Skessuhorn - 09.11.2016, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 201626
Keppni í Maltbikarnum, bikarkeppni
KKÍ, hófst um liðna helgi. Vestlend-
ingar eiga sína fulltrúa í bikarkeppn-
inni, en sex lið úr landshlutanum taka
þátt að þessu sinni.
Ríkjandi bikarmeistarar Snæfells
hófu titilvörn sína þegar þeir mættu
Val í æsispennandi leik í Stykkishólmi
á sunnudag. Jafnt var á öllum tölum
meira og minna frá fyrstu mínútu og
úrslitin réðust ekki fyrr en á lokamín-
útunum. Þar reyndust Snæfellskon-
ur heldur sterkari og höfðu að end-
ingu þriggja stiga sigur, 79-76 og eru
komnar áfram í næstu umferð í bikar-
keppni kvenna.
Í bikarkeppni kvenna situr Skalla-
grímsliðið hjá í fyrstu umferð og hef-
ur því ekki leik fyrr en í átta liða úr-
slitum. Dregið verður í viðureignir
átta liða úrslita Maltbikars karla og
kvenna í byrjun desembermánaðar og
leikirnir fara síðan fram dagana 15. og
16. janúar næstkomandi.
Skallagrímur áfram í
bikarkeppni karla
Á mánudag mætti Skallagrímur 1.
deildar liði Breiðabliks í Kópavog-
inum og vann öruggan sigur þó ekki
hafi nema ellefu stig skilið liðin að
þegar lokaflautan gall. Skallagríms-
menn höfðu yfirhöndina allan leik-
inn og þó Blikar hafi verið sprækir
á köflum verið sprækir var sigurinn
aldrei í hættu. Skallagrímsmenn eru
því komnir áfram í 16 liða úrslit bik-
arsins þar sem þeir mæta 1. deildar
liði Vals á útivelli. Leikið verður í 16
liða úrslitum Maltbikars karla 4. og
5. desember næstkomandi.
Tap hjá Snæfelli, ÍA og
Grundfirðingum
Snæfell lék einnig í bikarnum á
mánudag þegar liðið heimsótti 1.
deildar lið Vals og urðu Hólmarar
að játa sig sigraða, 74-63. Jafnt var á
með liðunum framan af en þegar líða
tók á fyrri hálfleikinn náðu Valsarar
tíu stiga forskoti sem þeir létu aldrei
af hendi, þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir Snæfells til að minnka muninn.
Grundfirðingar tóku á laugardag á
móti liði 1. deildar liði FSu í bikar-
keppni karla og töpuðu með 13 stiga
mun, 56-69. Eftir mjög jafnan fyrsta
leikhluta sigu gestirnir fram úr um
miðjan annan fjórðung og létu for-
ystuna aldrei af hendi. Grundfirð-
ingar mega þó vel við una því Sel-
fossliðið spilar tveimur deildum ofar
en þeir og voru í úrvalsdeildinni á
síðasta ári.
ÍA fékk Fjölni í heimsókn á Akra-
nes á sunnudag og þar voru gestirn-
ir hlutskarpari. Fjölnismenn voru
sterkara lið vallarins allan leikinn og
Skagamenn náðu aldrei að gera neina
alvöru atlögu að forskoti þeirra. Að
lokum vann Fjölnir með 23 stiga
mun, 67-90. kgk
Titilvörn bikar-
meistaranna er hafin
Pálína Gunnlaugsdóttir lyftir sér upp í skot í leik Snæfells
og Vals á sunnudag. Snæfell hafði þriggja stiga sigur í
æsispennandi leik. Ljósm. sá.
Á Akranesi mættust ÍA og Fjölnir í bikarkeppni karla. Gest-
irnir höfðu betur og ÍA hefur því lokið leik í bikarkeppninni í
ár. Ljósm. jho.
Bikarmótið í Kraftlyftingum fram
fór síðastliðinn laugardag í Hafn-
arfirði. Einar Örn Guðnason úr
Kraftlyftingafélagi Akraness gerði
sér lítið fyrir og varð bikarmeist-
ari í -105 kg flokki og stigahæstur
karla óháð þyngdarflokkum með
524,6 Wilksstig. Einar lyfti 355 kg í
hnébeygju, sem er Íslandsmet, lyfti
240,5 kg í bekkpressu sem einnig er
Íslandsmet, og 280 kg í réttstöðu-
lyftu. Allt í allt gera þetta 875,5 kg,
sem er nýtt Íslandsmet í saman-
lögðu.
