Skessuhorn - 19.04.2017, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 20174
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Heiðar Lind Hansson hlh@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is
Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Borgarvandinn
Við sem komin erum um og yfir miðjan aldur munum glöggt umræðuna
um byggðaflóttann sem hófst á síðari hluta liðinnar aldar. Hinn svokallaði
byggðavandi átti sér margar orsakir. Þegar halla tók undan í atvinnulífi á
landsbyggðinni, meðal annars vegna framsals veiðiheimilda milli hreppa,
lögðust heilu sjávarþorpin í dróma. Ekki ósvipað gerðist svo í sveitum þeg-
ar ekki var lengur rými fyrir alla bændasyni og -dætur til að taka við búi
foreldra sinna. Sjálfvirkni, hagræðingarkrafa og breytt neyslumynstur al-
mennings sá til þess. Fólk tók að flykkjast á höfuðborgarsvæðið og þjón-
ustustörfum þar fjölgaði. Smám saman hefur svo höfuðborgarsvæðið orðið
að miðlægu svæði allrar stjórnsýslu í landinu og þar er nú að vaxa úr grasi
þriðja og jafnvel fjórða kynslóð fólks sem ekki getur með góðum vilja rak-
ið ættir sínar til hærra póstnúmers en 270. Þegar þessi skilgreindi byggða-
vandi hófs voru stjórnmálaflokkar, sem þá voru að stórum hluta mannaðir
fólki af landsbyggðinni, meira að segja með sérstakar byggðanefndir sem
ræddu fram og aftur um vandann, án þess að tækist að greina hann, hvað
þá leysa. Vissulega er Reykjavík öflug höfuðborg og á að vera það sem slík,
en það tók að dofna óþarflega mikið yfir landsbyggðinni og lífið í landinu
varð einhvern veginn einsleitara og leiðinlegra. Byggðavandinn var stað-
reynd.
Jöfn þróun í byggð landsins er þjóðhagslega mikilvæg og forsenda þess
að auðlindir séu nýttar með skynsamlegum hætti. Það þarf einhvern til að
virkja og nýta jarðvarmann, yrkja landið, veiða fiskinn og leggja vegi til að
hægt sé að komast um. Það eru nefnilega gæði auðlinda sem leggja grunn
að auðlegð hverrar þjóðar. Það er svo allt önnur saga hvort afrakstri þess-
ara auðlinda er réttlátlega skipt. Þegar byggðavandinn var öllum orðinn
ljós var farið að reyna að greina ástæður flóttans og hefja aðgerðir sem
treyst gætu afkomu fólks úti á landsbyggðinni. Menn fóru til dæmis að
efla framhaldsskóla og jafnvel var viðurkennt að háskólar gætu einnig átt
heima utan Vatnsmýrar. Þá var markvisst farið að efla sveitarstjórnarstigið
og færa því aukin verkefni. Þannig mætti á ný fjölga störfum á landsbyggð-
inni. Hins vegar láðist að setja skorður á hversu fámenn sveitarfélög mættu
vera til að standa undir auknum skyldum. Hefur það ekki enn verið gert
enda fullt af vandamálum tengd smæð þeirra og vanmætti.
En fátt er svo með öllu illt. Þegar ein atvinnugrein bregst, tekur önnur
við. Að öðrum kosti værum við að tala um flótta frá landinu eins og Fær-
eyingar fengu að kynnast í upphafi tíunda áratugarins. Nú eru það ferða-
mennirnir sem koma landsbyggðinni til hjálpar bæði beint og óbeint. Þar
sem ekki hefur tekist að byggja yfir þá sem vilja búa á höfuðborgarsvæðinu
og túristar fá að leigja ríflega allar þær íbúðir sem byggðar eru, er unga
fólkinu „nauðugur“ sá kostur að yfirgefa höfuðborgarsvæðið og flytja út á
land. Nú er hringnum því að verða lokað. Þróunin sem hófst fyrir þremur
eða fjórum áratugum er að snúast við. Smám saman er allt íbúðarhúsnæði á
landsbyggðinni að fyllast af ungu brosandi fólki sem er mest undrandi yfir
að enginn hafi sagt þeim fyrr hvað frábært væri að búa á landsbyggðinni.
