Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2017, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 22.02.2017, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017 27 Herborg Konný Hrannardótt- ir Thorstensen er níu ár íslensk stúlka búsett í Noregi. Á dögun- um var hún í heimsókn hjá ömmu sinni og afa í Búðardal þar sem hún upplifði óvænt draum margra, þ.e. að finna flöskuskeyti. Fjölskyld- an hafði farið í fjöruferð í Búðar- dal og stuttu eftir að göngutúrinn hófst skaut köttur upp kollinum og fylgdi þeim eftir við mikla ánægju Herborgar og átta ára systur henn- ar Iðunnar. Þegar fjölskyldan var hálfnuð á göngu sinni að Laxárós- um lagðist kisa niður og Herborg ákvað að snúa við og líta eftir henni og fann þá flöskuna rétt við hliðina á kisu. „Við vorum spennt að skoða innihaldið en gátum það ekki fyrr en komið var heim til ömmu og afa þar sem tappinn var sem soð- inn fastur við flöskuna. Við þurft- um að skera flöskuna í sundur til að ná bréfinu út,“ segir Hrönn Jóns- dóttir, móðir stúlknanna. „Þegar við lásum bréfið kom í ljós að það var frá norskum dreng sem hafði verið á ferðalagi á Íslandi í júlí 2012 ásamt fjölskyldu sinni, einmitt um svipað leyti og stelpurnar voru síðast á landinu,“ segir Hrönn. Í bréfinu kom fram heimilisfang og símanúmer hjá fjölskyldunni og Hrönn setti sig strax í samband. „Þeim þótti dæmalaust skemmti- legt að við skyldum hafa fundið flöskuna en voru aðeins óviss um hvar þau hefðu sleppt henni í sjóinn en þau töluðu þó um að þau hefðu farið í siglingu frá Stykkishólmi. Theodor, strákurinn sem skrifaði bréfið, er núna orðinn ellefu ára,“ segir Hrönn. sm Fann flöskuskeyti í fjörunni við Búðardal Pennagrein Nú hefur Kútter Sigurfari verið geymdur í fjóra áratugi á Akranesi. Eikarbátur þessi var byggður 1885 í Bretlandi og gerður út frá Íslandi fram til 1919 en þá hófst hálfrar aldar saga bátsins í Færeyjum. Það var svo sr. Jón M. Guðjónsson á Akranesi sem hafði forgöngu um að fá kútterinn heim. 1974 unnu Kiwanismenn á Akranesi við að koma Sigurfara fyrir á athafna- svæði Byggðasafnsins í Görðum. Því ber að fagna að nú gengst Byggðasafnið í Görðum á Akranesi fyrir viðamikilli ráðstefnu þar sem mikilvægi Sigurfara fyrir Skagamenn er eitt af meginþemunum. Það verður spennandi að fylgjast með ráðstefn- unni dagana 23. og 24. febrúar næst- komandi. Sérstaklega hlakka ég til þess að taka þátt í vinnustofu á fimmtudeg- inum en hún fer fram á íslensku (ráð- stefnan sjálf er að öðru leyti á ensku). Í mínum huga snýst spurningin sem þar verður sett fram um mikilvægi varðveislu Sigurfara fyrir íbúa á Akra- nesi, óbeint um þá almennu spurningu hvort ekki sé vilji til að varðveita okkar merku fiskiskip sem færðu okkur björg í bú. Fræðilegir fyrirlestrar verða á ensku enda koma fyrirlesarar erlend- is frá. Mikill fróðleikur og þekk- ing mun verða þar í boði. Vonandi fáum við sem ekki ráðum yfir nægi- lega góðri enskukunnáttu, fyrirlestr- ana eða það helsta á íslensku eftir ráðstefnuna, þannig mun það nýtast mörgum. Von mín er að við hefjum skipavernd á hærra plan, gerum skipa- vernd jafn hátt undir höfði og húsa- vernd. Breyta þarf þeim þröskuldi í lögum, um verndun minja, að aðeins skip byggð fyrir 1950 séu fornmunir og séu merkileg og styrkhæf. Nær væri að hafa, skip 50 ára og eldri. Kveðja að norðan, Þorsteinn Pétursson, Steini Pje Húna II Skip, bátar og alþýða Íslands Pennagrein Í Skessuhorninu hinn 8. febrúar síð- astliðinn birtist grein undir fyrirsögn- inni; „Fjölnota frístundamiðstöð á teikniborðinu.