Skessuhorn - 09.11.2016, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skallagrímur mætti á Hlíðarenda
síðastliðinn miðvikudag og vann
góðan sigur á Val í Domino’s deild
kvenna í körfuknattleik, 68-87, í leik
þar sem Sigrún Sjöfn Ámundadótt-
ir fór á kostum og setti upp laglega
þrennu.
Skallagrímskonur voru sterkari
allan leikinn, allt frá fyrstu mínútu.
Þær skoruðu fyrstu stig leiksins og
höfðu yfirhöndina allt til leiksloka.
Góður kafli undir lok fyrsta fjórð-
ungs tryggði þeim 15 stiga forskot
fyrir annan leikhluta. Svæðisvörn
Skallagríms gerði heimaliðinu erf-
itt fyrir og Valskonur komust hvorki
lönd né strönd í sókninni. Forskot
Skallagríms hélst fyrir vikið nán-
ast óbreytt fram að hálfleik þar sem
Skallagrímur hafði 17 stiga forystu,
30-47.
Valskonur virtust hafa játað sig
sigraðar í leikhléinu því þær virkuðu
áhugalitlar og aðgerðir þeirra þar af
leiðandi ómarkvissar. Skallagríms-
liði gekk á lagið, nýtti sé gloppótt-
an varnarleik heimaliðsins og bætti
hægt og rólega við forskot sitt allt
til leiksloka. Þær héldu einbeiting-
unni allan tímann og unnu að lokuk
öruggan 19 stiga sigur, 68-87.
Sem fyrr segir fór Sigrún
Ámundadóttir fremst í flokki Skalla-
grimskvenna. Hún setti upp mynd-
arlega þrennu; 18 stig, 13 fráköst
og 11 stoðsendingar. Stigahæst var
hins vegar Tavelyn Tillman með 25
stig en hún tók átta fráköst að auki.
Ragnheiður Benónísdóttir skoraði
16 stig og Jóhanna Björk Sveins-
dóttir var með tíu en aðrar höfðu
minna.
Eftir sigur þennan eru Skalla-
grimskonur í öðru sæti deildarinnar
með tíu stig eftir sjö leiki, jafn mörg
stig og topplið Keflavíkur og Snæfell
sem er í þriðja sæti. Skallagrímur sat
sem kunnugt er hjá í fyrstu umferð
bikarkeppninnar sem fram fór um
helgina. Næsti deildarleikur liðsins
er Vesturlandsslagur gegn Snæfelli
í Stykkishólmi í dag, miðvikudaginn
9. nóvember. kgk
Sigrún með þrennu
í sigri Skallagríms
Sigrún Ámundadóttir átti stórleik í
sigrinum á Val og skilaði myndarlegri
þrennu.
Skallagrímsmenn mættu Njarðvík-
ingum í Domino‘s deild karla í körfu-
knattleik síðastliðinn fimmtudag.
Leikið var suður með sjó. Njarðvík-
ingar höfðu yfirhöndina heilt yfir og
þrátt fyrir að Skallagrímur hafi oft
gert atlögu að forskoti heimamanna
máttu Borgnesingar á endanum sætta
sig við tap, 94-80, eftir lokamínútur
þar sem þriggja stiga skyttur Njarð-
víkinga fóru mikinn.
Njarðvíkingar gáfu tóninn strax á
fyrstu mínútu leiksins. Þeir komust
yfir og skipuðu Skallagrímsmönnum
það hlutverk að elta. Njarðvík leiddi
allan fyrsta fjórðunginn og þó Borg-
nesingar hafi aldrei verið langt undan
framan af þá stjórnuðu heimamenn
ferðinni og höfðu átta stiga forskot
undir lok upphafsfjórðungsins. Skalla-
grímsmenn svöruðu fyrir sig í öðrum
leikhluta, minnkuðu forskot heima-
manna snarlega og komust stigi yfir.
Eftir það var mjög jafnt á með lið-
unum, þau köstuðu forystunni á milli
sín en undir lok fyrri hálfleiks komust
heimamenn yfir á nýjan leik og leiddu
með fjórum stigum í hléinu, 49-45.
Njarðvíkingar komu mjög ákveðnir
til síðari hálfleiks, héldu Skallagríms-
mönnum stigalausum fyrstu fjórar
mínúturnar og 13 stiga forystu. Eft-
ir það tóku Borgnesingar við sér og
náðu að minnka muninn í fjögur stig.
Njarðvíkingar áttu hins vegar loka-
orðið í fjórðungnum og leiddu með
átta stigum fyrir fjórða leikhluta.
Leikmenn Skallagríms gáfu ekkert
eftir í lokafjórðungnum og höfðu
minnkað muninn niður í aðeins þrjú
stig þegar fimm mínútur lifðu leiks.
Á lokamínútum leiksins tóku skyttur
heimamanna hins vegar við sér, hrein-
lega skutu Skallagrím í kaf og tryggðu
Njarðvíkingum sigur frá þriggja stiga
línunni. Lokatölur 94-80, Njarðvík í
vil.
