Skessuhorn - 19.04.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 20172
Magnús Oddsson, fyrrum bæj-
arstjóri á Akranesi og rafveitu-
stjóri Rafveitu Akraness, lést á
Landspítalanum þriðjudaginn 11.
apríl síðastliðinn. Magnús fædd-
ist 17. nóvember 1935 og ólst
upp í Reykjavík. Hann var tækni-
fræðingur að mennt og fluttist á
Akranes árið 1968 til að taka við
starfi rafveitustjóra Rafveitu Akra-
ness. Gegndi hann því starfi þar
til haustið 1974, en var þá ráðinn
bæjarstjóri. Hann var bæjarstjóri á
Akranesi til haustsins 1982, en lét
þá af störfum og tók aftur við starfi
rafveitustjóra og gegndi því til árs-
ins 1995. Við sameiningu orkufyr-
irtækja í ársbyrjun 1996 tók hann
við starfi veitustjóra Akranesveitu
og gegndi því til aldamótaársins
2000. Á sama tíma var Magnús
framkvæmdastjóri Hitaveitu Akra-
ness og Borgarfjarðar og Anda-
kílsvirkjunar. Þá var hann einnig
stjórnarmaður í Lífeyrissjóði Akra-
neskaupstaðar.
Sem bæjarstjóri og rafveitustjóri
leiddi Magnús og kom að mörgum
framfaramálum fyrir Akranesbæ.
Má þar nefna uppbyggingu rafveit-
unnar, byggingu íþróttahússins við
Vesturgötu, stofnun og uppbygg-
ingu Fjölbrautaskóla Vesturlands,
fyrsta áfanga Grundaskóla, upp-
byggingu Akraneshafnar og fyrsta
áfanga dvalar- og hjúkrunarheim-
ilisins Höfða. Hann kom að stofn-
un Hitaveitu Akraness og Borgar-
fjarðar og síðar að rekstri veitunn-
ar sem framkvæmdastjóri. Sömu-
leiðis kom hann að fyrstu skrefum
í uppbyggingu á Grundartanga,
átaki í gatnagerð með nýlagningu
gatna og lagningu bundins slitlags
á eldri götur bæjarins. Enn fremur
var hann veitustjóri Akranesveitu
á sínum tíma og gegndi jafnframt
framkvæmdastjórastöðu HAB og
Andakílsvirkjunar á miklum um-
brotatímum í orkumálum á starfs-
svæðinu.
Magnús var virkur í starfi íþrótta-
hreyfingarinnar, bæði á Akranesi
og á landsvísu. Hann sat í stjórn
Íþróttabandalags Akraness frá
1983 til 1992, þar af sem formað-
ur frá 1984 og var meðal annarra
í forystu um byggingu íþróttahúss
að Jaðarsbökkum. Hann var vara-
forseti Íþróttasambands Íslands frá
1992 til 1997 og heiðursfélagi bæði
ÍA og ÍSÍ.
Eftirlifandi eiginkona Magn-
úsar er Svandís Pétursdóttir, fyrr-
um sérkennari á Akranesi. Sonur
þeirra er Pétur Magnússon, for-
stjóri Hrafnistu.
„Akraneskaupstaður þakkar
Magnúsi Oddssyni fyrir ómetan-
legt starf í þágu Akraneskaupstaðar
og íþrótta á Akranesi og sendir eig-
inkonu og syni og öðrum aðstand-
endum innilegar samúðarkveðjur,“
segir í tilkynningu á vef Akranes-
kaupstaðar.
kgk
And lát:
Magnús Oddsson fv. rafveitustjóri og bæjarstjóri
Jæja, kæru lesendur, sumardagurinn fyrsti
er á morgun og sumarið því um það bil
gengið í garð. Sumarglaðir lesendur eru
hins vegar hvattir til að lesa veðurspána
hér að neðan áður en þeir skunda létt-
klæddir um útidyrnar í von um að sólin
muni sleikja þá frá fyrstu sumarsekúndu
ársins. Að sinni er nefnilega ekkert sumar í
kortunum, aðeins á almanakinu.
