd víða
um land og eitt í Færeyjum.
-fréttatilkynning
Deildarstjóri sérkennslu
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir
menntuðum sérkennara til starfa.
Um er að ræða deildarstjórn sérkennslu í 50-100% stöðugildi
fyrir Grunnskóla Borgarfjarðar sem er með starfsstöðvar á
Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi.
Deildarstjóri sérkennslu stjórnar og skipuleggur sérkennslu
ásamt því að veita kennurum faglega ráðgjöf.
Helstu verkefni deildarstjóra eru:
skipuleggur og stjórnar allri sérkennslu skólans eftir hugmynda-•
fræði skóla án aðgreiningar
skipuleggur og stjórnar fram kvæmd nýbúakennslu í skólanum,•
er í forystu um gerð einstaklingsnámss• kráa og er
ráðgefandi aðili við gerð þeirra
er al• mennum kennurum skólans faglegur ráðgjafi varðandi
skipulag kennslu
Menntunar og hæfniskröfur:
leyfisbréf grunnskólakennara•
framhaldsmenntun sem nýtist í starfi deildarstjóra sérkennslu•
góð sams• kiptahæfni
Með umsókn þurfa að fylgja upplýsingar um
menntun og meðmælendur.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og
launanefndar sveitarfélaga.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Allar nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri í síma
847-9262/433-7300, netfang; ingibjorg.inga@gbf.is
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember.
Laugardaginn 5. nóvember síðast-
liðinn mættu góðir gestir í Grunn-
skóla Stykkishólms. Það voru feðg-
inin Ólafur B. Ólafsson tónsmiður
og kennari og Ingibjörg Aldís Ólafs-
dóttir óperusöngkona og kennari.
Þau feðgin héldu stutt erindi fyrir
kennara og annað starfsfólk frá leik-
skólanum, grunnskólanum, tónlist-
arskólanum og Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga. Erindið fjallaði um listaað-
ferðina sem þau hafa þróað í grunn-
skólum og leikskólum á undan-
förnum árum. Á eftir því sýndu þau
DVD-disk frá flutningi 100 barna
og unglinga úr grunnskólum Hafn-
arfjarðar, Tónlistarskóla bæjarins og
Fimleikafélaginu Björk á tónverkinu
Töfratónar.
Afhentu feðginin Grunnskóla
Stykkishóms, tónlistarskólanum og
leikskólanum veglegar bókagjafir en
það eru kennslubækur með námsefn-
inu Töfratónar og Fjársjóðurinn; 25
eintök af hvorri bók. Bækurnar eru
gefnar til heiðurs fyrrverandi skóla-
stjórum bæjarins, þeim Ólafi Hauki
Árnasyni og Þorgeiri Ibsen. sá
Héldu fyrirlestur og
afhentu bókagjafir
Feðginin Ólafur og Ingibjörg afhentu fulltrúum skólanna bókargjöfina. Milli
þeirra eru Drífa Lind Harðardóttir deildarstjóri í grunnskólanum og Berglind
Axelsdóttir skólastjóri.
Boðið verður til fjölbreyttrar dag-
skrár á vegum Snorrastofu í viku
þeirri sem Samband norrænu félag-
anna hafa valið til að kynna bók-
menntir og frásagnarhefð á Norð-
urlöndum og nágrenni, Norrænu
bókasafnavikunni. Svo heppilega vill
til að Dagur íslenskrar tungu fellur í
þessa viku nú sem oftar og spillir það
ekki áhrifamætti þessa framtaks.
Ef efni vikunnar er rakið í tímaröð
hefst hún í dagrenningu mánudag-
inn 14. nóvember á upplestri í bók-
hlöðu Snorrastofu fyrir yngstu kyn-
slóðina. Þangað er yngstu nemend-
um á Kleppjárnsreykjum og þeim
elstu á Hnoðrabóli boðið. Steinunn
Garðarsdóttir les kafla úr bók Sti-
an Hole, Sumarið hans Hermanns.