Þangað streymir nú kraftmikið fólk sem hefur ekki í nein hús að venda á
höfuðborgarsvæðinu. Þetta fólk tekur ýmist með sér störf, skapar ný eða
sækir vinnu fjarri heimilum af því samgöngur leyfa það. Líkt og stjórn-
málaflokkarnir fyrir þrjátíu árum skipuðu nefndir til að fjalla um byggða-
vandann má nú fastlega gera ráð fyrir að sömu flokkar, sem að stærstum
hluta nú eru mannaðir fólki af höfuðborgarsvæðinu, stofni nefndir sem
taka eiga á borgarvandanum! Svona geta hlutirnir breyst. Allt leitar nefni-
lega jafnvægis og nú er það laust íbúðarhúsnæði, gæði skipulagsmála og
heilbrigði samfélaga sem ræður því hvort íbúum þar fjölgar eða ekki.
Magnús Magnússon.
Leiðari
Hagdeild Alþýðusambands Íslands
spáir áframhaldandi kröftugum
hagvexti á þessu ári og að uppsveifl-
an sé í hámarki. „Ákveðin hættu-
merki eru til staðar og óvissa hef-
ur aukist frá síðustu spá hagdeild-
ar m.a. vegna þeirra aðstæðna sem
hafa myndast á húsnæðismarkaði og
mögulegra áhrifa úrskurðar kjara-
ráðs. Ennfremur eru efnahags- og
verðlagshorfur háðar þróun ferða-
þjónustunnar í meira mæli en áður.
Spáin gerir ráð fyrir auknum fjölda
ferðamanna þó hægja muni á vext-
inum en sú forsenda ræður miklu
um þróunina framundan,“ segir í
niðurstöðum spár ASÍ.
„Við spáum kröftugum vexti
þjóðarútgjalda á þessu ári þar sem
einkaneysla eykst um 7,2% og fjár-
munamyndun um 13,5%. Vöxtur
einkaneyslunnar skýrist af auknum
kaupmætti og traustari fjárhags-
stöðu heimilanna sem hafa nýtt
svigrúmið til að greiða niður skuld-
ir, endurnýja varanlegar neysluvör-
ur og bíla og ferðast erlendis. Það
hægir á fjárfestingu atvinnuveg-
anna en aukin íbúðafjárfesting og
opinber fjárfesting styðja við fjár-
festingastigið á spátímanum.
Við væntum styrkingar krón-
unnar yfir spátímabilið og að verð-
bólga verði 1,9% á þessu ári. Hæg-
ari styrking krónunnar síðari hluta
spátímans eykur verðbólguþrýsting
og að óbreyttu verður verðbólga
um 2,4% á næsta ári og 2,6% árið
2019. Styrking krónunnar þrengir
að útflutningsgreinum og við telj-
um brýnt að áhrif styrkingar krón-
unnar á samkeppnisstöðu annarra
atvinnugreina verði metin.“
Þá segir að viðvörunarbjöllur séu
farnar að hringja á húsnæðismark-
aði en viðvarandi skortur á húsnæði
hefur leitt til þess að sölutími eigna
hefur sjaldan verið skemmri og æ
fleiri dæmi heyrast um að kaupend-
ur bjóði upp verð fasteigna sökum
skorts eða væntinga um framtíðar-
hækkun fasteignaverðs. „Aðstæð-
ur sem þessar geta hæglega leitt
til þess að verð vaxi umfram það
sem hefðbundnir ákvörðunarþætt-
ir gefa tilefni til og því full ástæða
til viðbragða að hálfu stjórnvalda.
ASÍ telur mikilvægt að bregðast
við á leigumarkaði þar sem of stór
hluti fólks býr við ótryggt húsnæði
og íþyngjandi húsnæðiskostnað.
Tryggja þarf ungu fólki og tekju-
lágu öruggt leiguhúsnæði og gera
leiguhúsnæði að raunverulegum
valkosti í búsetu. Til þess er brýnt
að hraða uppbyggingu leiguíbúða
í nýja almenna íbúðakerfinu enn
frekar og fjölga íbúðum um a.m.k.