Þá keppti einnig á mótinu félagi
Einars úr Kraftlyftingafélagi Akra-
ness, Guðmundur Bjarni Björns-
son. Hann keppti í -120 kg flokki
og lyfti 120 kg í bekkpressu, 220 kg
í réttstöðu en fékk ekki gilda lyftu í
hnébeygju og því engin samanlögð
stig. kgk
Einar Örn bikarmeistari
og setti þrjú Íslandsmet
Einar Örn Guðnason úr Kraftlyftingafélagi Akraness varð síðasta laugardag
bikarmeistari í -105 kg flokki. Hann varð auk þess stigahæstur karla á mótinu
óháð þyngdarflokkum. Ljósm. úr einkasafni Einars.
Tveir ungir og
efnilegir knatt-
spyrnumenn frá
Akranesi, þeir
Stefán Teit-
ur Þórðarson og
Arnór Sigurðs-
son, leikmenn
ÍA, halda í dag
út til Svíþjóð-
ar og munu æfa
í fimm daga með
liði Norrköping.
Stefán er fæddur árið 1998 og Arnór
er árinu yngri, fæddur 1999 og báðir
eru þeir því enn gjaldgengir með 2.
flokki. Þrátt fyrir ungan aldur spiluðu
þeir báðir með meistaraflokksliði ÍA í
Pepsi deild karla á liðnu sumri. Arn-
ór kom við sögu í sex leikjum og Stef-
án í fjórum.
IFK Norrköping varð sænskur
meistari í fyrra en liðið endaði í þriðja
sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í ár.
kgk
Tveir ungir Skagamenn til
æfinga með Norrköping
Arnór Sigurðsson (t.v.) og Stefán Teitur Þórðarson (t.h.).
Fimm Vestlendingar hafa verið
valdir til úrtaksæfinga með yngri
landsliðum Íslands sem haldn-
ar verða dagana 11. - 13. nóvem-
ber næstkomandi. Um er að ræða
úrtaksæfingar fyrir U19 ára lands-
lið karla annars vegar og U16 ára
landslið karla hins vegar.
Til æfinga með U19 ára hópnum
hafa verið valdir Borgfirðingurinn
Helgi Guðjónsson, leikmaður Fram
og Skagamennirnir Arnór Sigurðs-
son, leikmaður ÍA og Guðfinnur
Þór Leósson og Hilmar Halldórs-
son, sem leika með Kára.
Með U16 ára hópnum munu
æfa Skagamennirnir Gylfi Karls-
son, Ísak Örn Elvarsson og Oliver
Stefánsson, sem allir leika með ÍA,
og Ólafsvíkingurinn Bjartur Bjarmi
Barkarson, leikmaður Víkings Ó.
kgk
Átta Vestlendingar í U16 og U19 landliðunum
Krakkarnir í Snæfellsnessamstarf-
inu slá ekki slöku við í fótbolta-
keppnum þó farið sé að hausta.
Strákarnir í 2. flokki karla hófu
keppni á Faxaflóamótinu síð-
asta sunnudag þegar þeir sóttu
Hauka heim á Ásvöllum í Hafn-
arfirði. Leikurinn fór fram í mildu
og þurru haustveðri þó völlurinn
væri blautur. Strákarnir spila í A -
deild B liða og eru í riðli með lið-
um af Faxaflóasvæðinu eins og FH
sem eru með tvö lið, rétt eins og
Breiðablik. Einnig eru í riðlinum
Grótta, ÍA/Kári, Keflavík, Njarð-
vík, Stjarnan/KFG, Selfoss/Ham-
ar/Ægir/Árborg, Afturelding/
Hvíti Riddarinn og Haukar. Strák-
arnir spiluðu vel og voru meira
með boltann meirihluta leiksins og
sóttu fast staðan við lok fyrri hálf-
leiks var 0 - 2 Snæfellsnesstrákun-
um í vil. Snemma í seinni hálfleik
náðu Haukar að skora mark. Sló
það strákana aðeins út af laginu en
ekki lengi og endaði leikurinn 1 -
4, flottur fyrsti leikur og vonandi
að strákunum gangi sem best.
Leik ÍA/Kára og Breiðabliks 2,
sem fara átti fram í Akraneshöll-
inni síðastliðinn sunnudag, var
frestað. Þegar þessi orð eru rit-
uð hefur leiknum enn ekki verið
fundin dagsetning og Skagapilt-
ar bíða þess því enn að hefja leik í
Faxaflóamótinu. þa/kgk
Snæfellsnesliðið sigraði
Hauka á Faxaflóamótinu
Snæfellsnespiltar fagna marki í sigurleiknum gegn Haukum í Faxaflóamótinu. Ljósm. þa.