Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2017, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 10.05.2017, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 201728 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Undanfarna daga hef ég reynt að átta mig á neikvæðum umsögn- um um leiðina Þórustaðir-Hall- steinsnes sem Vegagerðin velur til lagningar vegar um Gufudalssveit. Leiðin er búin að vera á svæðis- skipulagi Reykhólahrepps í tæp 20 á en á aðalskipulagi frá árinu 2009. Þar var tekið fram að veglína yrði ákveðin af Vegagerðinni enda var vegamálastjóri Snæbjörn Jónsson með í ráðum. Skipulagsstofnun neitaði að samþykkja aðalskipulag- ið sem Svandís Svavarsdóttir sam- þykkti. Það var með ótrúlegum við- hengiskláfa sem ég tel orka tvímælis að standist lög. Sveitarfélagið mátti t.d. ekkert gera án þess að borið væri undir Skipulagsstofnun. Þverun Gilsfjarðar var góð framkvæmd Það sem einstaklingar segja um skaðsemi vegarins er yfirleitt raka- laus þvættingur og því ekki til um- ræðu. En þegar skipulagsstjórinn rökstyður neikvæða afstöðu sína þá blöskrar manni. Nú er sjón- um beint að lífríki í fjörum og sjó og allt talið í voða. Athugið setlög- in, sandur og leir í fjörum, hvaðan eru þau komin? Á hverju vori vaxa árnar og rífa niður mold og aur og bera til sjávar. Síðan myndast set- lög sem næra lífríkið. Það er fárán- legt að halda að grugg sem verð- ur til við framkvæmdir tímabund- ið valdi einhverjum spjöllum á líf- ríki fjarðarins. Þegar Gilsfjörður var þveraður heyrðust ramakvein. Örn og rauðbrystingar taldir í stór- hættu. Rannsóknir nárrúrufræðings fyrir og eftir þverun sýna m.a. að á meðan framkvæmdir stóðu og eft- ir þær komur ernir upp mun fleiri ungum en áður bæði í Gilsfirði og Króksfjarðarnesi. Rauðbrystingar á nálægum svæðum hafa aldrei verið fleiri en eftir þverun. Allt tal um að þverun Gilsfjarðar sé umhverfisslys er órökstutt. Þær breytingar sem orðið hafa á náttúrunni eru flest- ar til bóta. Margfalt fleiri ferkíló- metrar lands þorna nú á fjöru utan vegar en fóru undir sjó innan vegar. Utan vegar og á garðinum þar sem áður var sjór vex nú þang. Hraunin á Skálanesi og vegurinn inn Kolla- fjörð fer víða með fjörum og fell- ur vel að landi og sjó. Klettsháls er veðravondur farartálmi. Gróð- ur og kjarr í Skálmardal og Vatt- ardal eru vaxin upp á vegarbrún. Vegurinn yfir Mjóafjörð og Kjálka- fjörð er til fyrirmyndar og í fjörum í sama verndarflokki og Þ-H leið sem Vegagerðin vill fara í Gufu- dalssveit. Sannleikanum hagrætt Afstaða Skipulagsstofnunar er stór- furðuleg. Ásdís Hlökk, forstjóri Skipulagsstofnunar, var í viðtali á Rás 1 skömmu fyri páska. Hún full- yrti að dómur Hæstaréttar bann- aði lagningu vegar eftir Þ-H leið- inni. Þarna er sannleikanum hag- rætt, samkvæmt öllum gögnum Vegagerðarinnar er fullyrt að Jón- ína Bjartmarz hafi ekki mátt nota (skv. dómnum) orðin „meira um- ferðaröryggi“ á vegi á láglendi. Í sama viðtali fullyrðir Ásdís Hlökk að Reykhólahreppur þurfi að gera og auglýsa nýtt skipulag sem tæki a.m.k. sex mánuði. Svona stjórn- sýsla á engan rétt á sér og er ein- göngu ætluð til þess að tefja og koma í veg fyrir framkvæmd- ir. Þarna er lítið hugsað um skóla- börnin, fluningabíla og fólkið sem sækir vinnu til