Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2017, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 22.02.2017, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 20178 Uppfæra heimasíður STYKKISH: Ný heimasíða var nýlega opnuð fyrir Grunn- skóla Stykkishólms. Í Stykk- ishólmspóstinum er greint frá því að síðan sé nú komin nær kröfum nútímans um útlit og virkni en sú gamla var komin til ára sinna. Efnislega er vefur- inn eins og áður en allt viðmót hefur tekið stakkaskiptum og er hann nú talsvert þægilegri yfir- ferðar. Hægt er að finna fréttir af skólastarfinu, viðburði, mat- seðil og fleira á síðunni. „Upp- lýsingastreymi skólans til for- eldra er skólanum mikilvægt. Stefnt hefur verið að því að vef- ur skólans verði virkari upp- lýsingamiðill milli heimila og skóla með áherslu á fréttir af skólastarfinu og almennar upp- lýsingar til foreldra, eins og ver- ið hefur. Sama viðmót og útlit er á síðunni og nýrri síðu Stykk- ishólmsbæjar sem tekin var í notkun sl. haust. Það var Anok margmiðlun ehf. sem sá um uppfærslu vefsins, rétt eins og vef Stykkishólmsbæjar,“ segir í frétt Stykkishólmspóstsins. -mm Vika heilsu framundan SNÆFELLSBÆR: Árleg heilsuvika verður í Snæfellsbæ dagana 9. - 16. mars nk. Dag- skráin er óðum að taka á sig mynd og verður margt fróðlegt og skemmtilegt í boði fyrir alla. Nánar er hægt að fylgjast með dagskránni, og öllu því sem í boði verður, á síðunni Heilsu- vika, á Facebook. -mm Aflatölur fyrir Vesturland 11.-17. febrúar Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes, 7 bátar. Heildarlöndun: 71.591 kg. Mestur afli: Eskey ÓF: 36.757 kg í fjórum róðrum. Arnarstapi, 1 bátur. Heildarlöndun: 4.039 kg. Mestur afli: Guðmundur á Hópi HU: 4.039 kg í einni löndun. Grundarfjörður, 2 bátar. Heildarlöndun: 14.179 kg. Mestur afli: Vinur SH: 8.101 kg í fimm róðrum. Ólafsvík, 16 bátar. Heildarlöndun: 481.787 kg. Mestur afli: Kristinn SH: 75.883 kg í fimm löndunum. Rif, 8 bátar. Heildarlöndun: 216.020 kg. Mestur afli: Særif SH: 60.630 kg í fimm róðrum. Stykkishólmur, 4 bátar. Heildarlöndun: 23.193 kg. Mestur afli: Haukaberg SH: 13.503 kg í þremur róðrum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Jákup B KG - ÓLA: 33.736 kg. 13. febrúar. 2. Kristinn SH - ÓLA: 20.017 kg. 16. febrúar. 3. Tryggvið Eðvarðs SH - ÓLA: 19.688 kg. 15. febrúar. 4. Kristinn SH - ÓLA: 16.987 kg. 15. febrúar. 5. Særif SH - RIF: 16.350 kg. 13. febrúar. -kgk Strætisvagn á suðurleið á aksturs- leiðinni Akureyri-Reykjavík lenti út af Þjóðvegi 1 og hafnaði í veg- skurði á hæðinni skammt ofan við bæinn Lyngholt í Melasveit laust fyrir klukkan 10 í gærmorgun. Sam- kvæmt upplýsingum lögreglu voru sjö í bílnum þegar óhappið varð. Nokkrir voru fluttur til læknisskoð- unar og þar af einn með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Strætisvagninn er talsvert skemmdur. mm/ Ljósm. ki. Strætó út í skurð í Melasveit Konudagsmessa var haldin í Ólafs- víkurkirkju síðastliðinn sunnu- dag. Messan var jafnframt fyrsti viðburður afmælisnefndar vegna 50 ára afmælis kirkjunnar. Verða fleiri viðburðir út afmælisárið en afmæli kirkjunnar er 19. nóvem- ber á þessu ári. Konur í Kvenfé- lagi Ólafsvíkur