Skessuhorn - 10.05.2017, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 20172
Dagana 15., 16. og 17. maí næstkom-
andi verða þrennir djasstónleikar haldn-
ir á Akranesi. Það er listafélagið Kalman
sem hefur umsjón með dagskránni. Djass-
unnendur geta kynnt sér málið nánar í
Skessuhorni vikunnar.
Norðaustan 13-23 m/sek á morgun,
fimmtudag. Hvassast með suðurströnd
landsins og rigning eða slydda með köfl-
um. Hiti víða 0 til 6 stig, en þurrt á suðvest-
urhorninu og hiti þar 5 til 10 stig. Austan
10-18 m/s á föstudag og rigning, einkum
á Suðausturlandi. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á
Vesturlandi. Suðaustlæg átt, 5-10 m/s og
skúrir á laugardag en þurrt að kalla norð-
an heiða. Hlýnar heldur í veðri. Á mánu-
dag er útlit fyrir hæga suðaustlæga átt
með rigningu sunnan til á landinu seinni
part dagsins. Hiti 4 til 12 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvernig finnst þér að salernisrúllan eigi
að snúa?“ Yfirgnæfandi meirihluti, eða
77%, sögðu „fremsta bréfið á að vísa frá
veggnum“. 9% sögðu „alveg sama“ og 5%
sögðu „fremsta bréfið á að vísa að veggn-
um“. Mesta athygli vekur þó að alls 10%
þátttakenda sögðust ekki nota salernis-
pappír. Verða það að teljast sláandi nið-
urstöður.
Í næstu viku er spurt:
„Gengur þú með reiðufé á þér?“
Skagahjónin Guðrún Sigríður Gísladóttir
og Guðmundur S. Jónsson munu í sumar
hjóla um 1.300 kílómetra leið á einni viku
til styrktar krabbameinsveikum börnum.
Þau eru Vestlendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Fyrir miðju á
samræmdum
prófum
NV-KJÖRD: Menntamála-
stofnun hefur birt niðurstöð-
ur úr samræmdum könnun-
arprófum sem lögð voru fyr-
ir nemendur í 9. og 10. bekk
grunnskóla hér á landi í mars-
mánuði. Prófin voru haldin í
íslensku, ensku og stærðfræði
og að jafnaði þreyttu um 7.500
nemendur hvert próf. Eft-
ir sem áður er niðurstöðum
skipt eftir kjördæmum. Suð-
vesturkjördæmi kemur best út
af öllum landssvæðum í öllum
samræmdum prófum 9. og 10.
bekkjar þegar normaldreifðar
einkunnir á kvarðanum 0-60
eru skoðaðar. Reykjavík kem-
ur næstbest út í öllum tilfell-
um. Hin kjördæmin eru aftur
á móti með svipaðan árangur
á prófunum. Norðvesturkjör-
dæmi kemur verst út í stærð-
fræði í 9. bekk en er annars á
svipuðu róli og Norðaustur-
kjördæmi og Suðurkjördæmi.
Einnig voru birtar tölur yfir
fjölda nemenda sem nýta sér
stuðningsúrræði eða er und-
anþeginn prófi í 9. og 10.
bekk. Flestir nemendur sem
nýttu sér stuðningsúrræði í
9. bekk komu úr Norðvestur-
kjördæmi, eða 36,9%.
-grþ
Baldur fjarri
góðu gamni
BREIÐAFJ: Breiðarfjarð-
arferjan Baldur siglir þessa
dagana milli Landeyjahafn-
ar og Vestmannaeyja. Þessa
leið mun Baldur sigla til 20.
maí næstkomandi, eða þang-
að til Herjólfur kemur aftur
til landsins, en skipið er þessa
dagana í slipp í Danmörku. Í
fjarveru Baldurs frá Breiða-
firðinum mun farþegaferjan
Særún sjá um ferðir út í Flatey.
Skv. upplýsingum frá Sæferð-
um eru áætlaðar fimm sigl-
ingar á viku út í Flatey; mánu-
daga og þriðjudaga, fimmtu-
daga og föstudaga og sunnu-
daga. Tvær ferðir eru áætlaðar
yfir að Brjánslæk, en á heima-
síðu Sæferða segir að ef fleiri
ferðir bætist við að Brjánslæk
verði þær auglýstar með fyr-
irvara. Særún getur ferjað um
120 manns í senn en er ekki
bílferja, líkt og Baldur.
-kgk
Þakklæti fyrir
vel heppnaða
afmælishátíð
BORGARNES: Byggðarráð
Borgarbyggðar lýsir ánægju
með vel heppnuð hátíðarhöld
sem fram fóru laugardaginn
29. apríl í tilefni 150 ára af-
mælis Borgarness. „Færir ráð-
ið afmælis- og ritnefnd Sögu
Borgarness bestu þakkir fyrir
vel unnin störf. Mikil þátttaka
íbúa í hátíðarhöldunum var
sérstaklega ánægjuleg,“ segir í
bókun byggðarráðs.