Á morgun, sumardaginn fyrsta, er spáð
vestlægri átt, 8-15 m/s og og éljum, norð-
lægari nyrst en léttskýjað austan til. Hiti
0 til 5 stig, en sums staðar vægt frost um
landið norðanvert. Hæg vestlæg eða
breytileg átt á föstudag, skýjað með köfl-
um og lítilsháttar él við norður- og vestur-
strönd landsins. Hiti breytist lítið. Á laugar-
dag er útlit fyrir suðlæga átt með slyddu
eða rigningu á Suður- og Vesturlandi þeg-
ar líður á daginn. Minni úrkoma á Norð-
austurlandi en dálítil slydda eða snjókoma
með kvöldinu. Hiti 0 til 7 stig. Á sunnudag
spáir vestlægri átt og rigningu í fyrstu en
snýst í norðanátt með éljum seinni part
dags. Veður fer kólnandi. Ákveðin norðlæg
átt með éljum og á mánudag en úrkomu-
lítið sunnan heiða. Frost.
„Lestu málshættina sem fylgja páskaeggj-
um“ var spurningin sem borin var upp á
vef Skessuhorns í liðinni viku. Yfirgnæf-
andi meirihluti, eða 84% sögðu „Já, und-
antekningalaust“ en næstflestir, 7%, sögð-
ust ekki fá sér páskaegg. Aðrir svarmögu-
leikar fengu innan við 5% atkvæða. Fékk
einhver þennan? „Með munnfylli málshátt
við muldrum“.
Í næstu viku er spurt:
„Ætlar þú að ferðast í sumar?“
Hjónin Sveinn Kristinsson, formaður
Rauða kross Íslands og Borghildur Jósúa-
dóttir kennari á Akranesi, komu nýver-
ið komin heim frá Malaví, einu fátækasta
landi heims þar sem þau unnu að hjálpar-
starfi. Þau eru Vestlendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Kynningar-
fundur um
strandhreinsi-
verkefni
SNÆFELLSNES: Í Átt-
hagastofu Snæfellsbæj-
ar verður í dag klukkan 15
haldinn kynningarfund-
ur um væntanlegt strand-
hreinsiverkefni á Snæfells-
nesi. „Snæfellsnes hef-
ur verið valið sem fyrsta
íslenska svæðið fyrir sam-
norræna strandhreinsi-
verkefnið Nordic Costal
Cleanup 2017. Verkefnið
er í undirbúningi en þann
6. maí munu sjálfboðaliðar
ganga fyrirfram ákveðnar
strandlengjur og tína rusl.
Allt rusl verður flokkað og
sent í endurvinnslu,“ segir
í tilkynningu um verkefnið
og fundinn í dag. Sam-
bærilegir fundir hafa verið
haldnir víðar um Snæfells-
nes.
-mm
Þorskstofninn
mælist í góðu
ástandi
MIÐIN: „Stofnvísitölur
þorsks, gullkarfa og löngu
mældust háar miðað við
síðustu þrjá áratugi. Vísi-
tala ýsu er nú nálægt með-
altali tímabilsins, en vísi-
tölur steinbíts eru lágar.
Helstu markmið verkefn-
isins eru að fylgjast með
breytingum á stærð, út-
breiðslu og líffræðilegu
ástandi botnlægra fiski-
stofna og hitastigi sjávar á
landgrunninu,“ segir í nið-
urstöðu stofnfiskmælinga
botnfisktekunda sem Haf-
rannsóknastofnun kynnti
í gær. Niðurstöður stofn-
mælingar í mars eru mik-
ilvægur þáttur árlegrar út-
tektar Hafrannsóknastofn-
unar á ástandi nytjastofna
við landið. Mat á stofn-
stærð helstu tegunda botn-
fiska og tillögur Hafrann-
sóknastofnunar um afla-
mark fyrir næsta fiskveiðiár
verða kynntar í júní. Stofn-
mæling botnfiska á Ís-
landsmiðum (marsrall) fór
fram í 33. sinn dagana 25.
febrúar til 18. mars. Fjög-
ur skip tóku þátt í verk-
efninu; rannsóknaskipin
Árni Friðriksson og Bjarni
Sæmundsson og togararnir
Barði NK og Ljósafell SU.
Togað var með botnvörpu
á tæplega 600 stöðvum allt
í kringum landið.
-mm
STYÐJUM
FRAMLEIÐSLU Á
VESTURLANDI
OPIÐ DAGLEGA
12-17
Ljómalind Sveitamarkaður, Brúartorgi 4, Borgarnesi.