Að lestri loknum eiga börnin næð-
isstund þar sem Hönnubúð býður
þeim létta hressingu.
Þriðjudaginn 15. nóvember kl.
20:30 flytur Bjarni Guðmundsson á
Hvanneyri fyrirlestur um borgfirska
Mjólkurskólann og rjómabúin, sem
hann nefnir Konur breyttu búhátt-
um. Dagur íslenskrar tungu litast af
heimsókn rithöfundarins Iðunnar
Steinsdóttur í Grunnskóla Borgar-
fjarðar. Hún hittir einnig eldri borg-
ara í Brún í lok ferðar sinnar þann
dag. Um kvöldið verður opin æfing
og fundur í Kvæðamannafélaginu
Snorra í Reykholti í bókhlöðunni og
þar lýkur svo viðburðum vikunnar
með Prjóna-bóka-kaffi fimmtudag-
inn 17. nóvember kl. 20. Þar les Ið-
unn Steinsdóttir úr bók sinni Hrólfs
sögu og spjallar við gesti. Þá mun
Norræna félagið í Borgarfirði einnig
segja frá sínu starfi.
Mjólkurskólinn á
Hvanneyri og Bjarni
Guðmundsson
Mjólkurskóli var stofnaður á Hvann-
eyri haustið 1900 og starfaði til árs-
ins 1918, lengst af á Hvítárvöll-
um. Samhliða spruttu upp rjómabú
(smjörbú) í Borgarfirði og víðar en
til þeirra réðust margir nemendur
skólans. Smjörið var flutt á erlenda
markaði og gaf tekjur er studdu ný-
sköpun í sveitum. Nemendur Mjólk-
urskólans áttu beinan og óbein-
an þátt í því að búhættir breyttust.
Skólinn var eingöngu ætlaður kon-
um. Þeim opnaðist með honum ný
leið til menntunar og starfsframa og
skólann má telja brautryðjanda sér-
hæfðrar kennslu og þróunar á sviði
matvælafræði hérlendis.
Bjarni Guðmundsson er Dýrfirð-
ingur, frá Kirkjubóli. Hann lauk
doktorsprófi frá Norska landbúnað-
arháskólanum 1971 og kenndi síð-
an búfræði á Hvanneyri um meira
en fjögurra áratuga skeið. Jafnhliða
vann hann að rannsóknum á sviði
fóðuröflunar. Frá lokum síðustu ald-
ar hefur Bjarni veitt Landbúnaðar-
safni Íslands forstöðu og stýrt upp-
byggingu þess. Hann mun brátt láta
af því starfi en sinna áfram rannsókn-
um á og skrifum um landbúnaðar-
sögu, einkum efni er varðar búhætti
á tuttugustu öld og þróun þeirra.
Rithöfundurinn Iðunn
Steinsdóttir
Iðunn fæddist árið 1940. Hún lauk
stúdentsprófi frá MA árið 1960 og
kennsluréttindaprófi frá KHÍ 1981.
Hún var kennari um árabil. Árið
1982 kom fyrsta bók hennar út og
síðan 1987 hefur hún að mestu
leyti stundað ritstörf. Iðunn hef-
ur skrifað bækur fyrir börn á öllum
aldri og einnig fyrir unglinga. Tvær
bóka hennar: Víst er ég fullorðin og
Þokugaldur, eru skrifaðar með full-
orðna lesendur í huga, ekki síður en
unglinga. Í þeirri síðarnefndu leitar
hún í þjóðsagnaarfinn. Haustgríma
byggir á frásögn úr Landnámabók.