“ Þar er frá því sagt að golfkúbburinn Leynir hyggist byggja félagsmiðstöð við golfvöllinn og að uppi séu hugmyndir um samstarf við FEBAN, félag eldri borgara, um af- not af sal heimilisins. Ekki er annað að skilja en þessari hugmynd hafi ver- ið vel tekið af stjórn FEBAN og gefur fyrirsögnin a.m.k. kosti til kynna að um slíkt geti tekist gott samstarf þess- ara tveggja félagssamtaka. Í Skessuhorninu er jafnframt vísað í fréttabréf FEBAN þar sem haft er eftir formanni félagsins að svo langt sé í að draumurinn um þá félagsað- stöðu sem lofað var að Dalbraut 6 verði að veruleika, að hann „verði að bíta i það súra epli“ og sætta sig við að slíkt verði „ekki í náinni framtíð“. Ekki er annað að skilja af orðum for- mannsins en að bréflegt tilboð golf- klúbbsins um afnot af nokkru stærri sal, en FEBAN hefur nú við Kirkju- braut, sé sú lausn sem félagið muni stökkva á. Undirritaður sem setið hefur í samstarfshópi FEBAN við Akranes- kaupstað í átta undanfarin ár get- ur ekki látið hjá líða að stinga niður penna, þegar slíkar fregnir berast, og það frá stjórn félagsins. Fyrir um það bil fjórum árum sátum við tveir full- trúar FEBAN í vinnuhópi með þá- verandi forsvarsmönnum allra sitj- andi flokka í bæjarstjórn og leituðum leiða til þess að leysa húsnæðisvanda FEBAN og þess félagsstarfs sem Akraneskaupstaður stendur fyrir fyr- ir aldraða og öryrkja. Þá knúðu full- trúar golfklúbbsins dyra og kynntu fyrir okkur sams konar hugmynd og nú virðist vera uppi á borðinu. Þeirri hugmynd var þegar hafnað af bæjar- fulltrúunum þar sem hún fól ekki í sér neina lausn á þeim vanda sem tak- ast þarf á við varðandi áðurnefndan hóp. Það virðist vera skoðun margra og af Skessuhorninu má ráða að það sé jafnvel skoðun formanns FEBAN að félagslegan húsnæðisvanda félags- ins megi leysa með stærri salarkynn- um, sem taka um 200 manns, eins og segir í greininni að golfklúbburinn sé að bjóða upp á þarna við ystu bæjar- mörk. Ekkert er fjær sanni. Það hefur verið samhljóða skoð- un bæjarstjórnar Akraness og FEB- AN um langt árabil að uppbygging félagsheimilis fyrir aldraða og ör- yrkja skuli fylgjast að. Að því hníga mörg rök. Það er öllum ljóst hversu félagsleg virkni þessarra tveggja hópa er mikilvæg. Hún stuðlar að bættri heilsu, ánægjulegra lífi, rýfur félags- lega einangrun o.s.fv. Hitt er einnig jafnljóst að það er alls ekki auðvelt að virkja þessa hópa. Í könnun á vegum Reykjavíkurborgar sem birt var nú í fyrstu viku febrúar sl. kemur fram að um þriðjungur aldraðra lýsir yfir ein- manaleika og einangrun. Með sameigninlegri félagsmið- stöð fyrir aldraða og öryrkja hefur verið stefnt að því að stjórn félags- og heimaþjónustu kaupstaðarins hefði þar aðsetur og unnið væri mark- visst að því sameiginlega átaki bæjar- ins og FEBAN að virkja sem flesta í þessum vaxandi hópi til margs konar félagsstarfa og er þá ekki aðeins um að ræða þá afmörkuðu þætti