1.000 á ári næstu árin í stað þeirra
600 sem nú eru áformuð á ári fram
til ársins 2019.“
Loks segir að aðstæður á vinnu-
markaði séu ekki ólíkar þeim sem
uppi voru á toppi síðustu hag-
sveiflu, þó samsetning starfa og
atvinnugreina hafi breyst með til-
komu ferðaþjónustunnar. „Þeirri
sviðsmynd sem birtist í spá ASÍ
fylgir aukin eftirspurn eftir starfs-
fólki og ljóst er að mannvirkjagerð
og ferðaþjónusta munu áfram þurfa
að reiða sig á erlenda starfsmenn til
að geta vaxið. Við höfum þó áhyggj-
ur af stöðu erlendra starfsmanna en
vísbendingar eru um að töluverður
fjöldi óskráðra starfsmanna starfi
hér á landi.“ mm
ASÍ segir hagvöxt í hámarki og spáir
áfram háu gengi krónunnar
Ársreikningur Snæfellsbæjar fyr-
ir árið 2016 var tekinn til fyrri um-
ræðu á fundi bæjarstjórnar 5. apríl
síðastliðinn. Endurskoðendur
sveitarfélagsins sátu fundinn und-
ir þeim lið og fóru yfir helstu tölur
ársreikningsins. Kom meðal annars
fram að rekststrarniðurstaða Snæ-
fellsbæjar var töluvert betri en áætl-
un gerði ráð fyrir, eða 217,9 millj-
ónir fyrir A og B hluta.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins
fyrir A og B hluta námu um 2.268
milljónum króna á árinu 2016, en
gert hafði verið ráð fyrir 1.979,9
milljónum. Rekstrartekjur A hluta
námu 1.808 milljónum en í fjár-
hagsáætlun var gert ráð fyrir um
1.569 milljóna rekstrartekjum.
Rekstrarniðurstaða Snæfellsbæj-
ar fyrir samanrekinn A og B hluta
var því jákvæð um 217,9 milljónir
króna, sem fyrr segir, en gert hafði
verið ráð fyrir 44,2 milljóna króna
afgangi í fjárhagsáætlun. Niður-
staðan var því töluvert betri en
áætlað hafði verið, eða sem nemur
173,7 milljónum króna. Rekstrar-
niðurstaða A hluta var jákvæð um
149,6 milljónir en fjárhagsáætl-
un gerði ráð fyrir einnar milljónar
króna afgangi. Afkoma A hluta varð
því 148,6 milljónum króna betri en
áætlað hafði verið.
Skuldir lækka
Eigið fé sveitarfélagsins skv. efna-
hagsreikningi nam 2.970 milljón-
um króna í árslok. Þar af var eigið
fé A hluta 2.334,8 milljónir. Eigin-
fjárhlutfall er 65,92% á árinu 2016
en var 63,03% árið áður. Laun og
launatengd gjöld á árinu námu um
1.093 milljónum króna, en starfs-
mannafjöldi sveitarfélagsins var
136 stöðugildi í árslok. Veltufé frá
rekstri var 244 milljónir og veltu-
fjárhlutfall er 1,15. Handbært fé frá
rekstri var 125,7 milljónir.
Eignir bæjarsjóðs námu 3.542
milljónum í árslok 2016 og heildar-
eignir sveitarfélagsins í samantekn-
um ársreikningi um 4.620 milljón-
um. Skuldir bæjarsjóðs námu 1.207
milljónum og 1.649 milljónum í
samanteknum ársreikningi og lækk-
uðu um 84 milljónir á milli ára.
Sveitarfélagið fjárfesti fyrir 198,5
milljónir í varanlegum rekstrar-
fjármunum. Greidd voru niður lán
að fjárhæð 157,8 milljónir á árinu
2016 og engin ný lán tekin.
Skuldahlutfall Snæfellsbæjar var
61,64% hjá sjóðum A hluta, saman-
borið við 74,27% árið áður. Í sam-
anteknum ársreikningi A og B hluta
var skuldahlutfallið 64,48% en var
78,8% árið áður, en samkvæmt
sveitarstjórnarlögum má skulda-
hlutfall sveitarfélaga ekki verið
hærra en 150%. „Fjárhagsstaða
Snæfellsbæjar verður því að teljast
afar góð,“ segir í fundargerðinni.
kgk
„Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar afar góð“
Bjarnafoss í Staðarsveit í Snæfellsbæ. Ljósm. úr safni.