Meirihlutinn af bókum Iðunnar er
skrifaður fyrir lesendur á aldrinum
níu til tólf ára. Nokkrar bókanna
eru byggðar á bernskuminningum
og lýsa lífinu í smábæ upp úr miðri
öldinni. Af bókum hennar fyrir lít-
il börn má nefna Drekasögu sem
var gefin út samtímis á íslensku og
ensku, Dragon Story, og seríu með
fjórtán smábókum um óþekktar-
angana Snuðru og Tuðru, sem eru
n.k. handbækur í uppeldi með afar
glettnu ívafi. Iðunn hefur um árabil
skrifað námsbækur fyrir grunnskól-
ann og Umferðarráð. Hún hefur líka
Norræna bókasafnavikan
og Dagur íslenskrar
tungu í Snorrastofu
Steinunn Garðarsdóttir.
Bjarni Guðmundsson.
Iðunn Steinsdóttir.
Útgáfa Skessuhorns
til áramóta
Skessuhorn kemur út sex sinnum
fram að áramótum:
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 42. tbl. 19. árg. 19. október 2016 - kr. 750 í lausasölu
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
20%
afsláttur
Verkir í liðum?
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Vökudagar
á Akranesi
27. okt. – 6. nóv.
Vaskur flokkur manna nýtti góða veðrið um helgina til að steypa bílaplan við nýja áningarstaðinn við Bjarnarfoss á Snæfellsnesi. Sjá nánar inni í blaðinu.
Ljósm. Kristinn Jónasson.
Samkvæmt breytingartillögu við
fjögurra ára samgönguáætlun
2015-2018 sem samþykkt var á Al-
þingi síðastliðinn miðvikudag verð-
ur 250 milljónum króna varið til
endurbóta á Skógarstrandarvegi á
næstu tveimur árum. Eins og ítrekað
hefur verið greint frá í Skessuhorni
hafa fjölmörg slys og óhöpp orðið á
þessum sextíu kílómetra vegarkafla
á undanförnu ári. Áður hafði ekki
var gert ráð fyrir að veita peningum
til vegarins fyrr en árið 2019. „Við
erum mjög ánægð með þetta fram-
lag sem kom inn í samgönguáætl-
un á síðustu stundu og var eiginlega
framar okkar vonum,“ segir Sveinn
Pálsson sveitarstjóri Dalabyggðar
í samtali við Skessuhorn. „Við trú-
um því að umræða síðustu vikna og
mánaða hafi haft jákvæð áhrif á þró-
un málsins þar sem lögregla, sveit-
arfélagið, Skessuhorn og fleiri vöktu
athygli á málinu og hve brýnt það
væri,“ bætir Sveinn við. Þá ber að
geta þess að samtals er gert ráð fyr-
ir að verja 1,1 milljarði til endurbóta
Skógarstrandarvegar fram til ársins
2036, skv. nýrri samgönguáætlun
sem kynnt var í innanríkisráðuneyt-
inu í september síðastliðnum.
Í samgönguáætluninni sem sam-
þykkt var á miðvikudag ásamt fjölda
breytingatillagna er einnig gert ráð
fyrir 300 milljóna króna framlagi til
Uxahryggjavegar á næsta ári. Árið
2018 er gert ráð fyrir að 700 millj-
ónum króna verði varið til Þjóðveg-
ar 1 um Kjalarnes (Vesturlandsveg-
ar) og 200 milljónum til 4,4 km kafla
á Fróðárheiði sama ár.
Vegna Vestfjarðarvegar um Gufu-
dalssveit í Reykhólahreppi er gert
ráð fyrir 300 milljóna króna fram-
lagi á þessu ári, 1,2 milljarði króna á
næsta ári og 1,2 milljarði árið 2018
eða samtals 2,7 milljörðum króna
yfir þriggja ára tímabil.
Þá hefur verulega verið aukið við
fjármagn til viðhalds vega og endur-
bóta á tengivegum. Í því felst meðal
annars að Vegagerðin fær peninga
til að framkvæma tilraun sem gæti
orðið til að einfalda verulega endur-
bætur á tengivegum í sveitum. „Að
frumkvæði Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi, beitti meirihluti fjár-
laganefndar sér fyrir að Vegagerðin
fengi fjárveitingu til að framkvæma
tilraun, sem gæti orðið til að ein-
falda verulega endurbætur á vegum.