sem nú- verandi húsnæði gefur færi á, heldur einnig myndun ýmiss konar áhuga- hópa, heilsueflingu og fræðslunám- skeið hvers konar. Með öðrum orð- um hvað sem verða má til þess að auka félagsvirkni viðkomandi. Þá hefur einnig verið bent á mikilvægi þess að félagsheimilið verði mið- svæðis þannig að menn geti droppað inn, til blaðalesturs, til að fá sér kaffi- sopa og spjalla, grípa í snóker eða tafl, o.s.fv. Með öðrum orðum að þar yrði mynduð ein aðlaðandi heild þar sem allir þræðir félagsþjónustunnar koma saman. Nú virðist golfklúbburinn enn á ný hafa reynt að ríða sínum Trójuhesti inn í herbúðir FEBAN til að lokka þá til fylgis við sig. Það liðkar áreið- anlega fyrir klúbbnum í baráttu sinni við að fá bæjarstjórn til þess að leggja fé í reisulegan golfskála (sem þeir hafa sannarlega þörf fyrir). Vel má vera að einhverjum bæjarfulltrúum finnist þetta snjöll hugmynd. Það gefur þeim a.m.k. tækifæri til að réttlæta það, að ekki sé ráðist í framkvæmdir við sam- eiginlega félagsaðstöðu við Dalbraut að sinni. Hitt sýnist mér öllu verra, að af fréttabréfi FEBAN virðist ljóst, að stjórn félagsins hyggst kasta al- gjörlega fyrir róða þeirri stefnu, sem lýst er hér að framan um samtvinnun þessara tvegga starfseininga, sem er grundvöllur þess að hægt sé að tala um alhliða félagsheimili. Þess í stað lætur stjórnin líta út fyrir, þegar fréttabréf- ið er lesið, að hún sé að gera þetta af þóknun við bæjarstjórn. Vel má vera að svo sé. Hún telur sig a.m.k. geta sett bæjarstjórn kosti varðandi það að öðrum þáttum félagsstarfsins en stórum sal verði komið fyrir einhvers staðar á víð og dreif í bænum. Skítt með samstarfið við félagsstarf kaup- staðarins og öll þau rök sem styðja þá samtvinnun. Enda gefi bæjarstjórn líka út yfirlýsingu þess efnis að ekki verði fallið frá hugmynd um einhvers konar félagsheimili við Dalbrautina einhvern tímann síðar. Það plagg yrði álíka skuldbindandi og núverandi bæj- arstjórn álítur kaupin á Dalbraut vera. Einskis virði er á reyndi. Á kynning- arfundi í Grundarskóla í síðustu viku taldi hönnuður skipulags Dalbrautar- reitsins, Árni Ólafsson arkitekt, hugs- anlegt að uppbygging reitsins tæki 15 – 20 ár. Hún er langlynd og metnað- arfull stjórn FEBAN. Svona vinna menn ekki. Hér er er verið að vinna skemmdarverk sem seint verður leiðrétt eða bætt. Ákvörðun sem stjórn félagsins get- ur alls ekki tekið nema með sam- þykki almenns félagsfundar. Stjórnin var kosin til þess að fylgja þeirri að mestu fullmótuðu stefnu, hvað sem á dyndi, uns því máli væri komið í höfn, að byggja upp heildstæða og mann- sæmandi félagsaðstöðu við Dalbraut 6 (eða á öðrum jafngóðum stað). Hafi þau ekki getu eða vilja til þess og vilji heldur varpa vinnu undanfarinna ára fyrir róða, fullyrði ég, að það sé þvert á hagsmuni félagsins. Því tel ég stjórnina ekki hafa neitt umboð til þess að gjörbreyta um stefnu í þess- um málum. Slíkt er ekkert annað en ofbeldi gagnvart félagsmönnum. Það hefur einnig vakið verulega at- hygli, að eftir að ljóst var að bæjar- stjórn hugðist ekki setja eina krónu næstu fimm árin í byggingu félags- heimilis aldraðra og öryrkja, hefur hvorki heyrst hósti né stuna frá stjórn FEBAN til þess að andmæla þeirri gjörð. Það