Skessuhorn - 19.04.2017, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2017 13
Freisting vikunnar
Í kjölfar páskahátíðarinnar og allra
þeirra veisluhalda sem henni fylgja,
þykir mörgum gott að skipta yfir í
léttari mat. Fiskur, kjúklingur og
salat er á borðum margra eftir að
hverri stórsteikinni af fætur annari
lýkur og öllu súkkulaðinu hefur
verið rennt niður. Fiskur er góm-
sætur og léttur í maga og því er vel
við hæfi að birta uppskrift af góð-
um fiskrétti.
Fiskur í karrýsósu
3 - 4 lítil ýsu- eða þorskflök. Roðflett
og beinlaus.
1 bréf kúskús (til dæmis með svepp-
um og hvítlauk)
1 rauð paprika, skorin í bita
½ - 1 bakki sveppir
Ólífur eftir smekk
1 dós ananas ásamt safa úr einni dós
(lítilli)
1 - 2 msk. majones
1 - 2 msk. karrý
Smá hveiti, salt og pipar
Rifinn ostur
Byrjað er á því að sjóða kús-
kúsið og setja það í botn á eld-
föstu formi. Salti, pipar og hveiti
blandað saman í skál. Fiskurinn
er skorinn í þrjá hluta, velt upp
úr hveitiblöndunni og því næst
steiktur upp úr olíu á pönnu.
Fiskbitunum er síðan raðað yfir
couscousið og papriku, sveppum,
ólífum og ananasbitum stráð yfir.
Sýrðum rjóma, majonesi, ananas-
safa og karrýi er hrært saman og
hellt yfir. Að lokum er rifnum osti
stráð yfir allt saman. Bakað í ofni
við 200 gráður, þar til osturinn er
farinn að brúnast.
grþ/ Ljósm. www.katabakar.com.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Reykhólahreppur auglýsir stöðu skólastjóra
Reykhólaskóla lausa til umsóknar.
Reykhólaskóli er sameinaður leik- og grunnskóli undir einu þaki
og er ætlunin að við hann bætist tónlistardeild næsta haust. Í
skólanum eru um 60 nemendur. Skólastjóri stýrir og ber ábyrgð
á rekstri skólans og daglegri starfsemi, hann veitir skólanum
faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi og leiðir
samstarf nemenda, starfsmanna, heimila og skólasamfélagsins
í heild.
Reykhólaskóli auglýsir eftir grunnskólakennurum
og tónlistakennara til starfa.
Einkunnarorð Reykhólaskóla er „Vilji er vegur“. Reykhólaskóli er
þátttakandi í Grænfánaverkefninu. Um er að ræða 100% starf í
almennri kennslu, allt að 100% starf í almennri tónlistakennslu
og 50% starf í verkgreinum.
Mötuneyti Reykhólahrepps auglýsir eftiraðstoðar-
matráði til starfa í allt að 100% starf.
Mötuneyti Reykhólahrepps er mötuneyti Reykhólaskóla og
Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Barmahlíðar.
Frekir upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur vegna ofan-
greindra starfa er að finna á vef sveitarfélagsins www.reykholar.is
Staða skólastjóra við Reykhólaskóla
laus til umsóknar
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
1253. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í
bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 25. apríl
kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir
til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að
hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkurinn í Stúkuhúsinu, laugardaginn •
22. apríl kl. 10.30.
Björt framtíð að Smáraflöt 1, mánudaginn 24. apríl kl. 20.00.•
Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18,•
laugardaginn 22. apríl kl. 11.00.
Frjálsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, •
kjallara,gengið inn frá palli, mánudaginn 24. apríl kl. 20.00.
Bæjarstjórnarfundur
Námið er sérsniðið að íslenskri ferðaþjónustu með
sterkri tengingu við leiðandi fyrirtæki í greininni. Áhersla
er lögð á stjórnun ferðaþjónustu í víðu samhengi, allt
frá stærri hótelum og veitingastöðum til móttöku gesta í
þjónustumiðstöðum og umsjón ferða um hálendið.
Hólaskóli -
Háskólinn á Hólum
Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur
Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is
w
w
w
.h
ol
ar
.is BA í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta
Ferðaþjónusta er skemmtilegt og síbreytilegt fag þar sem starfsfólk tekst á við flókin verkefni alla daga.
Ný námsleið
Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, skólastjóri
Reykhólaskóla, hefur sagt starfi sínu
lausu og hættir 1. ágúst næstkom-
andi. Hún hefur gegnt starfinu und-
anfarin þrjú og hálft ár, eða frá því
hún tók fyrst við sem staðgeng-
ill skólastjóra í nóvember 2013. Þá
hafði hún starfað sem kennari við
Reykhólaskóla í áratug, síðan 2003.
Ásta kveðst aldrei hafa ætlað sér að
sitja lengi í skólastjórastólnum.
„Ég ætlaði mér ekki að vera lengi
skólastjóri en er mjög sátt við mína
skólastjóratíð. Ég hef náð þeim
markmiðum sem ég ætlaði mér í
þessu starfi og nú er kominn tími
til að hleypa öðrum að,“ segir Ásta
og nefnir í því samhengi aukið sam-
starf leik- og grunnskóla, tölvu- og
tæknivæðingu skólans og endur-
menntun starfsfólks.
Eftir að Ásta lætur af störfum sem
skólastjóri mun hún áfram starfa inn-
an veggja Reykhólaskóla. „Ég verð
flutt til í starfi og fer í kennslu,“ seg-
ir hún ánægð. „Ég hlakka rosalega
til að fara að kenna aftur. Kennsla
er það sem ég vil gera,“ segir Ásta
Sjöfn Kristjánsdóttir að lokum.
kgk
Ásta Sjöfn hættir sem skólastjóri
Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, fráfarandi skólastjóri Reykhólaskóla. Ljósm. úr safni.
Samhliða vaxandi fjölda ferðamanna
verður sífellt mikilvægara að afþrey-
ing byggist upp og aðgengi að nátt-
úruundrum batni. Einn af þeim
stöðum sem eru að slá í gegn um
þessar mundir er Víðgelmir í Hall-
mundarhrauni í Borgarfirði. Að-
gengi að hellinum var stórbætt á síð-
asta ári og kunna ferðamenn vel að
meta það. mm
Víðgelmir
kærkomin
viðbót
Hæfniskröfur:
• Frumkvæði, áhugi og þjónustulund
• Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
• Geta til að vinna sjálfstætt
• Góð samskiptahæfni
• Góð íslenskukunnátta
Almennir starfsmenn
Óskum eftir að ráða starfsmenn í vaktavinnu á 15 rúma deild á sjúkrahús HVE
Akranesi í a.m.k. eitt ár frá 15. maí. Deildin er fyrir einstaklinga sem eru að bíða
eftir að komast á hjúkrunarheimili. Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf
sem felst í almennum störfum, ræstingu og að aðstoða einstaklinga við athafnir
daglegs lífs. Starfshlutfall er 60-100%, vinna þarf aðra hvora helgi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningum VLFA og HVE
Umsóknarfrestur er til 28. apríl 2017
Nánari upplýsingar gefur Rósa Marinósdóttir, framkvæmdastjóra hjúkrunar
og rekstrar, netfang: rosa.marinosdottir@hve.is
Umsóknir sendist á netfangið: rosa.marinosdottir@hve.is
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá.
Umsóknareyðublöð er að finna á http://www.hve.is/islenska/hve/laus-storf/
Öllum umsóknum verður svarað.
Ofnbakaður fiskur í karrýi