Ekki er hægt að segja að tilraunin
hafi verið frumleg, en hún gengur
út á að með lágmarks endurbótum
megi leggja bundið slitlag án mik-
ils kostnaðar,“ segir Haraldur Bene-
diktsson alþingismaður m.a. í að-
sendri grein sem birtist hér í Skessu-
horni vikunnar. kg
Samgönguáætlun samþykkt með nokkrum breytingum
Meðal tillagna sem samþykktar voru má nefna að veitt var 250 milljónum króna til
lagfæringa á veginum um Skógarströnd og árið 2018 fara 700 milljónir til að hefja fram-
kvæmdir á Kjalarnesi. Ljósm. af malbikum í Norðurársdal er úr safni Skessuhorns.
„Kosningar, húrra!“ Þetta eru
orð íbúa á Skarðsströnd í Döl-
um þegar þetta sjaldséða gula
tæki sást á ferð í vikunni sem
leið.
Ljósm. Halla Steinólfsdóttir.
Kosningar í nánd
Síðastliðinn mánudag efndu kon-
ur víða um land til samstöðufunda í
tilefni af kvennafrídeginum. Krafan
er skýr; jöfn laun fyrir sömu vinnu,
óháð kyni. Dagurinn var upphaflega
haldinn hátíðlegur 24. október árið
1975 en hefur nú fimm sinnum eftir
það verið nýttur til að benda á rétt-
indamál kvenna. Nú hafa mælingar
sýnt að með óbreyttri þróun launa
milli kynja muni það taka yfir fimm-
tíu ár að konur fái greidd sömu laun
og karlar fyrir vinnu sína. Að þessu
sinni lögðu konur niður störf klukk-
an 14:38, eða á þeirri mínútu sem
þær hætta að meðaltali að fá laun á
við karla. Árið 2010 var vinna stöðv-
uð klukkan 14:25, þannig að ekki
hefur mikið áunnist í réttindabarátt-
unni á þessum sex árum. Kvennafrí-
dagurinn verður því áfram, örugg-
lega þar til fullnaðarsigri verður náð.
mm
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 43. tbl. 19. árg. 26. október 2016 - kr. 750 í lausasölu
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
20%
afsláttur
Verkir í liðum?
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Vökudagar
á Akranesi
27. okt. – 6. nóv.
Tilviljun réði því að bræðurn-
ir Sigurður og Kristján Guð-
mundssynir frá Hvanneyri eign-
uðust báðir barn á sjúkrahúsinu
á Akranesi síðastliðinn mánudag.
Á sunnudagskvöldið snæddu þeir
kvöldverð hjá foreldrum sínum,
ásamt barnsmæðrum sínum og
þegar þeir kvöddust þá um kvöld-
ið áttu þeir ekki von á því að lenda
saman á fæðingadeildinni. Þó var
vitað að annað barnið væri á leið-
inni þar sem Eydís Smáradóttir,
kona Kristjáns, var bókuð í keis-
araskurð daginn eftir. Settur dag-
ur hjá Aldísi Örnu Tryggvadóttur
konu Sigurðar var hins vegar ekki
fyrr en í nóvembermánuði. Hlut-
irnir fóru þó öðruvísi en ætlað
var og kom barn Aldísar Örnu og
Sigurðar í heiminn á undan barni
Kristjáns og Eydísar, eftir að Aldís
Arna missti legvatnið klukkan þrjú
aðfaranótt mánudags. Sigurður og
Aldís keyrðu þá um nóttina á fæð-
ingadeildina og þegar þangað var
Eignuðust
barn sama
daginn
komið lögðu þau bifreið sinni við
hlið bíl Kristjáns og Eydísar. Dótt-
ir þeirra fæddist svo stuttu síðar,
eða klukkan hálf sjö um morgun-
inn. Tæpum þremur tímum síðar
fæddist sonur Kristjáns og Eydís-
ar. Fjölskyldurnar voru báðar enn
staddar á fæðingadeildinni í gær
þegar blaðamaður Skessuhorns átti
leið hjá og smellti af mynd af þess-
um samtaka bræðrum með börnin
sín. grþ
Mótmæltu kynbundnum launamun
Fjórar starfskonur leikskólans Hnoðrabóls í Reykholtsdal tóku af skarið og fóru í
litla kröfugöngu í Reykholti til að mótmæla kynbundnum launamun. Á myndinni
eru f.v: Sjöfn Guðlaug Vilhjálmsdóttir, Rósa Vigdís Arnardóttir, Kristín Jónsdóttir og
Dagný Vilhjálmsdóttir. Ljósm. kj.