er eins og stungið hafi ver- Stjórn FEBAN á villugötum ið upp í forsvarsmenn félagsins. Hvað veldur? Hið súra epli, sem formaður FEB- AN telur sig verða að bíta í er aug- ljóslega það, að hann situr uppi með bæjarstjórn sem hefur, andstætt þeirri sem sat á síðasta kjörtímabili og af- henti FEBAN formlega húsið að Dal- braut 6 til eignar, engan áhuga á að fylgja eftir þeirri stefnu sem mörkuð var með kaupum á húsinu. Strax við upphaf kjörtímabilsins lýstu forsvars- menn bæjarstjórnarinnar yfir megn- ustu óánægju með gjörðir og fyrir- heit fyrri bæjarstjórnar. Af gerðum þeirra nú má öllum vera ljóst að ekk- ert þeirra hefur kjark eða vilja til þess að standast áhlaup íþróttahreyfingar- innar um fé til framkvæmda, þótt það kosti það að aðrir sitji eftir. En bæjar- stjórn Akraness skal vita og gera sér fullljóst að hún var ekki kosin til þess að mismuna fólki eftir aldurshóp- um. Henni ber full skylda til þess að sinna áhugamál- um okkar sem eldri erum jafnt sem hinna. Og það ætti svo sannarlega að vera forgangsmál hennar að halda okkur virkum svo lengi sem kostur er. Við sættum okkur ekki lengur við sæti „hornkerlingar“. Okkar tími er löngu kominn. Og stjórn FEBAN, sem virðist skelfingu lostin yfir stöðunni, má minnast þess, að sameinuð getum við þvert á flokka veitt okkar pólitísku fulltrúum fullt aðhald og bundið endi á þetta óréttlæti. Það eru kosningar á næsta ári. Og þótt formaðurinn „bíti í“ súrt eplið, þarf hann ekki að kyngja þeim bita, það er hægt að skyrpa honum út úr sér og segja: „Nei takk, ágæta bæjarstjórn.“ Jóhannes Ingibjartsson Pennagrein Við undirrituð, íbúar á Dalbraut 21, viljum beina þeim tilmælum til skipulagsyfirvalda að við skipulag á Dalbrautarreitnum, og raunar einn- ig á Sementsreitnum, verði fegurð og vellíðan íbúa í framtíðinni höfð í fyrirrúmi. Okkur sýnast húsin Dalbraut- armegin eiga að vera ofan í göt- unni eins og nú er mikil tíska með- al skipulagssérfræðinga. Mun betra er að hafa húsin fjær götunni eins og skipulagið gerir ráð fyrir Þjóð- brautarmegin. Þá sýnist okkur gert ráð fyrir heldur háum húsum ofan í íbúðarhúsunum sem fyrir eru. Varðandi Sementsreitinn þá minn- um við á athugasemdir sem komu fram á fundinum um að endurheimta skuli Langasand á því svæði þar sem Sementsverksmiðjan var reist. Þær hugmyndir eru í það minnsta verð- ar skoðunar. Langisandur er ein helsta perla Akraness sem okkur ber að varðveita. Skipulag bæja er sérstaklega erfitt nú á tímum þegar nóg er af peningum í eigu fjármála- afla sem einungis hugsa um skamm- sýn gróðasjónarmið. Þessi sjónarmið virðast víðast hvar ráða nánast öllu í skipulagsmálum með áherslu sinni á þéttingu byggðar og litlu skeytt um fegurð umhverfisins og vellíðan íbú- anna. Hindrum að framtíðin verði slík með því að hafa fegurð og vel- líðan íbúa framtíðarinnar í fyrirrúmi og ofar skammsýnum gróðasjónar- miðum fjármálaafla sem geta valdið óbætanlegu tjóni á samfélaginu þeg- ar til lengri tíma er litið. Akranesi, 20. febrúar 2017 Virðingarfyllst, Jens Benedikt Baldursson og Ragnheiður Þóra Grímsdóttir, Dalbraut 21, Akranesi Til skipulagsyfirvalda á Akranesi vegna Dalbrautar- og Sementsreitsins

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.