Skessuhorn


Skessuhorn - 19.04.2017, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 19.04.2017, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2017 5 Við leitum að jákvæðum, handlögnum og samskiptaliprum rafvirkjum í ört vaxandi hóp skemmtilegra vinnufélaga sem hjálpast að við að leggja Ljósleiðarann inn í heimahús á höfuðborgarsvæðinu, Vestur- og Suðurlandi. Þú heimsækir fólk á hverjum degi: • tekur þátt í gefandi samskiptum við þakkláta viðskiptavini • finnur bestu lagnaleiðir og tengir ljósleiðarabox • virkjar þjónustu heimila: net, sjónvarp og síma • og lýkur hverri heimsókn með bros á vör – án pappírsvinnu! Til að sinna starfinu vel þarftu að hafa framhaldsmenntun í rafiðnaði s.s. meistaranám eða iðnfræði. Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Viltu vinna með okkur? Við bjóðum þér góð laun, stöðugan vinnustað, reglulegan vinnutíma og góða starfsþjálfun fyrir fjölbreytt starf. Einnig bjóðum við stuðning við þá sem vilja ljúka sveinsprófi í rafvirkjun. Við höfum frábæra vinnuaðstöðu, gott mötuneyti og aðstöðu til líkamsræktar. Við útvegum starfsmönnum allt sem þarf: bíl á vinnutíma, fatnað, verkfæri, fartölvu, heimatengingu, farsíma og spjaldtölvu. Við skipuleggjum allar þínar heimsóknir þannig að þú getur notið þess að heimsækja viðskiptavini og aðstoðað þá við að komast á Ljósleiðarann. Þú getur sótt um starfið á ráðningasíðu okkar: starf.or.is/ljosleidarinn/. Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2017. Nánari upplýsingar veitir Bryndís Ernstsdóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@ljosleidarinn.is. Finndu okkur á Facebook.com/Ljosleidarinn Ljósleiðarinn er í eigu Gagnaveita Reykjavíkur. Við erum fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 60 starfsmenn auk ótal verktaka vinna saman að því að veita íslenskum heimilum og fyrirtækjum aðgengi að hágæða þjónustu á opnu aðgangsneti Ljósleiðarans. Hjá okkur er fagmennska og góður starfsandi í fyrirrúmi, við leitumst við að vera í fremstu röð hvað varðar jafnrétti, öryggi, vinnuumhverfi og möguleika til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð. VILTU KOMA FÓLKI Í SAMBAND VIÐ FRAMTÍÐINA� —— RAFVIRKI Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Akranes tryggði sér í síðustu viku sæti í undanúrslitum spurninga- þáttarins Útsvars, sem sýndur er á RÚV. Skagamenn lögðu Kópa- vogsbúa í æsispennandi keppni með 56 stigum gegn 53. Liðin voru jöfn lengst framan af þættinum en þeg- ar komið var að orðaleiknum náðu Skagamenn afgerandi forskoti. Þar sóttu þeir 14 stig gegn aðeins fimm stigum Kópavogsbúa. En liðsmenn Kópavogs voru hvergi af baki dottn- ir og með góðri frammistöðu í val- flokkaspurningunum tókst þeim að minnka muninn fyrir síðasta hluta keppninnar, stóru spurningarnar. Þar voru sviptingar miklar og þeg- ar aðeins átti eftir að bera upp eina spurningu leiddi Kópavogur með tveimur stigum. Skagamenn áttu hins vegar síðustu spurninguna og ákváðu að hafa hana fimm stiga. Henni svöruðu þeir rétt og tryggðu sér þriggja stiga sigur og sæti í und- anúrslitum. kgk Akranes í undanúrslit Útsvars Útsvarslið Akraness. F.v. Örn Arnarson, Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir og Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir. Ljósm. RÚV. Hnísu rak á land í fjörunni neðan við Bug fyrir innan Ólafsvík á fimmtu- dagsmorgun. Ekki voru neinir sjá- anlegir áverkar á dýrinu og því ólík- legt að hún hafi farið í veiðarfæri og drepist af þeim sökum, en það ger- ist stundum að þær festast í netum báta. Ekki er því vitað hvers vegna hnísan drapst en líklega er um full- orðið kvendýr að ræða. Mikið líf er í Breiðafirði þessa dagana, bæðir hvalir, háhyrningar og hnísur og auðvitað einnig fjöl- skrúðugt fuglalíf. þa Hnísu rak á land við Ólafsvík Starfsmenn Öldunnar í Brákarey í Borgarnesi hafa að undanförnu framleitt sérstakar sauðburðar- tuskur fyrir bændur. Um nýjung er að ræða en tuskur eru saum- aðar úr gömlum handklæðum og öðru hentugu efni sem safnast hef- ur í söfnunargáma Rauða krossins víða um land. Tuskurnar eru seldar í eins kílóa pokum ásamt tíu snær- isspottum til að nota við bindingu. Tuskupokarnir eru fáanlegir í Öld- unni og í verslun KB í Borgarnesi. hlh Sauma sauðburðartuskur Helga Björg Hannesdóttir starfs- maður Öldunnar við eina af sauð- burðatuskunum sem hún og aðrir starfsmenn hafa saumað í vetur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.