Grundfirskar konur voru ekki eftirbátar kynsystra sinna annars staðar en þær
lögðu niður störf klukkan 14:38. Þá voru friðsæl mótmæli í miðbæ Grundarfjarðar
áður en gengið var niður á höfn. Ljósm. tfk.
Þúsundir kvenna komu saman á
Austurvelli á mánudaginn. Meðal
þeirra var hún Sveindís Helga sem
steig upp á grein til að meta
ástandið. Fjær kúrir þinghúsið.
Ljósm. hs.
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 44. tbl. 19. árg. 2. nóvember 2016 - kr. 750 í lausasölu
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
20%
afsláttur
Verkir í liðum?
Opnunartími:
Mán-föst.
08:00 - 18:00
Laugardaga
10:00 - 14:00
Sunnudaga
12:00 - 14:00
Innnesvegur 1, 300 Akranes
Sími: 431-2019
Vökudagar 2016
27. okt. – 6. nóv.
DAGSKRÁ Á AKRANES.IS
Menningarhátíðin Vökudagar stendur nú sem hæst á Akranesi. Afar fjölbreytt dagskrá er í boði og úr mörgu að moða fyrir þá sem vilja kynna sér list og menningu í
bæjarfélaginu. Á meðfylgjandi mynd eru Slitnir strengir sem spilaði fyrir gesti undir stjórn Ragnars Skúlasonar á opnu húsi í tónlistarskólanum síðastliðinn laugardag.
Sjá myndasyrpu frá hátíðinni bls. 24-25. Ljósm. mm.
Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað
út klukkan 7:45 í gærmorgun vegna
bruna við sumarhús í landi Vatns-
enda í Skorradal. Skömmu áður hafði
Tryggvi Sæmundsson á Hálsum orð-
ið var við brunalykt frá hlaðinu heima
hjá sér þegar hann var að leggja af stað
í skólaakstur Tryggvi gerði Pétri Dav-
íðssyni á Grund viðvart en hélt sjálf-
ur áfram akstri með börnin. Pétur fór
að leita elds og fann við heitan pott
og skjólvegg við sumarbústað í Vatns-
endahlíð. Pétur og fleiri sem komu
á vettvang náðu að hefta útbreiðslu
eldsins með garðslöngu þar til fyrstu
slökkviliðsmenn komu frá Hvanneyri.
Gekk slökkvistarf vel. Talið er líklegt
að eldsupptök megi rekja til dælubún-
aðar við pottinn. Litlu mátti þó muna
að eldurinn næði að læsa sig í grind-
verk áfast húsinu. Þakka má þefvísi
Tryggva og fundvísi Péturs að ekki
fór ver í þessum bruna.