Flenard Whitfield var stigahæstur
Skallagrímsmanna með 27 stig og tók
þar að auki tólf fráköst. Sigtryggur
Arnar Björnsson skoraði 24 stig, tók
sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar.
Skallagrímur er í tíunda sæti deild-
arinnar með tvö stig eftir fimm leiki,
jafn mörg og Haukar í sætinu fyrir
ofan og Þór Ak. í sætinu fyrir neðan.
Næsti deildarleikur Skallagríms fer
fram á morgun, fimmtudaginn 10.
nóvember, þegar liðið tekur á móti
Keflavík.
kgk
Skallagrímsmenn skotnir í
kaf á lokamínútunum
Flenard Whitfield og félagar hans í
Skallagrími höfðu ekki erindi sem erfiði
í Njarðvík. Heimamenn voru heilt yfir
sterkari og gerðu út um leikinn á loka-
mínútunum. Ljósm. Skallagrímur
Körfubolti á Facebook.
Botnlið Snæfells tók á móti Stjörn-
unni í Stykkishólmi á fimmtu-
dag. Nokkur eftirvænting var fyrir
leiknum í Hólminum því með liði
gestanna lék að þessu sinni gamla
Snæfellshetjan og landsliðsmaður-
inn Hlynur Bæringsson, sem sneri
nýverið heim eftir atvinnumennsku
í Svíþjóð. Hann lék með Snæfells-
liðinu sem varð bikarmeistari árið
2008 og hampaði bæði Íslands-
og bikarmeistaratitlinum árið
2010. Hlynur og liðsfélagar hans í
Stjörnunni reyndust ungu liði Snæ-
fells ofviða á fimmtudag og vel það.
Heimamenn steinlágu, 51-110.
Snæfell byrjaði leikinn ágætlega
og hafði nokkurra stiga forskot á
gestina stærsta hluta fyrsta leik-
hluta. Það dugði hins vegar skammt
gegn geysisterku liði Stjörnunn-
ar. Gestirnir komust yfir undir lok
upphafsfjórðungsins og eftir það
varð ekki aftur snúið. Garðabæjar-
liði stakk af snemma í öðrum fjórð-
ungi og þegar flautað var til hálf-
leiks hafði það skorað tvöfalt fleiri
stig en heimaliðið. Staðan í hléinu
24-48 fyrir Stjörnunni.
Gestirnir stjórnuðu gangi leiks-
ins algjörlega og gerðu lítið annað
en að bæta við stigaskorið á með-
an hvorki gekk né rak hjá Snæfell-
ingum. Þeir létu mótlætið á köflum
hlaupa í skapið á sér, misstu ein-
beitinguna og áttu fyrir vikið erf-
itt uppdráttar. Bilið milli liðanna
breikkaði jafnt og þétt allt til leiks-
loka og að lokum fór svo að Stjarn-
an rótburstaði Snæfell með 59 stiga
mun, 51-110.
Viktor Marinó Alexandersson
skoraði tólf stig fyrir Snæfell og
þeir Sefton Barrett og Andrée Fa-
res Michelsson voru með níu stig
hvor en aðrir höfðu minna. Stiga-
skor gestanna var með ólíkindum
jafnt, en átta leikmenn skoruðu á
bilinu tíu til 14 stig í leiknum.
Snæfell er enn stigalaust á botni
deildarinnar eftir fyrstu fimm leiki
vetrarins. Næsti deildarleikur liðs-
ins er gegn Tindastóli á Sauðár-
króki á morgun, fimmtudaginn 10.
nóvember. kgk
Snæfell steinlá gegn Stjörnunni
Viktor Marinó Alexandersson sækir að
körfu Stjörnunnar. Til varnar er Hlynur
Bæringsson. Ljósm. sá.
Snæfell tók á móti Keflavík í Dom-
ino’s deild kvenna í körfuknattleik
síðastliðinn miðvikudag. Leikurinn
var mikill baráttuleikur en að lokum
fór svo að Snæfell hafði fjögurra stiga
sigur, 72-68.
Nokkuð jafnræði var með liðunum
framan af fyrsta leikhluta en þegar
hann var rétt rúmlega hálfnaður tóku
Snæfellskonur góðan sprett og skor-
uðu tíu stig í röð. Skynsemi einkenndi
sóknarleik þeirra og varnarleikurinn
var góður. Fyrir vikið leiddi Snæ-
fell afgerandi eftir upphafsfjórðung-
inn, 22-8. Keflvíkingar fundu aðeins
betur taktinn í öðrum leikhluta en
Snæfell stjórnaði áfram gangi leiks-
ins og leiddi með 15 stigum í hálfleik,
45-30.
