Skessuhorn - 19.04.2017, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 201710
með minniháttar áverka.
Bifreið með kerru í eftirdragi lenti
í snarpri vindhviðu undir Hafnarfjalli
skömmu fyrir hádegi. Fór kerran af
stað og dró bifreiðina með sér, sem
snérist á veginum, og fór í veg fyrir
bifreið sem ekið var í gagnstæða átt.
Lentu bifreiðarnar við þetta saman
og voru báðar óökuhæfar.
Ökumaður og fjórir farþegar hans
sluppu ótrúlega vel frá umferðar-
óhappi við Svínadal í Dölum. Fór
bifreiðin tvær veltur og gjöreyði-
lagðist. Fullyrðir lögreglan að ör-
yggisbeltin hafi bjargað fólkinu.
Var fólkið flutt með sjúkrabifreið
á Heilsugæslustöðina í Búðardal
og svo áfram til frekari skoðunar
til Reykjavíkur. Reyndust meiðsli
þeirra vera minniháttar.
Bíll fauk út af við Hólalæk, vest-
an megin við Grundarfjörð. Þar
voru á ferð tveir erlendir ferða-
menn sem áttuðu sig ekki á þeim
öflugu náttúruöflum sem myndast
í aðstæðum eins og voru í veður-
ofsanum þennan dag. Smávaxinn
jepplingur sem þeir óku fauk því
og hafnaði í flæðarmálinu. Fólkið
var flutt á slysadeild Landspítal-
ans í Reykjavík til aðhlynningar,
en ekki alvarlega slasað. Umferð-
aróhöpp eru nokkuð tíð á þessu
svæði enda öflugar vindhviður sem
myndast þarna og enginn vind-
hraðamælir á svæðinu sem varað
gæti við veðurhæðinni. Til marks
um veðurhaminn flettist malbik
af veginum rétt við slysstaðinn.
Ökumenn lentu víðar í vandræð-
um á vegum Vesturlands. Í Bervík-
inni á Snæfellsnesi þurftu nokkrir
að kalla eftir aðstoð frá Björgunar-
sveitinni Lífsbjörg.
Á Akranesi voru björgunarsveit-
armenn kallaðir til aðstoðar þeg-
ar gler af svölum fjölbýlishúss var
tekið að losna. Þá lagði trampólín
af stað í ferðalag hjá fólki sem taldi
sumarið vera komið.
mm/kgk
Stykkishólmsbær
Hafnargötu 3
340 Stykkishólmur
Sími: 433-8100
netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is
KT.: 620269-7009
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Laust starf forstöðumanns
íþróttamannvirkja
Stykkishólmsbær auglýsir laust til umsóknar starf for-
stöðumanns íþróttamannvirkja í 100% starfshlutfalli.
Í starfinu felst m.a. umsjón, eftirlit og rekstur allra íþrótta-
mannvirkja Stykkishólmsbæjar, þar með talin ábyrgð á
viðhaldi og þrifum, áætlanagerð og starfsmannahaldi.
Forstöðumaður gegnir ekki daglegri vaktskyldu.
Góð menntun sem nýtist í starfi, sem og reynsla
af mannaforræði og rekstri. Hreint sakavottorð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Sambands ísl. sveitarfélaga og SDS.
Umsóknarfrestur er til 28. apríl 2017.
Umsóknum skal skilað til Sturlu Böðvarssonar
bæjarstjóra, Hafnargötu 3, eða á netfangið
sturla@stykkisholmur.is. Nánari upplýsingar um starfið
veitir Sturla eða Ríkharður Hrafnkelsson -
rikki@stykkisholmur.is eða í síma 433-8100.
Töluvert hvassviðri gekk yfir vest-
an- og sunnanvert landið á annan
páskadag. Veðurfræðingar reynd-
ust sannspáir um hvað í vændum var
og því voru sendar út tilkynningar
og fréttir í fjölmiðla. Af þeim sök-
um var drjúgur hluti hefðbundinnar
annars páskadagsumferðar á sunnu-
dagskvöldið og fram á nóttina. Engu
að síður voru fjölmargir sem létu að-
varanir um færð og veður sem vind
um eyru þjóta. Nokkur óhöpp urðu
því í umferðinni hér á Vesturlandi
en auk þess smávægilegt foktjón á
nokkrum stöðum.
Óveðrið byrjaði á mánudags-
morgun með snjókomu á Snæfells-
nesi og sunnanverðum Vestfjörðum.
Versnaði veðrið eftir því sem leið á
daginn og náði hámarki um kvöld-
mat. Eftir það tók að lægja og um
níu leytið var veðrið víðast hvar
gengið niður.
Fimm umferðaróhöpp urðu í
umdæmi Lögreglunnar á Vestur-
landi í síðustu viku og má rekja þrjú
þeirra til veðursins á mánudaginn.
Ökumaður bifreiðar sem átti leið
um Snæfellsnes óskaði eftir aðstoð
þar sem hann hafði verið á ferð með
hjólhýsi sitt. Er lögreglumenn komu
á vettvang sáu þeir að hús hjólhýsis-
ins hafði fokið af og kerran og bif-
reiðin sem dró það stóðu ein eftir.
Ökumaður, sem var á leiðinni til
Ólafsvíkur, missti stjórn á bifreið
sinni er sterk vindhviða skall á bif-
reiðinni. Fór bifreiðin yfir brúar-
handrið og hafnaði ofan í litlum læk.
Ökumaður og farþegi hans sluppu
Bálhvasst í lok vetrar
Jepplingur fauk út af veginum, valt og hafnaði í fjöruborðinu við Hólalæk, vestan megin í Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Malbik flettist af kafla á veginum við Hólalæk í Grundar-
firði. Ljósm. tfk.
Kerra á hliðinni á veginum við Hafnarfjall skömmu fyrir
hádegi á mánudaginn. Bíllinn sem hana dró lenti á öðrum
sem kom úr gagnstæðri átt. Báða bílana þurfti að fjarlægja
með dráttarbíl. Ljósm. þa.
Minniháttar skemmdir urðu á saltskemmu Saltkaupa í
Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Hvassviðri var víða um norðanvert Snæfellsnes. Þessi mynd
er frá Ólafsvík. Ljósm. þa.