Skessuhorn - 19.04.2017, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 201722
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar
voru lesnir víða um land á föstudaginn
langa. Eins og ítarlega var greint frá í
síðasta Skessuhorni lásu leikararnir
Steinunn Jóhannesdóttir og Sigurður
Karlsson í Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Frábær mæting var í kirkjuna af þessu
tilefni og var þétt setið á bekkjum
hennar framan af degi og síðan aftur
undir lok lestursins um kvöldmatar-
leytið. Steinunn kvaðst í samtali við
Skessuhorn vera afar ánægð með við-
tökur og mætingu gesta.
Í Ólafsvíkurkirkju var lestur Pass-
íusálmanna í höndum félaga í Kirkju-
kór Ólafsvíkur, Kvenfélags Ólafsvík-
ur, Rotarýklúbbs Ólafsvíkur, Félags
eldri borgara í Snæfellsbæ, Lions-
klúbbs Ólafsvíkur, Lionsklúbbsins
Ránar, Ungmennafélagsins Víkings
og Soroptimistaklúbbsins. Kaffiveit-
ingar voru í safnaðarheimilinu. Lestur
Passíusálmanna tók rúma fjóra tíma.
Alls voru 26 sem lásu og Lena spilaði
á orgelið á milli lestra. Var dagskráin
hluti af afmælishaldi Ólafsvíkurkirkju
í tilefni 50 ára afmælis hennar síðar á
þessu ári. Var þetta í fyrsta sinn í 13
ár sem Passíusálmarnir voru lesnir í
heild sinni. Tókst framkvæmdin vel
og margir sem komu og hlustuðu,
ýmist tímunum saman eða styttra.
mm/þa
Þriðjudaginn 25. apríl kl. 20:30 flytur
Simon Halink doktorsnemi í sagn-
fræði fyrirlesturinn „Er það Mímir
við sinn brunn?“ Snorri Sturluson
þjóðardýrlingur Norðurlanda.
Á þessu ári eru nákvæmlega sjö-
tíu ár liðin frá því að Snorrahátíð-
in 1947 var haldin í Reykholti. Á
sólríkum degi í júlímánuði sama
ár, myndaðist umferðaröngþveiti í
Borgarfirði og mannfjöldinn varð
meiri en áður hafði þekkst í hér-
aðinu. Talið er að um fimmtán þús-
und Íslendingar, eða um tíu prósent
þjóðarinnar, hafi flykkst í Reykholt
til að vera vitni að atburðum þessa
sögulegu dags. Fánar voru dregnir
að húni, fluttir þjóðsöngvar Íslands
og Noregs , og styttan fræga eftir
Gustav Vigeland, sem „Norðmenn
reistu“, var afhjúpuð. Norskir og ís-
lenskir forystu- og aðalsmenn voru
komnir saman til heiðurs mannin-
um, sem fræðimaðurinn Tim Mac-
han kallaði nýlega svo mikilvægan,
„að við hefðum þurft að skapa hann
ef hans hefði ekki notið við“.
Engu að síður hefur Snorri ekki
alltaf verið þjóðardýrlingur Norð-
urlanda, og minning hans ekki ver-
ið óumdeild. Í hátíðarræðu sinni gaf
Jónas frá Hriflu til kynna, að bæk-
ur Snorra hefðu ekki vakið „sérlega
eftirtekt, fyrr en höfundurinn hafði
hvílt öldum saman í gröf sinni.“
Meginspurning fyrirlestrarins er því
sú: Hvað gerðist? Hvaða sögulegu
aðstæður hafa valdið því að Snorri
gleymdist ekki alveg, og að hann
gegnir enn í dag mikilvægu hlut-
verki í menningarlífi Íslands, Nor-
egs og Danmerkur? Hvernig varð
hann þjóðardýrlingur tveggja, eða
jafnvel þriggja þjóða?
Fyrirlesari mun gera grein fyrir
jarðnesku framhaldslífi skáldsins í
Skandinavíu, frá því um 1800 fram
til dagsins í dag. Markmið fyrir-
lestrarins er að útskýra feril Snorra
eftir dauða hans, og hvernig hann
varð eins konar ‘Homer Norðurs-
ins’. Minningarstaðurinn Reykholt
verður til skoðunar (memory place)
og ímyndir Snorra í nútímanum þar
sem netið og dægurvinsældir (po-
pular culture) hafa eytt landamær-
um.
Simon Halink er fæddur í Hol-
landi, þar sem hann lauk meistara-
námi í nútíma- og menningarsögu
við háskólann í Utrecht árið 2007.
Lokarannsókn hans fjallaði um
ímyndir af Íslandi í Þýskalandi Hitl-
ers, og upplifun þýskra nasista á Ís-
landi. Hann lærði íslensku og árið
2011 hóf hann doktorsnám við há-
skólann í Groningen í Norður Hol-
landi. Doktorsritgerð hans fjallar
um norræna goðafræði og þjóðern-
ishyggju á Íslandi frá u.þ.b. 1820
til 1918 þegar íslenska konungsrík-
ið var stofnað. Hann vinnur einn-
ig sem leiðsögumaður á Íslandi, og
hefur kennslu við Háskóla Íslands
haustið 2017.
Snorrastofa býður alla velkomna
að hlýða á áhugavert málefni, sem
tengist vel þeirri hátíð, sem fyrir-
huguð er á sumri komanda til að
fagna enn frekar hingaðkomu styttu
Gustav Vigeland af rithöfundinum
og höfðingjanum Snorra Sturlusyni.