-mm
í 40 ÁR
Með álfinum
...til betra lífs
! Sauðburður er nú almennt að hefj-ast í sveitum landsins. Á fjárbúinu á
Brekku í Norðurárdal er aðeins byrj-
að en næstu daga hellist aðal törn-
in yfir. Þegar mæðgurnar Þórhild-
ur Þorsteinsdóttir og dóttir henn-
ar Erna Elvarsdóttir voru að hjálpa
kind í burði um helgina, vildi ærin
Blíð leggja gott eitt til málanna.
Lagði hún höku sína varlega á öxl
heimasætunnar, rétt eins og til að
gefa af sér hlýja strauma og hvetja
til dáða. Þórhildur greip símann og
náði augnablikinu á mynd. Blíð hef-
ur alla tíð verið mannelsk og ber
nafn með rentu. mm
Erna og Blíð
Boðuð hækkun ríkisstjórnarinnar
á virðisaukaskatti í gistiþjónustu á
næsta ári úr 11 í 24% er þegar far-
in að hafa mikil áhrif á fjárfesting-
ar í greininni. Fjárfestar sem höfðu
í undirbúningi hótelbyggingu á
Akranesi hafa nú dregið til baka
áætlanir sínar. Þetta upplýsir Egg-
ert Herbertsson framkvæmdastjóri
sem rekur Stay-Akranes, gisti-
þjónustu á þremur stöðum á Akra-
nesi. Viðræður höfðu staðið yfir
við hann um að taka að sér rekst-
ur hins nýja hótels. „Þessir fjárfest-
ar eru einfaldlega hættir við sök-
um fyrirhugaðrar hækkunar ríkis-
stjórnarinnar á virðisaukaskatti,“
segir Eggert.
Hann segir stöðu ferðaþjónust-
unnar á ótrúlegum stað og í raun
óskiljanlegum. „Þegar saman fer
118% hækkun á virðisaukaskatti,
þreföldun á gistináttagjaldi, fjög-
urra milljarða króna hækkun á
bílaleigur í formi aukinna vöru-
gjalda, þá hljóta menn að fara að
endurskoða áform um uppbygg-
ingu, ekki síst þegar 20-35% styrk-
ing krónunnar skekkir samkeppn-
isstöðuna íslenskrar ferðaþjónustu
gagnvart helstu viðskiptalöndum
okkar. Hér býðst fólki og fyrirtækj-
um lán gegn hæstu vöxtum í þró-
uðum ríkjum og mikil hækkun inn-
lends kostnaðar er einfaldlega að
höggva of nærri rekstri fyrirtækja
í þessari ungu atvinnugrein. Eitt-
hvað verður því undan að láta,“
segir Eggert.
Sjálfur segir Eggert að vel gangi
hjá þeim í Stay-Akranes þrátt fyr-
ir allar þær breytingar sem nefnd-
ar hafa verið í rekstrarumhverfi
ferðaþjónustunnar og óhagstæð
ytri skilyrði. „Við erum með lít-
inn rekstur og hóflega yfirbygg-
ingu. En hins vegar verður ekki um
stækkun að ræða, a.m.k. ekki í bili,
sem er synd því gaman hefði verið
að reyna að taka skurk í uppbygg-
ingu á Akranesi nú þegar við sjáum
fyrir okkur tækifæri t.d. varðandi
nýjar ferjusiglingar og annað slíkt,“
segir Eggert Herbertsson. mm
Fjárfestar hætta við
hótelbyggingu á Akranesi
Hjónin Eggert Herbertsson og Ingibjörg Valdimarsdóttir reka Stay-Akranes. Hér
eru þau á Mannamóti ferðaþjónustuaðila í janúar á þessu ári. Ljósm. kgk.
Nú í sumar mun frístundamið-
stöðin Þorpið á Akranesi sjá um
framkvæmd leikjanámskeiða fyr-
ir börn á aldrinum 6-10 ára (f.
2007-2011). Skátafélag Akraness
hefur sinnt þessu verkefni um ára-
bil en síðastliðið sumar, þegar
þriggja ára samningur við Akra-
neskaupstað rann út, lýsti félagið
því yfir að ekki væri áhugi að svo
stöddu að endurnýja samninginn.
Skóla- og frístundaráð Akranes-
kaupstaðar fól verkefnastjóra, yf-
irmanni félgasmiðstöðvarinnar
Þorpsins, að leggja fram tillögur
að fyrirkomulagi sumar- og leikj-
anámskeiða og í framhaldi af því
var Þorpinu falið verkefnið.
Undirbúningur fyrir sumarnám-
skeiðin er kominn á fullt. Boð-
ið verður upp á vikunámskeið á
tímabilinu 6. júní – 18. ágúst, alls
9 vikur. Þó verður gert hlé frá 24.
júlí - 4. ágúst. Eins og undanfarin
ár mun Þorpið einnig bjóða upp á
sumarnámskeið í júnímánuði fyr-
ir börn 10-12 ára (f. 2004-2006).
Allar nánari upplýsingar um leikj-
anámskeiðin og skráningu verða
birtar á heimasíðu Akraneskaup-
staðar.
mm
Þorpið annast leikjanámskeið á Akranesi í sumar
Mynd úr safni
Skessuhorns frá því
skátarnir sáu um leikja-
námskeiðin. Flestir á
myndinni eru nú vaxnir
úr grasi, enda myndin
frá því 2009.