tóku virkan þátt í messunni á sunnudaginn með því að lesa ritningarlestra og leiða bænir. Að messu lokinni færðu félagar úr Lionsklúbbi Ólafsvík- ur konum rauða rós í tilefni dags- ins. Kirkjugestum var einnig boð- ið að þiggja kaffi og konfekt í boði sóknarnefndar. þa Fyrsti viðburðurinn á afmælisári Ólafsvíkurkirkju Aðfararnótt fimmtudags í liðinni viku var brotist inn Neðri-Sýrup- art, eitt af gömlu uppgerðu hús- unum á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi. Þegar starfsfólk kom á vettvang var aðkoman ljót. Búið var að stela nokkrum munum úr hús- inu, eyðileggja aðra og allt var á tjá og tundri. „Ef einhver hefur orðið var við mannaferðir á svæði safnsins eftir kl. 22:30 miðvikudagskvöldið 15. febrúar og þar til næsta morg- un má gjarnan koma þeim upplýs- ingum á framfæri við lögregluna á Akranesi,“ segir í tilkynningu frá Safnasvæðinu. Verið er að vinna lista yfir þá muni sem saknað er úr húsinu. Þá er samkvæmt heimildum Skessu- horns verið að efla vöktun á Safn- asvæðinu með uppsetningu tækni- búnaðar. mm Munum stolið og aðrir skemmdir í innbroti á Safnavæðinu Héraðsdómur Vesturlands sak- felldi á dögunum karlmann fyrir brot gegn valdstjórninni með því að veitast með ofbeldi að tveimur lögreglumönnum. Atvikið átti sér stað á veitingastaðnum Skökkinni á Akranesi í nóvember 2015. Málsat- vik voru þau að lögregla var kölluð á veitingastaðinn vegna manns sem lét ófriðlega og var æstur vegna þess að mistök höfðu verið gerð við af- greiðslu á pöntun hans. Hafði hann því ekki fengið allt sem hann hafði pantað og verið var að loka staðn- um. Þegar lögreglumenn komu á staðinn báðu þeir manninn um að róa sig, auk þess sem þeir reyndu að ná honum út af veitingastaðn- um. Maðurinn streittist á móti og er honum í ákæru gefið að sök að hafa veist að lögreglumönnum með ofbeldi, gripið í háls annars þeirra en fellt hinn og slegið hann hnefahöggum í andlitið. Lögregla beitti í kjölfarið bæði lögreglu- kylfu og varnarúða. Nokkru síðar greip maðurinn kertastjaka og gler- ílát og gerði sig líklegan til að nota sem vopn gegn lögreglumönnum. Nokkru síðar, fyrir utan veitinga- húsið, segir að maðurinn hafi skvett heitum vökva í andlit lögreglu- mannsins sem hann sló áður. Lög- regla beitti varnarúða og lögreglu- kylfu þegar maðurinn hlýddi ekki tilskipunum um að leggjast niður þegar hann hugðist yfirgefa vett- vang og var að lokum handjárnað- ur og færður í fangageymslur lög- reglustöðvarinnar á Akranesi. Maðurinn neitaði sök en dómn- um þótti sannað með framburði lögreglumanna og myndbandsupp- tökum úr upptökutækjum á búning- um þeirra, auk vitnisburðar starfs- fólks og fleiri á staðnum, að mað- urinn hefði gerst sekur um það sem honum var gefið að sök. Með broti sínu rauf maðurinn skilorð annarrar refsingar sem hann hafði áður verið dæmdur til. Héraðsdómur tók því upp refsingu samkvæmt þeim dómi og dæmdi með í þessu máli. Þótti héraðsdómi hæfilega ákveðin refsing vera fangelsi í sex mánuði og þótti ekki efni til að skilorðsbinda þá refsingu. Honum var einnig gert að greiða útlagðan sakarkostnað sem og þóknun verj- anda síns. kgk Sex mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.