Reykhóla og fer um erfiða hálsa daglega. Þau bíða eftir mannsæmandi vegi. Vegagerðin hefur ákveðið að hanna allar þrjár brýr yfir firð- ina 20-30 metra lengri en áður var áformað. Brúarop verða stærri, straumur minni og setlagarof því hverfandi lítið. Veglínan á Þ-H leið er gjörólík B leið. Reynt er að fylgja sveitavega- slóðum að Gröf og farið yfir melinn um 100 m frá forna bæjarstæðinu. Síðan eftir gróðursettu klettabelti á sveitavegslóða sem liggur að sumar- húsi eiganda Teigsskógar. Farið er yfir land Teigsskógar rétt neðan við símalínu á landamerkjum við Hall- steinsnes, þaðan eftir gróðurlitlum klettum niður og út yfir Greni- trésnes. Þaðan farið um klettavoga að vegi sem þverar Djúpafjörð. Engar efnisnámur verða á Þ-H leið út að Hallsteinsnesi. Ég vil spyrja hvaða fornminjar eru í hættu á þeirri leið sem ég hef nú rekið og er kölluð Þ-H leið sem merkir Þóris- staðir-Hallssteinsnes? Hafa beðið eftir þessum vegi Ég á ekki von á öðru en Vegagerð- inni takist að hanna og leggja vegi og brýr þannig að sómi verði að. Þeir sem eru hræddir um annað ættu að fá sér bíltúr vestur í Flóka- lund og taka vel eftir hvað vegir eru vel hannaðir og frágangur til fyr- irmyndar. Eigendur Flókalundar myndu taka vel á móti ykkur. Þau hafa beðið eftir þessum vegi í ára- tugi eins og fjölmagir aðrir á sunn- anverðum Vestfjörðum. Nú lang- ar mig að segja frá því hvað fólkið í minni gömlu Gufsu er að bauka. Fjárfjöldinn er mín ágiskun og ekki nákvæmur. Fólkið, mest þriðja kyn- slóð frá því við bjuggum í Gufudal, býr við sömu vegi frá 1953 en þjón- ustan er betri. Við vorum lokuð inni eins og rakkar í búri frá hausti til vors. Flug og sjóferðir björguðu málunum. Á Skálanesi búa fullorðin hjón, konan sækir vinnu á Reykhóla með sauðfjárbúi með um 200 kindur. Í Gufudal búa hjón með fjögur börn, maðurinn fer til vinnu á Reykhóla í Þörungaverksmiðjuna, ásamt fjárbúi sem telur 400-450 kindur. Í Fremri Gufudal búa þrjár fjölskyld- ur, eldri hjón sem eru oftast með börn í fóstri fyrir Reykjavíkurborg og sinnir maðurinn þar eftirliti og snjómokstri á Kletthálsi. Eiga þessi hjón tvær dætur sem þarna búa með fjölskyldum sínum. Önnur fjöl- skyldan er með þrjú börn og stund- ar eiginmaðurinn tamningar en eig- inkonan starfar við félagsmál unga fólksins í sveitarfélaginu. Hin fjöl- skyldan er með eitt barn og keyr- ir maðurinn flutningabíl, Tálkna- fjörður - Reykjavík. Öll reka þau svo félagsbú með sauðfé sem telur 800-1000 kindur. Veiðfélag er um Gufudalsá og á það 100 fermetra veiðihús. Áin er leigð stangveiði- félagi. Í Djúpadal búa hjón með tvö börn. Maðurinn sér um snjó- mokstur og hálkuvarnir á Hjalla og Ódrjúgshálsi. Þar er heitt vatn og sundlaug ásamt ferðaþjónustu, sauðfé er 400-450. Skólabíll sækir börnin bæði í leik- og grunnskóla. Bílstjórinn er traustur og gætinn, snarræði hans forðaði a.m.k. einu sinni að stórslys yrði, þegar vind- hviða feykti bílnum út af í hálku og roki á hættustað. Ekkert fuglalíf í hættu Allt tal um hættu fyrir örn er órök- stutt komi til vegagerðar. Í fyrsta lagi hefur örn ekki orpið á svæðinu í 6-8 ár. Kristinn Haukur merkti þá unga í Gróuneshólma. Ég man ekki til þess að nokkurn tímann hafi örn orpið á Hallsteinsnesi. Vegalengdir frá veglínu eru rúmur einn km að gamla