Boðið verður til kaffiveitinga og um-
ræðna og aðgangseyrir er kr. 500.
-fréttatilkynning
Í gær tilkynnti Jón Atli Benedikts-
son, rektor Háskóla Íslands, um
niðurstöðu samkeppni um heiti nýs
húss erlendra tungumála við skól-
ann. Hlaut það nafnið „Veröld, hús
Vigdísar.“ Húsið verður svo vígt við
hátíðlega athöfn á morgun, sum-
ardaginn fyrsta. Efnt var til sam-
keppni um heiti hússins og bár-
ust hátt í 800 tillögur frá rúmlega
1.000 einstaklingum.
Sebastian Drude hefur verið ráð-
inn forstöðumaður Vigdísarstofn-
unar sem starfrækt verður í Ver-
öld, húsi Vigdísar. Vigdísarstofnun
verður starfrækt á grundvelli sam-
komulags milli íslenskra stjórn-
valda og UNESCO. Auk rann-
sókna- og vísindastarfs er hlutverk
Vigdísarstofnunar að vekja athygli
á mikilvægi tungumála fyrir menn-
ingu alls mannkyns og gildi þýð-
inga og tungumálakunnáttu fyrir
farsæl samskipti þjóða. Hlutverk
forstöðumanns er að annast dag-
legan rekstur stofnunarinnar auk
þess að efla rannsókna- og þróun-
arstarf hennar. mm
Passíusálmarnir lesnir í kirkjum landsins
Veröld hús Vígdísar vígt á morgun
Simon Halink doktorsnemi í sagn-
fræði.
Snorrastofa í Reykholti:
Fyrirlestrar í héraði:
„Er það Mímir við
sinn brunn?“
Sveinn Þór Elinbergsson les hér upp í Ólafsvíkurkirkju. Ljósm. þa.
Laugardaginn 8. apríl voru afhent
verðlaun og viðurkenningar þeim
nemendum sem náðu bestum árangri
í Stærðfræðikeppni grunnskólanna
sem fram fór í Fjölbrautaskóla Vest-
urlands 24. mars síðastliðinn. Mik-
ill fjöldi keppenda tók þátt að þessu
sinni. Peningaverðlaun voru að laun-
um fyrir efstu þrjú sætin í hverjum
bekk en tíu efstu nemendur fengu sér-
stök viðurkenningarskjöl. Stuðnings-
aðilar keppninnar voru Landsbank-
inn, Norðurál, Málning og Elkem.
Úrslit urðu þessi:
8. bekkur
1. Hekla María Arnardóttir –
Brekkubæjarskóli Akranesi
2. Helgi Rafn Bergþórsson –
Grundaskóli Akranesi
3. Björn Viktor Viktorsson –
Grundaskóli Akranesi
4-10. Aníta Ólafsdóttir – Gunnskóli
Snæfellsbæjar
4-10. Benedikt Gunnarsson - Gunn-
skóli Snæfellsbæjar
4-10. Dang Nguyen Hieu Ngan –
Brekkubæjarskóli Akranesi
4-10. Guðrún Karitas Guðmunds-
dóttir – Brekkubæjarskóli Akranesi
4-10. Salka Brynjarsdóttir – Brekku-
bæjarskóli Akranesi
4-10. Sólrún Lilja Finnbogadóttir –
Grundaskóli Akranesi
4-10. Þóra Kristín Ríkharðsdóttir –
Brekkubæjarskóli Akranesi
9. bekkur
1. Kristinn Jökull Kristinsson –
Grunnskóli Snæfellsbæjar
2. Marinó Þór Pálmason – Grunn-
skólinn í Borgarnesi
3. Ragnheiður Helga Sigurgeirs-
dóttir – Grundaskóli Akranesi
4-10. Arnar Már Karlsson –
Grundaskóli Akranesi
4-10. Aron Kristjánsson – Brekku-
bæjarskóli Akranesi
4-10. Erik Danielsson Schnell –
Brekkubæjarskóli Akranesi
4-10. Guðrún Karitas Hallgríms-
dóttir – Grunnskóli Borgarfjarðar
4-10. Harpa Rut Jónasdóttir –
Grunnskóli Borgarfjarðar
4-10. Jóna Margrét Guðmunds-
dóttir - Auðarskóli
4-10. Lovísa Lín Traustadóttir –
Grunnskóli Snæfellsbæjar
10. bekkur
1. Andri Snær Axelsson – Brekku-
bæjarskóli Akranesi
2. Fehima Líf Puresvic – Grunn-
skóli Snæfellsbæjar
3. Brynhildur Traustadóttir -
Brekkubæjarskóli Akranesi
4-10. Arnar Reyr Kristinsson –
Brekkubæjarskóli Akranesi
4-10. Bergsteinn Ásgeirsson -
Brekkubæjarskóli Akranesi
4-10. Davíð Örn Harðarson -
Brekkubæjarskóli Akranesi
4-10. Erika Rún Heiðarsdóttir –
Grunnskóli Snæfellsbæjar
4-10. Eyrún Sigþórsdóttir - Brekku-
bæjarskóli Akranesi
4-10. Sjöfn Sólveig Sigurbjörns-
dóttir – Grundaskóli Akranesi
4-10. Stefán Jóhann Brynjólfsson –
Grunnskóli Borgarfjarðar
mm/ Ljósm. fva.
Úrslit í stærðfræðikeppni grunnskólanna