Það var síðan í þriðja leikhluta að
taflið snerist algerlega við. Keflavík-
urkonur komu gríðarlega ákveðn-
ar til leiks eftir hléið og héldu Snæ-
fellskonum stigalausum hálfan leik-
hlutann. Mikil vinnsla var í liðinu og
smám saman minnkuðu þær forskot
Íslandsmeistaranna. Keflavík skor-
aði 19 stig í leikhlutanum gegn að-
eins fjórum stigum Snæfells og að-
eins munaði fimm stigum á liðunum
fyrir lokafjórðunginn. Sá reyndist
verða jafn bæði og spennandi. Snæfell
hafði heldur yfirhöndina í lokafjórð-
ungnum en gestirnir voru aldrei langt
undan. Tvisvar vantaði Keflvíkinga
aðeins tvö stig í að jafna leika en það
tókst þeim þó aldrei. Snæfell hélt velli
og skipti leikreynsla liðsins þar miklu.
Þær fóru aldrei á taugum þó blásið
hafi byrlega á móti í þriðja leikhluta
og leikar stæðu tæpt allan lokafjórð-
unginn. Þær héldu einfaldlega velli og
höfðu að lokum sigur, 82-78.
Aaryn Ellenberg lék þarna sinn
fyrsta leik fyrir Snæfell eftir að hún
gekk til liðs við félagið í síðustu
viku. Hún byrjaði með látum, skor-
aði 25 stig, tók fimm fráköst og gaf
fimm stoðsendingar. Ekki amalegt í
fyrsta leik. Næst henni kom Berglind
Gunnarsdóttir sem skoraði 17 stig og
tók átta fráköst.
Snæfell situr í þriðja sæti deildar-
innar með tíu stig eftir sjö leiki, jafn
mörg og Skallagrímur og Keflavík í
sætunum fyrir ofan. Næsti deildar-
leikur Snæfells er Vesturlandsslagur
gegn Skallagrími í Stykkishólmi mið-
vikudaginn 9. nóvember næstkom-
andi. kgk
Snæfell sigraði Keflavík í
kaflaskiptum baráttuleik
Aaryn Ellenberg byrjar vel með Snæ-
felli, en hún lék sinn fyrsta leik með
liðinu á miðvikudag. Ljósm. sá.
Skagamenn fengu Val í heimsókn í 1.
deild karla í körfuknattleik á fimmtu-
dag. Valur hafði fyrir leikinn þrjá
sigra en ÍA einn eftir fyrstu fimm
leiki vetrarins. Skagamenn voru án
tveggja lykilmanna, Fannars Freys
Helgasonar og Áskels Jónssonar, sem
er rifbeinsbrotinn. Hafði það sitt að
segja í leiknum. Gestirnir voru mun
einbeittari og betra lið vallarins lung-
ann úr leiknum og unnu að lokum
öruggan sigur, 76-103.
Valsmenn mættu einbeittir til leiks
og byrjuðu af krafti en Skagamenn
virtust annars hugar og voru gjarnir á
að kasta boltanum frá sér. Valsmenn
náðu því snemma nokkuð þægilegri
forystu. Skagamenn tóku á sig rögg í
öðrum leikhluta og allt annar bragur
á leik liðsins. Þeir minnkuðu niður í
fjögur stig snemma í öðrum leikhluta
og gáfu gestunum ekkert eftir. Vals-
menn náðu hins vegar góðum spretti
undir lok leikhlutans og leiddu með
tíu stigum í hálfleik, 46-36.
Í upphafi síðari hálfleiks tóku liðin
upp þráðinn þaðan sem frá var horf-
ið. Skagamenn minnkuðu muninn
lítillega í tvígang en komust aldrei
nær en í sjö stiga fjarlægð. Gestirn-
ir náðu góðum kafla á seinni hluta
þriðja fjórðungs, höfðu 16 stiga for-
skot fyrir fjórða leikhluta og róður-
inn orðinn þungur fyrir Skagamenn.
Þeir fundu taktinn aldrei nógu vel og
tókst því ekki að gera neina alvöru
atlögu að forskoti Valsmanna. Gest-
irnir sigldu æ lengra fram úr eftir því
sem leið á lokafjórðunginn og unnu
að lokum öruggan 27 stiga sigur,
76-103.
Derek Shouse var atkvæðamestur
Skagamanna í leiknum með 35 stig
og níu fráköst. Jón Orri Kristjánsson
skoraði 15 stig og tók ellefu fráköst
og þá var Björn Steinar Brynjólfsson
með tíu stig og sex fráköst.
Skagamenn eru eftir leikinn í átt-
unda og næstneðsta sæti deildarinnar
með tvö stig eftir sex leiki, jafnmörg
stig og Vestri í sætinu fyrir ofan. Á
botninum eru Ármenningar enn án
stiga.
Næst leikur ÍA í deildinni gegn
Breiðabliki á útivelli föstudaginn 11.
nóvember.
kgk
Skagamenn fundu ekki taktinn í tapleik gegn Val
Sigurður Rúnar Sigurðsson hefur
gengið til liðs við uppeldisfélag sitt ÍA
eftir nokkra fjarveru. Síðast lék hann
einmitt með Val og mætti því sínum
gömlu félögum í sínum fyrsta leik fyrir
ÍA í vetur. Ljósm. jho.