hreiðurstæðinu en um hálf- ur km að hólmanum. Mesti skað- valdur fyrir allt fuglalíf er þegar Kristinn Haukur kemur á flugvél í lágflugi í 10-20 hæð, æðarkollur fljúga í ofboði út á á sjó og svart- bakur notar tækifærið og rífur upp æðarkolluhreiðrin (Heimild: æðar- bændur). Sums staðar gengið vel Nefna má dæmi um vegagerð þar sem vel hefur gengið. Berum sam- an tvær leiðir: Eiði, Mjóifjörður, Kjálkafjörður og Kinnarstaðir – Kraká. Báðar leiðirnar eru á náttúr- minjaskrá og lög um vernd Breið- arfjarðar gilda um báða veghlut- ana. Umhverfismat og undirbún- ingur fyrir vestan tók líklega jafn- margar vikur og árin hér að aust- anverðu. Orsökin er fyrst og fremst á ábyrgð þeirra sem eiga að stjórna og greiða fljótt og vel úr málunum eins og gerðist fyrir vestan. Þar á líklega hlut að máli sveitarfélagið Vesturbyggð. Gagnrýni á D2 leið Þorskafjörður er þveraður rétt utan við raflínu og óþarfi að skerða tún- in á Þórisstöðum. Þau eru nýtt til beitar og heyskapar að sumri, það eru bændur frá Djúpadal að nýta jörðina. Þar sem jarðgöng eru áformuð virðist margt benda til að þarna sé móberg. En niður við sjó er hent- ugt berg. Basaltlög sem eru 25-35 m að þykkt. Í mýrarlandi verða um- talsverðar breytingar og sker hár vegur og há brú sig úr í þessu fal- lega landi. En mér líst illa á sneiðinginn og ég hef áður gert alvarlegar at- hugasemdir og þær eru að engu hafðar. Talsverður langhalli er á sneiðingnum. Þar þarf því hálku- varnir. Sprengja verður fyrir veg- inum alla leiðina, líklega 1-2 kíló- metra að lengd. Eftir að vinnu lík- ur verður hátt berg að ofan tugir metra að hæð, fyrir neðan verður urð og grjót. Berjalautir og birki- kjarr hverfur. Þetta er lang snjóþyngsta leiðin sem lögð hefur verið til. Til dæm- is kom þarna úr hlíðinni stórt flóð í janúar 1995 (Grund). Einn eða tveir rafstaurar brotnuðu, fólkið í Gufudal varð að hýrast í kulda og myrkri á aðra viku. Óhemju magn af efni þarf í háls- gilið. Farið er með veginn í gegn- um birkikjarr frá efst á Ódrjúgs- hálsinum að Gufufirði. Þar er farið í jaðri Hjálparvakar yfir miðjan fjörð- inn þar sem lífríki er einna mest. Í landi Hofsstaða er ekki verið að víla fyrir sér að skemma sem mest fyrir bændum. Landið er skáskorið, beiti- land og tún. Jarðeigendur í Gufudal í samráði við eigendur Hofsstaða nytja landið til beitar og sláttar. Er svo komið að Melanesi þar sem veg- ur verður byggður upp að slitlagi utan við Kraká. Að lokum Ég tek undir með Einari Kristni ,frá- farandi alþingismanni, sem sagði: „Þetta mál er löngu hætt að snúast um náttúrvernd og hefur aldrei gert. Þetta er meinbægni (illgirni)“. Ég fullyrði að stjórnsýsla skipu- lagsmála tilheyrir nú þeim flokki með neikvæða afstöðu til Þ-H leið- ar. Það er eins og Ásdís Hlökk hjá Skipulagsstofnun sé að vinna fyrir andstæðinga Þ-H leiðar, a.m.k. frá árinu 2006 þegar Skipulagsstofnun neitaði að samþykkja aðalskipulag- ið. Það er bagalegt. Fólkið á sunn- anverðum Vestfjörðum þarf veg um Gufudalssveit og þótt fyrr hefði ver- ið. Kristinn Bergsveinsson. Pennagrein Frá Kristni í Gufudal: Um vegagerð á Þ-H leið í Gufudalssveit TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR GARÐAÚÐUN REYNIS SIG SÍMI: 899-0304

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.