Skessuhorn - 09.11.2016, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016 15
MS Búðardal – nám í mjólkuriðn
MS Búðardal óskar eftir áhugasömum aðila á
námssamning sem nemi í mjólkuriðn.
Nám í mjólkuriðn er 3ja ára iðnnám og fer
bóklegur hluti þess fram í Danmörku.
Æskilegt er að viðkomandi aðili sé búsettur í
Dalabyggð eða hafi áhuga á búsetu þar.
Störf í mjólkuriðn henta báðum kynjum.
Allar nánari upplýsingar veita Lúðvík Hermannsson,
ludvikh@ms.is og Elísabet Svansdóttir, elisabets@ms.is
Hjá MS starfa rúmlega 450 starfsmenn á fimm starfsstöðvum á
landinu þ.e. Reykjavík, Búðardal, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.
Mjólkursamsalan leggur áherslu á fjölbreytta samsetningu starfsfólks
hvort sem um er að ræða þjóðerni, kynferði, menntun, reynslu og aldur.
MS Búðardal framleiðir m.a. Dala-Feta og Dalaosta –
gott handbragð úr Dölunum.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Þekking
Gæði
Þjónusta
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388
Sjö listakonur úr Borg-
arbyggð taka höndum
saman og halda sölu-
sýningu á listverkum og
handverki í samstarfi
við Brugghúsið í Steðja
í Borgarfirði. Sýningin
verður opin helgina 19.
og 20. nóvember klukkan
12:00-17:00 báða dagana
og verður í brugghúsinu.
Boðið verður upp á léttar
veitingar.
Listamennirnir sem
verða með verk á staðn-
um eru Cristina Co-
tofana, Josefína Mor-
ell, Kara Jóhannesdótt-
ir, Kristrún Snorradótt-
ir, Michelle Bird, Signý
Óskarsdóttir og Stein-
unn Steinarsdóttir.
mm
List og handverk í brugghúsi
Síðastliðinn þriðjudag gekkst
Bókasafn Akraness fyrir fjölskyldu-
söngstund á safninu. Þá komu börn
og foreldrar saman, áttu notalega
stund og sungu saman ýmis lög sem
flestir könnuðust við. Yngri hóp-
ur Skólakórs Grundaskóla leiddi
sönginn undir stjórn Valgerðar
Jónsdóttur. ki
Söngstund á bókasafninu
Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri
sagði nýlega frá því í færslu á heima-
síðu Landbúnaðarsafnsins að hann
hafi um hríð verið að draga saman
föng til þjóðfræði heyskapar á tuttug-
ustu öld. Er hann m.a. inspíreraður af
eftirbreytniverðum verkum Þórðar
í Skógum sem unnið hefur að öllum
hinum öldunum. Nú kveðst Bjarni
verða komin með það sem hann kall-
ar önnur drög að bókverki sem hefur
vinnuheitið Frá reipum til rúllubagga.
„Hvort það verður einhvern tímann
eitthvað mega Guð og Lukkan ráða.
Engu skal lofað,“ skrifar Bjarni.
Hann kveðst jafnan hafa góða
reynslu af því að leita til alþýðufólks
víða um land með heimildir, texta,
myndir, dauða hluti, minjar í lands-
lagi, eða bara ábendingar um forvitni-
leg efni. Því ritaði hann klausuna.
Hann kveðst þiggja allt sem varpað
gæti ljósi á það hvernig heyskapur og
heyverkun á Íslandi hafi breyst á 20.
öldinni. „Það er svo sem engin leið
að ná utan um allt efnið enda er hey-
skapur búskapur eins og þar stendur.
Mér er fengur að öllu, en góðar/skýr-
ar ljósmyndir af heyvinnu, heyskap og
hverju því sem tengist heyöflun eða
ábendingar þar um eru mér sérstak-
lega verðmætar. Þótt Ísland sé ekki
stórt þá hefur samt verið töluverð-
ur vinnubragðamunur á milli sveita,
þótt honum verði seint gerð tæmandi
skil væri engu að síður gaman að geta
vikið ögn að honum og þá er góðra
heimildarmanna þörf.“
Síminn hjá Bjarna er 894-6368
og netfangið bjarnig@lbhi.is mm
Vinnur að ritun bókarinnar
Frá reipum til rúllubagga
Frá reipum til rúllubagga á að fjalla um heyskapartæki áður og fyrr.
Ljósm. úr safni Skjalasafns Skagafjarðar.
14. nóvember, mánudagur kl. 10
Dagrenning með yngstu kynslóðinni Steinunn
Garðars dóttir les úr bókinni Sumarið hans Her manns
eftir Stian Hole. Nemendur frá Klepp járns reykjum og
Hnoðrabóli koma í heimsókn.
15. nóvember, þriðjudagur kl. 20:30
Fyrirlestrar í héraði Konur breyttu búháttum
Borgfirski Mjólkurskólinn og rjómabúin.
Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri flytur.
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
16. nóvember, Dagur íslenskrar tungu
Iðunn Steinsdóttir rithöfundur heimsækir
Grunn skóla Borgarfjarðar og eldri borgara í Brún
Kvæðamannafélagið Snorri í Reykholti
Opin æfing og fundur kl. 20
17. nóvember, fimmtudagur kl. 20
Prjóna-bóka-kaffi í anda frásagnarhefðar með
baðstofublæ. Iðunn Steinsdóttir rithöfundur les úr
verki sínu Hrólfs sögu og spjallar við gesti. Norræna
félagið í Borgarfirði kynnir verkefni sín.
Norræna bókasafnavikan
Dagur íslenskrar tungu
Snorrastofa
í Reykholti
14.–20. nóvember 2016
Bjarni Guðmundsson Iðunn Steinsdóttir
Steinunn Garðarsdóttir