Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2017, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 22.02.2017, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 201718 Leikfélagið Sv1 í Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýndi á föstu- daginn hið sígilda leikrit Astrid Lindgren um Línu Langsokk. Önnur sýning var síðan á sunnu- daginn að viðstöddum Guðna Th Jóhannessyni forseta Íslands, Elizu Reid eiginkonu hans og tveimur yngstu börnum þeirra hjóna. Óhætt er að segja að uppfærsla leikfélagsins Sv1 sé með sóma, hvert sem litið er. Það verður að teljast líklegt að frumraun Geirs Konráðs Theódórssonar í leik- stjórn muni leiða hann áfram á listabrautinni, en sjálfur er hann þessa dagana að sýna Svarta Gald- ur í Landnámssetri Íslands milli þess sem hann vinnur að uppfinn- ingum og hönnun í Hugheimum. Geir Konráð hefur náð vel til unga fólksins því leikur, tónlist, dans og tæknivinnsla gekk eins og smurð vél og úr varð hin besta skemmt- un. Slíkt tekst ekki nema borin sé virðing fyrir leikstjóranum og hann fyrir samstarfsfólki sínu. Grunnskólakennara í Grundarfirði Dag ur í lífi... Nafn: Ingibjörg Eyrún Bergvin- sdóttir Fjölskylduhagir/búseta: Í sambúð með Runólfi Jóhan- ni Kristjánssyni, á tvo drengi; Kristján Pétur fjögurra ára og Hilmar Örn tveggja ára. Búsett í Grundarfirði. Starfsheiti/fyrirtæki: Kennari í Grunnskóla Grundarfjarðar. Áhugamál: Ferðalög, vera með fjölskyldunni og hreyfing. Dagurinn: Fimmtudagurinn 16. febrúar 2017 Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað var það fyrsta sem þú gerðir? Vaknaði kl. 7:10, fór á klósettið og klæddi mig í föt. Hvað borðaðirðu í morgun- mat? Kornfleks. Hvenær fórstu til vinnu og hvernig? Um 8 leytið, á bíl. Fyrstu verk í vinnunni: Draga frá glugganum og kíkja inn á tölvupóstinn og Mentor. Hvað varstu að gera klukkan 10? Kenna 5. bekk náttúru- fræði. Hvað gerðirðu í hádeginu? Borðaði hádegismat á kaffi- stofunni, flatkökur og hleðslu. Hvað varstu að gera klukkan 14? Fara yfir próf. Hvenær hætt og það síðas- ta sem þú gerðir í vinnunni? Hætti kl. 15:50 og endaði á að ganga frá í stofunni. Hvað gerðirðu eftir vinnu? Fór á ketilbjölluæfingu og svo heim að elda. Hvað var í kvöldmat og hver eldaði? Ég sá um elda- mennskuna, en það var lasagna í matinn. Hvernig var kvöldið? Svæfði strákana, þreif bílinn að innan og fundur með foreldraráði leikskólans. Endaði á að horfa á einn þátt fyrir svefninn. Hvenær fórstu að sofa? um ellefu leytið. Hvað var það síðasta sem þú gerðir áður en þú fórst að hátta? Horfa á einn þátt. Hvað stendur uppúr eftir daginn? Góður dagur. Skemm- tileg ketilbjölluæfing. Eitthvað að lokum? Lifðu í núinu og njóttu þess. Lína Langsokkur í Hjálmakletti Nemendur menntaskólans voru svo elskulegir að bjóða ungmenn- um úr tíunda bekk Grunnskóla Borgarness að taka þátt í upp- færslunni. Það var góð ákvörðun því í þeim hópi reyndist aðalleik- konan Íris Líf Stefánsdóttir. Að öðrum leikurum ólöstuðum glans- aði Íris í hlutverki sínu og túlkun á Línu Langsokk, hinni frjálslegu og munaðarlausu stúlku sem sett- ist að á Sjónarhóli barnavernd- aryfirvöldum til mikillar mæðu. Henni fylgdu húsdýrin Herra Níels og hesturinn Litli Karl, sem voru prýðilega túlkuð og leikin af þeim Phoeby Grey Angco Gines og Nicollo Carrivale. Unga fólkið sem tók þátt í þessari sýningu má vissulega vera stolt og ánægt með frábæra sýningu. Það hefur not- ið aðstoðar víða úr samfélaginu, hvort sem litið er til búninga og leikmuna, upptökum á tónlist og annarra þátta sem fyglja uppfærslu af þessari stærð. Fölskvalaus gleði og fagmannleg vinnubrögð unga fólksins skilar frábærri sýningu. Þegar leikgleðin skilar sér fram í sal til áhorfenda er takmarkinu náð. Börn forseta Íslands skemmtu sér konunglega á sýningunni og það gerðu foreldrar þeirra einnig. „Mikið má þetta unga fólk vera stolt af því sem það er að gera. Við fjölskyldan skemmtum okkur konunglega og ég óska leikfélag- inu til hamingju,“ sagði Guðni Th Jóhannesson forseti að lokinni sýningu. mm Forsetahjónin og börn þeirra, leikstjóri og hópurinn sem stendur að sýningunni á Línu. Til að allir gestir sjái sem best er yngstu börnunum boðið að sitja á dýnum framan við fremsta bekk. Alveg upplagt fyrirkomulag. Þarna eru Lína, Herra Níels, Anna og Tommi í atriði inni á Sjónarhóli. Haldið til hafs á ný. Í einu af lokaatriðunum er Eiríkur Langsokkur skipstjóri og áhöfn hans mætt.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.