mm/ Ljósm. Pétur Davíðsson
Heitur pottur
brann við
sumarhús
Síðastliðinn föstudag var skrifað
undir samkomulag þess efnis að rík-
issjóður taki yfir lífeyrisskuldbind-
ingar þeirra hjúkrunarheimila sem
fram til þessa hafa verið rekin með
ábyrgð sveitarfélaga. Hér er ein-
ungis um hluta hjúkrunarheimila
í landinu að ræða þar sem lífeyris-
skuldbindingar margra þeirra höfðu
áður verið færðar til ríkisins. Heild-
arlífeyrisskuldir þessara sveitarfé-
laga vegna reksturs hjúkrunarheim-
ila voru um 3,5 milljarðar króna um
síðustu áramót. Stærsta einstaka líf-
eyrisskuldbindingin hér á landi var
hins vegar á Akranesi þar sem allar
lífeyrisskuldbindingar vegna starfs-
fólks Dvalar- og hjúkrunarheim-
ilisins Höfða voru á ábyrgð Akra-
neskaupstaðar og Hvalfjarðarsveit-
ar, sem á 10% í heimilinu á móti
90% hlut Skagamanna. Samkomu-
lagið nú miðast við að yfirtaka rík-
isins á lífeyrisskuldbindingunum
verður afturvirk til 1. janúar 2016.
Fyrir Hjúkrunar- og dvalarheimil-
ið Höfða voru þessar skulbinging-
ar um einn milljarður króna og mun
samkomulagið því lækka lífeyris-
skuldbindingar bæjarsjóðs Akranes-
kaupstaðar um fjórðung.
„Þetta samkomulag er gríðarlegur
áfangi fyrir okkur enda miklir hags-
munir í húfi. Með þessu erum við að
lækka skuldir bæjarjóðs verulega, og
auðvelda rekstur hjúkrunar og dval-
arheimislisins,“ segir Ólafur Adolfs-
son formaður bæjarráðs í samtali við
Skessuhorn. „Við þennan áfanga vil
ég þakka Regínu Ásvaldsdóttur bæj-
arstjóra og fjármáladeild Akranes-
kaupstaðar fyrir mikla vinnu við að
ná þessu fram, en Regina situr fyrir
hönd sveitarfélaga í viðræðunefnd-
inni við ráðuneytið. Ekki síður tel
ég að vinna Haraldar Benediktsson-
ar þingmanns hafi haft úrstlitaþýð-
ingu, en hann beitti sér mjög fyrir
lausn þessara mála. Við ásamt Kjart-
ani Kjartanssyni framkvæmdastjóra
Höfða höfum lagt nótt við dag við
að lenda þessu lífeyrisskuldbindinga-
máli farsællega, en ekki er ofsagt að
þessi baggi hefur íþyngt fjárhags-
stöðu A og B hlut ársreiknings Akra-
neskaupstaðar í alltof mörg ár,“ seg-
ir Ólafur sem var að vonum glaður
þegar Skessuhorn heyrði í honum
síðastliðinn föstudag. mm
Þungu fargi létt af bæjarsjóði
Akraneskaupstaða
MIÐVIKUDAGINN 16. NÓVEMBER
Skilafrestur auglýsinga klukkan 12:00
þriðjudaginn 15. nóv.
MIÐVIKUDAGINN 23. NÓVEMBER
AÐVENTUBLAÐ SKESSUHORNS.
Fjöldreift í 10 þúsund eintökum.
Skilafrestur auglýsinga klukkan 12:00
þriðjudaginn 22. nóv. Æskilegt vegna
stærðar blaðs að auglýsingar séu þó
pantaðir fyrr.
MIÐVIKUDAGINN 30. NÓVEMBER
Skilafrestur auglýsinga klukkan 12:00
þriðju daginn 29. nóv.
MIÐVIKUDAGINN 7. DESEMBER
Skilafrestur auglýsinga klukkan 12:00
þriðjudaginn 6. des.
MIÐVIKUDAGINN 14. DESEMBER
Skilafrestur auglýsinga klukkan 12:00
þriðjudaginn 13. des.
MIÐVIKUDAGINN 21. DESEMBER
JÓLABLAÐ SKESSUHORNS. Skilafrestur
auglýsinga klukkan 16:00 mánudaginn
19. des.
Sími 433-5500 – www.skessuhorn.is
Ritstjórn: skessuhorn@skessuhorn.is
Markaðsdeild: lisbet@skessuhorn.is