Sími 437-1400. Netfang: ljomalind@ljomalind.is
Endurbætur á veiðihúsunum við
laxveiðiárnar Norðurá og Þverá í
Borgarfirði eru nú vel á veg komnar.
Bygging veiðihúsa við Norðurá og Þverá á áætlun
Framkvæmdir hafa staðið yfir í allan
vetur á báðum stöðum en þær hófust
í lok veiðitímabilsins síðasta haust.
Verður aðstaðan í húsunum eins og
best verður á kosið í laxveiðiám hér
á landi. Stefnt er á að taka bæði hús-
in í notkun við opnun ánna í byrjun
júní í sumar.
Að sögn Guðrúnar Sigurjóns-
dóttur, formanns Veiðifélags Norð-
urár, hafa framkvæmdir við veiði-
hús félagsins á Rjúpnaási í Stafholt-
stungum gengið vel. „Við erum að
stórum hluta að taka nýja bygg-
ingu í notkun. Gamla gistiálman í
veiðihúsinu var rifin sem og vöðlu-
geymsla og sauna í kjallara. Í stað-
inn hefur verið reist nýbygging með
fjórtán tveggja manna svefnher-
bergjum, en í hverju þeirra er bað-
herbergi,“ segir Guðrún.
„Í húsinu verður einnig móttöku-
salur gesta, starfsmannaaðstaða,
móttökueldhús, aðstaða til þvotta,
vöðlugeymsla og saunaklefi. Þá hafa
verið gerðar endurbætur á setustofu
sem tengir á milli svefnálmu og
matsalar,“ bætir hún við og segir að
framundan sé vinna við innréttingar
í húsinu. Það er byggingafyrirtæk-
ið Eiríkur J. Ingólfsson ehf. í Borg-
arnesi sem hefur yfirumsjón með
framkvæmdum.
Tvö herbergi á stöng
Í samtali við Skessuhorn sagði Magn-
ús Skúlason, formaður Veiðifélags
Þverár, að framkvæmdir í veiðihúsi
félagsins við Helgavatnsmúla gangi
vel og séu á áætlun. „Hér er verið
að bæta 250 fermetrum við núver-
andi húsnæði. Annars vegar er verið
að smíða svefnálmu með sex 20 fer-
metra, rúmgóðum herbergjum með
baði og hins vegar að stækka setu-
stofuna. Eftir viðbótina verða fjór-
tán herbergi í veiðihúsinu eða tvö
herbergi á stöng því aðeins er veitt á
sjö stangir í hverju veiðiholli,“ segir
Magnús sem segir veiðifélagsmenn
ánægða með gang mála. Yfirverk-
taki í framkvæmdunum við Þverá
er Hlynur Kárason byggingameist-
ari en undirverktakar í héraði taka
einnig þátt í bygggingunni.
hlh
Veiðihús Veiðifélags Þverár við Helgavatnsmúla. Ljósm. Magnús Skúlason. Nýbygging veiðihúss Veiðifélags Norðurár á Rjúpnaási. Myndin sýnir framhlið
nýrrar svefnálmu og gestamóttöku. Ljósm. Arnlaugur Guðmundsson.
Slökkvilið Dalabyggðar var kall-
að út vegna sinuelds við Ketils-
staði í Hvammssveit um klukkan 14
síðastliðinn föstudag, hinn langa.
Skessuhorn náði tali af Jóhannesi
Hauki Haukssyni slökkviliðsstjóra
rétt fyrir kl. 16:00 sama dag. Þá var
nánast búið að ráða niðurlögum
eldsins og verið að slökkva í síðustu
glæðunum. Hann sagði slökkvi-
listarfið allt hafa gengið mjög vel.
„Slökkvistarfið gekk vonum framar
og öll hús sluppu. Miðað við hvass-
viðri og erfiðar aðstæður þá gekk
þetta ótrúlega vel. Við komum
froðukerfinu á og gátum greiðlega
slökkt eldinn,“ sagði hann en bætti
því við að svæðið yrði vaktað. „Það
eina sem við erum hræddir við þeg-
ar er svona hvasst er að sinueldur-
inn rjúki upp að nýju. Við munum
því vakta svæðið eitthvað áfram,“
sagði slökkviliðsstjórinn í samtali
við Skessuhorn á föstudaginn.
kgk
Sinueldur í Hvammssveit
Sinueldurinn við Ketilsstaði, séð yfir Hvammsfjörðinn frá Búðardal. Ljósm. sm.