Skessuhorn - 19.04.2017, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 16. tbl. 20. árg. 19. apríl 2017 - kr. 750 í lausasölu
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6
-3
0
6
7
Greiðslumat á � mínútum
fyrir viðskiptavini allra banka
Nú geta allir gert fullgilt greiðslumat á arionbanki.is
og fengið nákvæma mynd af greiðslugetu sinni með
nokkrum smellum.
Kynntu þér þessa spennandi nýjung
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
Verkir í liðum?
RAFRETTUR
VÖKVAR
BRENNARAR
og annað tengt notkun
í miklu úrvali
Erum staðsett á
Vesturgötu 162,
300 Akranesi
Sími 665-0311
Opið frá kl. 11 til 18 á virkum
dögum, kl. 12 - 16 á laugard.
Einnig hægt að panta á
www.myvape.is
www.skessuhorn.is
Minnum á fríar
smáauglýsingar á
vef Skessuhorns
Slysin gera sjaldan boð á undan sér. Snörp óveðurslægð gekk yfir landið annan
dag páska. Veðurfræðingar höfðu tímanlega spáð fyrir um veðrið og af þeim
sökum var mörgum kunnugt um að varhugavert væri að vera á ferðinni eftir
hádegi þennan dag og fram á kvöld. Engum sögum fer af því hvort útlendingar
sem voru á ferð á léttbyggðum jepplingi í Grundarfirði á mánudaginn hafi verið
búnir að frétta af væntanlegu hvassviðri, en í það minnsta fauk bíll þeirra, valt
og hafnaði í fjöruborðinu við Hólalæk. Slapp fólkið við alvarleg meiðsli. Vonandi
er óhapp þetta ekki fyrirboði um aukinn fjölda slysa en vissulega hefur aldrei
verið mikilvægara en einmitt nú að auka upplýsingastreymi til gesta okkar sem
eru á ferð á öllum tímum ársins, hvernig sem viðrar. Á bakkanum við slysstað lá
ferðabók fólksins þar sem vandlega er merkt við áhugaverða staði á Íslandi. Sjá
nánar um óveðrið á mánudaginn á bls. 10. mm/ Ljósm. tfk.
Sveinn Kristinsson, formaður
Rauða kross Íslands og Borghildur
Jósúadóttir eiginkona hans komu
nýverið komin heim frá Malaví,
einu fátækasta landi heims. Í
Skessuhorni vikunnar er ítarlegt
viðtal við hjónin, meðal annars um
hjálparstarfið, ferðina til Malaví
og störf formanns RKÍ. Sjá bls.
20-21. grþ
Aflaheimildir til strandveiða á
sumri komanda verða auknar um
200 tonn frá síðasta ári og kemur
aukningin öll í hlut D svæðis, sem
nær frá Hornafirði til Borgarfjarð-
ar. Heildar aflaheimildir á svæð-
inu verða því 1.500 tonn. Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir sjávarút-
vegsráðherra gaf síðastliðinn mið-
vikudag út reglugerð um strand-
veiðitímabilið í sumar. Leyfileg-
ur heildarafli verður 9.200 tonn.
Tímabilið hefst þriðjudaginn 2.
maí og stendur til 31. ágúst. Önn-
ur ákvæði um veiðisvæði, veiði-
daga, hámarksafla á dag og fjölda
handfærarúlla eru óbreytt frá fyrra
ári, ef frá er talin áðurnefnd aukn-
ing á svæði D.
Aflaheimildir eru sem fyrr mest-
ar á svæði A, sem nær frá Eyja- og
Miklaholtshreppi til Súðavíkur-
hrepps, en 3.410 tonn koma í hlut
þess svæðis. Svæði B fær 2.086
tonn, en það nær frá Strandabyggð
til Grýtubakkahrepps og svæði C,
frá Þingeyjarsveit til Djúpavogs-
hrepps, fær 2.204 tonn.
Í tilkynningu frá atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytinu seg-
ir að heildar aflamark strandveiða
hafi verið 4.000 tonn þegar strand-
veiðar hófust árið 2009 en verði nú
9.200 tonn, sem fyrr segir. Reikna
má með því að útgefin veiðileyfi á
komandi strandveiðitímabili verði
um 700 talsins.
kgk
Heimsóttu Malaví -
eitt fátækasta ríki heims
Strandveiðikvóti
aukinn um 200 tonn
Davíð Óli Axelsson sjómaður í Snæ-
fellsbæ, sem réri á Krístínu Hálfdánar
ÍS á einni strandvertíðinni.
Ljósm. úr safni: Alfons Finnsson.
Rauði krossinn býður
mæðrum upp á að fylgst sé
með heilsu barna þeirra,
þau eru vigtuð og mæld og
það er skráð niður.